Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
3RtoYguii|tihifeife
C
1999
FOSTUDAGUR 13. AGUST
BLAÐ
Odd hefur
augastað á
Guðmundi
GUÐMUNDUR Benediktsson, miðvallarleikmað-
ur KR, er undir smásjánni hjá norska úrvals-
deildarliðinu Odd Grenland. Liðið ætlaði upp-
haflega að senda menn til íslands til að fylgjast
með Guðmundi í leik með KR-liðinu gegn
Kilmarnock á Laugardalsvellinum í gærkvöldi.
Þegar ljóst var að leikurinn var sýndur beint á
Eurosport ákváðu forráðamenn liðsins að fylgj-
ast með Guðmundi í sjónvarpi og taka siðan
ákvörðun um framhaldið. Það getur því farið
svo að útsendarar liðsins verði á KR-vellinum á
sunnudaginn er KR mætir Grindavík.
KNATTSPYRNA
Marki fagnað
BJARKI Gunnlaugsson réttir
upp hendur og fagnar sigur-
marki Þórhalls Hinrikssonar,
sem liggur á vellinum eftir
að hafa skallað knöttinn í
netið hjá Kilmarnock á Laug-
ardalsvellinum í gærkvöldi,
1:0.
I Fóru illa... / B2
Ríkharður
með þrennu
RIKHARÐUR Daðason skoraði
þrennu er Viking frá Stafangri
lagði landsmeistara Andorra,
Principat, 7:0, í fyrri leik Iiðanna
í forkeppni Evrópukeppni félags-
liða í gærkvöldi. Leikurinn fór
fram í Stafangri. Ríkharður
skoraði fyrsta mark sitt á 40.
mfnútu er hann kom Viking í
3:0 og síðan gerði hann sjötta
og sjöunda mark Iiðsins á 72. og
82. mfnútu. Auðun Helgason lék
einnig allan leikinn fyrir Viking
og átti náðugan dag í vörninni.
Egill Már Markússon dæmdi
leikinn og honum til aðstoðar
voru Pjetur Sigurðsson og Ari
Þórðarson.
Morgunblaðið/Ásdís
Eyjólfur fær
lof hjá ARD
MARK Eyjólfs Sverrissonar,
landsliðsmanns hjá Herthu
Berlin, gegn Dortinund í deild-
arbikarkeppninni í júlí var til-
nefnt sem eitt af flmm mörkum
júlímánaðar í Þýskalandi hjá
ARD-sjónvarpsrásinni. Eyjólf-
ur var mjög lofaður fyrir kraft
sinn og ósérhlífni, og sagður
geta leikið allar stöður á vellin-
um og vera einn dýrmætasti
leikmaður Berlínarliðsins.
Makedónía í
Kaplakrika
ÁKVEÐIÐ hefur verið að hinn
þýðingarmikli leikur Islands
og Makedóníu í undankeppni
Evrópukeppni landsliða í hand-
knattleik karla fari fram í
Kaplakrika í Hafnarfiðri
sunnudaginn 19. september kl.
20. „Krikinn" hefur verið
happavöllur landsliðsins í þýð-
ingarmiklum leikjum. Seinni
Ieikurinn fer fram í Skopje
sunnudaginn 26. september.
Það lið sem nær betri árangri í
þessum tveimur viðureignum
tryggir sér rétt til að taka þátt
í lokakeppni EM, sem fer fram
í Króatíu í janúar.
BLAK / ISLANDSMOT
KA og Þróttur Nes.
ekki með í 1. deild
Iiklar líkur eru til þess að lið-
um fækki um tvö í 1. deild
karla í blaki fyrir næsta vetur.
Þróttur, Neskaupstað, hyggst ekki
senda lið í 1. deild að öllu óbreyttu
en fjórir leikmenn hafa horfið úr
herbúðum liðsins. Þess í stað hefur
félagið tilkynnt þátttöku í 2. deild.
Sex leikmenn eru hættir hjá
blakliði KA og meiri líkur eru á að
ekkert meistaraflokkslið karla á
vegum félagsins verði með á veg-
um Blaksambandsins næsta vetur.
Ef bæði lið draga sig úr keppni
verða einungis þrjú lið eftir í 1.
deild karla: Stjarnan, Þróttur,
Reykjavík, og ÍS.
Gunnar Garðarsson, formaður
blakdeildar KA, sagði að þrír leik-
menn væru hættir og þrír hefðu
haldið til náms, tveir til Reykjavík-
ur og einn til Noregs. Hann sagði
að leikmannahópur liðsins hefði
ekki verið stór á síðasta tímabili,
9-10 manns, og ljóst að liðið mætti
ekki við því að missa svo marga
leikmenn.
„Við höfum velt því fyrir okkur
að fá til liðsins erlenda leikmenn
en ekki er víst að deildin ráði við
slíkt, að minnsta kosti hef ég efa-
semdir um það. Við getum ekki
fengið til okkar útlendinga jafn
auðveldlega og ÍS, sem var með
fjóra erlenda leikmenn á sínum
snærum er við mættum þeim í bik-
arúrslitaleik Blaksambandsins í
vor. Það hefur verið unnið gott
starf á vegum yngri flokka félags-
ins en það verður bið á að leik-
menn þessara flokka komist upp í
meistaraflokk. Ég segi meiri líkur
en minni á að við verðum ekki með
karlalið á íslandsmótinu næsta
vetur.“
Gunnar sagði að talsverðar deil-
ur væru innan Blaksambandsins
um starfsemi þess og Ijóst að til
tíðinda kunni að draga á ársþingi
þess, sem haldið verður í septem-
ber í Reykjavík. Stjórn sambands-
ins tók þá ákvörðun að greiða nið-
ur skuldir og það hefur bitnað á
kynningarstarfi sambandsins. Ég
hef stutt hugmyndir stjórnar sam-
bandsins en ljóst að það eru skipt-
ar skoðanir um þær.“
Elma Guðmundsdóttir, gjald-
keri blakdeildar Þróttar, Neskaup-
stað, sagði að öllu óbreyttu yrði
ekkert karlalið á vegum félagsins í
1. deild í vetur. Hún sagði að fjórir
leikmenn væru að fara frá félag-
inu, bæði af landi brott og til náms,
og því ákveðið að senda lið í 2.
deild. Hún sagði að blakstarf væri
að öðru leyti með miklum blóma í
bænum og liðið ætti marga efni-
lega leikmenn sem yrðu uppistað-
an í meistaraflokki félagsins að ári.
Að hennar mati væri starfsemi
blaksambandsins ekki sem skyldi
og hún vænti þess að málefni sam-
bandsins yi’ðu tekin til endurskoð-
unar í heild sinni og fólk valið til
starfa að útbreiðslu íþróttarinnar.
KNATTSPYRNA: HELGI SIGURÐSSON TIL GRÍSKA LIÐSINS PANATHINAIKOS / C3