Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 6
+
6 B ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR
Fáheyrðir
yfirburðir KA
Handboltaáhugamenn biðu spenntir eftir viðureign KA og Fram á
Akureyri sl. laugardag en spennan vék fljótt fyrir undrun þegar
leikurinn var kominn í gang. Ekki var að sjá að þarna ættust við
tvö jöfn lið í toppbaráttunni, yfirburðir KA voru slíkir að leik-
mönnum Fram féllust gjörsamlega hendur, sem kann ekki góðri
lukku að stýra í handknattleik. KA-menn gerðu út um leikinn
strax í fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 17:8 og lokatölur 32:18,
fjórtán marka sigur. Bæði liðin eru nú með 6 stig eftir fjóra leiki.
að var aðeins í byrjun sem
Framarar sýndu lit. Sebastian
Alexandersson varði tvö fyrstu
I skot KA-manna og
Stefán Þór Framarar skoruðu
Sæmundsson tvö mörk. Þá komu
skrifar þrjú mörk frá KA,
Fram jafnaði en eftir
það skildu leiðir. Staðan var 11:5
eftir 19 mínútna leik og þótt Reyn-
„ÞETTA var alveg frábært. Við
sýndum að við höfum kraft til
að spila þessa vörn í sextíu mín-
útur og ef við gerum það í
hverjum einasta leik skiptir
ekki máli hvaða lið leikur á
móti okkur. Menn voru líka með
einhverjar efasemdir um Bo
Stage en ég sagði þeim að bíða
og sjá, ég vissi hvað hann gæti
og hann sýndi það í þessum
leik. Annars erum við með tvo
góða menn í hverri stöðu og
ir Þór hefði þá aðeins varið tvö
skot í marki KA kom það ekki að
sök því vömin var ótrúlega sterk
og Framarar ráðalausir og mis-
tækir í sókninni. Gott dæmi um
þetta er sú staðreynd að KA-mönn-
um tókst að auka forskot sitt með-
an þeir voru tveimur mönnum
færri. Bo Stage og Jóhann G. Jó-
hannsson voru óstöðvandi og skor-
sama hver kemur inn á,“ sagði
Atli Hilmarsson.
Björgvin Þór Björgvinsson,
fyrrverandi KA-maður, var
frekar ókátur með þessa heim-
sókn norður. „Þeir voru miklu
grimmari og greinilega tilbúnir
en við ekki. Hver ástæðan fyrir
því er veit ég ekki en þeir voru
mun betri en við núna og það
var ekkert skemmtilegt að fara
inn í leikhléi með níu mörk á
bakinu," sagði Björgvin.
uðu 12 af 17 mörkum liðsins í hálf-
leiknum.
Já, það var vöm KA sem
Framarar réðu ekki við. Atli þjálf-
ari Hilmarsson hefur verið að þróa
mjög lifandi og hreyfanlega 5-1
vöm þar sem Jónatan Magnússon
er fremstur og hann er afar kraft-
mikill og klókur í því hlutverki.
Hinir fimm stíga ekki neinn línu-
dans heldur dansa brjálað diskó út
að punktalínu og utar ef þörf kref-
ur. Þetta sló skyttur Fram út af
laginu, Gunnar Berg, Pauzuolis og
Ellertsen fengu aldrei frið til að
taka sín nauðsynlegu skref og lyfta
sér upp. Vömin hélt sama dampi í
seinni hálfleik en Frömurum tókst
þó að hanga í KA fyrstu mínútum-
ar og minnka muninn í sjö mörk,
20:13. Þá skoruðu KA-menn 5 mörk
í röð og tryggðu sér öruggan sigur
með Bo Stage í broddi fylkingar en
hann skoraði 13 mörk og var maður
leiksins. Jóhann Gunnar var öflug-
ur í fyrri hálfleik og Magnús Agnar
og Guðjón Valur stóðu sig vel, sem
og aðrir leikmenn liðsins. Hjá
Fram var nánast allt í molum.
Sebastian varði allvel í fyrri hálf-
leik og Björgvin Þór Björgvinsson
stóð fyrir sínu. Undir lokin fengu
varamenn liðanna að spreyta sig og
sýndu þeir sannkallaðan kjúklinga-
dans.
