Morgunblaðið - 05.11.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.11.1999, Blaðsíða 4
ttoniR KORFUKNATTLEIKUR Njarðvfldngar leita að arftaka Hoovers JASON Hoover, bandarískur leikmaður hjá Njarðvík, hefur óskað eftir að losna undan samningi hjá liðinu. Hann hyggst leika næstu tvo leiki með liðinu en heldur síðan af landi brott. Njarðvíkingar eru farnir að leita að nýjum leikmanni í hans stað og sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari liðs- ins, að það yrði Ijóst á næstu dögum hvaða leikmaður það yrði sem kæmi til liðsins. Spillers til Þórs MAURICE Spillers, 25 ára Bandaríkjamaður, er á leið til körfuknattleiksliðs Þórs á Akureyri. Maurice, sem leik- ur stöðu framhetja og lék með Keflvíkingum árið 1997, kemur í stað Hermans Myers, sem leikið hefur með liðinu undanfarna leiki. Myers var ekki í leikæf- ingu er hann kom til landsins en Þórsarar gáfu honum tækifæri til þess að komast í form. Það gekk ekki eftir því hann varð fyrir álagsmeiðsl- um. Því ákváðu Þórsarar að fá til sín nýjan leikmann, sem er væntanlegur til landsins á næstu dögum. Þórsarar verða án erlends leikmanns er þeir mæta KR-ingum í kvöld. Friðrik sagði að Hoover hefði sjálfur lýst þvi yfir að hann hefði ekki áhuga á að leika áfram og að hann hefði hug á að fara í nám. „Því miður er ekki hægt að sjá slíka hluti fyrir þegar leikmenn eru fengnir til liða. Hoover var áhugasamur í byrjun en þvarr kraftur." Njarðvíkingar létu Purnell Perry fara frá liðinu í upphafí tímabils og nú er Hoover á leið frá Njarðvík. Friðrik Ingi sagði það ósköp eðliiegt að erlendir leikmenn færu frá félögum. „Þetta er ekki óskastaða liða en í mörgum deildum í Evrópu er brottfall leikmanna mun hærra heldur en hér. Óvissuþættimir eru margir þegar erlendir leikmenn eru fengnir til körfuknattleiksliða. Stundum standa nýir ekki undir væntingum þrátt fyrir að félög hafi aflað sér mikilla upplýsinga um þá eða að félögin ná ekki samningum við þá sem hafa leikið með lið- inu tímabilið á undan. Má þar nefna Brent> on Birmingham, sem lék með okkur á síð- asta tímabili. Hann hafnaði tvívegis tilboði frá okkur í sumar því að umboðsmaðurinn hans taldi honum trú um að hann fengi betra tilboð annars staðar frá. Það gekk ekki eftir enda var hann samningslaus í september og kom til Grindvíkinga skömmu síðar.“ 22 eriendir leik- menn á ferðinni FRÁ því í haust hafa 22 erlendir leik- menn komið til Iiða f úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Sjö leikmenn hafa farið frá félögum sínum eða eru á leið frá þeim, þar af tveir áður en keppnistíma- bilið hófst. Tveir nýir leikmenn eru * væntanlegpr til Iandsins. Grindvíkingar létu Randy Bolton fara frá liðinu fyrir túnabilið og fengu í stað- inn Brenton Birmingham. Þá óskaði Julius Teal að fara frá KFÍ og fengu ís- firðingar Clifton Buch í hans stað. Njarðvíkingar hafa misst tvo leikmenn: Pumell Perry, sem þótti ekki standa undir væntingum, og Jason Hoover, sem óskaði eftir því að Iosna undan samn- ingi, er á leið frá félaginu. Njarðvíking- ar hafa enn ekki fengið nýjan leik- mann í hans stað. Þórsarar fengu Jason Williams fyrir tímabilið en hann var sendur heim og í stað hans kom Herman Myers, sem er á leið frá félaginu eftir skamma viðdvöl. Nýr Ieik- ' maður, Maurice Spillers, er á leið til Akureyrarliðsins. Þá hafa Sauð- krækingar skipt um leikmann frá þvi að tímabilið i úrvalsdeildinni hófst. Ryan Williams var sendur frá liðinu og í hans stað kom Shawn Myers. 