Morgunblaðið - 25.07.1999, Page 10

Morgunblaðið - 25.07.1999, Page 10
•Huttar Tvíkynja hryggleys- ingjar, þekktir fyrir skipulagða glæpa- starfsemi og ofát. Aðalheimkynni þeirra er Nal Hutta og þeir ráða lögum og lofum í nær- liggjandi sólkerfum •Ljóshraðall Óravegalengdirnar milli sólkerfanna voru óyfirstíganleg samgönguhindrun þar til Ijóshraðallinn kom til sögunnar. Skip með Ijóshraðal og siglingatölvu eða stjarnvélmenni getur "stokkið" yfir í aðra vídd, hágeim og notað ormagöng til að ferðast milli staða. •Helstirnið Hið endalega vopn Keisarans var 120 kílometrar ( þvermál, á stærð við fylgitungl. Hannað með það fyrir augum að kveða niður með hörku óánaegjuraddir lýðveldis- sinna í eitt skipti fyrir öll. Hönnun- argalli olli því að Logi Geimgengill gat skoti tundurskeyti inn að mið- læga kjarnaofninum og sprengt stöðina í heilu lagi. •Twi'lek Byggja Ryloth. Eru með tvo fálmara á höfðinu, sem þeir geta notað til samskipta sín á milli. •Malastar Þríeygðir íbúar Malastare eru slyngir í stjórnmálum. •Fálkinn Flutningaskip smyglararns Han Solo. Ber lítið yfir sér en er útbúið nýjustu og ólöglegustu tækni sem völ er á. Solo vann skipið af Lando Calrissian í fjárhættuspili. Kórusant •Yavin IV Ævaforn musteri fyrstu íbúa þessa tungls urðu seinna bækistöðvar uppreisnarmanna. Fyrsti stórsigur uppreisnarmanna gegn keisara- veldinu varð hér þegar fyrsta Helstirninu var eytt. •Alderaan Perla stjörnukerfisins. Náttúruparadís þar sem íbúar lifðu í sátt við umhverfi sitt. Fyrsta alvöru skotmark Helstirnisins. Elsta byggða ból stjörnukerfisins. Allt yfirborðið er þakið mann- virkjum, í raun ein stór þorg. Hásæti Lýðveldisins frá stofnun þess þar til Keisaraveldið tók yfir stjörnukerfið. Höfuðstöðvar Jedi-reglunnar áður en hún var útmáð. •Rodians Grænir á hörund með fjölskipt augu. Eru miklir veiði- menn og eftirsóttir mannaveiðarar. Byggja plánetuna Rodia í Tyrius- sólkerfinu. •Ewoks Lágvaxnir, ótæknivæddir frumbyggjar tungla Endor. Krúttlegir í útliti en miklir stríðsgarpar. •Geislavopn Geislavopn skjóta samþjappaðri Ijósorku og fer kraftur geislans eftir stærð orkuhleðslunnar í vopninu. Á flestum geislabyssum er hægt að stilla á vægan geisla sem einungis rotar skotmarkið. Vopn sem eru um borð í farartækjum og geimskipum geta haft eigin orkustöð og miðunartölvur. •Kashykk Heimaslóðir Vákanna, þar á meðal Chewbacca (Loðinn). •Bespin Risahnöttur samsettur úr mörgum lögum af mismunandi gastegundum Svífandi gasnámur, eins og Skýjaborg, vinna hið verðmæta tibanagas úr efri lögum hnattarins. Lando Calrissian var eigandi Skýjaborgar áður en hann gekk í lið með uppreisnarmönnum •Jawas llþefjandi skran- safnarar með gló- andi augu. Ferðast um eyðimerkur Tatúín á risa beltis- drekum og safna ónýtum tækja- búnaði sem þeir gera við og selja. •Mon Calamari Friðelskandi tegund sem býr í fljótandi borgum á höfum Mon Calamari. Eru miklir geimskipasmiðir. Hutt svæði •Corellia Eitt af elstu byggðu sólkerfunum. Fæðingarstaður Han Solo. •Fráhrindari Farartæki sem er útbúið fráhrindara getur svifið í, því sem virðist vera, lausu lofti. Orkusvið fráhrindarans "skyggir"á þann hluta adráttarafls plánetu sem verkar á farartækið. Svifhæð fer eftir krafti fráhrindarans og þyngdar tæksins. Fráhrindarar virka ekki úti í geimnum, en eru ómissandi hluti lendingarbúnaðar geimskipa. •X-vængja þessi fjölhæfa orrustuflaug var lykillinn að velgengni uppreisnarmanna. Hún ber tundurskeyti, geislavopn, stjarnvélmenni, Ijóshraðall og henni er flogið af glæfralegustu flugmönnum stjörnukerfisins. •Tungl