Morgunblaðið - 25.07.1999, Page 12

Morgunblaðið - 25.07.1999, Page 12
- PERSONUR I |textl-<Jón Björgvln Stefánsson) STJORNUSTRIÐINU uppreisnin Logi Geimgenill (Luke Skywalker): Alinn upp á Tatooine hjá frændfólki sínu Owen og Beru Lars. Logi ásamt Obi-Wan, Han Solo og Chewbacca bjarga Leiu prinsessu og koma teikningunum til Uppreisn- arinnar þar sem Logi slæst í lið með þeim í baráttunni gegn keisaranum, og eyðir svo Helstirninu með aðstoð máttarins. Logi hjálpar Uppreisninni að fella harðstjórn Keisarans og berst þá í annað skiptið við Svarthöfða, og sigrar hann í orrustunni við Endor. Þar leið heimsveldi Keisarans undir lok og nýtt lýðveldi var stofnað. Logi hólt svo áfram að byggja upp sveitir jedi-riddara sem munu vernda þjóna nýja lýðveldisins í vetrabrautinni. Leia prinsessa: Þingmaður og prinsessa frá plánet- unni Alderaan. Hún tók þátt í mörgum hættulegustu ferðum Uppreisnarinnar. Eftir orrustuna við Yavin þegar Helstirnið er sprengt upp verður Leia leiðtogi Uppreisnarinnar. Leia stjórnar og skipuleggur flótta Uppreisnarinnar frá ísplánetunni Hoth og tekur þátt ( að bjarga Han Solo frá Jabba the Hutt. Eftir eyðileggingu Alderaan verða Han, Chewbacca og Logi hin nýja fjölskylda Leiu. Han Solo: Þekktur smygglari og fjárhættuspilari áður en hann gekk í lið með uppreisninni. Sem ungur maðurfrá Corellian lærði hann hjá flota Keisarans en var rekinn þaðan þegar hann bjargaði Váki að nafni Chewbacca. I skuld við Jabba The Hutt er hann eltur af hausaveiðurum og með heri Keisarans á eftir sér. Eftir stutta rimmu við fiota Keisarans við Hoth endar Han I höndum Svarthöfða í Skýjaborginni þar sem Svarthöfði fryrstir hann og afhendir hausaveiðar- anum Boba Fett. Hann afturfer með hann rakleiðis til Jabba the Hutt. Han er svo bjargað frá Jabba the Hutt af félögum sfnum Logi, Leiu, Lando Dg Chewbacca. Þegar smiði hefst á seinna Helstirninu þá stjómar Han árásinni á varnarskjöldinn við Endor og eyðileggur þannig varnir flota Keisarans og gerir Uppreisninni fært að sigra flota Keisarans og eyðileggja seinna Helstirnið. R2-D2 & C-3PO: R2D2 er eins metra hátt vélmenni á þremur fótum sem tjáir sig með einföldum hljóðum og blfstri. R2 sér um að hjálpa flugmönnum með hin ýmsu verkefni allt frá flugkortum til bilana. C-3PO er samskiptavélmenni sem sér um að þýða hin mörgu tungumál og siði sem töluð eru i geimnum auk þess að reikna likur á hinum ýmsu hlutum. Þeir félagar ferðast vanalega saman og hafa komið við sögu i flestum ævintýrum uppreisn- arinnar. Þeirra mikilvægasta verkefni var þegar þeim var falið að skila teikningum Helstirnisins til uppreisnarmanna eftir að skip Leiu prinsessu fóll 1 hendur Keisarans. Yoda: Yoda er jedi-meistari sem hefur þjálfað jedi- riddara í um og yfir 800 ár. Obi-Wan Kenobi sem var gamall lærisveinn Yoda birtist Loga á Hoth og segir honum að fara til Dagobah þar mun hann hitta jedi- meistarann Yoda. Logi kemur til Dagobah (leit að miklum stríðsmanni en finnur litinn grænan karl. Logi kemst svo að því að þetta er jedi-meistarinn sem hann leitar að og biður Yoda um að þjálfa sig i að beita Mættinum sem hann og gerir. Ben (Obi-Wan) Kenobi: Gamall maður sem bjó á