Morgunblaðið - 12.10.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 B 3
KNATTSPYRNA
þjálfari FH
Logi næsli
LOGI Ólafsson verður næsti þjálfari FH-inga í knattspyrnu.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur verið ákveðið að
Magnús Pálsson, núverandi þjálfari FH, haldi ekki áfram með
liðið og Logi verði ráðinn í hans stað. Er búist við að ráðning-
in verði kynnt með formlegum hætti á föstudag - á afmælis-
degi Hafnarfjarðarliðsins.
FH hefur um nokkurt skeið átt
sæti í 1. deild og nokkur ár eru
síðan karlalið félagsins var meðal
þeirra bestu hér á landi. Pétur
Ormslev hætti með liðið í fyrra
eftir að tvívegis hafði mistekist að
komast upp um deild og í haust
urðu Hafnfírðingar að sjá á eftir
sætum í efstu deild til Fylkis og
Stjörnunnar.
Þrátt fyrir það var talið líklegt
að Magnús Pálsson yrði áfram
þjálfari liðsins. Formaður knatt-
spyrnudeildar félagsins, Kristinn
A. Jóhannesson, lýsti því m.a. yfir
í Morgunblaðinu 28. september sl.
Þá benti Kristinn á að Magnús
hefði verið ráðinn í fyrra til
tveggja ára og að við þann samn-
ing yrði staðið.
Morgunblaðið hefur hins vegar
heimildir fyrir því að í samningi
Magnúsai- við FH sé uppsagnará-
kvæði eftir eitt ár og því hafí FH-
ingar heimild til að slíta honum.
Mikill áhugi mun vera í Hafnar-
firði á ráðningu Loga, enda hóf
hann knattspyrnuferilinn í FH og
lék þar 1972 til 1981, að hann hélt
til náms í Noregi. Hann var svo
aðstoðarþjálfari FH 1984 og 1985
er Ingi Bjöm Albertsson var þar
þjálfari og leikmaður. Síðan þá
hefur Logi gert Víkinga og Akur-
nesinga að Islandsmeisturum í
knattspyrnu karla, Valsstúlkur að
íslandsmeisturam kvenna og að
auki verið landsliðsþjálfari karla
og kvenna. Hann stýrði Skaga-
mönnum sl. tvö ár, en var sagt upp
störfum fyrir lokaumferð efstu
deildar í haust og bikarúrslitaleik
KR og ÍA.
Mikill hugur er í FH-ingum og
vilja þeir koma knattspymuliði fé-
lagsins sem allra fyrst í fremstu
röð á nýjan leik. Meðal annars
hefur verið unnið að því að fá auk-
ið fjármagn í starfsemi knatt-
spyrnudeildarinnar og eru þeir
Hafnfirðingar, sem Morgunblaðið
ræddi við, bjartsýnir á að það tak-
ist og lið félagsins mæti sterkt til
leiks á næsta ári undir stjóm
Loga Ólafssonar. Ætlunin er m.a.
að fá leikmenn til liðsins. Einn
hefur þegar verið nefndur í því
sambandi; Heimir Guðjónsson,
sem lék með Skagamönnum undir
stjóm Loga sl. tvö ár, en samning-
ur hans við IA rennur út um mán-
aðamótin.
Katrín heiðruð
hjá Kolbotn
KATRÍN Jónsdóttir lagði upp
seinna mark Kolbotn er liðið
lagði Asker 2:0 í norsku úrvals-
deildinni um helgina. Með sigri
féll Asker af toppi deildarinnar
en liðið mætir Klepp, sem er
efst, í lokaumferðinni. Kolbotn
er í fjórða sæti en kemst ekki
ofar fyrir síðustu umferðina.
Katrín fékk blómvönd frá fé-
laginu fyrir leikinnn gegn
Asker en hún hefur náð þeim
árangri að leika yfir 50 leiki
með liðinu. Kjell Magne
Bondevik, forsætisráðherra
Noregs, var staddur á vellinum
en Kolbotn er liðið hans í
norska kvennaboltanum. Hann
hefúr mætt á flesta hcimaleiki
liðsins í sumar.
Kristján hjá
Admira
Wacker
KRISTJÁN Brooks, framherji
Keflvíkinga, hefur dvalið í
Austurríki undanfarna daga
við æfingar hjá hinu þekkta
liði Admira Wacker. Kom
Kristján til Austurrflds á laug-
ardag og verður fram á föstu-
dag.
Forráðamenn Admira hafa
fylgst, vel með Kristjáni í sum-
ar, en hann átti mjög gott
tímabil með Keflvíkingum.
Fór hann meðal annars út í
júlí og kannaði þar aðstæður.
Til stóð að hann færi til liðsins
strax eftir lok íslandsmótsins í
haust, en Kristján veiktist
heiftarlega eftir leik KR og
Keflavíkur í lokaumferðinni
og var rúmfastur í tvær vikur
- fékk lungnabólgu. „Ég er
rétt að skríða saman, æfði vel
í síðustu viku og er allur að
koma til,“ sagði Kristján í
gær.
Kristján segir að málin séu í
hans höndum, forráðamenn
Admira hafi áhuga á að hann
gerist leikmaður liðsins og því
sé það hans að standa sig á
æfingum í vikunni. „Það er
ekki fyrirhugaður æfingaleik-
ur, heldur mun ég æfa með
liðinu og standa núg þannig,"
sagði Kristján, sem samnings-
bundinn er Keflvíkingum og
yrði því uin sölu frá þeim að
ræða.
