Morgunblaðið - 05.11.1999, Blaðsíða 1
B L A Ð
ALLRA LANDSMANNA
grrgptiMgiMfr
1999
IFÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER
BLAÐ
Ríkharður
í sviðsljósinu
RIKHARÐUR Daðason skoraði síðara mark
Viking er liðið gerði 2:2 jafntefli við þýska
liðið Werder Bremen í síðari leik liðanna í
UEFA-keppninni í Stavangri í gærkvöld. Þetta
var ellefta markið sem hann skorar í
Evrópukeppninni, en hann hefur leikið samtais
20 Evrópuieiki, með Fram, KR og Viking.
Margir útsendarar voru á vellinum í
Stavangri í gær tii að fyigjast með framgöngu
íslenska iandsliðsmannsins. „Eg veit að það
voru „njósnarar" frá skosku liðunum Hearts
og Celtic, Hamburger SV í Þýskalandi,
Lokeren í Belgíu og Venezia frá Italíu. Eg veit
ekkert hvort þessir menn voru að skoða mig
eða einhverja aðra leikmenn,“ sagði
Ríkharður við Morgunblaðið eftir leikinn.
Pétur
leitar til
Hollands
PÉTUR Pétursson var ráðinn þjálfari íslands- og bikarmeistara-
liðs KR í gær og tekur við af Atla Eðvaldssyni. Pétur hyggst
kynna sér nýjungar í knattspyrnufræðunum í vetur og mun m.a.
dvelja í Rotterdam í Hollandi að kynna sér þjálfun og aðbúnað
þar.
Pétur þekkir vel til í Rotterdam,
lék lengi með stórliðinu Feyen-
oord, fyrst 1978 til 1981 og aftur
1984-85. í 88 deildarleikjum í
Hollandi skoraði Pétur 49 mörk, en
á atvinnumannsferli sínum með
Feyenoord, belgísku liðunum And-
erlecht og Royal Antwerpen og
spænska liðinu Hercules skoraði
hann samtals 66 mörk í 159 deildar-
leikjum og átta mörk í 20 Evrópu-
leikjum.
Pétur hóf ferilinn með Skaga-
mönnum 1978 og varð markakóngur
deildarinnar ári síðar er hann skor-
aði 19 mörk og setti nýtt markamet.
Það stendur enn, en hefur nokkrum
sinnum verið jafnað. Eftir atvinnu-
mennskuna sneri hann heim til
Akraness og lék þar 1986 en svo
tóku við fimm ár í herbúðum KR.
Þar lék hann alls 113 leiki og skor-
aði 53 mörk. Pétur lék á ferli sínum
41 landsleik og skoraði 11 mörk.
Fjórða liðið
Pétur þjálfaði Tindastól árin 1992
og 1993, tók við þjálfun Keflavíkur á
miðju sumri 1994 og var þjálfari
Víkings 1995. Hann hefur ekki
þjálfað síðan, en í sumar og haust
hafnaði hann tilboðum um þjálfun
frá Keflvíkingum og Fylkismönnum
áður en hann samdi í gær við KR.
A heimasíðu KR á Netinu er Atli
Eðvaldsson, fráfarandi þjálfari liðs-
ins, kvaddur og honum óskað vel-
famaðar í starfi landsliðsþjálfara.
Þar segir m.a.: „Arangur Atla Eð-
valdssonar hjá KR er mikið afrek.
Hann tók við þjálfun liðsins haustið
1997 eftir ár mikilla vonbrigða og
sviptinga hjá KR. Eftir íslandsmót-
ið 1997 fór hálft byrjunarliðið til
skandinavískra liða og ljóst að
framundan var mikið uppbygging-
arstarf. Nýi þjálfarinn gerði þriggja
ára áætlun en litlu munaði að hún
gengi upp á fyrsta ári. Liðið sigraði
í deildabikarkeppninni en missti
naumlega af Islandsmeistaratitlin-
um. Árið 1999 var samfellt sigurár
hjá KR í karnival-stemmningu sem
á sér ekki hliðstæðu í íslenskri
knattspymusögu. Bestu þakkir,
Atli, fyrir frábært starf hjá KR og
vegni þér vel í nýju starfi."
A síðunni er árangur Atla sem
þjálfara liðsins einnig sýndur og þar
kemur í ljós að undir hans stjóm
lék KR 36 leiki á Islandsmótinu,
vann 23, gerði 9 jafntefli og tapaði
fjóram sinnum. Markatalan var
68:22. Alls léku KR-ingar 77 leiki
undir stjóm nýráðins landsliðsþjálf-
ara, unnu 45, gerðu 20 sinnum jafn-
tefli og töpuðu 12 leikjum. Marka-
talan: 159:65.
■ Stefnan að... / C3
Miljkovic ræðir við Víkinga
VÍKINGAR hafa rætt við Zoran
Miljkovic, sem leikið hefur með
IBV undanfarin þijú sumur, um
að fá hann til liðs við sig. Vík-
ingar hafa átt fundi með
Miljkovic og að sögn Guðmund-
ar H. Péturssonar, formanns
knattspyrnudeildar Víkings, er
gagnkvæmur vilji hjá báðum að
ná samningum. Hyggst
Miljkovic gefa Víkingum svör á
næstu vikum.
Litlar breytingar verða á
leikmannahópi Víkinga fyrir
næsta keppnistímabil. Hugsan-
legpt er að Skotinn Alan
Prentice leiki með liðinu aftur
næsta sumar en ekki er von
til þess að Iandar hans, Colin
McKee og Gordon Hunter,
snúi aftur.
Gary Megson vili svör
GARY Megson, knattspyrnustjóri Stoke City, kallaði í gær eftir
skýrum svörum um framtíð sína hjá félaginu. Megson vill fá að
vita hvort hann sé í myndinni hjá íslenskum eigendum liðsins -
og þá hvernig. „Þeir þurfa að framkvæma fljótt, hvað sem þeir
ætla að gera. Frekari tafir þjóna engum tilgangi,“ sagði Megson.
Mikil ánægja er með yfirtöku íslensku fjárfestanna eins og sást
vel á fánaborginni á Britannia-leikvanginum i fyrrakvöld. í kvöld
fer fram hluthafafundur í Stoke City-hlutafélaginu þar sem
greiða á atkvæði um sölu meirihluta hlutafjár til íslendinga. Er
aðeins formsatriði að bera samningana undir atkvæði.
KÖRFUKNATTLEIKUR: 22 ERLENDIR LEIKMENN HAFA KOMIÐ - OG FARIÐ/C4