Morgunblaðið - 12.10.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 B 11,
Naunrvt hjá
meistur-
unum að
Varmá
AFTURELDING vann nauman sigur á KA í bráðfjörugum og
skemmtilegum leik að Varmá á laugardaginn 28:27 þar sem
engu mátti muna að KA-menn hirtu annað stigið á lokakaflanum
eftir að hafa verið fimm mörkum undir, 27:22, þegar tæpar átta
mínútur voru til leiksloka. Mosfellingar hafa þar með fullt hús
stiga eftir þrjár umferðir ásamt Fram en KA-menn fylgja liðunum
tveimur fast eftir.
Afturelding hafði frumkvæðið
lengst af í fyrri hálfleik en KA
fylgdi fast á eftir. Varnir beggja liða
voru brokkgengar
ívar og sóknarmönnum
Benediktsson voru oft mislagðar
skrifar hendur. Undir lok
íyrri hálfleiks skiptu
KA-menn úr 6-0 vörn í framliggj-
andi 3-2-1 vörn og komu verulegu
róti á sókn Aftureldingar fyrir vikið.
Náðu norðanmenn þar með foryst-
unni skömmu íyrir leikhlé, 10:9, og
héldu fengnum hlut fram að hálfleik,
er þeir voru verðskuldað tveimur
mörkum yfir, 15:13.
Heimamenn komu betur undir
það búnir að mæta framliggjandi
vörn KA í byrjun síðari hálfleiks,
voru hreyfanlegri í sókninni og opn-
uðu sér þannig leiðir að markinu.
Vörn Mosfellinga hresstist um leið
og Bergsveinn Bergsveinsson tók að
verja. Þar af leiðandi skildu leiðir
liðanna, Afturelding náði forystu á
nýjan leik og virtist ætla að sigla ör-
ugglega í höfn með sigur í fartesk-
inu. En leikmenn KA neituðu að gef-
ast upp, tóku tvo leikmenn UMFA
úr umferð í stöðunni 27:22. Við það
kom óðagot á meistarana sem
misstu boltann hvað eftir annað og
áður en varði voru gestirnir búnir að
minnka muninn í eitt mark, 27:26,
og hálf þriðja mínúta til leiksloka.
Talsverður handagangur var í öskj-
unni á lokamínútunum en Mosfell-
ingum tókst að halda fengnum hlut
þótt ekki hefði miklu mátt muna að
liðin skildu með skiptan hlut.
„Við byrjuðum vel en létum fram-
liggjandi vöm KA koma okkur í
uppnám," sagði Bjarki Sigurðsson,
fyrirliði Aftureldingar, í leikslok.
„Þá var vörnin okkar sein af stað.
Við áttum hins vegar von á að KA
myndi bæði leika 6-0 vöm og 3-2-1
þannig að vörn þeirra átti ekki að
koma okkur í opna skjöldu. Undir
lokin vorum við komnir með góða
forystu er þeir tóku tvo leikmenn út
hjá okkur. Fjórir gegn fjómm á að
þýða veislu fyrir sóknannennina en
því miður féllum við í þá gryfju sem
KA-menn sóttust eftir, það er að
leika af ónákvæmni. Þar með
komust þeir á bragðið og náðu nærri
því að jafna, en við náðum að halda
stigunum og það er aðalatriðið.
Þetta var hörkuleikur tveggja góðra
liða,“ sagði Bjarki.
KA-liðið barðist vel og innan þess
em efnilegir leikmenn sem stóðu sig
einkar vel, einkum þó Heimir Örn
Arnason og Halldór Sigfússon sem
fóm hreinlega á kostum lengst af.
Fleiri komu við sögu og ljóst að KA-
liðið þarf ekki að örvænta með þessa
efnilegu menn og fleiri innan sinna
vébanda.
Erfið tíð í nánd hjá Fylki
Farið nú að spila handbolta, dóm-
arar og leilonenn. Það er hund-
leiðinlegt að horfa á þetta!“ Þetta
hrópaði einn áhorf-
Edwin enda í íþróttahúsinu
Rögnvaldsson við Strandgötu í
skrifar Hafnarfirði er Hauk-
ar og Fylkir áttust
við í 1. deild karla á íslandsmótinu í
handknattleik á sunnudagskvöld.
Það er í eðli lítilmagnans í íþrótt-
um, a.m.k. þess sem leiðir hugann að
viðfangsefninu, að reyna að þvinga
andstæðinginn, ofjarlinn, til þess að
bregða út af vananum - að hleypa
leikjum upp í „vitleysu". Það reyndi
Fylkir í kappleik sínum við Hauka,
leik sem lauk með auðveldum sigri
hinna síðarnefndu - 33:22.
Fylkismenn reyndu að verjast
sóknum heimamanna framarlega.
Hvort sú aðferð hafi lánast þeim
betur en einhver önnur skal ósagt
látið, því Haukar skomðu fjórtán
mörk úr hraðaupphlaupum, eða áð-
ur en leikmenn Fylkis gátu stillt
vörn sinni upp.
