Morgunblaðið - 25.08.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 25.08.1999, Síða 1
A L L R A TíTVTT^^TOI B L A Ð LANDSMANNA írrfimMíifeö 1999 MIDVIKUDAGUR 25. ÁGÚST BLAD Meistarar á sínu sviði.í gf mita Sigursælar Ijósrítunarvélar og faxtæki Mita er styrktaraóili Heimsmeistaramótsins í frjálsum íþróttum. i li Skníóící>uhuru»íiur FRJALSIÞROTTIR / HM I SEVILLA Annar Dani til liðs við Tindastól | FLEMMING Stie, 28 ára danskur framherji frá danska meistaraliðinu Skovbakken, er væntan- lega á leið til Tindastóls á Sauðárkróki. Stie, sem er tveir metrar á hæð, hefur átt í viðræðum við körfuknattleiksdeild Tindastóls í sumar og allt bendir til þess að hann komi hingað til lands. Tindastóll hafði áður samið við danska leik- manninn Sune Hendrik- sen, en hann lék einnig með Skovbakken, er varð danskur meistari í vor. Þá höfðu forráðamenn körfuknattleiksdeildar Tindastóls samið við bandarískan miðherja, Ry- an Williams, og Kristin Friðriksson, sem er bak- vörður, frá Skallagrími. Tveir til Grindavíkur KÖRFUKNATTLEIKSLIÐ Grindvíkinga hefur fengið tvo leikmenn fyrir keppni í úrvalsdeild í vetur. Alex- ander Ermolinskij gekk til liðs við félagið á mánu- dagskvöld. Hann lék áður og þjálfaði ÍA. Ermol- inskij, sem er 2,02 m á hæð, er þriðji leikmaður- inn sem kemur til Grind- víkinga úr röðum IA, hinir eru Dagur Þórisson og Bjarni Magnússon. Randy Bolden, banda- rískur bakvörður, hefur gert samning um að leika með Grindvíkingum í vet- ur. Hann er væntanlegur til landsins í dag. Bolden, sem er 1,87 m á hæð, lék áður með Texas Southern- háskólanum og hefur tví- vegis verið valinn leik- maður ársins í sinni há- skóladeild. Þá var hann eitt sinn 13. stigahæsti leikmaður í sinni deild. Hann lék í fyrra í Brasilíu. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Vonbrigðin leyna sér ekki hjá Jóni Arnari Magnússyni eftir að hann var úr leik í fyrstu grein tug- þrautarkeppninnar í Sevilla í gær. Tognun í nára felldi Jón Amar JÓN Arnar Magnússon hætti í gærmorgun keppni í tugþraut á heimsmeistaramótinu í Sevilla eftir fyrstu grein þrautarinnar, 100 metra hlaup. Um mitt hlaupið tognaði Jón Arnar í hægra nára og treysti sér ekki til þess að halda áfram og eiga á hættu að gera illt verra. Þetta er talsvert áfall fyrir Jón og þriðja tugþrautarkeppnin á árinu þar sem hann verður að hætta leik þá hæst hann stendur. Hann hefur ekki enn komist heill í gegn- um tugþrautarmót á árinu og hefur því engan árangur skráðan. Jón Arnar hafði alveg Ivar Benediktsson skrífar frá Sevilla náð sér af hnémeiðslum sem hrjáð hafa hann frá því síðla vetrar og taldi sig vera fullkomlega tilbúinn í slaginn þegar þrautin hófst. Reyndar hafði hann verið veikur nóttina fyrir keppnina, verið með uppköst og hita og af þeim ástæð- um lítið soiið. Þess vegna leitaði hann til læknis snemma í gær- morgun, áður en keppni hófst, og virtist hafa tekist með lyfjum að slá á veikindin. Að minnsta kosti sagði Jón Arnar í samtali við Morgunblaðið i gær að líklega væri ekki hægt að skrifa þessi óvæntu endalok sín í keppninni á reikning veikinda. „Þegar ég kom út á völl leið mér bara nokkuð vel,“ sagði Jón Arnar. Þar með hafa Islendingar lokið keppni á heimsmeistaramótinu í Sevilla en mótið stendur yfir fram á sunnudagskvöld. ■ Viðkvæmari.. ■ Litið á... / C4 / C4 gekk allt að mestu þrauta- laust hjá honum þar til í síð- ustu grein fyrri dags, 400 metra hlaupi. Þá varð hon- um það á að hlaupa yfir eða hlaupa á línunni sem skilur að hlaupabrautirnar. Við það var hann dæmdur úr leik og þrautin þar með far- in í vaskinn. Áfram hélt hann en þegar hann varð fyrir óhappi í stangarstökki á síðari degi slaufaði hann keppninni. Tveimur árum síðar, á HM í Aþenu, meiddist Jón á ökkla í hástökki, fjórðu grein þrautarinnar með þeim afleiðingum að hann varð að hætta keppni. Og nú, í Sevilla, heltist hann úr lestinni að loknu 100 metra hlaupi vegna tognunar í nára hægra megin. Rétt er að geta þess að Jón hljóp 100 metrana í gærmorgun á 10,94 sekúnd- um, en hann kenndi meins síns rétt eftir mitt hlaup, fram að því hafði hann átt í fullu tré við andstæðinga SEVILLABRÉF: OFT ER BETUR HEIMA SETIÐ EN AF STAÐ FARIÐ / C3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.