Morgunblaðið - 12.10.1999, Side 9

Morgunblaðið - 12.10.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 B Guðjón Þórðarson, þjálfari íslenska landsliðsins eftir leikinn í París Betra en ég hafði látið mig dreyma um Morgunblaðið/Golli Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari tekur utan um varnarmennina Pétur Marteinsson og Lárus Orra Sigurðsson eftir leikinn sögulega í París. Guðjón Þórðarson, þjálfari íslenska lands- liðsins, sagði að árang- ur liðsins í und- ankeppni Evrópumóts- ins væri betri en hann hefði getað látið sig dreyma um. Hann sagði í samtali við Gísla Þorsteinsson þá til- fínninffli sérstaka er ís- lenska liðið vann upp tveggja marka forskot franska liðsins á Stade de France fyrir framan um 80 þúsund manns og að Frökkum hefði verið brugðið vegna óvæntrar fyrirstöðu ís- lenska liðsins. Guðjón hafði lagt áherslu á það fyrir leik að íslenska liðið næði að halda því franska frá marki eins lengi og hægt væri. Hann sagði það því hafa verið mikið áfall er liðið fékk á sig sjálfsmark eftir 18 mínút- ur og það hefði að einhverju leyti komið mönnum úr jafnvægi. „En tækifærin sem slík í fyrri hálfleik voru ekki mörg. Þeir skora þrjú mörk en hefðu hugsanlega getað fengið betri færi sem þeir nýttu ekki. En svo voru menn að spila gegn sjálfum sér í fyrri hálfleik, fylgdu ekki þeim einföldu tilskipun- um sem voi'u settar fyrir leik. Þá vantaði meiri tiltrú hjá leikmönn- um, vantaði sjálfstraust að við gæt- um gert þetta. Þegar við komum inn í hálfleik höfðum við engu að tapa lengur og fórum í gegnum at- riði sem við vildum bæta. Eg fór í gegnum nokkur atriði, rifjaði upp ákveðnar staðreyndir og meðal ann- ars lagði ég áherslu á að leikmenn gæfu sér meiri tíma og þeir stæðu nær frönsku leikmönnunum. Leik- menn voru ekki nægilega nálægt þeim og því gliðnaði liðið en þeir voru þéttari fyrir í seinni hálfleik og það skilaði þeim árangri að okkur tókst að jafna leikinn. Leikurinn gjörbreyttist á þessum tíma. Að jafna leikinn með þeim hætti sem við gerðum er mjög gott. Okkur tókst að bæta hlutina í seinni hálf- leik og sýndum mikinn styrk.“ Hvernig leið þér er íslenska liðið hafði jafnaði leikinn og sýndi til- burði tii þess að komast yfír eftir að hafa lent 2:0-undir? „Eg var mjög sáttur við hvernig liðið stóð sig í seinni hálfleik og er stoltur af liðinu enda unnum við seinni hálfleik 2:1. Það er ekki hægt annað en að vera stoltur af strákun- um yfir því hvað þeir gerðu. Tilfínn- ingin sem slík, er íslenska liðið jafn- aði leikinn, var mjög sérstök, ánægjuleg." Taldir þú að leikurinn hefði getað farið á báða vegu er íslenska liðið náði aðjafna leikinn? „Leikurinn vó salt. Við fengum tvær til þrjár tilraunir á þessum tíma sem hefðu vel getað fallið okk- ur í hag. Við breyttum skipulaginu, tókum út varnarmann og settum inn miðjumann undir lokin. Við breyttum úr 5-3-2 í 4-3-3 og vissum að því fylgdi áhætta. Við vorum hvort sem er að tapa leiknum og það skipti engu máli. Ég held að mönnum hætti aðeins til að gleyma því að við vorum að spila við heims- meistarana og að þeir voru að berj- ast fyrir lífí sínu. Það var búið að króa þá af og staða þeirra var erfið fyrir leikinn. Fólk verður að skoða við hverja við vorum að eiga í þess- um leik. Ég held að þó að við höfum tapað