Morgunblaðið - 05.11.1999, Síða 2
+
2 C FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 C 3
URSLIT
Körfuknattleikur
Grindavík - Haukar 82:76
íþróttahúsið í Grindavík, fimmtudaginn
4. nóvember 1999.
Gangur leiksins: 7:8, 20:11, 31:31, 38:35,
49:39, 51:47, 58:55, 62:62, 77:73 82:76
Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 33,
Bjarni Magnússon 13, Alexander Ermil-
inskij 10, Pétur Guðmundsson 8, Sævar
Garðarsson 7, Guðlaugur Eyjólfsson 7, Dag-
ur Þórisson 4.
Fráköst: 25 í vörn, 6 í sókn.
Stig Hauka: Guðmundur Bragason 17,
Chris Dade 13, Marel Guðlaugsson 12, Jón
Arnar Ingvarsson 11, Ingvar Guðjónsson
10, Eyjólfur Jónsson 9, Bragi Magnússon 4.
Fráköst: Vörn: 24 Sókn: 14.
Villur: Grindavík 17, Haukar 19.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Jón Hall-
dór Eðvaldsson.
Áhorfendur: Um 300.
Skallagr. - UMFT 69:80
Iþróttahúsinu í Borgarnesi;
Gangur leiksins: 0:2, 5:11, 10:22, 14:28,
23:40, 27:40, 34:54, 45:60, 60:71, 69:80.
Stig Skallagríms:Sigmar Páll Egilsson 19,
Birgir Mikaelsson 17, Tómas Holton 10,
Dragisa Saric 8, Hlynur Bæringsson 7, Ari
Gunnarsson 5, Pálmi Þórisson 3.
Fráköst:26 í vörn 13 í sókn.
Stig Tindastóls: Shawn Myers 24, Svavar A.
Birgisson 23,, Kristinn Friðriksson 17, Isak
5. Einarsson 8, Friðrik H. Hreinsson 4,
Helgi F. Margeirsson 4.
Fráköst: 24 í vörn 16 í sókn.
Villun Skallagrímur 11 - Tindastóll 21.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Björgvin
Rúnarsson. Dæmdu þokkalega.
Áhorfendur: 218.
Akranes - KFÍ 68:82
Iþróttahúsið v. Vesturgötu, Akranesi:
Stig ÍA: Brynjar K. Sigurðsson 14, Reid W.
Beckett 14, Hjörtur Þ. Hjartarson 12, Brynj-
ar Sigurðsson 10, Ægir H. Jónsson 8, Björn
Einarsson 6, Magnús Guðmundsson 4.
Fráköst: 7 í sókn -16 í vörn.
Stig KFÍ: Halldór Kristmansson 25, Clifton
Bush 24, Baldur I. Jónsson 11, Gestur Sæv-
arsson 11, Hrafn Kristjánsson 7, Tómas
Hermannsson 4.
Fráköst: 11 í sókn - 26 í vöm.
Villur: ÍA 14 - KFÍ 21.
Dómarar: Kristján Möller og Bergur Stein-
grímsson.
Áhorfendur: Innan við 100.
1. deild karla:
ÍS - Breiðablik...................74:58
Knattspyma
UEFA-keppnin
2. umferð, síðari lcikir:
Montpeliier - Deportivo Coruna......0:2
Roy Makaay 45., Pauieta Resendes 83.
■Deportivo vann 5:1 samanlagt.
AS Roma - IFK Gautaborg.............1:0
Fabio Junior 88. 9.777.
■ AS Roma vann 3:0 samaniagt.
Viking Stavanger - Werder Bremen .. .2:2
Bjorn Berland 3., Ríkharður Daðason 84. -
Andree Wiedener 43., Andreas Herzog 63.
6.120.
■Werder Bremen fer áfram á mörkum á
útivelli.
Grasshoppers - Slavia Prag .........1:0
Hakan Yakin 76. Rautt spjald: Philipp Wal-
ker (Grasshoppers) 72.
■Slavia Prag vann 3:2 samalagt.
