Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 3
2 B MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR1. SEPTEMBER 1999 B B .
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
EFSTA DEILD
KARLA
(Landssímadeildin)
Fj. leikja U J T Mörk Stig
KR 15 11 3 1 34:11 36
IBV 15 9 4 2 25:13 31
lA 15 6 5 4 17:14 23
LEIFTUR 15 4 7 4 16:23 19
KEFLAVÍK 16 5 3 8 25:30 18
BREIÐABLIK 16 4 5 7 19:22 17
FRAM 15 3 7 5 19:21 16
GRINDAVfK 15 4 3 8 19:24 15
VALUR 15 3 6 6 23:30 15
VlKINGUFt 15 3 5 7 19:28 14
MEISTARADEILD
KVENNA
Stjarnan - KR.............0:4
Helena Ólafsdóttir (50., 70.), Guðlaug Jóns-
dóttir (65., 69.).
ÍBV - Fjölnir ............7:0
Irís Sæmundsdóttir 3, Bryndís Jóhannes-
dóttir 2, Hjördís Halldórsdóttir, Hrefna Jó-
hannesdóttir.
Grindavík - ÍA............0:1
- Áslaug Akadóttir.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
KR 13 12 1 0 71:4 37
VALUR 13 10 1 2 48:11 31
BREIÐABLIK 12 8 2 2 30:14 26
STJARNAN 13 6 2 5 33:19 20
/BV 13 6 1 6 40:24 19
lA 12 4 1 7 15:32 13
GRINDAVÍK 13 1 0 12 8:65 3
FJÖLNIR 13 0 0 13 7:83 0
Kani til
Þórs
Körfuknattleiksdeild Þórs á
Akureyri hefur fengið til
sín bandarískan leikmann,
Jason Williams, sem er 23
ára og kemur frá Pacific-
háskólanum. Williams er
tveir metrar á hæð og var
stigahæstur og tók flest
fráköst á liðnu tímabili hjá
háskólaliðinu.
Agúst Guðmundsson,
þjálfari Þórs, sagði að leik-
maðurinn yrði til reynslu
hjá félaginu í tíu daga.
„Hann er ekki í góðu formi
sem stendur en ég geri ekki
ráð fyrir öðru en hann
verði hjá okkur í vetur.“
Ágúst sagði að félagið
hygðist ekki fá til sín fleiri
leikmenn fyrir tímabilið en
hann sagði að það væri það
yngsta í úrvalsdeildinni.
„Við erum með marga efni-
lega stráka og við vonumst
til þess að þeir séu reynsl-
unni ríkari frá síðasta tíma-
bili,“ sagði Ágúst.
3. deild karla
Undanúrslit:
Huginn/Höttur - Afturelding........2:2
• Afturelding er komið í úrslit, samtals 6:4.
England
1. deild:
QPR - Port Vale...................3:2
2. deild:
Bournemouth - Luton ..............1:0
Wycombe - Wrexham ................0:1
3. deild:
Brighton - Hull....................3:0
Halifax - Torquay..................2:0
Shrewsbury - Hartlepool ...........0:0
í KVÖLD
Knattspyrna
Efsta deild karla:
Grindavík: Grindavík - í A............18
Vestmannaeyjar: ÍBV - Víkingur........18
Hlíðarendi: Valur - Leiftur ..........18
Laugardalur: Fram - KR................20
3. deild, undanúrslit:
Skeiðisvöllur: KÍB - Njarðvík......17.30
• Leikurinn fór ekki fram í gær vegna
ófærðar.
LEK golfmót á Nesvelli
laugardaginn 4. september
Keppt í flokkum karla 55 ára og eldri Konur 50 ára og eldri.
70 ára og eldri og 50—54 ára. Síðasta viðmiðunarmót til
landsliðs kvenna.
Golfferð til íralnds dregin úr skorkortum.
Skráning í sima 561 1930.
Laugardalsvelli
Miðvikudaginn 1. sept. kl.20:00
Heiðursgestur:
Ingibjörg Sólrun Gísladóttir
kl
VIÐSKIPTANETIÐ HF.
Nordic Barter á íslandi
FRJÁLSI
UœmssíóouRiHN
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
flSTuno
NÝHERJI
*
PEUGEOT
LANDS SÍMINN
FLUGFÉLAC ÍSLANDS
Air Iceland
T0SW
d# *
. 9 S -r ..
jjSL
Morgunblaðið/Golli/Kjartan Þorbjörnsson
Hreiðar Bjarnason (t.v.) og Che Bunce skoruðu mörk Breiðabliks í 2:1-sigri á Keflvíkingum í Kópavogi í gærkvöldi.
