Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1999 ■ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER BLAÐ Meistarar á sínu sviði. jgf mita Sigursælar Ijósrítunarvélar og faxtæki Mita er styrktaraðili Heimsmeistaramótsins í frjálsum iþróttum. Skril&tctubúnadur KNATTSPYRNA ísinn brotinn og bik- arinn í höfri hjá KR Morgunblaðið/Golli KR-stúlkurnar fögnuðu meistaratitlinum í Garðabæ í gærkvöldi með að tollera Vöndu Sigurgeirsdóttur, þjálfara sinn. ÞAÐ tók KR-stúlkur tæpa klukkustund að finna leiðina að marki Stjörnustúlkna í Garðabænum í gærkvöldi en þá brotnaði líka ís- inn og eftir fjögur mörk á tuttugu mínútum voru úrslit ráðin - 4:0 sigur KR, sem tryggði þeim íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu þó að ein umferð sé eftir. Með drjúgan vind í bakið sóttu Vesturbæingar í Garðabænum en það var oft eins og KR-stúlkur teldu nóg að komast Stefán upp að markteig - Stefánsson framhaldið með skrifar mörkum yrði minna mál en þrátt fyrir mörg skot hittu fæst markið og María B. Ágústsdóttir markvörður sá um hitt. Svo var nú ekki og Stjömustúlkur lögðu sig allar fram bæði í vöm og sókn. Því fór svo að markalaust var í leikhléi en Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari KR, hefur eflaust látið í sér heyra í hálfleík því á fímmtu mínútu síðari hálfleiks braut Helena Ólafsdóttir ísinn fyrir KR. Stjörnustúlkur fengu ágætt færi til að jafna metin tíu mínútum síðar en Heiða Sigurbergsdóttir rétt missti af fyrirgjöf. Vesturbæingar voru komnir á skrið, Guðlaug Jónsdóttir bætti við öðru marki fyrir KR á 65. mínútu og öðra fjóram mínútum síðar en Helena innsiglaði sigurinn þegar 20 mínútur voru eftir. „Við stóðum í þeim fram í seinni hálfleik en þá var eins og við misst- um trúna á okkur sjálfar," sagði Auður Skúladóttir, þjálfari og leik- maður Stjörnunnar, eftir leikinn, en hún, María markvörður, Heiða, Elfa Björk Erlingsdóttir og Lovísa Sig- urjónsdóttir áttu ágætan leik. Ætla sér einnig bikarinn Pungu fargi var af Vöndu Sigur- geirsdóttur þjálfara létt. „Okkur gekk mjög illa í fyrri hálfleik og stelpumar gerðu ekki það sem fyrir þær var lagt en ég las duglega yfír þeim í hálfleik og sagði að það gengi ekki að tryggja sér titilinn með svona leik og að ég myndi ekki hika við að taka þær útaf sem myndu ekki standa sig,“ sagði Vanda. „Eg átti ekki von á að það myndi ganga svona illa að ná upp baráttu en þær mega eiga það, stelpumar, að þær rifu sig í gang eftir hlé. Við vissum að mikið þyrfti að ganga á til að titill- inn gengi okkur úr greipum og það vottaði fyrir kæraleysi, sem ég átti ekki von á, en það er alltaf léttara eftir að búið er að skora fyrsta mark- ið,“ bætti þjálfarinn við og hún fær möguleika á að vinna einnig bikar- keppnina því liðið leikur til úrslita við Breiðablik 12. september. „Ég býst við að bikarúrslitaleikurinn verði erfíður en vonandi verður hann skemmtilegur og Blikastúlkur sýndu það í sínum síðasta leik að þær munu alls ekki rétta okkur bikarinn." Steinar með brotna hnéskel „ÞAÐ er alltaf slæmt að missa menn úr leikmannahóp, sem er ekki stærri en sá hópur sem hefur tekið þátt í leikjum okkar í Evrópukeppninni,“ sagði Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu. Guðjón verður án Eyjólfs Sverrissonar og Steinars Adolfssonar, þegar landsliðið mætir Andorra á Laugardalsvellinum á laugardag og Ukraínu miðvikudaginn 8. september. Eyjólfur hefur verið skorinn upp við meiðslum í hné, Steinar verður frá keppni fram að áramótum þar sem hann braut hnéskel á æfingu hjá Kongsvingen í Noregi. Guðjón vonar að leikmannahópurinn verði ekki fyrir fleiri skakkaföllum, en Rúnar Kristinsson, Þórður Guðjónsson, Auðun Helgason og Pétur Hafliði Marteinsson hafa verið meiddir. Landsliðshópurinn kemur saman í dag og hefst þá undir- búningur fyrir Evrópuleikina. KNATTSPYRNA: ÓLAFUR ÞÓRÐARSON SPÁIR í SPENNANDI LOKABARÁTTU / C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.