Lokomotiv Moskvu - Leeds United.....0:3
Ian Harte 15. - vsp., M. Bridges 28., 45.
■Leeds vann 7:1 samanlagt.
Helsingborg - Parma.................1:3
Stavrum 86. - Di Vaio 11., 42., 43.
■ Parma vann 4:1 samanlagt.
Lcgia Varsjá - Udinese..............1:1
Czereszewski 11. - Roberto Sosa41.
■Udinese vann 2:1 samanlagt.
Amica Wronki - Atletico Madrid .....1:4
Dariusz Jackiewicz 34. - Jerrel Hasselbaink
30., Joan Capdevilia 44., Ruben Baraja 45.,
Femando Correa 85.
■Atletico vann 5:1 samalagt.
Vitesse Arnhem - RC Lens............1:1
Michel Kreek 64, - Jocelyn Bianchard 90.
■Lens vann 5:2 samanlagt.
Nantes - Inter Bratisiava ..........4:0
Sibierski 48., Monterrubio 61., Devineau 73.,
Da Rocha 82.
■Nantes vann 7:0 samalagt.
Panathinaikos - Graz AK ............1:0
Karlheinz Pflipsen 90. - vsp. 15.000.
■Jafntefli, 2:2, en Panathinaikos fer áfram á
marki á útivelli.
Celtic - Oiympique Lyon.............0:1
- Tony Vairelles 18. 54.291.
■ Lyon vann 2:0 samanlagt.
Ajax - Hapoel Haifa.................0:1
- Dovani Rosso 60. - vsp. 38.765. Rautt
spjald: Christian Chivu (Ajax) 23.
■Ajaxvann 3:1 samanlagt.
Kaiscrslautem - Tottcnham...........2:0
Buek 89., Carr 90. - sjálfsm. 29.044.
■ Kaiserslautem vann 2:1 samanlagt.
West Ham - Steaua Búkarcst..........0:0
24.514.
■ Steaua vann 2:0 samanlagt.
Neweastle United - FC Zilrich.......3:1
Silvio Maric 33., Duncan Ferguson 58., Gary
Speed 61. - Gocha Jamarauli 17. 34.502.
■ Newcastle vann 6:2 samanlagt.
Juventus - Levski Sofia.............1:1
Kovacevic 79. - Atanassov 15.
■ Juventus vann 4:2 samanlagt.
Benfica - Paok Saionica ............1:2
Sergiy Kandaurov 25. - Spyridon Marangos
28., Abdel Sabry 44. 30.000.
■Samanlögð úrslit, 3:3, eftir framlengingu.
Benfica vann 4:1 í vítaspyrnukeppni og fer
áfram.
Celta Vigo - Aris Salonika .........2:0
Goran Djorovic 65., Mario Turdo 90.15.000.
■ Celta Vigo vann 4:2 samanlagt.
Mailorca - Tcplice..................3:0
Miguel Angel Nadal 30., Iovan Stankovic
57., Femando Nino 68.12.000.
■ Mallorca vann 5:1 samanlagt.
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA
Helgi og félagar sluppu fyrir horn
HELGI Sigurðsson og félagar
hans í gríska liðinu Panathinai-
kos komust í 3. umferð UEFA-
keppninnar eftir að hafa unnið
austurríska liðið AK Graz 1:0 í
Aþenu í gær. Fyrri leikur lið-
anna tapaðist 2:1 í Austurríki.
Markið sem fleytti gríska lið-
inu áfram kom þegar tvær
mínútur voru komnar fram yf-
ir venj'ulegan leiktíma. Það
gerði Þjóðverjinn Karl Heinz
Pfípsen úr vítaspyrnu. Aust-
urríkismaðurinn Hartman fékk
þar aðra áminningu sína í
leiknum og fékk því rauða
spjaldið. Helgi kom inn á sem
varamaður á 60. mínútu.