Vörn Hauka, sem var „flöt“, þ.e.
samkvæmt skipulaginu 6-0, var of
sterk fyrir Fylki. I hjarta hennar
vom Tékkinn Petr Baumruk og
Rússinn Alexander Shamkuts ekki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Norski hornamaðurinn Lasse Stenseth var atkvæðamesti leikmaður Hauka.
árennilegir. í fyrri hálfleik tóku
Fylkismenn fjöldann allan af ótíma-
bæmm skotum, sem höfnuðu annað
hvort í varnarmúrnum eða í höndum
Magnúsar Sigmundssonar. Þannig
geystust Hafnfirðingar í hraðaupp-
hlaup og skoruðu alls níu mörk af
sautján með þeim hætti fyrir leikhlé.
Leikurinn reyndi ekki mikið á
Hauka. Norski hornamaðurinn
Lasse Stenseth var atkvæðamesti
leikmaður liðsins og skoraði nokkur
vel útfærð mörk úr hraðaupphlaup-
um. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, leik-
stjórnandinn sem lék áður með
Haukum, var besti maður Fylkis.
Auk hans sýndi Eymar Krager fal-
leg tilþrif er hans naut við, en hann
fékk ekki að spreyta sig í skyttu-
hlutverkinu fyrr en undir lok leiks-
ins.
Guðmundur Þórðarson, leikmaður
og þjálfari Fylkis, sagðist hafa orðið
nærri orðlaus er hann upplifði þetta
kvöld við Strandgötuna. „Við gerð-
um of margar villur í leiknum, skut-
um stanslaust í vörnina og þeir
refsuðu okkur eins og skot. Leikur-
inn hjá okkur snerist hreinlega um
að auðvelda þeim [Haukum] verkið.
Við misstum boltann og lukum sókn-
unum á röngum tíma. Það er helsta
skýringin. Það er greinilegt að hug-
arfarið var ekki rétt fyrir þennan
leik. Það er alveg ljóst. Maður verð-
ur alveg orðlaus þegar slíkt gerist.
Mér fannst allt mögulegt þróast
okkur i óhag. Við vorum bara léleg-
ir,“ sagði Guðmundur, sem er orðinn
41 árs en tekur eigi að síður til
hendinni í miðvörn Fylkisliðsins.
Ekki er vanþörf á. Skortur er á
reyndum mönnum í liðinu, sem
Essen steinlá heima
Iörg óvænt úrslit urðu í þýsku
deildinni í handbolta um helg-
ina. Tusem Essen beið sinn stærsta
ósigur á heimavelli í sögunni, 33:21,
fyrir Nettelstedt og Nordhorn tap-
aði óvænt stigi á heimavelli með
21:21 jafntefli við Frankfurt. Kiaus
Schorn, aðaleigandi Tusem Essen,
var ekki ýkja glaður eftir leikinn við
Nettelsted á sunnudag. „Svona
frammistaða leikmanna verður ekki
liðin meðan ég stjórna hér. Leik-
menn krefjast hærri launa, sem þeir
fá, og á móti krefjumst við árangurs
af leikmönnum. Það sem þeir sýndu
hér í dag verður ekki liðið,“ sagði
Schorn, eftir stórtap liðsins gegn
Nettelstedt í hinni frægu Grugahalle
í Essen þar sem Essen var niður-
lægt með tólf marka tapi, 33:21, af
miðlungsliði Nettelstedt.
Hvorki Patrekur Jóhannsson né
Páll Þórólfsson voru á meðal marka-
skorara Essen að þessu sinni.
Guðmundur Hrafnkelsson var
óheppinn í leik sínum með Nordhorn
gegn Frankfurt. Hann lenti í slæmu
samstuði við einn leikmanna Frank-
furt og er óttast að hann hafí slitið
liðbönd í ökkla. Nordhorn var í vand-
ræðum allan tímann með frískt lið
Frankfurt og var 21:21 jafntefli
sanngjörn niðurstaða. Jochen Fratz
var markhæstur hjá Nordhorn með
8 mörk en Immel gerði 5 fyrir
Frankfurt sem lék afar sterkan
varnarleik allan timann.
Flensburg virðist eitthvað vera að
gefa eftir í toppbaráttunni ef marka
má síðustu leiki liðsins. Liðið lék um
helgina gegn botnliði Willstatt og
mátti þakka fyrir að fara heim með
bæði stigin. Leikurinn endaði 24:26
og vora leikmenn Willstatt miklh-
klaufar að ná ekki jafntefli. Gústaf
Bjarnason gerði 5 mörk fyrir lið sitt
og var einn besti maður liðsins.
Magnús Sigurðsson komst hins veg-
ar ekki á blað að þessu sinni. Christi-
ansen var að venju markhæstur hjá
Flensburg með 9 mörk.
Sigurður Bjarnason og félagar í
Wetzlar tóku stórlið Groswallstadt í
kennslustund á heimavelli og unnu
stórsigur, 28:17. Sigurður gerði 3
mörk og lék vel.
Bayer Dormagen lék afspyrnuilla
í leik sínum gegn Bad Schwartau.
