Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
öttinn við Frederic Dindeleur.
esti
vítateiginn. Guðmundur sendi inn á
nær stönginni þar sem Þórhallur og
Bjarki komu askvaðandi með skoskan
varnarmann í eftirdragi. Þórhallur
skallaði fyrirgjöf Guðmundar af hörku
í markið. Skömmu fyrir markið áttu
leikmenn KR að fá vítaspyrnu varnar-
maður Kilmarnock varði skot Bjarka á
markteig með hendi.
Leikur KR-inga var í takt við lit
búninga liðsins á milli leikhlutanna
tveggja. Fyrri hálfleikur var góður þar
sem liðið sýndi oft prýðilegan leik og
að það væri mun betra en gestimir. Þá
stóð Bjarki Gunnlaugsson upp úr.
Hann var aðalmaðurinn í öllum sókn-
araðgerðunum og olli miklum usla
ásamt Guðmundi og eins var Sigþór
prýðilegur, en allur botn datt úr leik
hans í síðari hálfleik. Einar Þór byrj-
aði illa en sótti í sig veðrið eftir því
sem á hálfleikinn leið. Hann var hins
vegar einn af fáum KR-ingum sem
reyndi eitthvað að gera í síðari hálfleik
þegar leikmenn virtust vera orðnir
patt.
Eins og fyrr greinir er langt í frá að
skoska liðið hafi heillað þann er þessar
línur ritar. Ef þetta er með því skásta
sem skosk knattspyrna býður upp á þá
er hún ekki upp á marga fiska. Að
undanskildum markverðinum voru
leikmenn slakir.
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 C 3
KNATTSPYRNA
Helgi Sigurðsson á
leið til Grikklands
NORSKA úrvalsdeildarliðið Stabæk hefur samþykkt að selja
Helga Sigurðsson til gríska 1. deildar liðsins Panathinaikos.
Hugsanlegt kaupverð leikmannsins, sem er staddur í Grikklandi
til viðræðna við forráðamenn félagsins, er yfir 100 milljónir ísl.
króna. Helgi, sem er annar markahæsti leikmaður úrvalsdeildar-
innar, hefur vakið athygli norskra fjölmiðla að undanförnu og er
sagður hafa tekið knattspyrnuna þar í landi með áhlaupi. Jafn-
framt er farið fögrum orðum um frammistöðu annarra íslenskra
leikmanna i Noregi.
Tom Schjelvan, forráðamaður hjá
Stabæk, sagði erfitt að selja
Helga á miðju tímabili en tilboð
gríska liðsins hefði reynst það gott
að því varð ekki hafnað - samkomu-
lag hefði náðst á innan við 24
klukkutímum. Schjelvan sagði að
Helgi, sem er staddur í Grikklandi,
hefði að öllum líkindum leikið sinn
síðasta leik fyrir Stabæk en vildi
ekki ræða í smáatriðum kaup gríska
liðsins á íslendingnum fyrr en
Helgi hefði skrifað undir. Hann
staðfesti engu síður í samtali við
norska netmiðilinn Nettavisen að
hugsanlegt kaupverð væri yfir 100
miiljónir ísl. króna.
Helgi, sem er 25 ára, kom til
norska liðsins frá Fram sumarið
1997 en hann hafði það ár hætt hjá
þýska 3. deildar liðinu TB Berlín.
Hann skoraði fimm mörk í 14 leikj-
um á fyrsta ári hjá norska félaginu
en á næsta keppnistímabili var
hann meiddur um tíma og átti í erf-
iðleikum með að halda sæti sínu í
liðinu. Hann sló í gegn undir lok
tímabilsins 1998 er hann skoraði tvö
mörk er Stabæk vann Rosenborg,
3:1, í bikarúrslitaleik á Ulleval-leik-
vanginum í Qsló og varð því fýrstur
íslenskra knattspyrnumanna til
I Nettavisen segir að
hugsanlegt kaupverð
gríska liðsins
Panathinaikos á
Helga Sigurðssyni
sé yfir 100 milljónir
íslenskra króna
Valsmenn
senda
Curkovic
heim
VALSMENN hafa ákveðið að
senda króatiska leikmanninn
Davor Curkovic á ný til
Króatíu. Valsmenn bundu
vonir við komu leikmannsins
enda ferilskrá hans í atvinnu-
mennsku yfírgripsmikil, þar
sem félagslið eins og Veróna,
AC Mflan og Rauða Sfjarnan
voru nefnd til sögunnar.