Á myndinni fagna félagarnir marki Bunce, en Keflvíkingar eru allt annað en ánægðir með gang mála.
Spennandi lokamínútur
BREIÐABLIK tryggði sér dýrmætan sigur er liðið lagði Keflavík
2:1 í Kópavogi í gærkvöldi. Sigurmark leiksins var skorað er
komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Hreiðar Bjarnason skor-
aði hið þýðingarmikla mark eftir að liðin höfðu fengið hvert tæki-
færið á fætur öðru á síðustu mínútunum. Sigurinn fleytir Breiða-
bliki úr botnsætum efstu deildar og hleypir lífi í botnbaráttuna.
etta var nauðsynlegt. Við börð-
umst út leiktímann og uppskár-
um sigur. Þessi sigur kemur okkur
af mesta hættusvæð-
Qísli inu í bili, því það er
Þorsteinsson þröngt á botninum og
skrifar við þurfum að ná
nokkrum stigum til
viðbótar. Það eru tveir leikir eftir
og þeir verða báðir erfíðir," sagði
Hreiðar, en liðið á eftir leiki gegn
Leiftri og ÍA. „Mér fannst liðið
leika ágætlega í fyrri hálfleik, en við
hleyptum þeim [Keflvíkingum] inn í
leikinn í seinni hálfleik. Sem betur
fer tókst okkur að klára leikinn af
Skiptu
um
sokka
LEIKMENN Keflvíkinga
skiptu um sokka í hálfleik
þegar þeir léku gegn Breiða-
bliki í gærkvöld. Ástæðan
var sú að bæði lið leika jafn-
an í hvítum sokkum en þar
sem Keflvíkingar voru á úti-
velli þurftu þeir að víkja og
leika í varasokkum. Sokk-
arnir gleymdust í Keflavík
og stóð tii að fresta leiknum
til 18:15 á meðan þeir voru
sóttir, en horfið var frá
þeirri hugmynd vegna birtu-
skilyrða.
Þess í stað var ákveðið að
Keflvíkingar hæfu leikinn í
hvítum sokkum, en þeir urðu
að vefja guiu limbandi utan
um sokkana til aðgreiningar
frá heimaliðinu. Varasokk-
arnir, sem eru rauðhvítir,
komu skömmu eftir að leik-
urinn hófst og gátu Keflvík-
ingar skipt um sokka og
leikið síðari hálfleik í þeim.
krafti." Leikur Breiðabliks og
Keflavíkur var tilþrifalítill lengst af,
en bæði lið fengu nokkur tækifæri
til þess að skora mörk. Keflvíkingar
fengu sitt besta færi í hálfleiknum á
upphafsmínútunum er Þórarinn
Kristjánsson átti skot í slá, boltinn
barst aftur tii Keflvíkingsins sem
skaut að marki en Hákon Sverris-
son, fyrirliði Breiðabliks, bjargaði á
marklínu.
Þá átti Hreiðar Bjamason Bliki
góða sendingu á Bjarka Pétursson
er komið var fram í fyrri hálfleík.
Bjarki komst inn í vítateig, en nafni
hans Guðmundsson í Keflavíkur-
markinu varði og Gunnar Oddsson
bjargaði síðan í horn.
Breiðablik varð fyrra til að skora
í hálfleiknum. Guðmundur Páll
Gíslason tók hornspyrnu á 42. mín-
útu og náði Che Bunce, Ný-Sjálend-
ingurinn í Kópavogsliðinu, að skalla
óáreittur í netið. Keflvíkingar svör-
uðu fyrir sig er sjö mínútur voru
liðnar af seinni hálfleik og var þar
að verki Rútur Snorrason.
Keflvíkingar voru mun sterkari í
seinni hálfleik og fengu nokkur góð
færi til þess að skora mörk, enda
var vöm Breiðabliks oft illa á verði.
Einkum var Kristján Brooks varn-
armönnum Blika hættulegur með
hraða sínum, en hann hefði mátt
fara betur með þau tækifæri er
hann fékk. Hann hefði þó átt að fá
dæmda vítaspyrnu er Che Bunce
gekk hart að honum í vítateig
Breiðabliks og felldi hann, en Bragi
Bergmann sá enga ástæðu til að
dæma víti.
