Morgunblaðið - 10.11.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.11.1999, Qupperneq 4
KNATTSPYRNA Franz Beckenbauer er ekki ánægður með þróun mála í þýskri knattspyrnu Boðið er upp á flatneskju Lavrov mættur eftir slys IGOR Lavrov, leikstjórn- andi Flensborgar, lék á ný með liði sínu gegn Lemgo um liðna helgi, réttum tveimur mánuðum eftir að hann lenti í umferðarslysi á bifreið sinni, er hann ók ölvaður dt af hraðbraut í nágrenni Flensborgar. Talið var að Lavrov myndi ekki leika handknattleik fyrr en á næsta ári vegna slyssins, en hann hefur náð ótrúlega skjótum bata. Stóð !hann sig vel í leiknum gegn Lemgo, gerði átta mörk og var markahæstur ásamt Lars Christiansen, í mikilvægum sigri, 27:21. Lavrov, sem er 26 ára, hefur framlengt samning sinn við Flensburg til í vorsins 2004. Reuters Lothar Matthaus, fyrrverandi fyrirliði þýska landsliðsins, og Oliver Bierhoff, sem tók við fyrirliðabandinu. ÞJÓÐVERJAR voru mjög ánægðir með að tryggja sér rétt til að leika í Evrópukeppni landsliða í Hollandi og Belgíu næsta sumar, en þeir fögnuðu sínum fyrsta Evrópumeist- aratitli í Belgíu 1972. Að und- anfömu hefur mikið verið ritað og rætt um framtíð þýskrar knattspyrnu - spurt hefur verið hvort Þjóðverjar hafi verið að dragast aftur úr? Fjögur þýsk ' lið voru í eldlínunni í Meistar- deild Evrópu - Bayer Leverku- sen og Borussia Dortmund komust ekki áfram, en það gerðu Bayern Munchen og Hertha Berlin. Þýska blaðið Sport Bild fékk nokkra kunna þjálfara til að ræða um stöðu knattspyrnunnar í Þýskalandi og spurði: Hvað hefur farið miður í þýskri knattspyrnu? Einn af þeim sem sat fyrir svörum var Franz „Keisari" Becken- bauer, sem er kunnur sigurvegari og sagt hefur verið að allt verður að gulli sem hann snertir. Beckenbauer gerði Pjóðverja að heimsmeisturum á Italíu 1990. Hann gegnir mörgum forystuhlutverkum, er t.d í stjórn Opel, þar sem salan hefur margfald- ast síðan, er varaforseti þýska knatt- spyrnusambandsins og er forseti Ba- yern Miinchen, auk þess að vera í forsæti fyrir HM-nefnd Þjóðverja, sem vinnur hörðum höndum að því að fá heimsmeistarakeppnina 2006 til Þýskalands. Blaðið spyr í upphafi hvort stöðug- leikinn sé ekki lengur fyrir hendi. Hvers vegna koma ekki fram hæfi- leikaríkir ungu mennirnir, sem komu á færibandi áður? Það vað vitað að Berti Vogts, fyrrverandi landsliðs- þjálfari Þýskalands, átti einskis ann- ars úrkosta en að fara með „gamalt lið“ á HM í Frakklandi 1998. „Eina vonin sem ég sé nú er Sebastian Deissler - hvað unga hæfí- leikaríka knattspyimumenn varðar. Það segir mikið að ég nefni aðeins eitt nafn. Þetta er slæmt veganesti sem þú ert að ýja að með framtíðina í huga og þótttöku í Evrópukeppni landsliða. I leikjum þýska liðsins gegn landsliðum Moldavíu og Finn- lands fann maður aftur smá leikgleði hjá gömlu mönnunum, en ég verð að viðurkenna að þessi tvö lið eru ekki í fyrsta flokki knattspyrnuþjóða. Aft- ur á móti er ljóst að það hefur orðið . gífurleg breyting hvað getu þjóða varðar. Englendingar, Frakkar og Italir áttu í miklum vandræðum." Þegar Beckenbauer er spurður um hvaða leikmanna þýska liðið geti ekki verið án, svarar hann að það sé enginn sem ekki megi missa sín. „Því miður er þannig komið fyrir þýskri knattspyrnu - boðið er upp á flatneskju.“ Getur liðið verið án Lothar Matt- háus? spyr blaðið og svarið kom strax: „Það getur verið að Lothar sé sá maður sem liðið má síst vera án í þeirri stöðu sem það er í 1 dag. Þegar litið er á aldur hans sést best hvað er að gerast. Hann er 38 ára.“ Um Oliver Bierhoff og Jens Jer- emias segir Beckenbauer að það sé til nóg af mönnum sem geti leyst þá af í liðinu - og samt er Bierhoff stjarna á Italíu. „Við vorum forystuþjóð í áratugi. Það gerði okkur sjálfumglaða og sjálfsörugga - við gleymdum okkur í ánægjunni yfir eigin getu. Við gleymdum ungu kynslóðinni og nú verðum við algjörlega að stokka upp spilin hvað unglingaþjálfun varðar. Landsliðsþjálfarinn Erich Ribbeck hefur vissulega gott lið þeg- ar allir eru heilir, en aldur leikmann- anna er hár og þetta er ekki framtíð- arlið, sem hann er með.