Morgunblaðið - 12.10.1999, Page 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 B %’
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Brynjar Björn Gunnarsson um jöfnunarmarkið
Munaði litlu að ég
hætti við að skjóta
„AÐ gera mark gegn þessu
liði er hreint út sagt frábært,
en það sem kom mér mest á
óvart var að við skyldum
jafna leikinn eftir að hafa lent
2:0 undir. Leikurinn þróaðist
því á skemmtilegan hátt í síð-
ari hálfleik,“ sagði Bryiyar
Björn Gunnarsson, er skoraði
annað mark íslenska liðsins
gegn Frökkum á Stade de
France.
Brynjar sagði að liðið hefði
ekki leikið af nægilegri
grimmd gegn Frökkum í
fyrri hálfleik. „Við vorum
beittari í síðari hálfleik og
uppskárum eftir því. Við fór-
um alltaf út í þennan leik með
því hugarfari að við hefðum
trú á því sem við vorum að
gera og sennilega ætluðu
Frakkarnir að taka því rólega
í seinni hálfleik og við geng-
um á lagið. Þeir áttu greini-
lega erfítt með að komast
áfram eftir að hafa fengið á
sig tvö mörk.“
Brynjar sagði að er hann
komst gegn Bemard Lama,
markverði, hefðu hann og
Rúnar Kristinsson haft
tækifæri til þess að skjóta á
markið. „Það munað litlu að
ég hætti við að skjóta en ég sá
sem betur fer að Rúnar
bakkaði og ég náði að pikka í
boltann. Þar með jöfnuðum
við leikinn og allt gat gerst.“
Frakkar
voru sem
frosnir
Islenska landsliðið hefur mörg afrek unnið
í undankeppni Evrópukeppninnar í knatt-
spyrnu. Gisli Þorsteinsson fylgdist með
því er landsliðið bætti enn einni rósinni
í hnappagat sitt, á þjóðarleikvangi Frakk-
lands - Stade de France - í útjaðri París-
ar, er það vann upp tveggja marka forystu
heimsmeistara Frakka, í einum magnað-
asta leik sem það hefur leikið.
Frakkar höfðu fyrir leikinn sagt
að erfitt yrði að brjóta niður
vöm íslenska liðsins og kváðust við-
búnir því að leikurinn yrði i jámum
lengi vel. Youri Djorkaeff, leikmað-
ur franska liðsins, sagði meðal ann-
ars að íslenska liðið væri engin Ital-
ía, heldur færi langt á líkamlegum
styrk og því yrðu hann og félagar
hans að hafa þolinmæði til að brjóta
liðið niður. í raun þurftu Frakkar
ekki að bíða eins lengi og þeir töldu,
sjálfsmark sem Ríkharður Daðason
gerði á 18. minútu kom Frökkum á
bragðið. Markið var íslenska liðinu
áfall enda hafði það gert sér vonir
um að halda Frökkum eins lengi frá
marki og mögulegt væri og freista
þess að nýta skyndisóknir sínir.
Hvomgt gekk eftir því íslenska liðið
fékk litla möguleika fyrir framan
franska markið í fyrri hálfleik fyrir
utan skot sem Þórður Guðjónsson
átti en það fór yfir Bemard Lama,
markvörð Frakka, og framhjá
marki. Sóknarþungi franska liðsins
hélt áfram allan fyrri hálfleik og
vom íslensku leikmennimir í eilíf-
um eltingarleik við þá frönsku, sem
byggðu sóknir sínar ^inkum í kring-
um Zinedine Zidane, er fór á kost-
um í leiknum.
Þegar allt leit út fyrir að íslenska
liðið hefði jafnað sig á fyrsta mark;
inu knúði ógæfan dyra öðm sinni. I
þetta skiptið skeiðaði Youri Djorka-
eff í gegnum vöm íslenska liðsins,
eins og svo oft áður í leiknum, og
skoraði á undraverðan hátt. Hann
var með fjóra íslenska leikmenn í
eftirdragi, virtist missa boltann en
fékk hann aftur og setti hann í net-
ið. Markið kom á slæmum tíma, rétt
fyrir leikhlé, og virtist viðbúið að nú
hefði íslenska liðið tapað áttum í
keppninni - síðustu leikir hefðu
ekki gengið sem skyldi, tap gegn
Rússum í Moskvu og gegn Ukraínu
í Reykjavík. Var þessi árangur sem
náðst hafði tilviljun og vom and-
stæðingar þeirra búnir að sjá leik
íslenska liðsins fyrir? Óneitanlega
hafa slíkar hugsanir læðst að stuðn-
ingsmönnum íslenska liðsins enda í
fyrsta skipti sem liðið fékk á sig tvö
mörk í leik í undankeppninni, hvað
þá í einum hálfleik.