12 leikmenn leika í úrvalsdeild- inni til viðbótar við þá leikmenn sem félögin hafa skipt út. Þeir em: Sune Henriksen og Flemming Stie, Tindastóli, Kim Lewis og David Colbas, Snæfelli, Rodney Dean, Hamri, Chris Dade, Haukum, Reid Beckett, IA, Chianti Roberts, -^Keflavík, Tom Hull, KFÍ, Dragisa Saric, Skallagrími, Jesper Sören- sen og Keith Vassel, KR. Sam- kvæmt upplýsinjgum Körfuknatt- leikssambands Islands hafa því 22 leikmenn komið til liða í úrvals- deild þegar fimm umferðir em búnar af móti. Á siðasta tímabili komu kringum 50 leikmenn til Iandsins. Gjald vegna félagaskipta hvers leik- manns er 30 þúsund krónur, 20 þúsund til FIBA (Alþjóða körfuknattleikssam- bandsins) og 10 þúsund krónur til KKI. Félögin hafa því greitt 600 þúsund krónur fyrir félagaskipti 20 erlendra leikmanna það sem af er vetri, en Sör- ensen og Vassel léku með KR á síðasta túnabili og ekki þurfti að greiða félags- skiptagjald fyrir þá í haust. Einnig þurfa lið að greiða fyrir flugferðir leik- manna til og frá landi, húsnæði, fæði, bíl í sumum tilfellum, og laun. Samkvæmt heimildum nemur því kostnaður fyrir hvem leikmann um 250-300 þúsund krónum á mánuði. Purnell Perry var í herbúðum Njarðvíkinga, en hans stöðu er nú á leið frá Njarðvík. Morgunblaðið/Golli tók síðan Jason Hoover, sem Ræða Russels hitti í mark Eftir uppörvandi ræðu gamla miðherjans Bill Russels unnu leikmenn Boston Celtics sannfær- andi sigur á Washington Wizards í Fleet Center í Boston í fyrrinótt, 112:101. Ræðuna hélt Russel í til- efni af fimmtugasta starfsári hins fræga Red Auerbachs hjá félaginu, en sjálfur kom hann fram í leikhléi og hélt tölu. „Mér er heiður að starfa fyrir Boston Celtics. Þetta er enginn svanasöngur. Eg er ekki á förum,“ sagði Auerbach, sem er 82 ára. Hann var þjálfari liðsins á gullöld þess á sjötta og sjöunda ára- tugnum, en lætur sér nú nægja að stjórna bak við tjöldin. „Enginn vafi leikur á að ræða Russels hafði góð áhrif á okkur," sagði Eric Williams, framherji Boston, eftir fyrsta heimaleik Boston á tímabilinu. Úkraínumaðurinn Vitaly Potapenko skoraði tuttugu stig og þeir Antoine Walker og Kenny Anderson nítján hvor fyrir Boston, en fimm leik- menn liðsins skoruðu tíu stig eða meira. Mitch Richmond var at- kvæðamestur Washington með tutt- ugu stig. Shawn Kemp fór fyrir Cleveland Cavaliers er liðið bar sigurorð af New Jersey Nets á heimavelli, 97:90. Kemp skoraði 27 stig og tók fimmtán fráköst. Leikstjórnandinn Stephon Mai-bury skoraði jafnmörg stig fyrir andstæðingana, en hitti aðeins úr sjö af 25 skotum sínum, gaf aðeins eina stoðsendingu og missti boltann sex sinnum. Chicago Bulls, sem er ekki svipur hjá sjón eftir brotthvai-f Jordans, Pippens og þjálfarans Jacksons, svo dæmi séu tekin, tapaði á heimavelli fyrir New York Knicks. Allan Hou- ston skoraði 23 stig og Latrell Sprewell nítján, öll í síðari hálfleik. Lokatölur urðu 84:74. Dickey Simp- kins var stigahæstur Chicago (það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar) með sautján stig. Nýliðarnir Elton Brand og Ron Ai-test gerðu fjórtán stig hvor. Pat Garrity kom eldheitur af varamannabekknum og skoraði tutt- ugu stig fyrir Orlando, sem lagði Detroit Pistons á heimavelli, 103:94. Darryl Armstrong skoraði sautján stig fyiir heimamenn, en sex þeiira gerðu tíu stig eða meira í leiknum. Þetta var fyrsti sigur Doc Rivers sem þjálfari. Grant Hill gerði þrjátíu stig fyrir gestina. Lið Portland TrailBlazers sýndi mátt sinn og megin er þrír leikmenn þess skoruðu mefra en tuttugu stig hver í auðveldum sigri á Los Angel- es Clippers, 121:98. Damon Stouda- mire skoraði 23 stig, en þefr Scottie Pippen og Steve Smith gerðu 22 stig hvor. Stoudamire gaf einnig níu stoðsendingar og Litháinn Arvydas Sabonis skoraði sextán stig og tók þrettán fráköst. Portland hefur sigr- að í tveimur fyrstu leikjum sínum samanlagt með 43 stiga mun. Nýliði Clippers, Lamar Odom, var stiga- hæstur í liði sínu annað kvöldið í röð - gerði 23 stig. „Tröllið“ Shaquille O’Neal skoraði 28 stig, tók tíu fráköst og varði þrjú skot er Los Angeles Lakers hafði lítið fyrir sigri sínum á Vancouver Grizzlies í nýju Staples-höllinni í Los Angeles, 103:88. Phil Jackson, fyrrverandi þjálfari Chicago Bulls, hefur því fagnað sigi’i í tveimur fyrstu leikjum sínum með Lakers. Michael Dickerson og Shareef Abd- ur-Rahim skoi-uðu nitján stig hvor fyrir gestina frá Kanada, sem hafa aðeins unnið einn leik af sextán gegn Lakers frá stofnun félagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.