Morgunblaðið - 27.10.1999, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 27.10.1999, Qupperneq 23
Sjónvarpsstöðin Popptíví lítur dagsins Ijós Popptíví, ný íslensk sjón- varpsstöö sem leggur áherslu á umfjöllun um tónlist, kvik- myndir og annað sem höfðar sérstaklega til ungs fólks, hefur nú litið dagsins Ijós og geta allir sem eru með ör- bylgjuloftnet náð útsendingum hennar. Meðal aðstandenda stöövarinnar er Ágúst Héðins- son og segir hann að Poppttví sé fyrst og fremst tónlistar- stöð og að það sé ekkert launungarmál að tónlistar- stöðin MTV sé fyrirmyndin. „Þetta er þannig stöð, nema bara fyrir íslenskan markað. Við munum leggja áherslu á að spila myndbönd með vin- sælustu tónlistinni á íslandi hverju sinni og reynum svo auövitað að gera íslensku tón- listarfólki eins hátt undir höfði og mögulegt er.“ Hann segir þau einnig ætla að reyna að tengjast íslenskum tónlistar- og menningarviöburðum eins og hægt er með því að segja frá þeim og sýna frá þeim. Rlcky Martin kann að dansa og trylla stúlk- urnar. Hann er tfður gesturá Popptíví. VERÐA Á FERÐINNI „Viö ætlum aö vera mikið á feröinni og sýna frá hinum ýmsu viöburöum. Einnig ætl- um við að reyna að vera í góðu sambandi við áhorfendr og leyfa þeim aö taka þátt í þessu öllu saman. Við veróui með myndatökumenn sem verða mikið á ferðinni og ver< ur fólk á götunni tekiö tali. Einnig verður fólki leyft að senda kveðjur og fá óskalög leikin." Dagskrá Popþtíví mun þygg ast upp á tónlistarmyndþönd- um og stuttum dagskrárbrot- um bæði erlendum og innlend- um. Þar verður hægt að sjá viðtöl og myndbrot af þekktu erlendu tónlistarfólki og leikur- um en stöðin verður einnig meö sína eigin dagskrárgerð. Ágúst segir aö ekki standi til að gera langa þætti heldur verði dagskráin unnin í styttri bútum og inn á milli verði leik- in myndbönd. Meðal efnis verða viðtöl við tónlistarfólk og fólk sem tengist lista- og menningarlífinu og einnig myndir af viöburðum sem tengast tónlist og öðru því ungu fólki finnst skemmtilegt. I SAMVINNU VIÐ UNGT FÓLK Popptíví verður f sam- vinnu við listahátíð ungs fólks, Unglist og mun gera henni góð skil. Einnig verður stöðin í samvinnu við framhaldskól- ana og verður einn framhalds- skóli tekin sér- staklega fyrir í hverri viku. Þar fá nemendur að sýna það sem er að gerast í skólanum og fé- lagslífinu og munu þau þá taka þátt í dagskrárgeröinni eða sjá alfarið um hana. Agúst Héðlnsson, segir að tónlistarsjónvarpsstöðin Popptíví muni reyna að vera í gððu sambandi við áhorfendur sína og að aðstandendur hennar séu opnir fyrir góðum hugmyndum frá ungu fólki. Agúst segir að aðstandend- ur stöövarinnar séu opnir fyrir þvf að skoða efni og hugmynd- ir frá ungu fólki. „Takmark okkar er aö vera afþreyingarsjónvarp með áherslu á tónlist en einnig munum við koma til með aö reyna að vera ákveðinn upp- lýsingamiöill fýrir ungt fólk og reynum að vera í takt við það sem er aö gerast hjá þeim hópi." Myndböndin hennar Britney Spears eru lífleg og fá að njóta sín á Popptíví. 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.