Staðan í leikhléi var 9:4 Schwartau í
vil og endaði leikurinn 16:13 fyrir
Bad Schwartau. Þetta er eitt lægsta
skor í sögu deildarkeppninnar og
sagði annar þjálfara Dormagen, Pet-
er Pyscall, að nú væri botninum náð.
Pyscall þjálfar liðið ásamt Guðmundi
Þ. Guðmundssyni. Goran Stojanovic,
markvörður Schwartau, varði fimm
vítaköst í leiknum. Héðinn Gilsson
var ekki meðal markaskorara hjá
Dormagen en Róbert Sighvatsson
gerði tvö mörk og Daði Hafþórsson
eitt.
skýrii- að hluta til illa útfærðan
sóknarleik liðsins, en sigurviljann
vantar ekki. En maðurinn lifir ekki á
brauði einu saman. Fleira þarf en
löngun til að knýja fram sigur.
Þriðja gírinn vantaði
Hugur allra Islendinga var hjá
knattspyrnulandsliðinu í París
á laugardaginn. Því miður fyrir
áhorfendur á leik
Stefán HK og Fram í fyrstu
Pálsson deild karla voru leik-
skrífar menn beggja liða þar
engin undantekning.
Leikurinn var með ólíkindum daufur
og leiðinlegur á að horfa, þótt jafn-
ræði hafi verið með liðunum.
Framarar fóm með sigur af hólmi,
24:27, og verma toppsætið ásamt
Aftureldingu, en einn áhorfandi
hafði að orði að réttast væri að liðið
afsalaði sér stigunum, svo döpur
hefði viðureignin verið.
HK-menn mega raunar naga sig í
handarbökin yfir að fara tómhentir
frá leiknum. Þeir höfðu forystu nán-
ast frá fyrstu mínútu, en skoraðu
ekki mark á fimm síðustu mínútun-
um á meðan Framarar breyttu stöð-
unni úr 24:23 í 24:27. Var þá mjög
dregið af heimamönnum og kjarkur-
inn virtist bresta. Fyrri hálfleikur
var með ólíkindum illa leikinn og
nánast ekkert sem gladdi augu
áhorfenda, ef undan eru skilin nokk-
ur góð mörk Hjálmars Vilhjálms-
sonar, besta manns Kópavogsbúa,
og ágæt markvarsla Hlyns Jóhann-
essonar. Framarar vora ráðvilltir og
hugmyndasnauðir og gerðu sér að
góðu að elta HK-menn sem höfðu
lengst af eins til tveggja mai’ka for-
ystu. Virtist muna mikið um fjar-
vera Njarðar Ái’nasonar sem nef-
brotnaði á æfingu á dögunum og lék
því ekki með. Það var ekki fyrr en á
27. minútu að dró til tíðinda, en þá
fékk Robertas Pauzoulis í liði gest-
anna rautt spjald fyrir brot. Var sá
dómur allt of harður, en það var til
marks um áhugaleysi Framara að
þeir höfðu vart fyrir því að mótmæla
honum.
í síðari hálfleik ákváðu þeir Guð-
mundur Helgi Pálsson og Norðmað-
urinn Kenneth Ellertsen að taka
leikinn í sínar eigin hendur. Heima-
menn vörpuðu frá sér góðu tækifæri
til að ná öraggri forystu um miðjan
hálfleikinn, þegar þeir voru tveimur
leikmönnum fleiri í eina og hálfa
mínútu, í stöðunni 18:15, en í staðinn
náðu gestirnir að halda hreinu og
minnka muninn. Framai-ar fylltust
sjálfstrausti en HK-menn vonleysi
og gestirnir sigldu hægt og bítandi
fram úr.
Sem fyrr sagði skoraðu hinir blá-
klæddu fjögur síðustu mörkin og
stálu þannig sigrinum á lokasprett-
inum. Munaði þar mest um hinn
norska Ellertsen. Þar fer augljós-
lega snjall og reynslumikill leikmað-
ur sem mun reynast Safamýrarpilt-
um drjúgur í vetur.
Aron maður
leiksins
ARON Kristjánsson, landsliðs-
maður í handknat tlcik, skor-
aði sex mörk og var útnefndur
maður Ieiksins þegar dönsku
meistararnir í Skjern slógu
hollensku meistarana í Sittar-
dia út úr forkeppni Meistara-
deildar Evrópu. Skjern vann
lcikinn í Hollandi með sex
marka mun, 28:22.
Segja má að vikan hafi ver-
ið viðburðarík hjá Aroni, því í
síðustu viku eignaðist unnusta
hans, handknattleikskonan
Hulda Bjarnadóttir, fyrsta
barn þeirra - myndarlegan 17
marka son. Hélt Aron upp á
fæðingu sonarins með stórleik
á þriðjudeginum fyrir viku í
dönsku bikarkeppninni.
Skjern sigraði þá Bjerringbro
KFUM í átta Iiða úrslitum
22:19 og var Aron einn besti
maður vallarins - skoraði sjö
mörk.
tfr Aðalfundur
Munið aðalfund knattspyrnudeildar
í kvöld kl. 20.00
í hátíðarsal félagsins að Hlíðarenda.
Allir sannir Valsmenn eru hvattir til að mæta