Morgunblaðið - 03.11.1999, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Knattspyma
Meistaradeild Evrópu
Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram
í 16-liða úrslit keppninnar. Priðja sætið
gefur þátttökurétt í UEFA-keppninni.
A-RIÐILL
Leverkusen:
Leverkusen - Maribor Teatanic.........0:0
22.500.
Kive:
Dynamo Kiev - Lazio................0:1
- Ramiz Mamedov 18. - sjálfsm. 65.000.
Lokastaðan
Lazio..................6 4 2 0 13:3 14
Dynamo Kiev............6 2 1 3 8:8 7
Leverkusen.............6 14 1 7:7 7
Maribor................6 114 2:12 4
B-RIÐILL
Stokkhólmur:
AIK - Arsenal.........................2:3
Andreas Andersson 41., 68. - Marc
Overmars 17., 52., Davor Suker 56. 33.005.
Flórens:
Fiorentina - Barcelona ...............3:3
Mauro Bressan 14., Abel Balbo 56., 69. -
Luis Figo 20., Rivaldo 43., 74.28.000.
Lokastaðan
Barcelona .............6 4 2 0 19:9 14
Fiorentina ............6 2 3 1 9:7 9
Arsenal............... 6 2 2 2 9:9 8
AIK....................6 0 1 5 4:16 1
C-RIÐILL
Oporto:
Boavista - Borussia Dortmund.........1:0
Pedro Emanuel 16. Rautt spjald: Nilton
Fernandes (Boavista) 65. 9.000.
Rotterdam:
Feyenoord - Rosenborg.................1:0
Somalia 85. 45.000.
Lokastaðan
Rosenborg .............6 3 2 1 12:5 11
Feyenoord .............6 1 5 0 7:6 8
Dortmund...............6 1 3 2 7:9 6
Boavista................6 1 2 3 4:10 5
D-RIÐILL
Manchester:
Manchester United - Sturm Graz....2:1
Ole Gunnar Solskjær 57., Roy Keane 69. -
Ivica Vastic 88. - vsp. 53.745.
Marseille:
Olympique MarseiIIe - Kröatía Zagreb .2:2
Ibrahima Bakayoko 54., Kaba Diawara 89. -
Edin Mujcin 42., Mihaeí Mikic 84.37.000.
Lokastaðan
Manchester Utd.........6 4 11 9:4 13
Olympique Marseille ... .6 3 1 2 10:8 10
Sturm Graz.............6 2 0 4 5:12 6
Króatía Zagreb.........6 1 2 3 7:7 5
UEFA-keppnin
2. umferð, síðari leikir:
Aþena:
AEK Aþenu - MTK Búdapest...........1:0
Dragan Ciric 74. - vsp. 10.000.
Rautt spjald: Czaba Feher (MTK) 56.,
Gabor Almay (MTK) 59.
■Samanlögð úrslit úr báðum leikjunum, 2:2.
AEK fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á
útivelli.
Mónakó:
Mónakd - Widzew Lodz (Póllandi)....2:0
Sabri Lamouchi 50., David Trezeguet 84.
1.500.
■Mónakó vann samalagt 3:1.
Bologna:
Bologna - Anderlecht ..............3:0
Eriberto 45., Jose Ze Elias 51., Carlo Nervo
90.25.000.
■Bolonga vann samanlagt 4:2.
Berlín:
VfL Wolfsburg - Roda JC Kerkrade .. .1:0
Charles Akonnor 87. 7.677.
■Wolfsburg vann samanlagt 1:0.