■ Úrslit / B10
■ Staðan / B10
Hvað sögðu þeir?
Meistaramir
samir við sig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Magnús Már Þórðarson lék mjög vel með Aftureldingarliðinu.
MEISTARARNIR í Aftureldingu
fara vel af stað á íslandsmót-
inu og verða að teljast líklegir
til að verja titilinn. Á sunnu-
dagskvöld burstuðu þeir ÍBV
að Varmá, 28:19, og eru eina
liðið sem hefur fullt hús stiga
eftir fjórar fyrstu umferðirnar.
Eyjamenn áttu aldrei mögu-
leika í leiknum enda staðan í
hálfleik 15:7.
Bergsveinn Bergsveinsson,
markvörður Aftureldingar,
varði vel í fyrri hálfleik, alls 13 skot.
Vömin var líka sterk
Valur B enda myndaði þríeyk-
Jónatansson ið, Magnús Már, Alex-
skrífar ej Trúfan og Einar
Gunnar Sigurðsson,
múr sem erfitt var fyrir Eyjamenn
að brjóta á bak aftur. Gestimir vom
ragir við að skjóta og aðeins einn
sem hafði skotleyfi, vinstrihandar
skyttan Miro Barisic, sem gerði 11
mörk í leiknum. Sóknarnýting IBV í
fyrri hálfleik var aðeins 25% á móti
60% hjá Aftureldingu og segir það
allt sem segja þarf um leik liðsins.
Það var aðeins formsatriði að
klára síðari hálfleikinn fyrir Aftur-
eldingu enda aldrei spurning hvor-
um megin sigurinn lenti. Allt of
mikill munur var á getu liðanna
þannig að leikurinn yrði spennandi.
Varamennimir fengu að spreyta sig
síðustu mínúturnar hjá báðum lið-
um.
Magnús Már var besti leikmaður
Aftureldingar. Hann var með 100%
skotnýtingu, skoraði mörk í öllum
regnbogans litum, af línu, úr hraða-
upphlaupi, eftir gegnumbrot og
sýndi á sér nýja hlið er hann skor-
aði glæsilegt mark með langskoti.
Einar Gunnar var einnig öflugur og
þá sýndi hinn ungi Valdimar Þórs-
son skemmtilega takta sem leik-
stjórnandi.
Eyjamenn verða heldur betur að
taka sig á ef þeir ætla að halda sæti
sínu í deildinni. Þjálfarinn Boris
Bjarni Akbachev, sem tók út leik-
bann gegn Aftureldingu og horfði
því á leikinn úr stúkunni, á erfitt
verkefni fyrir höndum. Vamarleik-
urinn var í molum og hefur liðinu
ekki tekist að fylla skarð Sigmars
Þrastar markvarðar, sem varði
mest allra í deildinni í fyrra en
hætti sl. vor. I gegnum árin hefur
barátta oft einkennt Eyjaliðið og
fleytt því langt, en hún var ekki til.
FOLK
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Sigurbjörn Narfason lék vel með Víkingum og skoraði fjögur mörk. Hér reynir hann að koma knettinum framhjá Róberti Rafnssyni - inn á línuna
til Leós Arnar Þorleifssonar.
■ AFTURELDING lék í _ nýjum
búningum er liðið mætti ÍBV að
Varmá á sunnudagskvöld. Mosfell-
ingar hafa ávallt verið í rauðum
búningum en nýi búningurinn er
dökkblár.
■ BORIS Bjarni Akbachev, þjálfari
ÍBV, tók út leikbann á sunnudag og
sat því uppi í stúku þegar lið hans
fékk stóran skell og tapaði með níu
marka mun.
■ LITHÁARNIR í liði Afturelding-
ar, Savukynas Gintaras og Gal-
kauskas Gintas, léku ekki með liði
sínu gegn ÍBV á sunnudag vegna
meiðsla.
■ SNORRI Guðjónsson, leikstjóm-
andi Vals, átti 18 ára afmæli á
sunnudaginn er Valur mætti Fylki.
Hvort sem það var afmælinu um að
kenna átti Snorri rólegan dag, skor-
aði tvö mörk og lét lítið fyrir sér
fara en hann hefur farið mikinn í
nokkmm af íyrstu leikjum íslands-
mótsins með felögum sínum í Val.