leiknum tölulega séð höfum við sýnt það að við getum verið mjög stoltir af íslenska liðinu." Þú talaðir um það fyrh- leikinn að ekkert gæti komið franska liðinu á óvart. En þessi fyrirstaða íslenska liðsins hlýtur að hafa komið þeim í opna skjöldu? „Já, það var mikil breyting á leik okkar í síðari hálfleik. Við komum fast inn í leikinn og það var klárt á atferli þeirra að þeim var brugðið, ekki bara á vellinum heldur allt í kringum okkur. Ég sá að kollegi minn [Roger Lemerre] var að tapa sér. Ég held samt sem áður að þeir hafi gert sér grein fyrir að það er ekki hægt að slá okkur auðveldlega út af laginu. Við höfum aðeins tapað með einu marki er við höfum tapað í keppninni. Reyndar fengum við óvanalega mikið af mörkum á okkur í þessum leik. Við höfum ekki fengið þrjú mörk á okkur síðan í æfínga- móti á Kýpur árið 1998. Fram að því hafði liðið í mesta lagi fengið eitt mai’k á sig í leik en Frakkar vissu að við höfðum lent undir á móti Ukraínu en jafnað. Einnig lentum við undir á móti Rússum og það má segja sem svo að Rússar hafi verið heppnir að okkur tókst ekki að jafna leikinn. Eg held því að franska liðið hafi borið fullkomna virðingu fyrir okkur sem liði og ég held að í dag hafi enginn íslenska liðið í flimt- ingum.“ Aðspurður hvort ekki hafi komið í ljós í þessum leik að franska liðið sé brothætt sagði Guðjón að svo væri. „Það eru ákveðnar brotalamir í þessu liði en það eru feikilega góðir leikmenn í því, sérstaklega [Zinedi- ne] Zidane, sem var góður framan af leik.“ Er sá árangur sem íslenska liðið náði í undankeppni Evrópumótsins betri en þú hafðir búist við fyrir- fram, ekki síst ef litið er til þess hvaða þjóðir eru með liðinu í riðlin- um? „Heildarútkoman er betri en maður gat látið sig dreyma um fyr- irfram. Leikir gegn þessum stór- þjóðum voru jafnir og við töpuðum naumlega í erfiðum leikjum. Það væri illa sagt af mér ef ég væri ekki ánægður með frammistöðu liðsins. Leikmenn hafa lagt mikið á sig og eru reynslunni ríkari fyrir framtíð- ina og það sést á þessu að það er hægt að gera vel og menn verða að stuðla að því í framtíðinni að svo verði gert.“ Stuðlar þessi árangur ekki að því að þig langar að halda áfram sem landsliðsþjálfari? „Það hefur verið gaman að vinna með þetta lið og verkefnið hefur gengið vonum framar. Þegar maður skoðar framtíðina er margt sem birtist en menn verða að skoða hvað það er sem þeir leita eftir. Hver nið- urstaðan af því verður kemur í ljós.“ ■ BJARKI Gunnlaugsson sat allan tímann á varamannabekknum á laugardag er lið hans, Preston North End, vann góðan l:0-sigur á Bristol City í ensku 2. deildinni. ■ WALSALL er enn í fallsæti í 1. deildinni, þrátt fyrir l:0-sigur á Birmingham á laugardag. ■ ENSKIR fjölmiðlar greindu frá því um helgina að líkur væru á að Roy Evans verði næsti knattspyrnustjóri Bolton Wanderers, liðs þeirra Guðna Bergssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen. Þjálfarinn Phil Brown, sem stjórnað hefur Bolton síðan Colin Todd lét af stjóm í fyrra mánuði var talinn líklegur til að hreppa hnossið, en ýmsir hafa látið í ljós efasemdir og borið við reynsluleysi þjálfarans. Evans, sem rekinn var frá Liverpool á síðustu leiktíð, hefur verið atvinnulaus síðan. ■ EKKI er þó gert ráð fyrir því að Evans verði ráðinn alveg