Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ 8 B ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 - «, KNATTSPYRNA Ríkharður Daðason skoraði fyrir Viking Stabæk, sem var án Péturs Marteinssonar, lagði meist- aralið Rosenborg 2:0 í norsku úr- valsdeildinni um helgina. Stabæk er í fimmta sæti er ein umferð er eftir af móti. Viking frá Stavangri er tveimur sætum neðar en liðið tapaði 3:2 fyrir Skeid sem er í harðri fallbaráttu. Ríkharður Daðason skoraði eitt mark fyrir Viking og hefur gert 16 mörk í deildinni, jafnmörg og Heiðar Helguson hjá Lillestrom. Rík- harður var með bestu mönnum liðsins ef marka má einkunnagjöf Verdens Gang. í Rogalands Avis segir að hann hafi skorað mark fyrir Viking í öllum leikjum síðan í byrjun ágúst. Þar kemur jafn- framt fram að leikmenn Vikings hafi haft hugann við leikinn gegn Werder Bremen í Evrópukeppni félagsliða og því hafi það tapað leiknum. Auðun Helgason var einnig í liði Vikings um helgina. Tromso gerði 2:2-jafntefli við Válerenga. Rune Lange skoraði eitt mark fyrir Tromso og hefur nú gert 21 mark í úrvalsdeildinni, er markahæstur er einni umferð er ólokið. Tryggvi Guðmundsson, sem átti ágætan leik með Tromso, er annar markahæsti leikmaður liðsins með 12 mörk. Lillestrom er í öðru sæti en liðið lagði Stromgodset 4:2. Heiðar átti góðan leik með liði sínu sam- kvæmt einkunnagjöf Aftenbladet. I Verdens Gang segir að bæði lið hafi leikið án nokkurra lykil- manna, sem voru meiddir eða veikir og Rúnar Kristinsson, leik- maður Lillestrpm, hafi verið einn þeirra. Stefán Gíslason hóf leikinn hjá Stromgodset en var skipt út af fyrir bróður sinn Val Fannar á 28. mínútu. Molde, sem er í þriðja sæti og einu stigi á eftir Lil- lestrom, vann Moss 1:0. Haugasund og Bryne tryggðu sér sæti í úrvalsdeild um helgina en Start þarf að leika um aukasæti við liðið sem lendir í þriðja neðsta sæti úrvalsdeildar. Bjöm Jakobs- son kom inn á hjá Raufoss er liðið tapaði 4:1 fyrir Clausenengen í lokaumferð í 1. deildinni. Raufoss lenti í 9. sæti deildarinnar. Kolbotn í fjórða sæti Kolbotn, sem Katrín Jónsdóttir leikur með í úrvaldeild kvenna, gerði 2:2-jafntefli við Bjornar í lokaumferð deildarinnar. Kolbotn lenti í fjórða sæti eftir góðan endasprett en illa gekk um miðbik tímabilsins. Katrín, sem á tvö ár eftir af samningi sínum, gerði níu mörk fyrir liðið á tímabilinu. Asker varð norskur meistari, Kfapp í öðru sæti og Þrándheimur í þriðja. iO Patrick Kluivert fékk fjög- urra leikja bann. Kluivert með fúkyrði PATRICK Kluivert, leikmaður Barcelona, fékk fjögurra Ieikja bann vegna brottreksturs af leikvelli gegn Real Madrid í síð- ustu viku, fyrir að hafa sagt nokkur vel valin orð við dómara leiksins. Sjálfur neitaði hann því að orðunum hafi verið beint að dómaranum. Sérfræðingar í varalestri fóru yfír myndband og kom þá í ljós að Kluivert er mun betri í spænsku en hann vill viðurkenna. Fúkyrðin sem hann lét vaða að dómaranum voru kröftugleg á spænskan mæli- kvarða, en leikmenn á Spáni eiga í safni sínu mikið af fúkyrð- um, sem eru þó ekki eins gróf og Kluivert lét sér um munn fara. Fyrir vikið missti hann af leiknum við nýliða Numancia sl. laugardag og gegn Athletic Bil- bao, Deportivo Courna og Ma- laga, sem verða á næstunni. FOLK ■ FABIEN Bartez markvörður Mónakó leikur ekki með félagi sínu næstu tvær vikur, hið minnsta. Bar- tez meiddist á hásin í 3:0 sigurleik Mónakó á Strassborg á laugardag- _inn. Hann lauk leiknum en fór í lít- ilsháttar aðgerð á sunnudaginn og það tekur sinn tíma að jafna sig eft- ir hana. ■ EFTIR leik Bayern Miinchen og Herthu Berlín tilkynnti Franz Bec- kenbauer, forseti Bayern á fundi með fréttamönnum, Mario Basler myndi ekki leika framar með liðinu. hann vildi ekki svara neinum spum- ingum - sagði að ástæðumar lægju fyrir; nóg er