KORFUKNATTLEIKUR
Hörkuleikur
í Röstinni
BOÐIÐ var upp á hörkuleik í Röstinni þegar heimamenn
í Grindavík tóku á móti Haukum. Heimamenn höfðu forystu í
leikhléi, 49:39, og sigruðu með sex stiga mun, 82:76. í hinum
tveimur leikjum kvöldsins sigruðu ísfirðingar á Akranesi og
Sauðkrækingar í Borgarnesi.
Það hefur líklega verið dálítið sér-
stök tilfmning fyrir Guðmund
Bragason að spila sinn fyrsta deild-
arleik sem gestur á
Garðar Páll sínum gamla heima-
Vignisson velli. „Leikurinn var
skrífar jafn en við slökuðum
alltaf á í vöminni
þegar við náðum að jafna. Það þýðir
ekkert á móti jafn góðum leikmanni
og Brenton Birmingham. Þetta var í
raun bara spurning um hvorum meg-
in þetta myndi detta. Það era okkur
mikil vonbrigði að tapa hérna. Þetta
eru tvö jöíh lið,“ sagði hann eftir leik-
inn.
Fyrri hálfleikur var frábær. Bæði
lið spiluðu vel en þó voru heimamenn
betri. Heimamenn voru með forystu
lengstum í hálfleiknum og komust í
20:11 og 27:18, en Haukar náðu alltaf
. að komast inn í leikinn. Þegar fimm
mínútur lifðu af fyrri hálfleik náðu
Haukar fyrst forystu, 31:33. Þá
sögðu heimamenn hingað og ekki
lengra, settu niður hverja körfuna á
fætur annarri og höfðu yfir í hálfleik,
49:39.
I síðari hálfleik komu gestirnir
gríðarlega ákveðnir til leiks og virt-
ust til alls líklegir. Heimamenn létu
þó ekki slá sig út af laginu og héldu
haus. Gestirnir héldu áfram að
kroppa í forskotið og náðu að jafna
62:62 þegar síðari hálfleikur var
hálfnaður. Heimamenn sigu hægt og
rólega fram úr og náðu tíu stiga for-
skoti, 77:67. Haukarnir gáfust ekki
upp og skoruðu næstu sex stig en
nær komust þeir ekki og heimamenn
sigruðu, 82:76.
Einar Einarsson, þjálfari Grind-
víkinga, var að vonum kátur í lok
leiks. „Haukar er eitt af toppliðunum
í deildinni. Við gerðum mikið af mis-
tökum í leiknum, náðum oft góðum
rispum en misstum þetta svo niður
aftur og það má aldrei. Vörnin var
mjög góð hjá okkur í fyrri hálfleik.
Við héldum þó haus og það er mikil-
vægt í svona jöfnum leikjum. Þeir
verða margir í vetur.“
Bestur í liði heimamanna var
Brenton Birmingham. Þá voru Guð-
laugur Eyjólfsson og Bjarni Magn-
ússon frábærir í fyrri hálfleik en
náðu ekki að fylgja því eftir í seinni
hálfleik. Það voru Grindvíkingarnir í
liði gestanna, Guðmundur Bragason
og Marel Guðlaugsson, sem voru
bestir. Reyndar vakti það furðu hve
Marel spilaði lítið í seinni hálfleik
miðað við sterka innkomu hans í
w mm
1 KVOLD
Handknattleikur
1. deild karla:
Ásgarður: Stjarnan - ÍR . . .20
KA-heimili: KA - Víkingur ... . . .20
1. deild kvenna:
Valsheimili: Valur - ÍBV .. .20
2. deild karla:
Selfoss: Selfoss - Grótta/KR .. .. .20
Strandgata: ÍH - Völsungur .. . . .21
Körfuknattleikur
Urvalsdeild karla:
Akureyri: Þór A. - KR 20
Keflavík: Keflavík - Hamar 2(1
Njarðvík: Njarðvík - Snæfell 20
1. deild karla:
Þorlákshöfn: Þór Þ. - ÍV 21)
fyrri hálfleik, bæði í stigaskorun og
góðri vörn á Brenton Birmingham.
