Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
■
Kristófer
aftur í Fram
1999
HANDKNATTLEIKUR
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER
BLAD
KRISTÓFER Sigurgeirsson skrifaði í gær undir
þriggja ára samning við Fram, en hann hefur
leikið í Grikklandi síðustu misseri. Kristófer er
annar leikmaður sem Framarar semja við í þess-
ari viku, hinn var Valur Fannar Gíslason.
„Það er ánægjuefni að fá til sín sterka leik-
menn,“ sagði Guðmundur Torfason, þjálfari
Fram við Morgunblaðið í gær. „Stefna félagsins
miðar að því að komast í allra fremstu röð hér á
landi og því leitum við aðeins eftir sterkum leik-
mönnum. Við höfum verið að skoða leikmanna-
málin að undanförnu og höldum því eitthvað
áfram. Það er hugur í mönnum í Safamýrinni,"
sagði Guðmundur.
Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu
lögðu Framarar inn beiðni til KR-inga á dögun-
um um leyfi til að ræða við Gunnleif Gunnleifs-
son, sem verið hefur vara-
markvörður vesturbæjar-
liðsins. KR-ingar hafa enn
ekki tekið afstöðu til þeirr-
ar beiðni, enda ekki Ijóst
hvort aðalmarkvörðurinn
Kristján Finnbogason verð-
ur áfram í herbúðum liðs-
ins. Morgunblaðið hefur
heimildir fyrir því að
Framarar hafi rætt við Fjal-
ar Þorgeirsson, markvörð
ungmennalandsliðsins, en
samningur hans við Þrótt er
runninn út. Hann hefur
einnig átt í viðræðum við
Hácken í Svíþjóð.
Morgunblaðið/Kristinn
Það þarf... Magnús Teitsson, þjálfari kvennaliðs FH í handknattleik, gefur Hrafnhildi Skúladóttur góð ráð í leik gegn Gróttu/KR, sem
FH-stúlkur unnu, 23:21, og stöðvuðu þar með sigurgöngu vesturbæjarliðsins. Hrafnhildur skoraði fjögur mörk í leiknum.
Bræður á för-
umfráKA
BRÆÐURNIR Atli og
Kjartan Páll Þórarinssynir,
knattspyrnumenn úr KA,
eru báðir á förum frá félag-
inu. Atli, sem varnarmaður,
er að ganga frá samningi
við sænska liðið Örgryte og
Kjartan Páll, sem er mark-
vörður, leikur að öllum lík-
indum með 1. deildar liði
Sindra á Hornafirði á
næstu leiktíð. Þeir bræður
eiga báðir unglingalands-
leiki að baki,
Kongsvinger
hafnar tilboði
í Steinar
NORSKA liðið Kongsvinger
hefur tvívegis hafnað tilboði
frá Haugasundi í Steinar Ad-
olfsson. Haugasund, sem vann
sér sæti í úrvalsdeild í haust,
hefur boðist til þess að greiða
um 13 milljónir íslenskra
króna fyrir leikmanninn en
forráðamenn Kongsvinger,
sem leikur í 1. deild að ári,
hafa lýst því yfir að þeir vilji
ekki selja hann nema fyrir
talsvert hærri fjárhæð. Er
talið að þeir vilji fá um 20
milljónir íslenskra króna fyrir
Steinar.
„Forráðamenn Kongsvinger
hafa lýst því yfir að þeir vilji
halda mér og fleiri eldri leik-
mönnum liðsins til þess að
eygja von um að komast í úr-
valsdeild að nýju. Ég hef tjáð
þeim á móti að ég vilji fremur
leika í úrvalsdeild til þess að
eiga meiri möguleika á að
halda sæti mfnu i landsliðinu.