Undir lokin færðist fjör í leikinn,
hvert færið rak annað er komið var
fram yflr venjulegan leiktíma. Úr
einu slíku skoraði Hreiðar markið
mikilvæga, sem færði liðið um stund
í sjötta sæti deildarinnar. Kópa-
vogsbúar fögnuðu ákaft, því fáein-
um sekúndum síðar flautaði Bragi
Bergmann til leiksloka. Þetta var
fyrsti sigur liðsins í síðustu fjóram
leikjum, en liðið hefur hægt og síg-
andi færst niður stigatöfluna eftir
því sem liðið hefur á sumarið og var
fyrir leikinn komið í næstneðsta
Breiðablik 2:1 Keflavík
C. Bunce (42.). Hreiöar B. (90) 4-4-2 Atli K. m Kópavogsvöllur 31. ágúst Aðstæður: Skúrir, gola og nfu stiga hiti í upphafi en fór kólnandi er á leið. Áhorfendur: Um 800 Dómari: Bragi Bergmann, Árroðinn, 6 Rútur S. (52.) 4-3-3 Bjarki G. Snorri J.
Ásgeir B. C. Bunce Sigurður G. m Guðmundur 0. Gunnar O. Gestur G. JH
Hjaltí K. Hreiðar B. m m Aðstoóard: Garðar Ö. Hin- riksson og Sigurður Þ. Þór- isson Gul spjöld: Breiöablik: Sig- urður G. (10. - brot), Ás- geir B. (35. - brot), Kjart- an E. (66. - brot), Keflavfk: Rútur S. (74. brot) Rautt spjald: ekkert Markskot: 14 -12 Rangstaða: 0 - 2 Eysteinn H. Ragnar S. (Magnús Sverrir 87.) Rútur S. Z. Ljubicic Kristján B. M Pórarinn K.
Hákon S. Kjartan E. (Guðmundur Kari 69.) Guðmundur Páll (Pétur 1. 76.) Atli Kr. Bjarki P.
Horn: 11 - 4
1:0 (42.) Guömundur Páll Gíslason tók hornspyrnu frá vinstri og Che Bunce náði
aö skalla knöttinn í netið inni í vítateig.
1:1 (52.) Kristján Brooks lék upp hægri kant og sendi fýrir inn í vítateig. Þar náöi
Rútur Snorrason aö skora með því aö senda boltann upp f þaknetið.
2:1 (90.) Hreiðar Bjarnason náði aö skalla yfir Bjarka Guðmundsson, markvörð,
Keflavíkur viö markteig. Gestirnir reyndu að bjarga á marklínu en Garðar Ö. Hin-
riksson, aðstoöardómari, gaf merki um að boltinn hefði farið yfir marklínu.
sæti efstu deildar. Úrslitin sýna að allt getur
gerst í síðustu umferðum deildarinnar og þau
hleypa lífi í botnbaráttuna fyrir leiki kvöldsins.
Keflvíkingar, sem eiga erfíða leiki framundan
gegn KR og ÍBV í síðustu tveimur umferðun-
um, geta að mörgu leyti sjálfum sér um kennt
gegn Breiðabliki. Þeir vora með leikinn í hendi
sér í síðari hálfleik og gátu nokkrum sinnum
gert út um hann, fóru illa með marktækifærin,
en þess má einnig geta að þeir urðu af víta-
spyrnu. Þeir héldu augljóslega að jafntefli yrði
niðurstaðan í leiknum og sváfu á verðinum er
þeir fengu á sig mark undir blálokin. Keflvík-
ingar eru ekki vanir að lenda í slíkum aðstæð-
uffl- Peir hafa jafnan verið þekktir fyrii’ að gef-
ast aldrei upp í leikjum, en í þetta skiptið greip
Breiðablik þá í bólinu.
Hefði ekki þurft
að enda svona
KJARTAN Másson, þjálfari Keflvíkinga,
kvaðst sár yfir úrslitunum og taldi að sitt
lið hefði getað snúið leiknum sér í vil en
ekki nýtt færin. „Við verðum að klára fær-
in, en það verður líka að dæma eftir þeim
reglum sem gilda,“ sagði Kjai-tan og benti
á að Kiistján Brooks, leikmaður Keflvík-
inga, hefði verið felldur í vítateig Breiða-
bliks og lið sitt hefði átt að fá vítaspyrnu.