sömu plánetu og Luke. Af mörgum talinn sérvitringur en var i raun Jedi-riddari sem fylgdist með og verndaði Loga. Hann hjálpar Loga að komastfrá Tatooine eftir að Owen og Beru voru myrt af her Keisarans. Ásamt Luke, Han Solo, Chewbacca og vélmennunum tveim, bjarga þeir Leiu úr greipum Svarthöfða og Grand Moff Tarkin ( Helstirninu. Þar háði hann sinn slðasta bardaga við gamla lærisveininn sinn Svarthöfða og féll fyrir honum. Síðar birtist andi hans Loga á mikilvægum stundum, leiðbeinir og gefur góð ráð. Chewbacca: Þegar Han Solo bjargar honum úr þrældómi harðstjórnar keisarans endurgeldur Chewbacca honum greiðann með lífstíðar skuld. Eftir það verður Chewbacca aðstoðarflugmaður Han Solo og flugvirki í Fálkanum. I orrustunni á tunglinu við Endor spilar Chewbacca stóran þátt í sigri yfir her Keisarans með hjálp Ewok bjarnanna. Lando Calrissian: Gamall spilafélagi Han Solo en hann tapaði Fálkanum til Han Solo í spili er nefnist Sabacc. Skömmu síðar vann hann þó námuborg er nefnist Cloud City eða Skýjaborgin og titlaði sig þar sem Baron. Eftir að Lando fær herforingjastöðu hjá Uppreisninni á hann þátt í að sigra her Keisarans i eitt skipti fyrir öll og sprengir seinna Helstirnið I orrustunni við Endor. heimsveldið Svarthöfði (Darth Vader): Án efa óttaðasti maður stjörnukerfisins. Svarthöfði er holdgerfingur stefnu keisarans að ríkja með ótta. Svarthöfði hefur risið til metorða innan raða herja Keisarans og er hægri hönd hans. Án búningsins gæti Svarthöfði ekki lifað. Búningurinn og gríman hjálpa sundurtættum líkama Svarthöfða að virka á eins eðlilegan máta og hægt er. Engu að síður er Svarthöfði valdamikill og hættulegur. Palpatine keisari: Þingmaður i gamla lýðveldinu sem var bæði spilltur og útsmogin. Þegar hann náði stjórn á þingi Lýðveldisins kom illska hans í Ijós. Hann stofnaði nýtt heimsveldi, setti sjálfan sig sem keisara og með aðstoð Svarthöfða lét hann útrýma jedi-riddurunum. Hvernig hann varð meistari [ myrku hlið Máttarins er óvitað en talið er að hann hafi átt hlut í því að Anakin Skywalker snérist til mirku hliðar Máttarins og varð seinna Svarthöfði. Boba Fett: Sennilega þekktasta persóna myndanna miðað við hversu lítið hann er á skjánum. Boba Fett er í Mandalorian brynju, sem tilheyrði hópi bardagamanna í einræktunarstríðinu (clone wars). Brynja þessi hefur marga kosti fyrir hausaveiðara, auk margvíslegra vopna svo sem eldvörpu og sprengjuvörpu þá er hjálmurinn með skynjara af ýmsu tagi. Þeir nema bæði hjóð og hreyfingu auk þess sem sem hann getur séð 360° þegar hann er með hjálminn á sér. Boba Fett dettur ofan í Sarlacc skrímslið á Tattoine, en kemst úr því nokkrum árum seinna og er eini maðurinn sem vitað er um sem hefur lifað það af. Stormtroopers: Þeir eru lögreglan og herinn í heimsveldi Keisarans. Þeir eru algerlega hliðhollir keisaranum og ekki þýðir að reyna að múta þeim né snúa. Nokkrar útgáfur eru til af þessum hliðhollu mönnum Keisarans svo sem Snowtroopers og Scouttroopers en þeir eru notaðir í snjó og til eftirlitsferða. Fjöldi Stormtrooper eru yfir 2 billjarðar og eru þeir dreifðir um allt stjörnukerfið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.