Frakkar töldu sig í ákjósanlegri
aðstöðu fyrir seinni hálfleik, með
tveggja marka forystu og hugðust
leika eins og sá sem valdið hefur
það sem eftir lifði leiks. En þar van-
mátu þeir styrk íslenska liðsins,
sem virtist tvíeflast við þann vanda
sem við því blasti - eins og svo oft
áður í keppninni. Ljóst var að ís-
lenska liðið ætlaði sér að gera betur
og glæsilegt skot Eyjólfs Sverris-
sonar úr aukaspyrnu af 30 m færi,
sem hafnaði í netinu, sýndi að þeir
vom ekki dauðir úr öllum æðum.
Roger Lemerre, þjálfari Frakka,
var æfur og baðaði út öllum öngum
og hrópaði til sinna manna, en þeir
virtust ekki taka mark á þjálfaran-
um því þeir stóðu sem steinmnnir á
vellinum og vissu ekki hvaðan á sig
stóð veðrið.
Markið sló Frakka út af laginu og
þótt ótrúlegt megi virðast vom
heimsmeistaramir heillum horfnir
gegn íslensku leikmönnunum, sem
héldu áfram að sækja og uppskám
annað mark sjö mínútum síðar, eða
á 56. mínútu leiksins. Aðdragandi
marksins var einstaklega vel út-
færður, Rúnar Kristinsson náði
knettinum mitt á milli vítateigs og
miðju franska liðsins. Hann sendi á
Brynjar Bjöm Gunnarsson er kom
honum á Eið Smára Guðjohnsen,
sem var nýkominn inn á sem vara-
maður. Eiður fékk franskan vamar-
mann strax í bakið en honum tókst
að koma knettinum inn í vítateiginn
þar sem Rúnar og Brynjar vom
skyndilega einir gegn Bemard
Lama, markverði franska liðsins á
meðan vamarmenn gestanna, sem
fyrir rúmu ári var hælt á hvert reipi
fyrir sterkan og agaðan leik, vom
víðsfjarri. Brynjar skoraði og
franskir áhorfendur á Stade de
France gripu andann á lofti.
Stemmningin strax eftir markið var
sérstök á vellinum. Franskir áhorf-
endur þögðu þunnu hljóði, leikmenn
franska liðsins vom sem frosnir,
stóðu og göptu, rifust eða reittu hár
sitt yfír þeirri stöðu sem liðið var
komið í. A meðan kættust íslensku
leikmennimir og stuðningsmenn
þeirra í stúkunni. Þessi viðburður
verður án efa er fram líða stundir
einn sá markverðasti í sögu ís-
lenskrar knattspymu. Aðeins einu
liði, Rússum, hafði tekist að skora
meira en eitt mark á sjálfum þjóð-
arleikvangi Frakka í keppninni þar
til Island mætti á Stade de France.
Frönskum áhorfendum var ekki
skemmt, þeir tóku að flauta og
hrópa að leikmönnum sínum, ekki
síst Lama sem þeir töldu að ætti
Spenna í París og Moskvu ^rniáti
Breytingar á stöðu liðanna í 4. riðli Frakkland Rússland
á meðan leikirnir stóðu yfir - ísland - Úkraína
Tímaröð markanna í leikjunum
sem hófust báðir kl. 16:00
. Kl. Leik- 1. sætí í riðli 2. sæti í ríðli 3. sæti 4. sæti
Isl. tími min. EM 2000 sæti Leikur um sæti í 4. riðli (stig) í 4. riðli (stig)
Frakkar voru úti er Brynjar Björn jafnaði
París 16:17 Ríkharður, sjálfsm. 1:0 (17.) Frakkiand (21) Úkraína (20) Rússland (19) ísland (15)
París 16:38 Y. Djorkaeff skorar 2:0 (38.) Frakkland (21) Úkraína (20) Rússland (19) ísland (15)
Paris 17:02 Eyjólfur skorar 2:1 (47.) Frakkland (21) Úkraína (20) Rússland (19) l'sland (15)
1 Paris 17:11 Brvniar Biörn iafnar 2; 2 Úkraína (20) Rússland (19) Frakkland (19) fsland (10)1
París 17:26 D. Trezeguet skorar 3:2 (71.) Frakkland (21) Úkraina (20) Rússland (19) fsland (15)
Moskva 17:30 K Karpin skorar 1:0 (75.) Rússland (21) Frakkland (21) Úkraína (19) ísland (15)
Moskva 17:42 A. Shevchenko jafnar 1:1 (87.) Frakkland (21) Úkraína (20) Rússland (19) fsland (15)
Eiður Smári Guðjohnsen, Helgi Sigurðsson og Brynjar Björn Gunnarsson fagna jöfnunarmarkínu sem Brynjar Björn skoraði
menn franska liðsins voru sem frosnir.
