Morgunblaðið - 09.11.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.11.1999, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 BÆKUR MORGUNBLAÐIÐ Mannabarn í Alfheimum BÆKUR Barnabók BENEDIKT BÚÁLFUR eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson. Mál og menning, 1999 - 41 s. Dídí er sex ára stelpukorn sem býr í hundrað ára gömlu húsi. Hún rekst einn dag á Benedikt búálf vegna þess að búálfar verða sýni- legir þegar þeir blotna. Honum verður mikið um þetta því yfírleitt er það versta sem getur hent búálfa að lenda í klón- um á mannfólkinu. En Dídí og góð stelpa og sleppir Benedikt. Þau verða vinir og hún fer með honum inn í Alf- heima þar sem þau gera góða hluti við að bjarga tannheilsu álf- anna með því að bjarga Tóta tannálfi úr klóm dökkálfanna. Þetta er ævintýri í anda meinlausra þjóð- sagna sem ekki hafa neinn brodd og ekki merkilegan boðskap. Barátta góðs og ills er ósköp til- þrifalítil og ætti ekki að hræða neinn. Ferðalagið um Alfheima í leit að Tóta tannálfi er kjarni ævin- týrsins. Álfheimar geyma risastór tré, skrýtnar verur í nokkurs kon- ar mannsmynd, en þó líkari engl- um, Jósafat mannahrelli sem er heldur ófrýnilegur þótt meinlaus sé, að ógleymdri BrynhOdi álfa- drottningu sem geislar af góð- mennsku og kærleik og hefur yfir Viskubrunni að segja. Daði dreki er líka meinlaus dreki þótt hann geti villt á sér heimildir og spúð eldi. I bókinni er kort af Alfheimum sem sýnir alla staðhætti, m.a. eru þar reyndar tveir staðir með nafn- inu Geysir, og þar er líka Eldey og spúandi eldfjall með heitinu Surtsfjall. En þessir staðir hafa eng- in tengsl við neina náttúru sem við þekkjum. Höfundur hefði gjarnan mátt merkja inn á kortið þá leið sem farin var í leitinni að Tóta úr því að kortið var gert, les- anda til aðstoðar. Ævintýrið er al- þjóðlegt og sömuleiðis myndimar í þeirri merkingu að í þeim felst engin staðfæring og engar skírskotanir til Islands eða ís- lenskra búálfa. Þessi búálfur er klæddur í skartklæði í skæram litum og mundu þau sóma sér vel í sögum Walts Disneys. Sigrún Klara Hannesdóttir Gíraffi keyrir strætd BÆKUR Bamabók Gíri-stýri og skrýtni draumurinn Saga og myndir: Björk Bjarkadótt- ir, Mál og menning, 1999 - 24 s. GÍRMUNDUR er gíraffi og ekur strætisvagni númer 3. Það er kannski ekkert skrýtið því allir bæj- arbúar era gíraffar. Gíri er mikið gæðablóð og hjálpsamur við alla og eitt sinn hjálpar hann gamalli gíraf- fafrú við að ná kettinum hennar nið- ur úr tré. Hann er líka mjög bók- hneigður og fer oft á bókasafnið til að ná sér í bækur og myndablöð. Gíri getur líka haft áhyggjur eins og mannfólkið upp til hópa og eitt sinn fær hann martröð þegar hann legg- ur sig eftir hádegið. Martröð Gíra gengur út á það að hann hafi skyndi- lega misst lengdina á hálsinum og sé orðinn hálsstuttur, andstætt því sem allir era í kringum hann. Hann er orðinn öðravísi en allir aðrir og verð- ur fyrir aðkasti. En sem betur fer vaknar hann af vondum draum og gleðst ósegjanlega við að vita að þetta var bara draumur. Þetta er bók fyrir yngstu lesend- urna. Myndimar eru mjög líflegar og skýrar og skemmtilegar fyrir böm að skoða því gíraffasamfélagið hefur samið sig að háttum