Öruggt hjá ísfirðingum
W
Isfirðingar gerðu góða ferð á Skag-
ann þegar þeir unnu öruggan og
sanngjarnan sigur á heimamönnum,
68:82. Það var aðeins
Pétur fyrsta stundarfjórð-
Ottesen ung leiksins sem
skrifar Skagamenn náðu að
hanga í gestunum en
í stöðunni 27:26 íyrir heimamenn
settu Isfirðingar í annan gír, juku
forskot sitt jafnt og þétt og höfðu ell-
efu stiga forystu í leikhléi.
Sama var uppi á teningnum í síðari
hálfleik, en þó náðu Skagamenn að
minnka muninn í 9 stig um miðbik
hálfleiksins en mestur varð munur-
inn 20 stig. Greinilegt er að Skaga-
manna bíður erfitt verkefni ef þeir
ætla sér að vera áfram í efstu deild.
Þjálfari liðsins, Brynjar Karl Sig-
urðsson, er farinn að leika með liðinu
á ný og er greinilegt að með hann
innanborðs eykst sjálfstraust liðsins
til muna. Aðspurður hvort hann ætli
að leika út tímabilið svaraði hann að
þetta væri tilraun til að styrkja liðið
og tíminn einn leiddi í ljós hvort sú
tilraun gangi upp. „Ég á talsvert í
land með að ná upp sama leikformi
og strákamir og hef einhvern tímann
verið léttari á mér en á nú,“ sagði
Brynjar Karl hann eftir leikinn.
Ekki er auðvelt að nefna einstaka
leikmenn í liði IA sem voru öðrum
fremri, en liðið í heild sinni reyndi
hvað það gat þótt uppskeran í gær-
kvöldi yrðu heldur rýr. Skagaliðið lék
oft á tíðum ágætan varnarleik en mik-
ið vantar upp á að sóknarleikurinn sé
nógu agaður. Þeir fóru hræðilega
með opin færi í sókninni og vítanýting
var skelfileg, eða innan við 30%.
Lið KFI spilaði þennan leik skyn-
samlega og lönduðu sanngjörnum
sigri nokkuð auðveldlega. Þeir léku
oft hraðan sóknarbolta og þó að
vörnin hafi opnast oft á tíðum var
það ekki áhyggjuefni þar sem að lítið
sem ekkert gekk upp hjá heima-
mönnum í sókninni. Hjá Isfirðingum
bar mest á þeim Halldóri Kristmans-
syni og Clifton Bush, sem sögusagn-
ir hermdu að væri á leiðinni frá lið-
inu. Aðspurður sagði liðstjóri KFÍ,
Guðjón Þorsteinsson, að ekkert væri
hæft í þessu, þeir kynnu afskaplega
vel við piltinn og að honum liði vel í
snjónum fyrir vestan. I liði KFI var
einnig gaman að fylgjast með Hrafni
Kristjánssyni sem barðist vel allan
tímann og ekki síður 18 ára pilti,
Gesti Sævarssyni sem skorði drjúgt
og var mjög ógnandi og hreyfanleg-
ur í sókninni.
Auðvelt hjá Tindastóli
Lið Tindastóls kom sá og sigraði í
Borgarnesi í gærkveldi. Höfðu
Sauðkrækingar undirtökin frá byrj-
un. Staðan í hálfleik
Ingimundur var 23:40, en lokatöl-
ingimundarson ur urðu 69:80.
skrifar Fyrstu sóknir
beggja liða mistókust
en gestirnir urðu fyrri til að skora.
Mikil spenna virtist hjá báðum lið-
um. Mikið var um mistök og eftir
fímm mín. leik var staðan 5:11. Þá
tóku gestirnir góðan kipp. Voru mun
grimmari í öllum aðgerðum og
komust í 6:20. Heimamenn voru ráð-
villtir, þoldu pressuvörn gestanna
illa og flest skot þeirra geiguðu.