■ SNORRI var yngsti leikmaðurinn
á leikvellinum í Fylkishúsinu að
þessu sinni. Hann er 23 árum og
rúmlega átta mánuðum yngri en
Guðmundur Þórðarson, þjálfari og
leikmaður Fylkis.
■ KARI Guðmundsson, félagi
Snorra í Val, átti einnig afmæli á
sunnudaginn, varð 23 ára. Kári átti
heldur ekki neinn stórleik, en gat þó
glaðst yfir sigrinum með félögum
sínum í leikslok.
■ INGIMUNDUR Helgason sem
gekk til liðs við Víkinga í sumar
hefur enn ekki fengið leikheimild og
ekki leikið fyrstu leiki liðsins á ís-,
landsmótinu í handknattleik. Hann
lék á síðasta vetri með HK en var
frá lengi vegna meiðsla. Þar áður
var hann með Aftureldingu en hann
hóf ferilinn hjá Víkingi.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Ragnar Óskarsson er kominn framhjá Leó Erni Þorleifssyni og
skorar eitt af fimmtán mörkum sínum.
Ragnar Óskarsson gerði 15 mörk
Sigurínn skiptir
mestu máli
„ÉG vil ekki segja að liðið hafi van-
metið Víkinga. Við vorum einfald-
lega seinir í gang og huganlega
einhver skrekkur í okkur. Við verð-
um að laga þá hluti sem aflaga
fóru, en það sem mestu máli skiptir
er að við tókum okkur tak, einkum
í vörn, og unnum leikinn," sagði
Ragnar Oskarsson, sem gerði 15
mörk fyrir IR gegn Víkingum í 1.
deild karla á sunnudagskvöld.
Aðspurður hvort hann væri ekki
ánægður með framgöngu sína í
leiknum sagði Ragnar að svo væri
en mest um vert væri að liðið hefði
unnið. „Vissulega er gaman að
skora en aðalatriðið var að vinna
leikinn," sagði Ragnar sem kvaðst
ekki hafa áður gert jafn mörg
mörk í 1. deild og hann gerði í
þessum leik.
Brotlending Víkinga
VÍKINGAR fóru illa að ráði sínu er þeir mættu ÍR-ingum í Víkinni á
sunnudagskvöld. Lengi vel höfðu þeir frumkvæðið í leiknum en
ómarkviss sóknarleikur frá miðjum síðari hálfleik varð liðinu að falli.
ÍR-ingar geta einkum þakkað Ragnari Óskarssyni að þeir fengu tvö
stig úr viðureigninni. Hann gerði 15 mörk og hélt liðinu á floti þegar
illa áraði.
Víkingar höfðu yfirhöndina nær all-
an leikinn og náðu mest þriggja
marka forystu. í fyrri hálfleik fór
Þröstur Helgason fyrir
sínu liði með góðum leik,
en hann gerði átta mörk í
leiknum. Þá stóð Hlynur
Mortheins sig vel í marki
Víkinga. Minna fór fyrir Þresti í síðari
' /:/
Þorsteinsson
skrifar
hálfleik enda tóku ÍR-ingar hann fast-
ari tökum en áður. Enginn var til þess
fallinn að halda uppi merkinu og er
komið var um miðjan hálfleikinn hrundi
sóknarleikur liðsins en það skoraði ekki
í átta sóknum í röð.
ÍR-ingar áttu heldur engan stjömu-
leik en þeir gerðu færri mistök og á
þessum tíma tókst þeim að saxa hægt
og bítandi á forskot heimaliðsins og
komast loks yfir. Þrátt fyrir brokk-
gengan leik beggja liða var leikurinn
afar spennandi og ekki ljóst fyrr en
undir lokin hvort bæri sigm- úr býtum.
í þeirri rimmu reyndust Breiðhyltingar
sterkari en Víkingar geta nagað sig í
handarbökin. Þeir höfðu leikinn í hendi
sér en fataðist flugið og liðið brotlenti
með ómarkvissum sóknarleik. Hlynur
Mortheins, markvörður Víkinga, sagði
erfitt að henda reiður á hvað misfórst
hjá sínu liði undir lokin. „Við fórum að
skjóta á ótímabærum augnablikum eða
missa boltann út af. Því má segja að við
höfum farið á taugum. Ef ég vissi hvers
vegna svona fór værum við sennilega
búnir að tryggja okkur fyrsta sigur
liðsins í deildinni. Það var grátlegt að
tapa leiknum enda höfðum við yfir-
höndina fram á síðustu stundu."
