Morgunblaðið - 27.10.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.10.1999, Qupperneq 4
Annað tímabil þáttanna V.I.P. vestanhafs Morgunblaðið á netinu www.mbl.is Pamela festir sig í sessi Molly Culver, Pamela Anderson og Natalie Raitano. Þættirnir V.l.P. meó Pamelu Anderson eru að hefja göngu sína vestanhafs sitt annaö tímabil. Þar leikur hún smá- bæjarstúlkuna Vallery Irons sem kann aö njóta lífsins og verður viö komuna til Los Angeles yfirmaður lífvaröa- þjónustu. Vallery Irons Protections, skammstafaö V.I.P., hefur á sínum snærum þrjár kyn- þokkafullar konur sem leiknar eru af Pamelu, Molly Culver og Natalie Raitano, og tvo vöðvastælta karl.menn sem leiknir eru af Shaun Baker og Dustin Nguyen. Hafa þættirnir notiö töluverórar velgengni og eru sýndir á 200 stöövum. Pamela, sem er 32 ára, segist aðspurö vera upp meö sér af frægðinni, „en ég get ekki beðið eftir að komast heim og vera meö krökkunum mínum tveimur og njóta lífs- ins með eiginmanni mínum og laga cappuccino. Viö lifum bara venjulegu lífi." „Er þaðjá," grípur Nguyen fram í fyrir henni. „Ég skil ekki hvernig þú heldur þetta út - alla athyglina. Þaö væri kannski gaman í tvær vikur." „Hvað fyndist þér þá um níu ár?“ svarar Pamela. „Ég er mikið með Pam,“ útskýrir Raitano. „Við förum í verslunarferðir og reynum að hegöa okkur eins og venjulegt fólk. En fólk ofsækir hana og eltir um allt." „Manstu þegar við vorum elt í Beverly Center?" segir Pamela og hlær. „Við vorum í Bloom- ingdale's og földum okkur f undirfatadeildinni," segir Raitano og hlær. „Hversu gáfulegt er það?" skýtur hún til Pamelu. „Eins og þú værir ekki líkleg til að vera innan um undirfötin?" 27. október-9. nóvember SJÓNVARP .....6-22 ÚTVARP.......30-43 Ýmsar stöðvar . .30-43 Krossgátan .......44 Þrautin þyngri ... .45 Kvikmyndir í sjónvarpi.....46-47 Æskuástin elt Felicity á Stöð 2 .....14 Sjónvarpsstöðin Popptíví lítur dagsins ijós Afþreyingarsjónvarp og upplýsingamiðill fýrir ungt fólk .........23 Morgunblaðið / Dagskrá Útgefandi Árvakur hf. Kringl- unni 1 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 5691100 Auglýsingar: 5691111. Dagskrá: beinn sími: 5691259 Stjörnum prýdd aidamót Bing, Bryan Ferry eru á meöal sí- stækkandi hóps ætla að troða upp á árþúsundauppákomu sem skipulögö er af BBC. Bú- ist er við að um 800 milljónir víðs vegar um heiminn muni fylgjast með enda verður við- buröurinn sendur út á um 50 sjónvarpsstöðvum. Ekki er langur tími til stefnu og segir aöalhvatamaðurinn og fram- leiðandinn Zvi Dor-Ner um „2000 í dag" að þetta sé ótrúlega metnaðarfullt og flók- ið verkefni. „Vandamálin sem þarf að leysa eru gríöarlega stór," segir hann. —— Oprah sem forseti? • Spjallþátta- stjórnandinn vin- sæli, Oprah Win- frey er hvött til að bjóða sig fram til forseta af stuönings- mönnum glímukappans Jesse Ventura sem var kosinn á þing fyrir Minnesota fylki f fyrra. Svo margir leikarar hafa verið orðaðir við framboð til háttsettra embætta að jaörar við faraldur; hefur Warren Beatty verið mest áberandi f þeirri umræðu. Aðspurð um framboðiö sagði Oprah að hvað sem yröi myndi hún ekki hætta f núverandi vinnu sinni en þessi ummæli höfðu í för með sér aukinn stuöning fyig- ismanna hennar. Að þeirra mati hefur Oprah allt til að bera sem þarf til að ná langt f stjórnmálum. „Hún er heið- arleg, þekkt, oröheppin og rík,“ segja þeir. Er það ekki einmitt það sem þarf til að sigra í forsetaslagnum? 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.