England
1. deild:
Crewe - Charlton ...................0:2
Huddersfíeld - Ipswich..............3:1
Stockport - Q.P.R...................3:3
2. deild:
Brentford - Reading.................1:1
Bristol Rovers - Bury...............0:0
Burnley - Wrexham ..................5:0
Cambridge United - Scunthorpe.......1:3
Cardiff - Blackpool ................1:1
Gillingham - Bristol City ..........3:0
Millwall - Luton....................1:0
Oldham - Wycombe....................2:2
Oxford United - Colchester .........1:1
Wigan - Chesterfíeld................3:0
3. deild:
Carlisle - York.....................0:1
Darlington - Leyton Orient .........3:1
Halifax - Cheltenham................1:1
Hartlepool - Barnet.................3:0
Lincoln - Peterborough .............1:2
Macclesfíeld - Mansfíeld............5:2
Northampton - Swansea...............2:1
Plymouth - Exeter ..................1:0
Rochdale - Hull.....................0:2
Rotherham - Torquay.................1:0
Shrewsbury - Chester................0:1
Southend - Brighton............... 2:1
Handknattleikur
Bikarkeppni karla:
Valur-b - Breiðablik-b............36:18
Fram-b - Valur ...................17:31
Fjölnir - ÍBV.....................22:36
í KVÖLD
Handknattleikur
Bikarkeppni karla:
Austurberg: ÍR B - ÍH ............19.30
Fylkishús: Fylkir - Stjaman.........20
Húsavík: Völsungur - FH ............20
Akureyri: Pór A. - Víkingur ........20
Selfoss: Selfoss - ÍR...............20
Smárinn: Breiðablik - Fram .........20
Vestmannaey.: ÍBV B - Haukar .......20
Kaplakriki: FH B - HK...............20
Körfuknattleikur
Evrópukeppni féiagsiiða
Keflavík: IRB - Lugano .............20
Arsene Wenger
undanfarið en brást ekki bogalistin
þarna.
Wenger kynnir því næst annan bjarg-
vætt til sögunnar, hollensku hraðlestina
Ovei-mars. Hann kemur litlu til leiðar.
Shearer hefur sagt skilið við Adams
og snúið sér að öðrum félaga úr landslið-
inu, Keown. A 62. mínútu verður svo
Án stiga á útivelli
Bobby Robson, knattspyrnustjóri
Newcastle, fer að öllu með gát - enda án
stiga á útivelli - og stillir upp fimm
varnarmönnum, þeirra á meðal franska
sóparanum Dumas, sem stjórinn hefur
ekki í annan tíma séð í búningi félags-
ins. Dyer er meiddur, Barton í leikbanni
og Ferguson áfram á bekknum.
Síðan hefjast leikar. Heimamenn
blása til sóknar þegar í upphafi, fát
kemur á gestina og þeir eru heppnir að
fá ekki á sig mark strax á annarri mín-
útu þegar Henry skýtur fram hjá eftir
varnarmistök.
„Skjóramir" fóta sig þó fljótt á svell-
inu og ljóst er þegar Speed skellir hin-
um endurfædda Grimandi á ippon, að
þeir ætla að selja sig dýrt. Fullnaðarsig-
ur! Nei, þetta er fótbolti - gult spjald!
Auman!
Fransmaðurinn Domi bregður því
næst á leik á vængnum, hnykkir
mjöðmum eins og Elvis forðum, fyrir
framan Úkraínumanninn Lúzhníj, sem
fylgist furðulostinn með, en missir svo
boltann út af. Þá er kátt í höllinni.
Þá er komið að fóstum liðum. Adams
fyrirliði tekur að sér að stjórna traffík-
inni og pantar rangstöðu á kollega sinn
Shearer. Við beiðninni er réttilega orð-
ið. Þá geysist Vieira, erfinginn að krúnu
Adams, fram af harðíylgi en magalendir
í sverðinum. Aukaspyi-na. Lýðurinn
sturlast. „Vo-o-ó Vieira, vo-o-ó Vieira!“
Greinilegt að hershöfðingjaefnið unga
hefur ekki fallið í áliti við dropana dýru
sem það skenkti „ruddanum" Ruddock
á dögunum, þó þeir hafi verið í sama
verðflokki og eldsneyti á Islandi.