Réðu þeir illa við kröftugar sóknir
gestanna og baráttuandinn virtist
fjarri. Menn hittu illa, sendingar
misfórust, og vítahittnin var í lág-
marki. Segja má með sanni að
Skallagrímur hafi tapað leiknum
með leik sínum í fyrri hálfleik.
I seinni hálfleik komust gestirnir
fljótlega í 20 stiga forystu, 34:54. En
heimamenn tóku góðan kipp og
börðust vel er fjórar mín voru eftir.
Minnkuðu þá muninn í ellefu stig,
60:71, en glutruðu niður tækifærum
að laga stöðuna enn betur með óyfir-
veguðum aðgerðum. Sigur Tinda-
stóls var því aldrei í hættu.
Lið heimamanna átti slæman dag.
Leikur þess var andlaus og baráttan
í lágmarki. Sigmar Páll Egilsson og
Birgir Mikaelsson voru skástir
heimamanna, en flestir leikmenn
léku langt undir getu.
Lið Tindastóls átti engan sérstak-
an leik. En breidd liðsins var mun
meiri en heimamanna. Svavar A.
Birgisson var þeirra bestur, rólegur
og yfirvegaður. Þá átti Flemming
Stie, Daninn stutti en snöggi, ágætis-
leik. Einnig skal Kristins Friðriks-
sonar getið en hann skoraði nokkara
fallegar þriggja stiga körfur.
Ljósmynd/Erling Hægeland
RÍKHARÐUR Daðason skoraði síðara mark Viking gegn Werder Bremen i gærkvöldi. Hér reynir brasilíski varn-
armaðurinn Julio Cesar að stöðva íslenska framherjann.
Sárt ad falla úr
keppni á jafntefli
Ríkharður Daðason og Auðun Helga-
son léku báðir vel með Viking er liðið
gerði jafntefli, 2:2, við þýska liðið Werder
Bremen í Stavanger í gærkvöldi. Norska
liðið er úr leik þar sem fyrri leikur liðanna
í Bremen endaði með markalausu jafntefli
og þýska liðið fer áfram á mörkum skor-
uðum á útivelli.
Víking fékk óskabyrjun er Björn Ber-
land kom liðinu yfir á þriðju mínútu.
Þýska liðið sótti stíft það sem eftir lifði
fyrri hálfleiks og náði að jafna verðskuld-
að rétt fyrir leikhlé með marki Andree
Widener. Andreas Herzog kom Bremen
yfir á 63. mínútu eftir að skot hans hafði
farið í vamarmann og í netið. Frekar
slysalegt mark. Eftir það sótti norska lið-
ið í sig veðrið og Ríkharður var aðgangs-
harður við mark gestanna og jafnaði þeg-
ar sex mínútur voru eftir. Hann fékk
sendingu frá hægiú, stökk upp í miðjum
vítateignum og skallaði yfir markvörð
Bremen og í markið.
„Það var sárt að falla úr keppni á jafn-
Svartur dagur á ttalíu
ALBERTO Zaccheroni, þjálfari AC
Milan, hefur verið harðlega gagmýnd-
ur í ítölskum fjölmiðium eftir slæma
útreið í meistaradeildinni. Félagið
hafnaði í neðsta sæti í H-riðli og eiga
ítalskir sparkfræðingar erfitt með að
sætta sig við að ítölsku meistararnir
hafi ekki náð betri árangri og vilja
uppsögn þjálfarans.
Adriano Galliani, varaforseti félags-
ins, tekur upp hanskann fyrir Zaccher-
oni þjálfara og segir að hann verði
áfram með liðið. „Það eru engar vanga-
veltur um það innan stjórnar félagsins
að skipta um þjálfara. Ég hef þegar
rætt við forseta félagsins, Silvio
Berlusconi, um þetta mál,“ sagði hann.