Á heimasíðu knattspyrnu-
deildar Vals segir að við nán-
ari athugun hafí komið í ljós
að likamlegt þol leikmannsins
hafi ekki verið eins og best
varð á kosið og því ákveðið að
senda hann frá liðinu.
Leiftur
fékk skell
LEIFTUR tapaði 6:1 fyrir
Anderlecht í fyrri leik liðanna í
forkeppni Evrópukeppninnar sem
fram fór í Brussel í gær, staðan í
hálfleik var 3:1. Mark Leifturs var
sjálfsmark Belgans De Boeck á 26.
mínútu, en áður hafði Goor komið
Anderlecht yfir á 19. mínútu. Steinn
V. Gunnarsson skoraði í eigin mark á
40. mínútu og kom Anderlecht í 2:1
áður en Goor skoraði á ný, 3:1, einni
mínútu síðai’. Zetterberg, Baseggio
og Radzinski bættu síðan þremur
mörkum við fyrir Belgana á 53., 56.,
og 68. mínútu.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunh’
tókst ekki að ná í forsvarsmenn
Leifturs eftir leikinn.
þess að vinna bikartitil í Noregi.
Helgi hefur reynst iðinn við kolann
á þessu tímabOi og er þriðji marka-
hæsti leikmaður deildarinnar með
14 mörk, einu marki færra en Sig-
urd Rushfeldt, sem lék með Rosen-
borg en hefur nú verið seldur til
portúgalska liðsins Benfica, og
Heiðar Helguson, Lillestrpm. Segir
í norska dagblaðinu TA að Helgi
hafi átt góða möguleika á að verða
fyrsti erlendi leikmaður úrvals-
deildarinnar til þess að verða
markakóngur.
Úrvalsdeildin tekin
með áhlaupi
í TA er sagt að fyrir nærri þúsund
árum hafi norskir víkingar haldið til
Islands en nú streymi íslenskir fót-
boltamenn í víking til Noregs. Held-
ur blaðið því fram að Helgi og aðrir
íslenskir knattspymumenn hafi
tekið norsku úrvalsdeildina með
áhlaupi og er í því sambandi vitnað
til frammistöðu Rúnars Kristins-
sonar og Heiðars, Lillestrom, Rík-
harðs Daðasonar, Viking, Áma
Gauts Arasonar, Rosenborg,
Tryggva Guðmundssonar, Tromso,
og fleiri íslenskra leikmanna. Telur
blaðið það markvert að 270 þúsund
manna þjóð skuli hafi alið af sér jafn
marga atvinnumenn og heldur það
því fram að hvorki færri en fleiri en
50 íslenskir knattspymumenn hafi
haldið út til þess að freista gæfunn-
ar frá 1996.
Bárd Borgersen, leikmaður Odd
Grenland, er sagður hafa háð marga
hildi við íslenska framherja og hef-
ur frammistaða þeirra vakið aðdáun
hans. Borgersen segir Helga eitrað-
an framherja sem hafa verði góðar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
HELGI Sigurðsson, miðherjinn marksækni.
gætur á. „íslenskir leikmenn hafa
vakið aðdáun mína enda margir
þeirra sem hafa látið til sín taka í
Noregi," segir Borgersen.
Knut N. Kristiansen, fyrrverandi
framkvæmdastjóri úrvalsdeildar-
liðsins Brann, er ekki eins undrandi
á frammistöðu íslensku leikmann-
anna og telur það gott fyrir norska
knattspymu að fá fleiri slíka leik-
menn til Noregs. Kristiansen, sem
stjórnaði félaginu á sama tíma og
Bjami Sigurðsson, Ólafur og Teitur
Þórðarsynir, Ágúst Gylfason og
Birkir Kristinsson vom hjá því, seg-
ir að íslenskir leikmenn séu jákvæð-
ir og viljugir til þess að æfa mikið.