Ljóst má vera að Arsenal er ætlað að
ráða ferðinni í leiknum. Samt er eins og
neistann vanti, kannski situr Evrópuaf-
hroðið enn í mönnum. Stormsenterinn
Suker blakar nösum en finnur ekki
fnykinn af færunum sem eru strjál.
Skjórinn skýst
óskaddaður
undan skyttunum
Reutcrs
Leikmenn Newcastle United börðust af þrótti gegn Arsenal um helgina - beittu hinum ýmsu brögðum ef á
þurfti að halda. Robert Lee bregður hér Patrick Vieira.
Eftir tuttugu mínútna leik koma gest-
imir tuðnmni loksins inn í teig Arsenal
en ekkert verður úr.
Vieira ræðst aftur til atlögu en er
stöðvaður. Dabizas fær gult. Þá er kom-
ið að Ljungberg litla frá Hálmstöðum
að freista gæfunnar en ágætt skot hans
smýgur framhjá stönginni. Skömmu síð-
ar kemst Henry enn nær eftir góðan
sprett en hliðarnetið kemur Karelse
markverði til bjargar. í kjölfarið gerir
hann svo vel að verja skalla Grimandis
eftir hornspymu.
„Ertu Teddy í dulargervi?“ syngja
áhangendur Arsenal jafnan þegar fram-
herjar andstæðinganna fínna ekki fjöl-
ina sína á Highbury. Vísa þeir þar til
„vinar“ síns, Sheringhams, sem er líkast
til hataðasti maðurinn á Highbury á
þessum áratug. Hvort þetta hefur farið
fyrir brjóstið á höfuðkappanum, Shear-
er, skal ósagt látið en þegar hann þrýst-
ir Adams niður í svörðinn við nefið á
æstustu stuðningsmönnum Arsenal
verður fjandinn laus. „Shearer er skít-
hæll,“ ljúka þeir upp einum munni og
baula engu minna en Bjarnastaðabelj-
umar í gamla daga.
Fámennur fylgihópur gestanna, sem
til þessa hefur látið lítið fyrir sér fara
aftan við klukkuendamarkið, kemur nú
sínum manni til vamar. Og þá er tekið á
því - enda skjórinn orðlagður fyrir há-
vær skvaldurhljóð. „Við unnum
Barcelona," kyrja þeir hástöfum. Eng-
um er eins tamt að strá salti í sárin og
fylgismönnum fótboltaliða, þegar þeir
eru til þess egndir.
Að hætti Bowies
Upphefst nú söngstríð mikið, þar sem
fúkyrðin flæða milli íylkinga. „Hvað eru
þeir að segja?“ spyr einhver. „Þetta eru
bai-a orð án samhengis," svarar annar.
„Þeir beita sömu aðferð og Bowie gerði
á sínum tíma - skrifaði endalaus orð á
strimla, henti þeim svo upp í loft, týndi
upp og setti saman texta.“
I þeim töluðu orðum fær Arsenal
horn, Vieira skallar, boltinn hrekkur af
varnarmanni og Dumas bjargar á línu.
„Mark!“ hrópar múgurinn, þó ómögu-
legt sé um það að dæma. Enda baðar
dómarinn bara út öngum - áfram með
smjerið! Eftir á sýna sjónvarpsupptök-
ur þó að boltinn var kominn yfir línuna
en hvernig átti nokkur mannlegur mátt-
ur að geta skynjað það. Þetta var spurn-
ing um sekúndubrot.
Enn koma Arsenal-menn askvaðandi
með goðið sjálft, Adams, í fylkingar-
brjósti en því tekst ekki að koma skoti á
mark úr þröngri stöðu. Hálfleikur.
Það eru skrýtin fræði, þessi tölfræði,
en í þessu tilviki segja þau söguna alla.
Arsenal átti átta skot á mark,
Newcastle eitt. Samt eru gestimir mun
glaðari í hléi.
Þrátt fyrir umtalsverða yfirburði úti á
vellinum er Arsenal langt frá sínu besta
og framlína liðsins bitlaus. Wenger
bregður því á það ráð að setja Berg-
kamp inn fyrir Henry í hálfleik og
freista þess að knýja fram sigur. Það fer
á annan veg.