Morgunblaðið/Golli
■ á sama tíma sló þögn á franska áhorfendur og leik-
s
einhverja sök á mörkunum tveimur.
Flestir hafa búist við því að ís-
lenska liðið myndi draga sig aftur
eftir markið og freista þess að halda
fengnum hlut. En svo var ekki. Guð-
jón Þórðarson, þjálfari liðsins, sagði
fyrir leikinn að hann ætlaði sér að
tefla djarft gegn Frökkum og hann
hélt því áfram. Hann gerði engar
breytingar á liðsuppstillingu liðsins,
hélt tveimur leikmönnum í fremstu
víglínu og gerði tilraun til þess að
vinna leikinn. Þórður Guðjónsson
komst glettilega nálægt því er hann
skaut föstu skoti að marki og Bern-
ard Lama var í mestu vandræðum
með skotið, virtist úr jafnvægi en
tókst að slá boltann frá marki. Þá
átti Heiðar Helguson, sem kom inn
á seint í leiknum ágætan skalla að
marki sem Lama varði úti við stöng.
Smátt og smátt náðu Frakkar
tangarhaldi aftur á leiknum og létu
hvert skotið eftir annað dynja að
marki íslenska liðsins, en þau fóru
öll framhjá þar til David Trezeguet
skoraði sigurmarkið á 71. mínútu
leiksins. Frökkum var létt, þeir
höfðu loks fundið glufu á vöm ís-
lenska liðsins eftir margar tilraunir.
Ur því sem komið var ákvað Guðjón
enn á ný að tefla djarft. Hann
breytti úr leikaðferðinni 5-3-2 í 4-3-
3 og skipti vamarmanni út fyrir
miðjumann. Skiptingin virtist bera
ávöxt því Eiður Smári var ekki
langt frá því að skora, komst upp að
endamörkum en missti boltann of
langt frá sér. Undir lokin dró af ís-
lenska liðinu og Frökkum tókst að
skora tvisvar, í bæði skiptin var
Djorkaeff að verki, en mörkin voru
ekki talin gild, vegna rangstöðu,
sem þótti vafasamur dómur, og fyr-
ir hendi á Tony Vairelles.
Árangur íslenska liðsins gegn
heimsmeisturum Frakka er einstakt
afrek, að jafna leikinn eftir að hafa
lent 2:0 undir er eitthvað sem eng-
inn bjóst við, nema leikmenn liðsins
sem búa yfír miklum sigurvilja. Þeir
sögðust staðráðnir í að gera betur
eftir dapran fyrri hálfleik og sýndu
að árangur þeirra í keppninni er
engin tilviljun. Liðið hefur oftar en
einu sinni sýnt að það getur snúið
erfíðum leikjum sér í hag, slíkt átti
sér stað gegn Ukraínu í Kænugarði,
Rússum í Moskvu og nú gegn
Frökkum. Sannkölluð bylting hefur
átt sér stað hjá íslenska knatt-
spymulandsliðinu undir stjórn Guð-
jóns Þórðarsonar. Hugsunarháttur
leikmanna er gjörbreyttur, ekki er
lengur markmiðið að gera það besta
og sjá svo til. Nú er lagt af stað tO
sigurs og ekki virðist skipta neinu
máli hver andstæðingurinn er.
Islenska landsliðið var í baráttu
um að komast úr undankeppni í
fyrsta skipti allt fram á síðustu
stundu. Leikmenn liðsins og for-
svarsmenn hafa nú fengið nasaþef-
inn af því hve langt er hægt að kom-
ast og vilja örugglega komast í slíka
aðstöðu á ný. I raun er ekkert sem
mælir því mót, allir leikmenn liðsins
leika erlendis og fleiri til við bestu
aðstæður. En meira þarf til og
nauðsynlegt að til verksins sé feng-
inn þjálfari sem byggt getur á þeim
grunni sem fyrir er. Hvort það
verður Guðjón eða einhver annar
verður tíminn að leiða í ljós.
Morgunblaðið/Golli
íslensku áhorfendurnir sem mættu á Stade de France voru mjög áberandi þegar íslendingar náðu að jafna.
Hér fagna þeir jöfnunarmarkinu, 2:2.