Galliani sagði það auðvitað áfall að liðið
hefði tapað niður 2:1 forystu á síðustu
fjórum mínúnum. „Það er því miður
ekki hægt að endurtaka leikina í meist-
aradeildinni. Við lékum mjög illa í síð-
ari hálfleik gegn Galatasaray, leik-
menn voru ekki líkir sjálfum sér.“
Hann sagði að nú væri næsta mark-
mið að tryggja liðinu sæti í meistara-
deildinni á næsta ári. „Við verðum að
komast aftur í Evrópukeppnina eins
fljótt og hægt er og til þess þurfum við
að vera í einu af fjórum efstu sætunum
í ítölsku deildinni. Við getum það
vegna þess að við erum með lið sem
varð ítalskur meistari fyrir aðeins fjór-
um mánuðum."
Fyrrverandi þjálfari AC Milan og
ítalska landsliðsins, Ai-rigo Sacchi,
segir slakan árangur ítalskra liða í
Evrópukeppninni vekja upp spurning-
ar um stöðu ítalskrar knattspyrnu.
„Þetta var ekki einungis slæmur dag-
ur fyrir AC Milan heldur líka fyrir
ítalska knattspyrnu," sagði Sacchi.
Fjögur ítölsk lið hófu keppni í Evr-
ópumótunum og hafa tvö þeirra, AC
Milan og Parma, þegar fallið út. Lazio
"h
og Fiorentina geta þó haldið uppi
heiðri ítala með vaskri framgöngu.
Þetta eru enn ein vonbrigðin fyrir
ítali því í fyrra var ekkert ítalskt lið í
úrslitum meistardeildarinnar í fyi-sta
sinn frá því keppnin var sett á stofn
1992.
Sacchi sagði Chelsea hafa sýnt það í
meistaradeildinni að það verði að telj-
ast til alls líklegt. „Allir veðja á að
Barcelona, Manchester United og
Lazio komi til með að berjast um Evr-
ópumeistaratitilinn en ég myndi tippa
á að Chelsea yrði líka með í þeirri bar-
áttu,“ sagði Sacchi.
Pétur Pétursson ráðinn þjálfari meistaraliðs KR
Stefnan að veija
báða titlana
tefli. Þetta voru hálfgerð klaufa-
mörk sem við fengum á okkur og
við vorum ansi nálægt því að kom-
ast áfram. Við voram mun betri í
síðari hálfleik og sýndum þá að við
áttum í fullu tré við þýska liðið. Við
fundum það þá að þeir voru orðnir
piiTaðir og hræddir,“ sagði Rík-
harður. Hann var þrisvar nálægt
því að bæta við marki, einu sinni í
fyrri hálfleik og tvisvar á lokamín-
útum leiksins.
Hann sagðist ánægður með sinn
hlut í leiknum. „Já, ég er ánægður
með minn leik. Loksins náði ég að
hífa mig upp úr meðalmennskunni.
Það var ágætt að fá smá uppreisn
eftir slaka leiki með landsliðinu
gegn Úkraínu og Frökkum og í fyrri
leiknum gegn Bremen,“ sagði hann.
Aðspurður um hvort þetta hafi
verið síðasti leikur hans fyrir Viking
sagði hann: „Ég veit það ekki, en
vissulega er sá möguleiki fyrir
hendi. Ég reikna með að það komi
eitthvert tilboð í mig, en síðan er
það spurning hvort Viking er tilbúið
að samþykkja það. Þegar ég skrif-
aði undir tveggja ára samning sl.
vor var talað um að ég yrði seldur ef
tilboð kæmi núna eftir þetta tímabil.
Framlenging á samningi mínum við
Viking hefur ekki verið til umræðu
hjá mér.“
Ríkharður og Auðun koma til
landsins í dag í frí.
PÉTUR Pétursson var í gær
ráðinn þjálfari íslands- og bik-
armeistara KR í knattspyrnu
karla og er samningur hans til
tveggja ára. Tekur Pétur, sem
lék með KR 1987-1991, við af
Atla Eðvaldssyni, sem ráðinn
var landsliðsþjálfari í vikunni.
Pétur segist ekki hafa getað
neitað tækifærinu að þjálfa KR
og að takmarkið sé skýrt -
stefnan sé að verja báða titl-
ana sem unnust sl. sumar.