, Morgunblaðið/Golli
Islenska landsliðið sem hóf leikinn gegn Frökkum - Eyjólfur Sverrisson, Birkir Kristinsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Lárus Orri Sig-
urðsson, Auðun Helgason, Rúnar Kristinsson, Helgi Sigurðsson, Brynjar Bjöm Gunnarsson, Hermann Hreiðarsson, Ríkharður Daðason
og Þórður Guðjónsson.
Þrír leikir á Spáni
NÆSTA verkefni landsliðsins í
knattspyrnu verður á Spáni í
byijun febrúar, þar sem Norð-
urlandamótið í knattspyrnu
hefst í La Manga. Mótheijar Is-
lands þar verða Norðmenn,
Finnar og Færeyingar. Þá verð-
ur ieikið á Norðurlandamótinu
gegn Svíum á Laugardalsvellin-
um í ágúst og lokaleikurinn á
NM verður viðureign við Dani
innanhúss í Danmörku í janúar
2001.
„Önnur verkefni eru ekki á
planinu hjá okkur. Við bíðum
eftir að dregið verður í und-
ankeppni HM í Japan og Suður-
Kóreu 2002. Drátturinn í HM
fer fram í byijun desember,“
sagði Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bands íslands.
„Þegar við sjáum hveijir verða
mótheijar okkar og hvenær
leikir fara fram, getum við farið
að kortleggja næstu tvö keppn-
istúnabil," sagði Geir. Þess má
geta að norska knattspyrnusam-
bandið á æfingasvæði á Spáni -
í La Manga, þar sem Norður-
landaþjóðirnar koma saman í
febrúar.
íslendingarnir byijuðu
vel hjá Uerdingen
ÍSLENSKU leikmennirnir Stefán Þór Þórðarson og Sigurður Örn
Jónsson stóðu sig vel í fyrsta leik sinum með þýska 3. deildar-
liðinu KFC Uerdingen á laugardag. Voru þeir báðir í byrjunarlið-
inu er Uerdingen gerði 3:3-jafntefli við áhugamannalið Bochum.
Stefán Þór skoraði í sínum fyrsta leik og hörkuskalli Sigurðar
Arnar varð einnig að marki.
að var mikill klaufaskapur að
ná ekki að vinna leikinn, við
komumst í 3:1 en gáfum of mikið
eftir undir lokin og misstum því af
tveimur dýrmætum stigum," sagði
Sigurður Orn Jónsson við Morgun-
blaðið eftir leikinn, en hann hefur
verið lánaður frá KR í vetur, rétt
eins og Stefán Þór Þórðarson frá
ÍA. Stefán lék í framlínunni en Sig-
urður Öm var í meira sóknarhlut-
verki en hann á að venjast í KR -
var hægri tengiliður og sótti stíft.
Sigurður Öm sagði að knatt-
spyman sem leikin hefði verið væri
ekki frábær en þó ágæt. „Það mætti
segja mér að þetta líktist að mörgu
leyti efstu deild heima, þó ekki
bestu liðunum. Við KR-ingar hefð-
um t.d. ekki átt í miklum erfiðleik-
um með bæði þessi lið,“ sagði hann,
en nefndi jafnframt að hjá
Uerdingen væri aðstaða greinilega
öll til fyrirmyndar, glæsileg æfinga-
svæði og vel búið að mönnum. „Hér
verður eflaust gott að vera í vetur
og maður ætti að vera í góðu ásig-
komulagi þegar keppni hefst aftur í
deildinni heima,“ sagði hann.
Mark Stefáns kom Uerdinen í
2:1, en svo átti Sigurður Öm hörku-
skalla að marki og boltinn stefndi
inn þegar annar leikmaður kom við
hann og var fyrir vikið skráður fyrir
markinu. „Það var alveg fáránlegt.
Ég átti þetta mark,“ sagði Sigurður
í léttum tón, enda skorar hann ekki
beinlínis mörk á hverjum degi.
Lárus Guðmundsson, tæknilegur
ARNAR Jón Sigurgeirsson, ung-
lingalandsliðsmaður úr KR, dvelur
þessa dagana til reynslu hjá norska
1. deildarliðinu Lyn. Fór Arnar til
Noregs beint frá Frakklandi, þar
ráðgjafi þýska liðsins, fylgdist með
leiknum og sagði hann að Þjóð-
verjarnir hefðu verið afar ánægðir
með þátt Islendinganna. „Þeir
styrkja liðið greinilega og Þjóð-
verjamir sáu strax batamerki, þótt
ekki hafi tekist að innbyrða sigur í
fyrstu tilraun,“ sagði Lárus.
Eftir tólf umferðir er Uerdingen í
16. sæti suðvesturriðils 3. deildar-
innar með 11 stig.
sem hann lék með unglingalandslið-
inu (U-21) á laugardag.
Þá fór Skagamaðurinn Reynir
Leósson til að kanna aðstæður hjá
úrvalsdeildarliðinu Molde.
Trelleborg vill
fá Sigurbjöm
SIGURBJÖRN Hreiðars-
son, markahæsti leikmaður
Vals sl. tímabil, dvaldi í
nokkra daga við æfingar
hjá sænska úrvalsdeildar-
liðinu Trelleborg og lék
einn leik með varaliði fé-
lagsins gegn dönsku liði og
stóð sig vel. Reiknað er
með að félagið bjóði honum
samning á næstu vikum.
Eggert Þór Kristófers-
son, formaður knattspyrnu-
deildar Vals, var með Sig-
urbirni í Svíþjóð. „Ég
reikna með að sænska fé-
lagið bjóði honum samning
enda voru forráðamenn fé-
lagsins ánægðir með það
sem þeir sáu til hans. Það
verður þó háð því að félag-
ið leiki i efstu deild næsta
túnabil, en til þess þarf lið-
ið tvö stig til viðbótar,"
sagði Eggert Þór.
Arnar Jón og Reynir í Noregi