manna og við sjáum Gíra í alls kyns daglegu amstri. Við sjáum hann fyrst á sunnudagsmorgni steinsofandi - og hann er svo langur að hann stendur langt aftur úr rúminu. Við sjáum hann í baði, á bókasafninu, sjáum hann hoppandi glaðan og síðast en ekld síst þegar hann upplifir mar- tröðina og sér alla hina gíraffana hlæja vegna þess hvað hann er orð- inn hálsstuttur. Seinasta myndin af honum sitjandi í hægindastól með bók í dagslok sýnir farsælan endi á góðum degi. Bókin er fallega hönnuð og mynd- ir og texti mynda heild. Textinn er ekki mikill á hverri síðu og er í mjög góðu samræmi við myndimar, letrið er skýrt og gott og orðalag tilgerð- arlaust. Lítíl böm geta vel samsam- að sig að öllu sem Gíri gerir á einum degi. Þetta er látlaus og hlý veröld. Sigrún Klara Hannesdóttir Nffiar geislaplötur • TRÚARTÓNAR er safn trúar- legra verka, en það er Námsgagn- astofnun sem gefur plötuna út. A henni era alls 26 verk og hefst hún á upphafi fyrsta Passíusálms við lag eftir Jón Leifs, Upp, upp mín sál, í flutningi Þórannar Guðmundsdótt- ur, sópransöngkonu. En hún hefur jafnframt ritað kennsluleiðbeining- ar með Trúartónum. A plötunni er að finna verk margra þekktustu kóra landsins, m.a. Pólýfónkórsins, Hamrahlíðar- kórsins, Langholtskórsins, Dóm- kórsins, Söngsveitarinnar Fílhar- móníu, Kórs Akureyrarkirkju, Kvennakórsins og Scola Cantoram, sem hljóðritaði fjögur lög sérstak- lega fyrir þessa plötu undir stjórn Harðar Áskelssonar. A plötunni era einnig ýmsar alþýðlegar perlur. Má þar nefna Heilræðavísur Hallgríms Péturssonar í flutningi söngflokks- ins Lítið eitt, Kærleika úr poppleik- num Óla í flutningi Óðmanna, I bljúgri bæn með Snöranum, Draum Pílatusar úr Súperstar eftir Webber og upprisuverk Karls Sig- hvatssonar og Trúbrots af Lifun frá 1971. Þá er á plötunni bamasálmar í flutningi bamakóra. Þá leikur Páll ísólfsson Tokkötu eftir Bach á Dómkirkjuorgelið og Kristinn Amason Prelúdíu eftir þann sama á gítar. Loks er að nefna Pie Jesu úr Requiem eftir Andrew L. Webber. Vægðarleysi m mennskunm Alessandro Baricco hlaut heimsfrægð fyrir skáldsögu sína Silki sem komið hefur út á íslensku. Kristín Bjarnaddttir segir frá umræðum milli hans og sænska gagnrýnandans Lars-Olaf Franzéns á Bókastefnunni í Gautaborg í september. AÐ var greinilegt þakklæti í lófataki þeirra sem hlýtt höfðu á ítalska höfundinn Alessandro Baricco, á Bókastefnunni í Gautaborg síðla í september, þrátt fyrir það að hann hafði talað hispurslaust um and- úð sína á meðalmennsku, og þrátt fyr- ir að hann hafði lýst því yfir að Silki væri skrifuð á þann hátt sem honum ekki félli. En þetta tvennt lagði blaða- maður Gautaborgarpóstsins áherslu á í skrifum sínum eftir stefnuna, þar sem lesa mátti fram mynd af fremur hrokafullum höfundi, ekki minnst gagnvart þeim sem kommir voru ein- mitt til að fá nýju kiljuna Silki áritaða ef ekki bókina Ocano mare í nýútkom- inni þýðingu frá Bonniers. Viðbrögð viðstaddra sögðu þó aðra sögu og flestir sem á Baricco hlýddu virtust skilja hans mál og skemmta sér ósvik- ið. Baricco, sem er fæddur í Tórínó 1958, er alþjóðlega best þekktur sem skáldsagnahöfundur, en sá ferill hófst 1991, eftir skrif um tónlist, m.a. bók- ina, II