“ Þegar umræðan berst að öllum út- lendingunum sem leika í Þýskalandi, segii1 Franz: „Það má læra mikið af þeim, eins og til dæmis brasilíska tríóinu hjá Bayer Leverkusen - það er augnayndi að sjá þá leika. Það tekur leikmenn langan tíma að ná leiktækni eins og þeir sýna. Þegar maður hefur þessa snillinga fyrir framan sig er auðveldara að nema hvað þeir eru að gera.“ Beekenbauer er spurður um Hollendinginn Johan Cruyff, fyrr- verandi þjálfara Barcelona, sem hann hefur marglýst yfír að væri rétti þjálfarinn fyrir Bayern. „Því miður er ljóst að Cruyff verður ekki þjálfari framar vegna hjartaaðgerð- ar sem hann gekkst undir. Hann hefði verið rétti maðurinn fyrir okk- ur - er snillingur sem þjálfari, eins og hann var sem leikmaður." Vantar tækni og hraða Johan Cruyff tjáir sig einnig um stöðu mála hjá Þjóðverjum. Cruyff, sem 52 ára, var ásamt Beckenbauer ein mesta stjama sem fótboltaheim- urinn hefur alið. Þeir börðust um hvor væri besti knattspyrnumaður- inn í heiminum á sínum tíma. Cruyff segir að gæðum knattspymunnar I Þýskalandi hafí hrakað mjög, og fyrir svona mikla knattspyrnuþjóð sé ótrú- legt hversu fáir sterkir ungir leik- menn komi fram í sviðsljósið. „Það er af sem áður var,“ segir Cruyff, sem segir að Mehmet Scholl hjá Bayern Miinchen sé leikmaður framtíðarinn- ar - hafí góða tækni og hraða. Sport Bild segir að Scholl sé um- deildur hjá Bayern. Cruyff segir það geta verið allt aðrar ástæður sem geri það að verkum að hann sé ekki fastaleikmaður hjá Bayern. „Hann hefur það sem flesta þýska leikmenn vantar - tækni, hraða og gott vald yfir knettinum. Hver er ástæðan fyr- ir fáum leikmönnum á borð við hann? Jú, það er þannig í dag að boltinn stjórnar leikmönnunum, en ekki öfugt eins og var áður. Sjáðu lið Þjóðverja 1974. Þá voru í liðinu Bec- kenbauer, Giinther Netzer og Wolf- gang Overath, menn með yfirburða- tækni og hraða. Þá höfðu hinir svokölluðu „vinnuhestar“ einnig líka mikla hæfileika. Þessi skemmtilega blanda, sem náði svo vel saman - gerði þýska liðið frábært. I dag stefnir knattspyrnan í aðra átt - já, hvert?! Sjáðu, enginn getur hlaupið hraðar en boltinn flýgur - og því er knatttækni og vald á knettinum það mikilvægasta. Eg skil ekki af hverju þjálfarar í dag breyta ekki um áherslur - sem barn varð ég að læra að borða með hníf og gaffii, beita þeim verkfærum rétt, en ekki skófla matnum upp í mig með skeið.“ Eiga Þjóðverjar að breyta áhersl- um - taka brasilíska eða hollenska knattspyrnu til fyrirmyndar? „Það fer fátt eins í taugarnar á mér og þegar ég heyri eftir stórmót: nú verðum við að leika eins og Brasilía eða Holland, nú síðast eins og Frakkar. Þessar vangaveltur eru kjaftæði. Þjóðverjar hafa sína aðferð og eru með sitt hugarfar, sem eng- inn annar hefur. Þið þurfíð að laga tæknina og láta gamla keppnisskapið koma aftur.“ Cruyff hefur einnig gagnrýnt knattspyrnuna í Hollandi - einkum og sér í lagi hjá Ajax, þar sem hann hefur verið gerður að heiðursfélaga fyrir lífstíð; með sérmerkt sæti á alla leiki liðsins sem eftir er. „Ajax, sem er frægt fyrir knattspyrnuskóla sinn, hefur einnig gleymt sér. Skyndilega var brunnurinn með efni- viðnum þornaður upp. Það hættu á einu augabragði að koma stórefni- legir leikmenn fram í sviðsljósið. Ajax fór að kaupa eldri leikmenn úr ýmsum áttum. Brunnurinn er upp- þornaður - það var fljótt að hefna sín,“ segir Cruyff. Þegar Cruyff var spurður um framtíð Þýskalands, sagði hann: „Þjóðverjar hafa alltaf átt frábært landslið. Ef Þýskaland á ekki áfram lið í fremsta flokki, er það ekki bara vandamál Þjóðverja, heldur knatt- spyrnunnar í Evrópu.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.