nóg! Basler hefur verið til vandræða hjá Bayem - hefur oft valið hið ljúfa líf og ekki virt reglur ^ Bayem. BECKENBAUER sagðist hafa allt annað við tíma sinn að gera en að vera stöðugt að ræða um Basler. Hann sagðist hafa nóg að gera við við að sinna nefnd á vegum FIFA, alþjóða knattspymusambandsins, sem væri í Þýskalandi, til að skoða aðstæður og kynna sér hugmyndir J>jóðverja vegna umsóknar þeirra á TIM 2006. Zidane bjargaði Juve en var síðan rekinn út af FRANSKI landsliðsmaðurinn Zinedine Zidane var hetja Juventus er hann gerði eina mark leiksins beint úr aukaspyrnu gegn AS Roma í ítölsku deildinni á sunnudag. Þetta var fyrsti sigur Juve á Ólympíuleikvanginum í Róm í átta ár. Með sigrinum fór Tórínóliðið upp fyrir Roma í þriðja sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Inter, sem tapaði óvænt fyrir Venezia. í toppsætinu situr Lazio sem vann Udinese á útivelli. Glæsimark Zidanes kom á 51. mínútu leiksins. Hann skrúf- aði boltann yfir varnarvegg Roma og efst í vinstra markhomið og var þetta fyrsta mark hans á tímabil- inu. Hann var síðan rekinn út af undir lokin fyrir aðra áminningu sína í leiknum. Rómverjar sóttu nokkuð stíft síðasta stundarfjórð- unginn. Van Der Sar markvörður var vandanum vaxinn og varði mjög vel. Þar með var fyrsta tap Roma á leiktíðinni staðreynd og það varð út um vonir liðsins að komast upp fyrir efsta liðið, Lazio, sem vann Udinese 3:0. Inter tapaði í Feneyjum Inter Milan, með Ronaldo innan- borðs, þurfti einnig að sætta sig við 1:0 tap gegn Venezia á útivelli og var þetta fyrsti ósigur liðsins á tímabilinu. Filippo Maniero gerði eina mark leiksins í síðari hálfleik. Ivan Zamorano komst næst því að skora fyrir Inter er hann átti skot í stöng af 25 metra færi. En það var markvörðurinn Angelo Pemzzi sem kom í veg fyrir enn stærri sigur heimamanna með góðri markvörslu. AC Milan átti í nokkru basli og mátti þakka fyrir jafntefli á móti Cagliari á San Siro-leikvanginum. Þjóðveijinn Oliver Bierhoff jafnaði, 2:2, seint í síðari hálfleik og kom í veg fyrir fyrsta tap liðsins á heima- velli í 13 mánuði. Úkraínski leik- maðurinn Andriy Schvchenko gerði fyrra mark AC Milan úr vítaspymu og var það sjötta mark hans á tíma- bilinu. Domenico Morfeo, fyrrver- andi leikmaður AC Milan og Dani- ele Berretta gerðu mörk Cagliari. Andrea Silenzi, fyrrverandi leik- maður Nottingham Forest, gerði fyrsta mark sitt í fjögur ár í efstu deild er hann skoraði í 3:1 sigri Tórínó á heimavelli gegn Bari. Vallecano heldur áfram að koma á óvart „Litla“ liðið frá Madríd, Rayo Vallecano, heldur áfram að koma á óvart í spænsku knattspyrnunnni. Liðið náði aftur efsta sætinu í deild- inni með 1:0 sigri á Alaves á sunnu- daginn. Bolo Perez gerði sigur- markið átta mínútum fyrir leikslok. A sama tíma gerði Barcelona óvænt jafntefli, 3:3, við Numancia á útivelli og er í öðru sæti tveimur stigum á eftir Vallecano. Deportivo Coruna og Celta Vigo eru í þriðja til fjórða sæti, en Real Madrid féll niður í átt- unda sæti með því að gera jafntefli, 2:2, gegn Oviedo á heimavelli. Sunderland í þríðja sæti KEVIN Phillips tryggði Sunderland 2:1 sigur á Aston Villa á Ljós- vangi í gær og þar með heldur liðið þriðja sæti deildarinnar. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Dion Dublin gestunum yfir á annarri mínútu síðari hálfleiks. Þrettán mínútum síðar jafnaði Phillips metin úr vítaspyrnu eftir að hendi var dæmd á Mark Delaney innan eigin vítateigs, en þar var greimlega um rangan dóm að í-æða. Phillips inn- siglaði siðan sigurinn sjö mínútum fyrir leikslok er hann skallaði boltann laglega úr miðjum vítateignum eftir snotra sendingu Stefan Schwartz. Phillips er markahæstur í úrvalsdeildinni, hefur gert 12 mörk, þremur fleiri en Alan Shearer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.