Hollendingurinn háloftafælni byrjar
raunar ágætlega en þrek hans þverr
fljótt, mestur tími fer í að fórna höndum
og berja lóminn út af frammistöðu dóm-
arans - sem skellir skollaeyrum. Berg-
kamp hefur oft verið betur stemmdur
en þéssa dagana.
Hinum megin fær Gallagher dauða-
færi eftir mistök Lúzhníjs en Seaman
bjargar. Sá „trausthenti" landsliðs-
markvörður hefur legið undir ámæli
bræðrabylta þegar Shearer er að brjót-
ast í gegn. Aðstoðardómarinn úrskurðar
Keown brotlegan og dómarinn seilist of-
an í brjóstvasann. Lýðurinn heldur niðri
í sér andanum. Er hann að fá rautt?
Nei, gult skal það vera. En ekki aukast
vinsældir Shearers við þetta.
Keown virðist hafa helst við átökin og
víkur skömmu síðar fyrir Upson. Greina
má glottið á Shearer alla leið upp í
stúku.
Smám saman fjarar leikurinn út. Ar-
senal ræður sem fyrr ferð en finnur
ekki leiðina í gegnum sterka vörn gest-
anna, þar sem Marcelino, Dumas og Da-
bizas standa sína plikt af ögun og áhuga.
Máttlítið langskot Upsons þremur mín-
útum fyrir leikslok segir meira en öll
orð um örvæntinguna.
Suker rétt missir svo af fyrirgjöf
Lúzhníjs og Bergkamp kemur knettin-
um í netið en hefur löngu verið dæmdur
rangstæður.
Loftskeytamaðurinn Ferguson fer í
lokin „tvær mínútur til að bjarga heim-
inum,“ eins og einhver kemst að orði.
Það tekst ekki.
Niðurstaðan: Markalaust jafntefli í
leik þar sem hugmyndasnauður sóknai'-
leikur Arsenal óg grenjandi barátta
Newcastle voru þyngst á metum.
Biðst ekki afsökunar
„Þetta er ótrúlega mikilvægt stig fyr-
ir okkur - hið fyrsta á útivelli í vetur,“
segir Bobby Robson á blaðamannafundi
að leik loknum. „Ég veit að við lékum
ekki fallega knattspyrnu en það hvarfl-
ar ækki að mér að biðjast afsökunar á
leik okkar. Við vitum að Arsenal er
erfitt heim að sækja, mjög sterkt lið, og
við urðum því að vera varkárir. Þessi
leikaðferð gekk líka upp. Við börðumst
Þegar stigið er út úr „undirgrund-
inni„ á Arsenal-stöðinni í Lundún-
um fer ekkert á rriilli mála hvað er í
vændum þennan eftirmiðdag í lok októ-
ber. Út streymir einlit fylking, fólk á öll-
um aldri - ungir drengir, gamlar konur
og allt þar á milli - og líður sem í leiðslu
upp þröngan ganginn. Allir eru, svo að
segja, klæddir í hvítt og rautt og bera
ýmis nöfn og númer á baki. Beint fyrir
framan mig staulast snaggaraleg roskin
kona, „Petit“, segir á hennar klæðum.
Það er við hæfi. Allt stefnir þetta fólk
hröðum skrefum að sama brunni, High-
bury - „heimkynnum knattspyrnunn-
ar“, eins og þar stendur, til að sjá sína
menn, Arsenal, etja kappi við Newcastle
United í úrvalsdeildinni.
Hafi þetta ekki dugað til að sannfæra
menn um að þeir séu á réttri leið, tekur
blaðasali nokkur af öll tvímæli, þegar
komið er upp á Gillespie-götu. Hann
heldur snepli hátt yfir höfuð sér og
hrópar: „Kaupið blaðið! Kaupið blaðið!
