Morgunblaðið - 27.10.1999, Blaðsíða 25
Segulþynnurnar eru léttar og sveigjanlegar og hægt að nota undir fatnað
Eftirfarandi eru nokkrar reynslusögur
sem við höfum fengið að láni frá BlOflex
í Danmörku.
Sársaukinn í öxlinni hvarf!
Sem betur fer var ég svo lánsöm að fá reynslu af BlOflex
segulþynnunni á axlarmein, eftir að hafa lesið margoft
um hana. Ég byrjaði að setja á mig eina segulþynnu,
sem ég var með í nokkra daga, án þess árangurs sem
ég hafði vænst. Þá las ég að á axlarliðinn væri betra
að hafa segulþynnu beggja megin samtímis, þ.e. eina
að framan og aðra á bakinu. Þetta gerði ég og eftir
5 sólarhringa notkun var verkurinn algjörlega horfinn.
Eftir þessa reynslu vil ég og get svo sannarlega mælt
með BlOflex segulþynnunni við þá sem eiga við svipuð
vandamál að etja.
Vandræöin með hnéð og ökklann
leystust!
Ég hef um tíma notað BlOflex segulþynnuna og það er
ánægjulegt að geta sagt frá því að segulþynnan hefur
gert gagn. Ég fékk mér segulþynnur bæði á hné og
ökkla, og ef ég fæ verki þar, set ég segulþynnu á og
fljótlega hverfa verkirnir. Þessi vara hefur létt mér lífið,
þar sem ég er komin á efri ár og hef ekki verið heilsugóð.
Nágranni minn, sem hefur þjáðst af bakverkjum, fór
að nota segulþynnu og er sammála mér um betri líðan
eftir það.
Verkir í mjöðmum og hrygg
Stöðugar kvalir í hrygg og mjöðmum geta verið mjög
þreytandi. Eftir að hafa séð í sjónvarpinu útsendingu
um BlOflex segulmeðferð, ákvað ég að kaupa
segulþynnu. Nú hef ég notað stærstu þynnuna,
90 x 150 mm í tæpa þrjá mánuði. Ég hef haft hana á
mjóhryggnum vegna verkja, sem leiða út í mjöðmina
og áhrifin hafa verið ótrúleg. Verkirnir eru horfnir.
Nú nota ég segulþynnuna eingöngu við líkamlega
áreynslu og það virkar vel. Vinir mínir, sem hafa fengið
segulþynnuna lánaða, hafa sannfærst um gagnsemi
hennar og keypt sér, jafnvel fleiri en eina.
Segulþynnurnar eru fáanlegar í
flestum lyfjaverslunum og
Græna Torginu - Blómavali
ítarlegar íslenskar leiðbeiningar fvlgja með og einnig liggja
kynningarbæklingar frammi á söíustöðum.
Upplýsingasími er 588 2334
25