í liði ÍR-inga var Ragnar Óskarsson
í miklum ham og skoraði nánast af vild
og undarlegt að Víkingar skyldu ekki
ganga harðar fram gegn honum. Það
var ekki fyrr en undir lokin sem þeir
gerðu tilraun til þess að stöðva hann en
þá var það um seinan enda IR-ingar
komnir með undirtökin sem þeh- létu
ekki af hendi. Hrafn Margeirsson stóð
fyrir sínu í marki ÍR-inga og varði vel í
síðari hálfleik.
Fáll sem gladdi
augað í Árbænum
FYLKIR tapaði fjórða leik sínum í röð er liðið tók á móti Val á
heimavelli á sunnudagskvöldið, lokatölur 21:13. Sigurinn var
þó stærri en lengst af leit út fyrir því þegar rúmar tólf mínútur
voru til leiksloka skakkaði aðeins tveimur mörkum á liðunum,
14:12, Val í hag.
Ivar
Benediktsson
skrifar
Patrekur og Ólafur léku vel
NÝLIÐAR Nordhorn urðu að sætta
sig við sinn fyrsta ósigur í 1. deildar-
keppninni í Þýskalandi, þegar þeir
mættu sterku liði Flensborgai-,
30:22. Leikmenn Nordhorn veittu
Flensborg keppni í fyrri hálfleik,
voru þá aðeins einu marki undir,
15:14. Seinni hálfleikurinn byrjaði
með því að leikmenn Flensborgar
voru tveimur fleiri og gerðu þrjú
mörk án þess að nýliðarnir næðu að
svara fyrir sig. Eftir það var aldrei
spurning hvaða lið færi með sigur af
hólmi.
Lemgo átti í basli með Sigurð
Bjamason og samherja hans hjá
Wetzlar framan af, en fögnuðu síðan
stórsigri, 28:19. Meistaralið Kiel
vann Bad Schwartau í nágrannaslag
27:23. Danski landsliðsmaðurinn
Nikolaj Jacobsen var maður leiksins
- skoraði 12 mörk.
Wuppertal átti aldrei möguleika
heima gegn Essen í leik tveggja liða,
sem hafa ekki náð sér á strik að und-
anförnu. Essen náði fjögurra marka
forskoti fyrh- leikhlé, 14:10, og eftir
það var sigur liðsins aldrei í hættu,
28:25. Blöð í Wuppertal segja að lið
Wuppertal hafi ekki náð að leika einn
einasta góðan leik á keppnistímabil-
inu. Það munai' um minna að Dagui'
Sigurðsson og Valdimar Grímsson
leika ekki með liðinu vegna meiðsla.
Patrekur Jóhannesson átti mjög góð-
an leik með Essen, var sterkur í vöm-
inni og skoraði sex mörk - flest eftir
hraðaupphlaup. Heiðmar Felixson lék
síðari hálfleikinn með Wuppertal, en
náði ekki að setja mark sitt á leikinn.
Grosswallstadt vann ömggan sigur
á nýliðum Willstatt 31:22. Gústaf
Bjamason setti 5/2 mörk fyrir Will-
statt.
Dormagen náði ekki að rífa sig upp
gegn Magdeburg í „íslendingaslag"
þjálfai'anna Alfreðs Gíslasonar hjá
Magdeburg og Guðmundar Þ. Guð-
mundssonar hjá Dormagen. Sigur
Magdeburgar var aldrei í hættu í
Dormagen, 26:21. Ólafur Stefánsson
lék mjög vel með Magdeburg, skoraði
8/4 mörk. Héðhm Gilsson skoraði
þrjú mörk fyrir Dormagen, Róbert
Sighvatsson og Daði Hafþórsson eitt
mark hvor.
Gummersbach heldur sig við „kjall-
ai'a deildarinnar" efth' tap gegn
Nettelsted, 27:26. Gummersbach gat
jafnað leikinn með sjö leikmenn í
sókninni síðustu sek. leiksins - gegn
fjórum útileikmönnum Nettelsted.