Fullt af Tottenham-spaugi. Hlæið að
þeim sem eiga það skilið!" Skemmtileg-
ur þessi rígur grannanna, sem hverfist
um hina andstæðu póla, gott og illt, vita-
skuld á báða bóga.
En það er önnur saga. Andstæðingur
dagsins er Newcastle United, „Skjór-
arnir“, sem flogið hafa lágt á þessari
leiktíð, sumsé upplagt fallbyssufóður
fyrir „Skyttumar“ eftir ófarirnar í
meistaradeildinni nokkrum dögum áð-
ur.
Arsene Wenger, knattspymustjóri
Arsenal, er í það minnsta á því máli, ef
marka má byrjunarlið hans, sem borið
er fram á myndskreyttu bréfsefni í
bækistöð blaðamanna þremur stundar-
fjórðungum fyrir leik. Hann gerir eigi
færri en sex breytingar á liðinu frá
leiknum við Fiorentina. Parlour og Petit
eru meiddir, Dixon hvíldur og Berg-
kamp, Kanu og Overmars sitja á bekkn-
um. Inn koma Lúzhníj, Ljungberg,
Grimandi, Silvinho, Suker og Henry.
Ekki eins sterkir menn en eiga að duga
- eða hvað?
Arsenal varð fyrir áfalli þegar liðið heltist úr
lestinni í meistaradeild Evrópu á dögunum.
Næsti leikur var gegn Newcastle United í úr-
valsdeildinni á Highbury á laugardag og Orri
Páll Ormarsson, sem var á vellinum, komst
að því að menn eru enn að sleikja sárin.
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 C 3;
Bobby Robson
af þrótti, tækluðum eins og tígrisdýr og
Arsenal fékk ekki brotið okkur á bak
aftur. Loksins gekk lukkan í lið með
okkur.“
Merkilegur maður Robson. Hann er
orðinn 66 ára gamall en orkan stafar af
honum. Hann ann knattspymu, um það
er ekki að villast. Hann býr líka yfir
hlýju og persónutöfrum, sem fáum em
gefnir. A blaðamannafundinum var
hann bara einn af strákunum. „Sælir
piltar,“ sagði karlinn þegar hann gekk í
salinn og ávarpaði marga blaðamenn
með nafni meðan á fundinum stóð.
Þarna er enginn veggur á milli. „Bless-
aður, Bob,“ svöruðu þeir um hæl. Herra
Robson er ekki til en samt er virðingin
til staðar, óþvinguð og sönn - á báða
bóga.
Robson er einnig með kímnigáfuna í
lagi eins og kemur í ljós þegar hann
hælir kollega sínum, Wenger, fyrir
fi'ammistöðuna. „Liðsskipan Arsenal
kom mér í opna skjöldu. Ég bjóst við að
Kanu myndi leika frá upphafi og við
vomm búnir að velta því fyrir okkur alla
vikuna hvernig við ættum að taka á hon-
um. Þegar á hólminn var komið var
hann síðan á bekknum og kom ekki einu
sinni inn á. Það var snilldarbragð!"
Robson er einnig spurður um rimmu
Shearers og Keowns. „Ég sá ekki betur
en að það væri réttur dómur. Shearer
var að sleppa í gegn og Keown dró hann
niður. Spuming hvort hann hefði ekki
átt að víkja af velli.“
„Nei, Bob. Þeir eru báðir að toga og
ýta og Shearer ekki með vald á boltan-
um,“ gellur þá í einhverjum blaðamanni.
„Þú segir það,“ segir Robson. „Ég
held ég eigi reglumar einhvers staðar
heima og svei mér ef þær gera ekki ráð
fyrir að svona brot kalli á rautt spjald?"
Upp spinnst rökræða um málið og
Robson fellst að lokum á að gula sgjald-
ið hafi dugað en glottir við tönn. „Ég er
að spyrja ykkur?“
Wenger stígur næstur upp á pall-
borðið. Hann er ekki eins glaður. „Þetta
var erfíður leikur. Við sköpuðum okkur
ekki nógu mörg færi miðað við yfirburð-
ina úti á vellinum og Newcastle varðist
af fimi. Fyrir það eiga þeir lof skilið.