Endor Eitt af tunglum Endor er skógi vaxið og byggt af frumstæðum verum. Seinna Helstirnið var byggt í skjóli tunglsins og var ekki fullklárað þegar uppreisnarmenn sprengdu það. Innfæddir Ewoks gegndu lykilhlut- verki i bardaganum á jörðu niðri. •Tatúín Strjálbýl, þurr og hrjóstrug. Æskustöðvar Loga Geimgengils. •Orrustuvélmenni Ódýrt geislabyssufóður. Nýtast best í miklu magni, en verður að stjórna frá móðurtölvu. •Hoth Óbyggð ísveröld. Tímabundið aðsetur uppreisnarmanna eftir Yavin IV. Þeir voru síðan raktir héðan burt af flota Veldsisins. •Geislasverð Aðalsmerki Jedanna, geislasverð, gefa frá sér meterslangann orkugeisla sem getur skorið í gegnum allt nema geisla frá öðru sverði. Jedar nota aðallega geislasverð í vörn, en eru líka þjálfaðir í að berjast hver við annan. •Dagobah Óbyggður frumskógarheimur með fjölskrúðugu dýralífi. Aðsetur Yoda meðan hann fór huldu höfði, allt til dauðadags. Hann þjálfaði Loga sem Jedi á fenjasvæðinu. •Orkuvélmenni Ódýrar og færanlegar orkustöðvar. Stundum kölluð Gonk-vélmenni vegna hljóðsins sem þau gefa frá sér. Eru með greind á við appelsínur. •Helstirnið 2 Fyrst teikningarnar voru til, því ekki byggja annað? Sú sæla entist ekki lengi því uppresinar- menn léku svipaðan leik og sprengdu þetta líka. •TIE-orrustufiaug Fjöldaframleidd í gifurlegu magni fyrir flota keisarans. Öllum útbúnað nema þeim bráðnauðsynlegasta sleppt. Fyrir vikið hraðfleyg og mjög lipur, en þarf á móðurskipi eða bækistöð að halda. •Samskipta- vélmenni Fæst vélmenni tala tungumál sem Kfrænar verur skilja og samskipti milli þeirra sjálfra ganga ekki alltaf snuðrulaust. Þá koma til skjalana samskiptavél- menni, sem kunna allt að sex milljónir sam- skiptaforma. •Könnunar- vélmenni Vélmenni sem búa yfir fráhrindara, og geta því svifið, eru mjög nytsam- leg við upplýsingaöflun. Fjöldi nema og mæli- tækja fer eftir stærð, en stærstu vólmennin geta starfað sjálfstætt mánuðum saman. •Bryndrekar Tilkomumikil liðsflutningstæki, sem komast yfir nánast hvaða landsslag sem er. Meira hönnuð til að vekja hræðslu hjá andstæðingnum en sem alvöru bardagatæki. •Stjörnuspillir Stolt flota Keisarans, er 1600 metrar á lengd og stútfullt af geislafallbyssum, orrustu- flaugum, landgönguliði, ferjum, bryndrekum og fleiru gagnlegu. Skyni gæddar tegundir skipta þúsundum í stjörnukerfinu. Eftir því sem utar dregur eru sólkerfin strjábýlari og íbúarnír vanþróaðri. Flestar tæknivæddar tegundir áttu fulltrúa á þingi Lýðveldisins áður en keisarinn lagði það niður. Dantoofoe Ord Mantell ion Calamari Kessel laboo Vélmenni af öllum stærðum og gerðum eru í notkun ut um allt stjörnukerfið. Flest byggð sólkerfi eru liað vélmennum, sern sjá um ýmis störf á ölluni sviðum sainfélagsins. Ekki cru þau öll mennsk í útliti og sum eru mjög sórliæfð. Gerfigreind þeirra fer eftir starfssviði Mátturinn er kraftur sem tengir saman allar lifandi verur. Fáar skyni gæddar verur finna fyrir mættinum og enn færri geta notað hann. Jedar eru ofurnæmir einstaklingar af ýinsum tegundum sem hafa verið þjálfaðir í að beisla Máttinn. Þeir sem beita Mættinnum til árása eiga á hættu að freystast af myrku hlið Máttarins. •Vákar Tveir metrar á hæð, Æ? kafloðnir, firnasterkir og langlífir. Heima- pláneta þeirra er Kashykk og hátækni- j væddar borgir þeirra 1 eru byggðar í þúsund ' metra háum risatrjám. •Stjarnvélmenni W§ \ %s Flókin geimsiglinga- fræði og viðhald á skipum á flugi er n , f'i þeirra fag, en færni þeirra nýtist l(ka á jörðu niðri. S?-) - 7 s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.