„Hann var ekki bara felldur, heldur
straujaður inni í teig með boltann er hann
átti aðeins markmanninn eftir og það er
ekkert gert! Þetta er með ólíkindunum, en
svo sjá þeir boltann í netinu hjá okkur er
þeir [dómari og aðstoðardómarij eru langt
í burtu. Mér þætti gaman að sjá það á
myndbandi hvort boltinn hafí farið yfír
marklínununa.“
Kjartan segist vera búinn að fá sig
fullsaddan af dómgæslu í sumar. „Stund-
um er hvert vítið á fætur öðru dæmt en
síðan skiptir engu þó menn séu straujaðir
inni í vítateig andstæðinga sinna. Þá er
ekkert dæmt en svo stendur í blöðunum
að dómarinn hafi verið góður. Dómarar
þurfa aldrei að endurskoða stöðu sína því
þeir eru aldrei gagnrýndir."
En hefðuð þið ekki getað nýtt færin bet-
ur?
„Jú, það eru hreinar línur, en ef við hefð-
um fengið mark úr víti, er við vorum að ná
yfirhöndinni, hefði leikurinn gjörbreyst."
Þið hefðuð með sigri tryggt stöðu ykk-
ar í deildinni. Kemur tapið sér ekki illa?
„Jú, það kemur sér illa. Þetta hefði ekki
þurft að enda svona.“
t------------------------------------
Ná KR-ingar titlinum
í Laugardalnum?
Qlafur Þórðarson, fyrrverandi leikmaður Skagamanna
og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur náð góð-
um árangri sem þjálfari Fylkis úr Árbæ í 1. deild
karla. Liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild fyrir
skömmu, en þar er Ólafur öllum hnútum kunnugur.
Edwin Rögnvaldsson ræddi víð hann og innti hann eft-
ir tilfmningum hans í garð leikjanna fjögurra í úrvals-
deildinni í kvöld, þar sem KR-ingar geta m.a. tryggt
sér Islandsmeistaratitilinn á Laugardalsvellinum, þar
sem KR fengu meistarabikarinn afhentan síðast - fyrir
31 ári, er Gunnar Felixson tók við honum.
KR-ingar verða íslandsmeistarar
í kvöld, fari þeir með sigur af
hólmi gegn Fram á Laugardalsvelli
og Eyjamenn tapi stigum gegn Vík-
ingi á Heimaey, en þeim leik á að
ljúka nokkrum mínútum áður en
flautað verður til leiks í Laugardal.
Olafur Þórðarson, þjálfari Fylkis,
segist ekki trúa því að KR-ingar láti
titilinn sér úr greipum ganga, að þeir
verði loks meistarar eftir að hafa
beðið í 31 ár. „Ég held að ef KR-ing-
arnir ætla sér að ljúka verkinu er al-
veg ljóst að þeir verða að vinna
Fram. Þeir eru ekki búnir að vinna
titilinn enn. Það er klárt að þeir
þurfa nokkur stig í viðbót. Ég trúi
ekki öðru en að þeir stígi skrefið til
fulls og verði meistarar," segir Ólaf-
ur.
„Mér fínnst Framararnir hafa náð
fleiri stigum en styrkleiki þeirra ber
vott um. Ásgeir [Elíasson, þjálfarij
er seigur og nær miklu úr mann-
skapnum. Ég held að þeir geti vel við
unað. KR er með sterkasta liðið í
deildinni, þótt þeir hafi ekki farið
beint á kostum eru þeir mjög jafnir.
Þeir sóttu reynsluna á Skagann,“
segir Ólafur og hlær. „Mennirnir
sem halda þessu á floti hjá þeim eru
Bjarki [Gunnlaugssonj og Sigur-
steinn [Gíslason, báðir fyirverandi
leikmenn ÍAj. Bjarki gerði út um
nokkra leiki um tíma, sem voru í
járnum. Þá tók hann af skarið og
skoraði mikilvæg mörk,“ segir þjálf-
arinn.
„Ég hef trú á að þetta þróist
þannig að KR taki völdin mjög fljót-
lega í leiknum. Það er mikið í húfi
fyrir þá og þeir ætla sér örugglega
að sækja þrjú stig. Ég held að þeir
verði kolvitlausir frá fyrstu mínútu.
Þó svo að Framararnir komi til með
að spyrna við fótum er styrkleika-
munurinn á liðunum svo mikill að
þeir hafa ekkert í KR-ingana að
gera,“ segir Ólafur.