Það fer ekkert á milli mála að miðviku-
dagurinn situr í okkur, bæði andlega og
líkamlega. Það er kannski ekkert skrít-
ið, menn þurfa alltaf smátíma til að
jafna sig á svona áfalli. En við munum
rífa okkur upp. Andinn í hópnum er
góður.“
Wenger veit á þessari stundu að
skalli Vieira fór yfir marklínuna en læt-
ur sér fátt um finnast. „Samkvæmt
sjónvarpsmyndum er boltinn inni en
markið var ekki dæmt og þar við situr.
Samt er ég sannfærður um að mark á
þessum tíma hefði gert okkur gott. Við
hefðum sennilega unnið leikinn."
Wenger er um margt ólíkur Robson.
Hann er ekki sami „sjarmörinn" en hef-
ur eigi að síður sterka útgeislun. Hann
er alvörugefnari og rólegri en þegar
hann talar er hlustað, jafnvel þótt hon-
um liggi lágt rómur. Dæmin sanna líka
að fáir knattspyrnustjórar ná jafn vel
til leikmanna sinna.
Þá kemur að hinu óhjákvæmilega á
fundinum - „hvers vegna notaðir þú
ekki Kanu?“
„Það er alltaf sama sagan,“ svarar
Wenger og hlær. „Ef ég nota ekki Su-
ker og Henry er ég spurður hvers
vegna í ósköpunum og þegar ég nota þá
furða menn sig á því líka. Er nokkurn
tímann hægt að gera ykkur til hæfis?“
Menn hlæja. „Staðreyndin er hins
vegar sú,“ heldur Wenger áfram, „að
þegar maður er með fjóra frábæra
framherja á sínum snærum verður
maður að nota þá til skiptis, einkum
þegar svona ört er leikið. Kanu eyddi
miklum kröftum í leikinn gegn Chelsea
Hlutfall heimamanna af
þeim leikmönnum sem
leikið hafa með íiðunum
í Meistaradeild Evrópu
Rosenborg, Noregi
Molde, Noregi
JGiySil Króatía Zagreb
■TSll AIK Stokkhólmi
Spartak Moskva
-•<5röl Sparta Prag, Tékkl.fes
Bordeaux, Frakkl. 11
Dynamo Kiev, Úkr.
Olympique Marseiile 0
NK Maribor, Slóv.
Boavista, Portúgal m
Galatasaray, Tyrkl. ■m
- .Bayern Munchen p?.
Hertha Berlín, Þýs.@§
—-ÆH Feyenoord, Holl. £3
—- -L+mi Sturm Graz, Aus. Ö
— Olympiakos, Grikkl.tP)
Porto, Portúgal ®2>
Dortmund, Þýskal.
I PSV Eindhoven £3
Fiorentina, Italíu ö
Leverkusen, Þýs. fsa
Valencia, Spáni SS
AC Milan, Italíu C*
Lazio, Italíu |f
Real Madrid, Spáni £3
Willem II, Holl.
Manchester Utd.