Houlet komst þá á auðan sjó, en
heppnin vai' ekki með honum - skot
hans fór yfir markið.
Julian Róbert Duranona skoraði
þijú mörk fyrh' Eisenach, sem tapaði
19:15 gegn Frankfurt.
Aron skoraði þrjú
Aron Kristjánsson skoraði þrjú
mörk þegar dönsku meistaramir
Skjem töpuðu fyrir GOG Gudme í
Danmörku, 23:20. Leikmönnum
Skjem gekk illa að hitta markið i fyrri
hálfleik og mörg skotanna fóra í tré-
verkið. GOG náði því strax undirtök-
unum í leiknum, skoraði mörg mörk
úr hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik
og lagði granninn að góðum sigri.
Annars var leikurinn í heild af-
ar slakur og vafalaust einn sá
óburðugasti sem undirritaður hef-
ur nokkurn tímann
séð í 1. deild karla.
Það má teljast ólík-
legt, svo ekki sé fast-
ara að orði kveðið, að
Fylkismenn fái einhver stig í vet-
ur, taki þeir ekki algjörum ham-
skiptum þegar á mótið líður. Eins
og liðið lék að þessu sinni hefur
það lítið erindi í efstu deild og séu
ekki betri lið á boðstólum í 2.
deild er líklega réttast að fækka
liðum í 1. deild því engum tilgangi
þjónar að flytja lið upp á milli
deilda sem ekki er burðugra en
það Fylkis-lið sem lék að þessu
sinni.
Valsmenn voru reyndar lengst
af leiknum ekki mikið betri en
liðsmenn Fylkis, en hristu þó af
sér slenið á síðustu tíu mínútum
leiksins, gerðu sex mörk gegn
einu, er Fylkismenn þvarr þrek og
vilji. Eins og fyrr segir var leikur-
inn slakur og gerður var aragrúi
mistaka á báða bóga, þar sem
menn voru jafnvel að flaska á und-
irstöðuatriðum íþróttarinnar.
Leikurinn fór hægt af stað, illa
gekk að finna markið og baráttan
var í algleymi. Eftir rúmlega 15
mínútur var staðan 3:3, en þá tóku
Valsmenn smákipp og breyttu
stöðunni í 9:3. Heldur klóruðu
heimamenn í bakkann fyrir leikhlé
en þá stóðu leikar 10:5.
Snemma í síðari hálfleik stefndi
allt í öruggan Valssigur. Vals-
menn voru þremur til fimm mörk-
um yfir og Fylkismenn ekki lík-
legir til að brúa bilið. Valsmenn
léku hins vegar af nokkurri ákefð í
vörninni og all gróft að mati
slakra dómara. Bar svo við um
tíma að Valsmenn voru í tvígang
tveimur og þremur færri. Og þrátt
fyrir að Fylkismenn væru bitlaus-
ir tókst þeim þó að minnka mun-
inn í tvö mörk, en lengra komust
þeir ekki áður en þeim endanlega
féll allur ketill í eld og Valsmenn
innsigluðu sigur.
Barátta er enn fyrir hendi í liði
Fylkis sem skilar sér í sæmilegum
varnarleik á tíðum. Sóknarleikur-
inn er hins vegar bitlaus með öllu
og víst er að Arbæingar verða að
verða sér úti um hverfisstein til
þess að leggja egg sín á ef ekki á
illa að fara þegar þeir mæta sterk- •
ari liðum deildarinnar.
Markvörður þak-
inn auglýsingum
ORVAR Rudolfsson, markvörður Fylkis og fyrrverandi mark-
vörður Vals, var einna skástur Fylkismanna gegn Val. Hann
lék í peysu sem ekkert númer var á, en veiya er að markverð-
ir séu með númeramerkingar á peysum sínum eins og aðrir
leikmenn vallarins. Örvar var hins vegar skráður númer 12 á
leikskýrslu.
I stað númers var bakhluti peysu Örvars þakinn auglýsing-
um frá helstu styrktaraðilum Fylkisliðsins. Eins var með
framhlið búningsins, þar var ekkerl. númer, a.m.k. var það
ekki sýnilegt úr áhorfendastúkunni, en auglýsingar voru þar
einnig áberandi líkt og á bakinu þótt sýnu færri væru þær.
+