KR-ingar áttu í viðræðum við
Pétur um starfið í vikunni, en
auk þess Willum Þór Þórsson sem
einnig lék með liðinu á árum áður.
„Nú er þetta frágengið," sagði Pét-
ur. „Ég gat ekki neitað þessu til-
boði. Þetta er líklega auðveldasta
ákvörðunin á mínum þjálfaraferli til
þessa. Ég þekki þetta lið og hef ver-
ið viðloðandi það síðan 1987. Ég
gleymi ekki uppruna mínum á
Skaganum, en ber mjög sterkar til-
finningar til KR og verð því að telj-
ast bæði Skagamaður og KR-ingur.
Ég tel að hægt sé að byggja enn
frekar á þeim frábæra árangri sem
náðist 1 sumar. Ég fylgdist vel með
liðinu þá - lýsti leikjum í KR-út-
varpinu og skemmti mér vel yfir
góðum leikjum liðsins. KR er Is-
lands- og bikarmeistari og því er
auðvitað ekki hægt að taka við
betra búi en Atli skilur eftir sig. Öll
aðstaða er góð, umgjörðin mikil og
leikmenn sterkir. Eg hlakka því til
að hefjast handa,“ sagði Pétur.
Pétur var spurður hvort ekki
fylgdi því mikið álag að taka við tvö-
földu meistaraliði. Ottast hann ekki
pressuna? - „Nei, alls ekki. Það gef-
ur augaleið að pressan verður ein-
hver en ég hef nú lent í ýmsu á mín-
um ferli og hef því ekki áhyggjur af
slíku. Aðalatriðið er að láta liðið
leika skemmtilega og árangursríka
knattspyrnu," sagði hann.
Pétur lék með KR um fimm ára
skeið á árunum 1987 til 1991, en
náði ekki að vinna hinn eftirsótta
íslandsmeistaratitil með liðinu.
„Nei, við reyndum en það tókst
ekki. Enda sagði ég við menn í sig-
urliðinu í haust að ég öfundaði þá af
þessari stund. Að hafa náð að koma
titlinum aftur í vesturbæinn. Nú
ætla ég að gera mitt besta til að
hann haldist þar.“
Morgunblaðið/Ásdís
Guðmundur Pétursson, formaður Rekstrarfélags KR, og Pétur
Pétursson, sem skrifar undir samning við félagið.
Óvissan að baki
Við bindum miklar vonir við
ráðningu Péturs. Hann lék um
árabil með KR og gjörþekkir því
innviði félagsins. Hann verður von-
andi farsæll í starfi og nær ár-
angri,“ sagði Guðmundur Péturs-
son, formaður Rekstrarfélags KR,
er tilkynnt var um ráðningu Péturs
í gær.
„Um leið fagna ég því að óvissan
varðandi þjálfaramál félagsins sé að
baki,“ sagði hann, en legið hefur
fyrir um skeið að Atli Eðvaldsson
væri efstur á blaði Knattspyrnu-
sambandsins yfir hugsanlega eftir-
menn Guðjóns Þórðarsonar í starf
landsliðsþjálfara. Á mánudag
skýrðust þau mál endanlega er Atli
var ráðinn þjálfari landsliðsins. KR-
ingar höfðu gert honum tilboð um
áframhaldandi störf. Þakkaði Guð-
mundur Atla fyrir vel unnin störf og
óskaði honum góðs gengis í nýju
starfi.
Guðmundur sagði ljóst að miklar
kröfur væru gerðar til nýs þjálfara,
enda væri KR handhafi tveggja titla
og stefndi að sjálfsögðu að því að
halda þeim. „Við reynum að vera
raunsæir og sanngjarnir, en vissu-
lega viljum við halda þeim dampi
sem verið hefur á liðinu. Eflaust
fylgir því álag að taka við liðinu
undir þessum kringumstæðum, en
allar aðstæður eru hér góðar og við
treystum Pétri fyllilega í þetta
verkefni."