Barcelona, Spáni
Arsenal, Englandi
Glasgow Rangers
Chelsea, Englandi
um síðustu helgi og lauk leiknum
gegn Fiorentina mjög þreyttui-. Mér
lánnst því tímabært að gefa honum
frí núna.“
Wenger ver landa sinn, Henry,
sem ekki hefur fundið sig enn hjá Ar-
senal. „Meiningin var að koma bolt-
anum inn yfir vörn Newcastle,
þannig er Henry hættulegastur, enda
eldfljótur. Það gekk ekki og við verð-
um að velta því fyrir okkur hvers
vegna við náum ekki að nýta krafta
hans. Henry hefur mikla hæfileika en
eins og staðan er gengur illa að færa
okkur þá í nyt. Það mál verðum við
að leysa.“
Þar með er fundi slitið og blaða-
menn tvístrast í allar áttir. Sjálfur
geng ég niður Avenell-götu í rökkr-
inu og þótt fáir séu nú á ferli er ekki
laust við að maður heyri enn óminn
af söngnum - „Vo-o-ó Vieira, vo-o-ó
Vieira!“
Leverkusen og
Dortmund úr leik
Lazio og Barcelona fóru í gegnum riðlakeppnina án taps
LAZIO og Barcelona fóru í
gegnum riðlakeppni Meist-
aradeildar Evrópu án þess að
tapa leik. Feyenoord og
Dynamo Kiev rétt sluppu inn í
16-liða úrslitin, en þýsku liðin
Borussia Dortmund og Bayer
Leverkusen komust ekki
áfram. Austurríska liðið St-
urm Graz var ekki nein hindr-
um fyrir Manchester United
og Rosenborg tapaði fyrsta
leik sínum í riðlakeppninni,
en hafnaði samt í efsta sæti
C-riðils.
Leikur Fiorentina og Barcelona
í B-riðli hafði mikið skemmt-
anagildi og var bráðfjörugur enda
liðin búin að ti-yggja sér sæti í 16-
liða úrslitum fyrir leikinn og höfðu
að litlu að keppa. Þau gátu því tek-
ið áhættu í leik sínum og gerðu
það. Þau léku bæði sóknarknatt-
spyrnu og mörkin urðu sex áður
en yfir lauk, 3:3. Brasilíumaðurinn
Rivaldo og Argentínumaðurinn
Abel Balbo voru mest í sviðsljós-
inu í Flórens og skorðu tvö mörk
hvor.
„Markmiðið var að sanna hvað
við gætum og bæta fyrir slaka
frammistöðu í fyrri leiknum á Nou
Camp í Barcelona sem við töpuð-
um 4:2. Ég held að liðið hafi sýnt
hvað í því býr í þessum leik. Strák-
arnir fengu ákveðin skilaboð og
fóru eftir þeim,“ sagði Giovanni
Trapattoni, þjálfari Fiorentina,
eftir leikinn.
Þrátt fyrir sigur Arsenal 3:2 á
AIK í Stokkhólmi dugði það ekki
því liðið átti ekki möguleika á að
komast áfram fyrir leikinn. Enska
liðið hafnaði í þriðja sæti og fær
sárabætur, þátttöku í UEFA-
keppninni. Hollendingurinn Mark
Reuters
Brasilíumaðurinn Rivaldo gerði tvö mörk fyrir Barcelona gegn
Fiorentina í gær. Hér kemst hann framhjá Mauro Bressan, leik-
manni ítalska liðsins, í leik liðanna í B-riðli í gær.
Overmars gerði tvö marka Arsenal
og Andreas Andersson bæði mörk
AIK.
Manchester United hafði sigur
gegn Sturm Graz í D-riðli á Old
Trafford og gerðu Ole Gunnar Sol-
skjær og Roy Keane mörkin áður
en gestirnir náðu að minnka mun-
inn úr vítaspyrnu á lokamínútum
leiksins. Leikur United var ekki
sannfærandi, en liðið var án ensku
landsliðsmannanna Davids Beck-
hams og Paul Scholes.
Olympique Marseille fer áfram
úr riðlinum með United eftir 2:2
jafntefli gegn Króatíu Zagreb, sem
varð neðst.
I kvöld fara fram lokaleikirnir í
hinum fjórum riðlunum. Dregið
verður síðan í 16-liða úrslit keppn-
innar 23. nóvember.
Hakkinen setur
stefnuna á þrennu
KAPPAKSTUR / FORMÚLA-1
MIKA Hákkinen mun fá nýjan og betri bíl til keppni í Formúlu-1 á
næsta ári og ekki slaka á að fengnum tveimur heimsmeistaratitl-
um ökuþóra heldur stefna á að verða heimsmeistari þriðja árið í
röð á næsta ári, að sögn Ron Dennis, keppnisstjóra McLaren.