genio in fuga. Fyi-ir skáldsög- una Oceano mare (Milano 1993) hlaut hann viðurkenningu ítalska bók- menntaheimsins með „Premio Viar- eggio,,. Silki hefur verið þýdd á 16 tungumál, þ. á m. íslensku og jap- önsku en fjórða skáldsagan City kom út í vor sem leið. Bjartsýnar tragidíur og meðalmennska Lars-Olaf Franzén, gagnrýnandi og rithöfundur, leiddi samtalið fljótt að nýju bókinni, sem hann kvað ein- kennast af tóni sem minnir á teikni- mynd. Bariceo: Kannski! Ég hef heyrt þetta fyrr og ég er mjög ánægður með það. Franzén: Það hlýtur þó að hafa ver- ið meðvituð ákvörðun að skipta um tón frá Silki sem ber rómantískan frá- sagnartón ástarsögunnar? Baricco: Silki er sérstök saga. Eig- inlega fellur mér ekki að skrifa þann- ig- Franzén: Af hverju gerðirðu það þá? Baricco: Af því mér fannst að ein- mitt sú saga þyrfti að skrifast þannig. Eina sagan sem ég hef orðið fyrir á lif- sleiðinni sem hefur þurft að segjast á þann hátt. Mér fannst það erfitt. Að skrifa heila bók í sama tón og sama stíl. Að halda atburðum á því plani. Almennt fellur mér ekki að segja þannig frá. Franzén: Það hefurðu ekki heldur gert. í seinustu bókinni blandarðu furðulegum uppákomum með furðufí- gúrum og heimspekilegum vangavelt- um. Baricco: Þannig segi ég frá. Franzén: í City má finna hug- hyggju og einskonar brjálæði sem ég hef ekki rekist á fyrr. Baricco: Þetta er bók sem vekur mikinn hlátur, en sem er tragísk. Am- erískur gagnrýnandi hefur sagt að ég skrifi bjarsýnar tragidíur. Franzén: í bókinni er kafli sem fjallar um heiðarleika menningarvit- anna, eða réttara sagt óheiðarleika. Þú skrifar að „úr því bankaræningjar eru settir í fangelsi, því fær þá intell- igensían að vaða uppi laus og liðug?“ Hve alvarlega ber að taka slíka um- ræðu, sem gengur út á að sá sem telur sig hafa skýra hugsun, hann ljúgi um leið, og taki hann þátt í menningar- dansinum þá falsi hann einatt veru- leikann í þágu eigin frama? Baricco útskýrir kaflann sem vísað er til þegar aðalpersónan sem er „undrabarn", hittir gamlan kennara sem kennir honum sitthvað um menntafólk og heiðarleika og sem hefur áhrif á hvernig drengurinn velur í framtíð- inni. - Mig langaði líka til að fjalla um þann heim sem ég lifi í. I mínum heimi er margt hjákátlegt, lágkúrulegt og andstyggilegt. Við rithöfundar - við menningarvitar - erum hryllilegir og eigum bágt með að vera öðruvísi og þá vil ég um leið nefna þetta fyrirbæri, en líka tilfinningu mína fyrir því ferli. í stuttu máli: Við erum hryllingur en mér þykir vænt um okkur! I bókinni lýsi ég atriði með kenn- ara, prófessor sem gerir um _það bil það sem ég er að gera núna„ Eg naut þess að lýsa hvernig prófessorinn leit- ar að réttum svipbrigðum meðan hann er kynntur sem gestafyrirlesari, ég veit ekki hvort þið kannist við það að bíða meðan kynningin og hrósið stendur yfir? það er skelfilegt, eink- um ef maður er kynntur sem fremsti höfundur Itala á okkar tímum. I bók- inni er heil síða um svona andlit, sem leitar að réttum svipbrigðum til að vera sá gáfaði og frægi fyrirlesari. sem er kynntur.