á næstunni, því til stendur að gefa Brown lengri frest til að sanna sig. Bolton tapaði fyrir Wolves um helgina og að venju var Guðni Bergsson í vörn liðsins, en Eiður Smári var á sama tíma að leika með íslcnska landsliðinu í París. ■ NOTTINGHAM Forest hefur ekki gert formlegt tilboð í Eið Smára Guðjohnsen, ef marka má orð knattspyrnustjóra liðsins og leikmanns, Davids Platts. Hins vegar hefur hann mikinn áhuga á leikmanninum. „Ég hef fylgst með honum og er mjög hrifinn," er haft eftir Platt á heimasíðu Forest. ■ MAN. Utd. virðist hafa gefist upp í þeirri viðleitni sinni að krækja í landsliðsmiðvörðinn Sol Campbell frá Tottenham. Nýjasta útspil meistaranna var að sögn fólgið í því að bjóða fimmtán milljónir punda í kappann og að auki framheijann Ole Gunnar Solskjær. I fyrra bauð Tottenham tæpar sex milljónir punda í Solskjær hinn norska. ■ MAN. Utd. er þó ekki hætt að leita að varnarmönnum og í gær var skýrt frá því að liðið hefði tvo sterka leikmenn í sigtinu. Annar er Antonio Carlos Zago frá Brasilíu og hinn er portúgalski landsliðsmaðurinn Fernando Coutó, sem nú leikur með Lazio á Italíu. ■ PAUL Ince, leikmaður Middlesbrough, verður frá keppni í mánuð hið minnsta vegna uppskurðar sem hann þarf í vegna kviðslits. Þetta kom í ljós rétt fyrir landsleik Englands og Belgíu í Sunderland, en Ince lék á miðjunni með enska liðinu. ■ BOBBY Robson verður líklega innan skamms boðinn nýr samningur við Newcastle, samningur sem gildir til næstu fjögurra ára eða þar til Robson verður sjötugur. Stjórinn var á dögunum fenginn til bráðabirgða eftir að Ruud Gullit lét óvænt af störfum, en þykir hafa staðið sig svo vel að forráðamenn Newcastle vilja tryggja sér krafta hans til langframa sem fyrst. ■ MARC Overmars, útherjinn snjalli hjá Arsenal, virðist kominn í kuldann hjá hollenska landsliðinu. Frank Rijkaard, þjálfari Hollendinga, segir að Overmars virðist grunsamlega oft verða misdægurt er landsleikir nálgist, en sé þeim mun betri í leikjum sínum með Arsenal. „Ég er aðdáandi Overmars, en ég vil ekki leikmenn sem beita sér ekki af fullum styrk fyrir hönd þjóðar sinnar, eh blómstra síðan með félagsliðum sínum,“ segir Rijkaard. ■ HOLLAND og Brasilía skildu jöfn, 2:2, í vináttulandsleik á laugardag í Hollandi. Heimamenn komust í 2:0 og misnotuðu vítaspyrnu, en Brassar hrukku svo í gang og hefðu getað stolið sigi-inuiii undir lokin. Úrslit Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu Tólf lið hafa nú tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Hollandi og Belgíu næsta sumar Holland sem gestgjafi Belgía sem gestgjafi Italía sigraði í 1. riðli undank. Noregur sigraði í 2. riðli undank. Þýskaland sigraði í 3. riðli undank. Frakkland sigraði í 4. riðli undank. Svíþjóð siqraði í 5. riðli undank. Spánn sigraði í 6. riðli undank. Rúmenía sigraði í 7. riðli undank. JÚgÓslavía sigraði í 8. riðli undank. Tékkland sigraði í 9. riðli undank. „Amsterdam ArenA" HOLLAND ^ ÞYSKA- ^ LAND Amsterdam Arnheim_I „Gelredome“ Rotterdam^g£Í_« rtT I 30.000 sæti Portúgal með besta árangur liðs í 2. sæti riðils (7. riðill) Hin 8 liðin í 2. sæti sins riðils leika um 4 síðustu sætin: Danmörk, Slóvenía, Tyrkland, Úkraína, England, ísrael, írland og Skotland

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.