Morgunblaðið - 28.09.1999, Page 1
LANDSMANNA
1999
fHttgtntliliifeife
■ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER
BLAÐ
Lillestrom
gerir
Grétari
tilboð
GRÉTAR Hjartarson, sem leik-
ið hefur með Grindvíkingum í
sumar, hefur fengið tilboð frá
norska úrvalsdeildarfélaginu Lil-
lestrbm. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hljóðar tilboðið
upp á annan tug milljóna króna.
Grétar neitaði því að um slíka upp-
hæð væri að ræða. Fleiri félög í
Noregi og Englandi hafa sýnt
áhuga á leikmanninum.
Grétar, sem dvaldi hjá norska
liðinu frá föstudegi til mánudags,
sagði að hann væri að íhuga tilboð
Lillestrpm og taldi öruggt að
hann léki ekki með Grindavík
næsta sumar. „Ég stefni á að fara
út en ég á eftir að skoða tilboð
Lillestrpm. Það ætti að koma í
ljós í vikunni hvað ég kem til með
að gera.“ Grétar sagði að sér
hefði litist vel á allar aðstæður hjá
norska liðinu, sagði það eiga
glæsilegan völl og frábæra stuðn-
ingsmenn.
Hjá Lillestrpm leika tveir ís-
lenskir landsliðsmenn: Rúnar
Kristinsson og Heiðar Helguson.
Þorvaldur
ræðir
viðKA
ÞORVALDUR Örlygsson,
sem hefur leikið með Nott-
ingham Forest, Stoke og
Oldham í Englandi, á í við-
ræðum við knattspyrnudeild
KA um að hann þjálfí meist-
araflokk félagsins næsta
sumar. Stefán Gunnlaugs-
son, formaður knattspyrnu-
deildar KA, sagði að við-
ræður hefðu átt sér stað í
nokkra daga og að góðar
líkur væru á að samkomu-
lag næðist. Stefán sagði að
ef Þorvaldur tæki við liðinu
væri stefnan að hann léki
jafnframt með því.
Tvöfalt hjá KR-ingum
KR-ingar tryggðu sér tvöfaldan sigur í fyrsta skipti síðan 1963 er þeir lögðu Skagamenn að velli í
bíkarúrslitaleik, 3:1. Hér handleika Þormóður Egilsson, fyrirliði, Einar Þór Gunnarsson og þjálfarinn
Atli Eðvaldsson bikara, sem bættust í safn KR.
■ Allt um bikarúrslitaleikinn / B4, B5, B6, B7, B8
Bjami Jóhanns-
son þjálfar Fýlki
BJARNI Jóhannsson verður næsti þjálfari Fylkismanna. Nær ör-
uggt er talið að gengið verði frá samningum þess efnis í dag eða
á morgun, en viðræður Fylkis og Bjarna hófust á sunnudags-
kvöld og héldu áfram í gær.
Bjarni hefur áður þjálfað Árbæj-
arliðið, var þar við stjórnvölinn
1994. Fylkir féll úr efstu deild 1993
og undir stjórn Bjai-na varð það í 3.
sæti 2. deildar 1994 - rétt missti af
sæti í 1. deild og aðeins munaði þar
einu stigi.
Ámundi Halldórsson, formaður
meistaraflokksráðs Fylkis, sagðist í
gær vera bjartsýnn á framhaldið og
taldi meiri líkur en minni á að samn-
ingar næðust innan skamms. „Fund-
urinn á sunnudagskvöld gekk mjög
vel,“ sagði hann. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins var Pétur
Pétursson efstur á óskalista Fylkis-
manna, en vegna starfa hans við eig-
in ljósmyndastofu gekk ekki saman.
Var því leitað til Bjarna á sunnudag
og hafa viðræður gengið afar hratt
fyrir sig síðan.
Amundi sagði ljóst að Fylkismenn
héldu sínum mannskap, enda væru
allir á samningum við félagið. „Það
er ljóst að við þurfum eitthvað að
styrkja liðið fyrir átökin í úrvals-
deildinni, enda er nokkur styrkleika-
munur á þessum deildum. Við teljum
okkur vera með sterkasta leik-
mannahóp félagsins í áraraðir, en
samt þyrftum við að minnsta kosti
einn sterkan varnarmann og einn af-
gerandi markaskorara," sagði
Amundi og benti á að Ólafur Þórðar-
son, fráfarandi þjálfari liðsins, hefði
leikið í vörninni og erfitt yrði að fylla
það skarð. Þá hefði markaskorun
dreifst óvenjumikið milli leikmanna í
sumar, en æskilegt væri að fá leik-
mann til félagsins, sem skoraði tíu
mörk eða fleiri yfir sumarið.
EMMEN VILL FÁ EYSTEIN HAUKSSON TIL HOLLANDS / B3
VINNINGSTÓLUR
LAUGARDAGINN
25.09.1999
4. 3 af 5
TVOFALDUR
1. VINNINGUR Á
LAUGARDAGINN
Jókertölur vikunnar
2 0 3 4 7
Vinningar Fjöldi vinninga Upphæð á mann
5 tölur 0 1.000.000
4 síðustu 1 100.000
3 síðustu 9 10.000
2 sföustu 84 1.000
VINNINGSTÖLUR
MIÐVIKUDAGINN
22.09.1999
AÐALTÖLUR
(*- (4 C7
8 8 12 t
BÓNUSTÖLUR
í37 í44
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
1. 6 af 6 2 48.530.490
2. 5 af 6 + bónus 0 4.049.450
3. 5 af 6 8 45.400
4. 4 af 6 314 1.840
3. 3 af 6+ bónus 629 390
LOTTO 5/38
1. vinningur verður TVÖFALDUR
næst.
Bónusvinningarnir voru seldir í Bláa
Turninum við Háaleitisbraut 64 í
Reykjavík og Gerplu/Toppmyndum
við Sólvallagötu 27, Reykjavík
JÓKER
Miði með 100.000 króna vinningi var
seldur í Happahúsinu í Kringlunni.
VÍKINGALOTTÓ
1. vinningur skiptist milli Norðmanns
ogDana.
Upplýsingar í síma:
568-1511
Textavarp:
I 281, 283 og 284
I þágu öryrkja, ungmanna og iþrútta
I
J
l
1
I
L