Skemmtilegur leikur í Eyjum
Ólafur segir öruggt að leikmenn
ÍBV haldi enn í vonina um að geta
komist upp fyrir KR á lokasprettin-
um, þó hún sé veik. „Auðvitað halda
þeir í vonina. Það eru ennþá þrjár
umferðir eftir og níu stig. Þeir eiga
enn möguleika og hljóta að láta
reyna á það, þó þeir sjái titilinn
renna sér úr greipum. Annað væri
óeðlilegt,“ segir Ólafur, sem á von á
fjörugum leik í Vestmannaeyjum í
kvöld, þar sem Víkingar sækja
meistarana heim. Víkingar unnu
góðan sigur á Blikum, 1:0, á fóstudag
og komust þannig úr fallsæti, en
Valsmenn skutust aftur upp fyrir þá
með sigri á IA á sunnudag.
„Eyjamenn áttu mjög slakan leik
um helgina. Þeir eru þokkalega ör-
uggir um annað sætið, en þeir vilja
vinna, eins og Víkingarnh-. Ég held
því að þetta verði skemmtilegur og
fjöragur leikur á að horfa. Ég hef trú
á að Eyjamenn vinni, en sigurinn
verður ekki stór. Bæði lið koma til
með að sækja. Víkingar berjast á
botninum og verða mjög barátt-
uglaðir. Þeir berjast fyrir lífí sínu.
Það er áberandi að þar eru margir
lítt reyndir strákar í liðinu. Þeir era
ekki margir, sem hafa spilað áður í
efstu deild. Þeir eru þó með „refi“
innanborðs, sem eru skeinuhættir.
Til dæmis er Sumarliði [Árnasonj
mjög erfíður viðureignar og Jón
Grétar, þessi ungi strákur, hefur
skorað svolítið af mörkum. Ef Eyja-
menn vanmeta þá geta þeir orðið
þeim hættulegir,“ segir Ólafur.
Þeir eru mjög
frískir, Valsararnir
Hann segir að erfítt sé að spá í
viðureign Vals og Leifturs, sem háð
verður að Hlíðarenda í kvöld. „Jafn-
tefli kæmi mér ekki á óvart,“ segir
hann og bendir á að Valsmenn nái á
köflum að beita snörpum sóknarleik.
„Með sigri geta Valsarar híft sig vel
upp úr slagnum eftir óvæntan sigur í
síðustu umferð. Þeir eru mjög frísk-
ir, Valsararnir. Ég sá þá í síðasta
leik [gegn ÍAj og þeir eru skeinu-
hættir í sóknunum, þessir ungu
strákar. Þeir era einnig með Arnór
[Guðjohnsenj, sem getur verið ör-
lagavaldur þegar hann vill það.“
Aðspurður um gengi Leifturs í
sumai’ miðað við það sem hann bjóst
við af liðinu, sagði hann að lið sem
skipuð væru leikmönnum frá mörg-
um löndum væra ávallt nokkurs kon-
ar spurningarmerki. „Ég held að
þetta verði ávallt erfíð samsetning,
þegar menn eru með svona fjölþjóða-
her eins og Leiftur. Mín tilfinning er
sú að þegar á móti blæs er engin ein-
ing um hvemig bregðast eigi við.
Þeir geta illa rætt saman og það
hlýtur að vera geysilega erfitt fyrir
þá að ná upp stemmningu á vellin-
um,“ segir Ólafur.
„Það er ljóst að úti á fótboltavell-
inum hjálpa menn hver öðrum með
því að tala. Samskipti leikmanna eru
geysilega stór þáttur í leiknum.
Þetta er mikið púsluspil, en það er
oft gott að hafa ólíka knattspyrnu-
menn innan liðsins, en þeir þurfa að
geta talast við,“ segir hann.
Ólafur býst við sigri gömlu félaga
sinna, Skagamanna, í Grindavík,
heimavelli liðsins sem á það til að
bjarga sér frá falli á síðustu stundu.
En hvað ætli vaki fyrir Skagamönn-
um, sem sigla lygnan sjó, núna? „Það
hlýtur að vera það að tryggja sér
þriðja sætið, halda dampi fyrir kom-
andi átök í bikarkeppninni - sjá til
þess að liðið haldi taktinum út mán-
uðinn. Þeir geta ekki lagt upp
laupana núna og beðið eftir einhverj-
um bikarúrslitaleik í lok mánaðar-
ins,“ segir Ólafur.
„Eftir atburði síðustu helgar
hljóta þeir að reyna að sækja þrjú
stig. En það er ekkert gefíð. Grind-
víkingar hafa alltaf verið mjög erfið-
ir heim að sækja, en það er allt hægt
ef viljinn er fyrir hendi. Grindvíking-
arnir era mjög skeinuhættir og allt
getur gerst í þessum leik. Skaga-
menn hafa oft verið í basli í Grinda-
vík, en alltaf unnið. Þessi leikur fer
eitt eða tvö-núll fyrir Skagamenn.