Aftur dynur
ógæfan
yfir Rússa
RÚSSAR, sem sneru blaðinu við eftir hræðilega byrjun í keppni
fjórða undanriðils Evrópumótsins, (þeim sama og íslendingar
léku 0 voru aðeins fjórum mínútum frá því að tryggja sér þátt-
tökurétt í úrslitakeppni Evrópumótsins í Hollandi og Belgíu á
næsta ári. Þeir voru yfir gegn Úkraínumönnum á Luzhniki-vell-
inum í Moskvu er fimm mínútur voru eftir, en þá dundi ógæfa
þeirra yfir. Alexander Filimonov, markvörður liðsins, sló bolt-
ann í eigið mark eftir aukaspyrnu hins magnaða Andriys
Shevsjenko.
Fram að þessu þóttu Rússar,
sem komust yfir á 75. mípútu,
með marki Valerys Karpin úr auka-
spyrnu, stefna hraðbyri í úrslita-
keppnina. Það var ekki líklegt eftir
fyrstu leiki Rússa í riðlinum, þegar
þeir töpuðu fyrir Úkraínumönnum,
Frökkum og síðan Islendingum
með sjálfsmarki varnarmannsins
Panovs í blálokin. Þetta er því ekki
í fyrsta skipti sem landslið Rússa
tapar dýrmætum stigum með
síðbúnum, afdrífaríkum mistökum.
Jafntefli Rússa og Úkraínu-
manna í Moskvu nægði þeim síðar-
nefndu til að komast í aukaleiki um
sæti í úrslitakeppninni, en Frakkar
unnu riðilinn með 21 stig, einu
meira en Úkraína, og Rússar luku
leik með nítján stig.
Filimonov, markvörðurinn lán-
litli, virtist fullkomlega með á nót-
unum er fyrirgjöf Shevsjenkos
barst að marki, en á óskiljanlegan
hátt stýrði hann boltanum í eigið
net og féll niður á kné er það rann
upp fyrir honum hvað hann hafði
gert - Úkraínumenn fögnuðu hins
vegar ákaft.
Rússar höfðu lengst af tögl og
hagldir í leiknum, en Josef Sabo,
þjálfari Úkraínu, benti réttilega á
að hægt væri að sækja án afláts í
níutíu mínútur án þess að sigra.
„Þetta var ekki heppni. Markvörð-
urinn gerði einfaldlega mikil
mistök. Skotið frá Shevsjenko var
frábært; ég hef séð hann skora
mörg mörk úr þessu færi.“
Við jöfnunarmarkið gekk Oleg
Romantsev, þjálfari Rússa, um-
svifalaust til búningsherbergja í-
stað þess að fylgjast með gangi
mála á lokasekúndunum.
Hélt að
við færum með
sigur af hólmi
„ER við jöfnuðum leikinn hafði
ég á tilfinningunni að við mund-
um fara með sigur af hólmi. Ég
hafði þessa sömu tilfinningu fyr-
ir leik og jafnvel í stöðunni 2:0
fyrir Frakka. Er Eyjélfur skor-
aði sagði ég með sjálfum mér að
sigurinn væri okkar. Það munaði
hins vegar litlu að okkur tækist
að stela sigrinum,“ sagði Eiður
Smári Guðjohnsen, er kom inn á
í leiknum gegn Frakklandi og
lagði upp annað mark Islands.
Eiður sagðist hafa fundið sig
vel um leið og hann kom inn á í
leiknum. „Skömmu síðar fékk ég
boltann frá Brynjari [Gunnars-
syni] og vissi því hvert hann ætl-
aði, hreyfði mig til vinstri og
sendi boltann í gegnum vörnina.
Síðan var það spurning hvort
Brynjar eða Rúnar [Kristinsson]
næði að skora. Ég var ætíð sann-
færður um að annar hvor þeirra
gæti klárað tækifærið og skor-
að.“
Nokkur félagslið í úrvalsdeild
og 1. deild í Englandi hafa sýnt
Eiði Smára mikinn áhuga en
hann sagðist ekkert velta því
fyrir sér hvort frammistaða
hans í leiknum gegn Frakklandi
kæmi honum til góða. „Ég er
bara feginn að fá að spila og er
að deyja úr hamingju að fá að /Ú
taka þátt í þessum leik fyrir
framan jafn marga áhorfendur
og raun ber vitni. Það er gaman
að vita hvar maður stendur
gegn bestu varnarmönnum
heims. Ég held engu að síður að
ég eigi enn eftir að ná mér fylli-
lega eftir erfið meiðsl og sýna r
hvað í mér býr.“