Jafnframt kemur fram í máli Kristi-
ansen að íslenskir leikmenn líti á
Noreg sem stökkpall til sterkari
liða í Evrópu. Helgi Sigurðsson er
því sammála í samtali við TA. Hann
segir íslenska leikmenn vana miklu
erfiði enda séu flestir þeirra í vinnu
á daginn og æfi síðan á kvöldin.
„Við æfum mikið og leggjum okkur
ætíð fram. Þannig er hinn íslenski
hugsunarháttur."
Graydon hrósar
Sigurði Ragnari
Sigurður Ragnar Eyjólfsson,
framherji enska 1. deildarliðs-
ins Walsall, fær mikið lof frá knatt-
spyrnustjóra liðsins eftir frækilega
framgöngu í sigri liðsins á
Plymouth Argyle í deildarbikar-
keppninni á þriðjudagskvöld.
Leiknum lyktaði með 4:l-sigri
Walsall og Sigurður Ragnar stal
senunni er hann kom inn á sem
varamaður á 80. mínútu og skoraði
tvö góð mörk.
Ray Graydon, stjóri Walsall, seg-
ir að mörkin tvö hafi komið sér
skemmtilega á óvart. Honum hafi
ekki þótt Sigurður sýna mikið á æf-
ingum undanfarið, en mörkin hafi
verið frábær og ekki sé hægt annað
en dást að því hve lunkinn fram-
herjinn sé við að koma sér í
marktækifæri.
Sigurður Ragnar gekk til liðs við
Walsall sl. haust og kom þá úr her-
búðum Skagamanna, en hann lék
einnig fyrstu leiki Akurnesinga í
efstu deild karla á þessari leiktíð og
skoraði eitt mark. Hann meiddist
hins vegar og fór því fyrr til
Walsall en til hafði staðið. Þar
gekkst hann undir aðgerð og virðist
hafa jafnað sig fyllilega nú. Sigurð-
ur Ragnai' er alinn upp í KR og lék
um skeið með liðinu í efstu deild, en
lék einnig með Víkingi og Þrótti áð-
ur en hann gekk til liðs við Skaga-
menn í fyrra.
Guðjón gaf
Eyjólfi frí
GUÐJÓN Þórðarson, lands-
liðsþjálfari í knattspyrnu,
varð í gær við ósk Eyjólfs
Sverrissonar - að fá frí frá
vináttuleik Islands og
Færeyja á miðvikudaginn
kemur í Þórshöfn. Álagið
er mikið á Eyjólfi og sam-
herjum hans hjá Herthu
Berlin þessa dagana. Liðið
lék Evrópuleik sl. miðviku-
dagskvöld, deildarleik
gegn Hansa Rostock á
morgun, aftur deildarleik
tveimur dögum eftir leik-
inn í Færeyjum og Evrópu-
leik 25. ágúst.
Helgi Kolviðsson, sem
leikur með þýska liðinu
Mainz, kemur í stað
Eyjólfs.
Rúnar jafnar
met Guðna
RÚNAR Kristinsson jafnar
landsleikjamet Guðna
Bergssonar í Þórshöfn,
leikur sinn 77. landsleik.
Ríkliarður Daðason leikur
sinn 25. landsleik, sem
tryggir honum gullúr. Aðr-
ir leikmenn sem Ieika í
Færeyjum eru Birkir Krist-
insson, Árni Gautur Ara-
son, Sigurður Jónsson,
Þórður Guðjónsson, Helgi
Sigurðsson, Lárus Orri Sig-
urðsson, Hermann Hreið-
arsson, Helgi Kolviðsson,
Brynjar Björn Gunnarsson,
Steinar Adolfsson, Auðun
Helgason, Pétur Hafliði
Marteinsson, Tryggvi Guð-
mundsson og Heiðar
Helguson.