Þetta verður þeim mjög erfiður leik-
ur, en þeir vinna sigur.
Fyrir síðustu umferð hafði ég trú
á að Grindvíkingarnir myndu bjarga
sér, en þá breyttist staðan. Það er
nær vonlaust að spá fyrir um gang
mála í botnbaráttunni. Grindvíking-
ar berjast til síðasta blóðdropa. Á því
leikur enginn vafi.“
Ólafur man ekki eftir jafn tvísýnni
fallbaráttu, eins og virðist stefna í á
meðal úrvalsdeildarliðanna. „Það er
vonlaust að segja eitthvað meira fyrr
en í síðustu umferðinni. Ég man ekki
eftir að þetta hafi gerst áður, ekki
svona þétt. Þetta er ósköp svipað í
næstu deild fyrir neðan. Þar eru
mörg lið á hættusvæðinu, fleiri en
áður.“
En kann hann enga skýringu á
því? Eru liðin, einhverra hluta
vegna, ekki jafnari en áður? Því
svarar Ólafur: „Ég myndi segja að
þau séu bara jafnlélegri en þau hafa
verið. Það er mín tilfinning. Það er
búið að selja ansi mikið af skárri
leikmönnum deildarinnar burt. Það
hefur komið niður á gæðum deild-
anna. Það er deginum ljósara. Stór
hluti þeirra leikmanna, sem eitthvað
hafa getað, hafa verið seldir til út-
landa. Úrvalsdeildarliðin hafa þá sótt
skái-ri leikmenn fyrstu deildarinnar,
sem leiðir til þess að þetta er allt
heldur lakara núna og í fyrra en árin
þar á undan. Það tekur sinn toll fyrir
deild, sem er ekki stærri en raun ber
vitni, að missa svo mikinn mann-
skap,“ segir Ólafur Þórðarson, þjálf-
ari Fylkis.
ISLAND - ANDORRA
4. september kl. 16:00
ÍSLAND - UKRAINA
8. september kl. 18:00
Starfandi dómarar og aðrir með gild aðgangskort
fá afhenta aðgöngumiða á leikina á Laugardalsvelli
fimmtudaginn 2. september kl. 10:00 - 17:00.
ATH. MIÐINN GILDIR Á BÁÐA LEIKI
og verður ekki afhentur á öðrum tfmum.
Aðilar utan af landi með gild aðgangskort geta hringt
( síma 510 2914 á skrifstofu KS(, fimmtudaginn
2. september kl. 10:00 - 17:00, og látið taka frá fyrir sig
miða sem siðan verða afhentir samkvæmt samkomulagi.
KSf
!VIREYKlfll
TILSIGURS
iOsl
EO
msj
Golfklúbbur Suðurnesja auglýsir
opna firmakeppni
laugardaginn 4. september
á Hólmsvelli í Leiru.
Leikfyrirkomulag:
Tveir í sveit - betri bolti með fullri forgjöf
eins og hún er í opnum mótum.
Verðlaun verða veitt fyrir 10 fyrstu sætin,
m.a. flugfarseðlar í millilandaflugi fyrir 1. sæti.
Þátttökugjald fyrir hvert firma er kr. 15.000.
Innifalið eru góðar veitingar fyrir og eftir leik.
Ræst verður frá Id. 8.00.
Skráning er hafin í síma 421 4100.
Firmakeppni
Keilis 1999
Firmakeppni Golfklúbbsins Keilis verður haldin
laugardaginn 4. september nk.
Ræst veröur út frá kl. 9.00
Keppnisfyrirkomulag: Punktakeppni meö fuilri forgjöf,
pó aö hámarki 1 punktur á holu.
Tveir keppa saman fyrir hvert fyrirtæki og
telur betri bolti.
Verölaun Jyrir þrjú fyrstu sœtin er 25-000 kr.
gjafabréffyrir hvom keppanda upp í utanlandsferö
__ ^ meö Úrval Útsýn.
Fyrirtæki sem ætla að taka þátt í firmakeppni
^e^‘s eru vinsamlegast beðin að tilkynna þátttöku
í síma 565 3360 fyrir kl. 13.00 fimmtud.2.sept.nk.
Innifalið í mótsgjaldinu er léttur málsverður að keppni lokinni.