Hákkinen varð heimsmeistari annað árið í röð með glæsilegum
sigri í lokamóti ársins í Suzuka í Japan á sunnudag.
Michael Schumacher lýsti því
yfir eftir kappaksturinn í
Suzuka að hann teldi sig kominn
með bíl í hendur frá Ferrari sem
hann gæti auðveldlega ekið til sig-
urs í stigakeppni ökuþóra á næsta
ári. Dennis svarar honum í breska
blaðinu Daily Telegraph í gær og
varar hann við of mikilli bjartsýni.
Dennis sagði að Hákkinen yrði
miklu erfiðari viðureignar á næsta
ári en á nýliðinni vertíð. Hann nyti
sín best þegar hann væri undir
pressu, það hefði sýnt sig í ár; hon-
um hefðu orðið á akstursmistök
þegar pressan var sem minnst eins
og í Imola og Monza. Honum
myndi vaxa ásmegin við samkeppni
frá Schumacher og vísast yrði Da-
vid Coulthard, félagi hans hjá
McLaren, honum skeinuhættur
keppinautur á næsta ári.
„Við höfum lært okkar lexíu á
því að tapa bílsmiðatitlinum með
fjórum stigum og ætlum að haga
undirbúningi næsta árs með allt
öðrum hætti, munum gera tilraun-
ir með mikilvægust bílpartana
strax á næstu vikum. Við verðum
því að fullu klárir i slaginn í fyrsta
móti nýs keppnistímabils," sagði
Dennis. Hann sagði að liðið myndi
undirbúa sig þannig að það þyrfti
ekki að vinna sig út úr alls konar
traustleikavanda framan af vertíð-
inni eins og í ár. Nú þegar væri
liðið búið að ráða bót á slíkum
vanda.
Vinni Hákkinen einnig á næsta
ári myndi hann komast í goðatölu í
Formúlu-1 því einungis einum öku-
þór hefur tekist að vinna titilinn
þrjú ár í röð, en það var Argentínu-
maðurinn Juan Fangio, sem reynd-
ar vann fjórum sinnum í röð
1954-57. Fangio varð heimsmeist-
ari alls fímm sinnum. Alain Prost
vann fjórum sinnum og þrisvar
sinnum hafa íimm ökuþórar orðið
meistarar; Jack Brabham, Jackie
Stewart, Niki Lauda, Nelson
Piquet og Ayrton Senna.
ítalskir fjölmiðlar segja að Ferr-
ari hafi brugðist þriðja árið í röð
með því að bíða lægri hlut í loka-
móti þar sem heimsmeistaratitill
ökuþóra stóð liðinu til boða.
Bílsmiðatitillinn sem liðið hefði
unnið væri engin sárabót. Eddie
Ii’vine átti aldrei möguleika gegn
Hákkinen og dugði fjögurra stiga'
forysta hans fyrir lokamótið því
lítt, en Hakkinen varð heimsmeist-
ari með 76 stigum gegn 74 stigum
Irvines.
Irvine sagðist í gær vera feginn
því að vertíðinni væri lokið. Hann
hefði orðið að taka á sig verulega
auknar skyldur fyrir Ferrari eftir
að Schumacher féll úr leik í þrjá
mánuði vegna fótbrots. Sömuleiðis
sagðist hann feginn að vera ekki
lengur liðsfélagi Schumachers því
það væri erfitt að standa undir
þeim miklu kröfum sem því fylgdu.
Iivine fær trauðla sama tækifæri á
næsta ári til að keppa um heims-
meistaratignina er hann ekur fyrir
Jaguar-liðið. Hann sagðist ekki
svekktur þótt hann hefði orðið að
sjá á eftir titlinum. Hann hefði gert
sitt besta en það hefði bara ekki
verið nóg og Hákkinen hefði unnið
kappaksturinn í Suzuka með glæsi-
brag og þar með titilinn.