“ Framsögn Bariccos er fyrirvaralaus og hann leyfir sér meðvitaðan einfaldleika sem hrífur. Franzén: Það kann að vera að við séum með fremsta höfund Itala ein- mitt hér og nú. - Nokkuð í bók þinni sem tengist náið þessu með óheiðar- leika intelligensíunnar er fullkomin andúð á meðalmennsku? Baricco: „Vinur minn sem las bók- ina sagði við mig að loknum lestri: „Þú hatar meðalmennskuna, hinn venju- lega menningarvita. Hvers vegna, hvað hefurðu við hann að sakast?" Ég áttaði mig á að þetta var rétt. í City er einmitt að finna hatur mitt á meðal- mennsku. Og ég iðrast þess að hafa skrifað þannig. Eitt er þó satt, vægð- arleysið er verst í meðalmennskunni.“ I bók Bariccos er talað um viðbrögð umheimsins gagnvart þeim sem hafa sérstakar gáfur því aðalpersónan er einmitt slíkum gáfum gædd. Og Bar- icco heldur fast við að þeir sem ekki séu gæddir slíkum gáfum, séu gæddir sérstakri grimmd eða hæfileikum til vægðarleysis sem bitni á hinum. Og hann útskýrir með dæmisögu um eig- in viðbrögð: „Ef García Márquez myndi segjast hafa ógeð á því sem ég skrifa, þá er það allt í lagi! Það er verra ef meðalmanneskja segir það sama, en með fáguðu vægðarleysi og án þess að þú fáir tækifæri til að verja þig. Slíkt vekur reiði hjá mér og í bók- inni lýsi ég því.“ Og Franzén leiðir talið að uppeldis- fræðilegu hugðarefni stjörnurithöf- undarins, sem átti þátt í að stofna rit- höfundarskóla í eyðiverksmiðju í heimabænum Tórínó. Hvíta húsið í Tórínó Franzén: Það hlýtur að gerast „að þeir sem koma þangað eru ekki snill- ingar frá byrjun, þar hljóta einnig að vera einhverjar miðlungsmanneskj- ur? Baricco: „Þau eru í meðallagi hvað Alessandi varðar að skrifa bók. En þau geta ver- ið dugleg við önnur störf. Markmið skólans er að þau finni starf sem teng- ist því að segja frá og ég er ánægður með að sjá að flest þeirra finna sér vinnu. Sum skrifa fyrir sjónvarp eða vinna við menningardeildina. Sum vinna hjá bókaútgáfum og önnur við útvarp og blöð. Og þetta er markmið skólans. Kannski eru samt sem áður fimmtíu gædd sérstökum gáfum. Þá reynum við að vernda hann eða hana sérstaklega." Skólinn í Tórínó tók til starfa fyrir fimm árum, vegna framtaks fimm vina þ. á m. Bariccos. Hugmyndin var að stofna skóla fyrir ungt fólk sem hafði áhuga á að vinna einmitt á áður- nefndum sviðum og þar sem engum væri úthýst vegna sérstakra hæfi- leika. Við leit að húsnæði blasti verksmiðjan við auð og yfirgefin. „Við máluðum hana hvíta og keyptum borð og stóla,“ segir Baricco. „Við nefndum hana Holden eins og aðalpersónan heitir í bókinni minni, drengurinn sem enginn skóli vill. Og það eru nemend- ur hjá okkur sem eru dáldið belgings- legir, uppreisnargjarnir, en þeim tekst þó að una sér með okkur, vera um kyrrt. Við þénum ekki líru en reynslan er meiriháttar." Þegar Baricco er spurður hvaða þýðingu vinnan við skólann hafi fyrir hans rithöfundarstarf er svarið: „Mér finnst gott að kenna og mér finnst gott að umgangast þau sem eru yngri en ég. Þau hjálpa manni að verða ekki að alltof miklu fífli þegar maður verð- ur frægur." Og Baricco segir frá því þegar hann kom í skólann nokkrum dögum eftir að City kom út í maí síð- astliðnum og hitti einn nítján ára nemanda sinn. „Meðan hann gekk í átt að klósett- inu, fullkomlega eðlilegur, sagðist +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.