Nokkrir leikmanna KR leika er-
lendis í vetur - hafa verið leigðir til
liða í Belgíu, Englandi og Þýska-
landi. Að auki var Indriði Sigurðs-
son seldur á dögunum til Lillestrom
í Noregi. Guðmundur segir að nú
muni stjóm Rekstrarfélagsins setj-
ast niður með nýjum þjálfara og
ræða leikmannamálin. „Það er ekki
ólíklegt að einhverjar breytingar
verði hjá okkur. Tveir leikmenn
[Þormóður EgOsson og Kristján
Finnbogason] eru samningslausir
og við erum í viðræðum við þá.
Einnig gætu einhverjir leikmenn
bæst í hópinn. Þetta skýrist allt inn-
an skamms,“ sagði Guðmundur.
Þeir verða í
í baráttunni
FIMM fyrrverandi landsliðs-
mcnn í knattspyrnu verða í
baráttunni með lið sín í efstu
deild karla í knattspyrnu
næsta keppnistímabil - Ólafúr
Þórðarson, Guðmundur Torfa-
son, Pétur Pétursson, Kristinn
R. Jónsson og Sigurður Grét-
arsson.
Aðeins þrjú lið í efstu deild
verða með sömu þjálfara og sl.
keppnistímabil - Breiðablik,
Grindavík og Stjarnan.
Þeir sem þjálfa í efstu deild
eru: _
fA: Ólafur Þórðarson.
Keflavík: Páll Guðlaugsson.
Fram: Guðmundur Torfason.
ÍBV: Kristinn R. Jónsson.
Grindavík: Milan Stefán Jan-
kovic.
KR: Pétur Pétursson.
Leiftur: Jens Martin Knudsen
og Einar Einarsson.
Breiðablik: Sigurður Grétars-
son.
Fylkir: Bjarni Jóhannesson.
Stjarnan: Goran Kristófer
Micic.
• Páll tekur við starfi Kjart-
ans Mássonar.
• Jens Martin og Einar taka
við starfi Páls.
• Guðmundur tekur við starfi
Ásgeirs Elíassonar.
• Kristinn tekur við starfi
Bjarna.
• Bjarni tekur við starfi
Ólafs.
• Pétur tekur við starfi Atla
Eðvaldssonar.
• Ólafur tók við starfí Loga
Ólafssonar fyrir síðustu um-
ferð efstu deildar í sumar.
FOLK
■ ÓSKAR Hrafn Þorvaldsson hef-
ur verið ráðinn þjálfari 2. flokks
drengja hjá KR. Hann tekur við af
Magnúsi Gylfasyni, sem gerði KR
meisturam í þessum aldursflokki
tvö síðustu ár.
■ VICTOR Piturca var í gær sagt
upp störfum sem landsliðsþjálfari
Rúmena, aðeins nokkrum vikum
eftir að liðið fór í gegnum und-
ankeppni EM án þess að tapa leik.
Ástæða uppsagnai-innai- er sögð
vera óánægja nokkurra lykilmanna
liðsins með störf hans. Eftirmaður
Piturca í starfi hefur ekki verið
fundinn, en líklegastur þykir
Mircea Lucescu, þjálfari Rapid
Búkarest, sem er fyn-um þjálfari
Inter Milan.
■ ANTHONY Yeboah, framherji
Hamburger SV, segist hafa áhuga á
að leika í Bandaríkjunum á næsta
ári. Yeboah, sem er 33 ára og hefur
einnig leikið með Eintracht Frank-
furt og Leeds United, lýkur samn-
ingi sínum við þýska liðið eftir þetta
keppnistímabil.
■ MARK Overmars, leikmaður Ar-
senal, hefur verið valinn í hollenska
landsliðið sem leikur vináttuleik
gegn Tékkum í næstu viku. Hann
hefur ekki leikið landsleik síðan
Hoilendingar töpuðu fyrir Marokkó
2:1 í apríl. Overmars kemur inn i
hópinn fyrir Peter van Vossen, leik-
mann Feyenoord, sem ekki er í-j
góðri æfingu um þessar mundir.