En ég á enn tvö ár eftir af
samningi mfnum við félagið og
verð þar áfram ef ekkert ann-
að tilboð berst í mig.“
Þorgeir Ingi Njálsson, formaður Selfoss 1990-92, um þátttöku í Evrópukeppni
VfB til varnaðar
ER orðið tímabært að íslensk félagslið taki aftur þátt í Evrópu-
keppninni í handknattleik? Leikmenn Aftureldingar léku síðasta
Evrópuleikinn - í Skövde í Svíþjóð 28. febrúar 1997. Morgun-
blaðið kannaði hug forráðamanna og þjálfara um hvort hefja ætti
Evrópuferðir, sem hafa verið kostnaðarsamar, á nýjan leik.
Reynsla Selfyssinga af þátttöku í
Evrópukeppnum á að vera
mönnum víti til varnaðar. Einkum
var þátttaka liðsins í Evrópukeppni
keppnistímabilið 1993-94 félaginu
þungur baggi. Þegar upp var staðið
skuldaði deildin um fimm milljónir
króna, þar af langstærstan hluta
fyrir þátttöku í Evrópukeppnum,"
sagði Þorgeir Ingi Njálsson, sem
var formaður handknattleiksdeildar
Selfoss 1990-1992.
Þorgeir Ingi sagði að veturinn
1993-94 hefði félagið keypt útileik-
inn gegn Riga frá Lettlandi í 32-liða
úrslitum hingað til lands og farið í
kostnaðarsamar ferðir til Króatíu
og Ungverjalands nærri rúmensku
landamærunum. „Félagið fékk fjöl-
marga áhorfendur á heimaleikina,
meðal annars lék liðið gegn ung-
verska liðinu Pick Szeged fyrir fullu
húsi áhorfenda í Kaplakrika, en það
dugði ekki til og félagið stórtapaði á
þátttöku sinni.“
Þorgeir segir að handknattleiks-
deild Selfoss hafi aldrei náð sér á
strik síðan og hann telur skulda-
stöðu hennar meginskýringuna á
því hver staða handboltans er í bæj-
arfélaginu í dag, en liðið leikur nú í
2. deild. „Félagið hefur notið stuðn-
ings fyrirtækjá í bænum en þegar
hallaði undan fæti fjárhagslega
dugðu styrkirnir ekki til og ekki var
hægt að halda úti eðlilegri starfsemi
lengur. Ég er ekki frá því að ef liðið
hefði ekki tekið þátt í Evrópu-
keppnum væri staða þess önnur og
betri í dag. Fleiri félög en Selfoss
hafa farið Ola út úr þátttöku sinni,
má þai- nefna FH sem hefur í nokk-
ur ár þurft að bíta úr nálinni með að
taka þátt í slíkum keppnum. Auðvit-
að er þýðingarmikið fyrir leikmenn
að taka þátt í Evrópukeppnum en
það er svo erfitt fjárhagslega séð að
tryggja verður áður en af stað er
farið að félög beri ekki skaða af.“
Súpa enn seyðið
af þátttöku
„Eins og staðan er í dag á KA
enga von um að taka þátt í Evrópu-
keppni þótt liðið fengi rétt til þess
því við erum enn að súpa seyðið af
þátttöku okkar í meistaradeild Evr-
ópu 1997-98,“ sagði Vilhelm Jóns-
son, formaður handknattleiksdeild-
ar KA. Hann sagði að hann vildi
ekki segja hve skuldir deildarinnar
væru miklar en sagði reksturinn
erfiðan. Hann benti á að lið á vegum
félagsins færi eina til tvær flugferð-
ir á keppnisstaði í viku hverri og
hvert skipti kostaði félagið um 150
þúsund krónur. „Ef við fórum
tvisvar í viku nemur kostnaðurinn
um 300 þúsund krónum.“
Vilhelm sagði að íslenskir hand-
knattleiksmenn tækju litlum fram-
förum ef þeir lékju ekki í Evrópu-
keppnum en kostnaður félaga væri
þátttöku þeirra ofviða. ,g\uðvitað
væri gaman ef félög tækju þátt í
slíkum keppnum og ég efast ekki
um það að handboltinn yrði miklu
betri fyrir vikið. En fjárhagurinn er
með þeim hætti að það er ekki hægt
að fara í slíkar keppnir. Leikmenn
KA, sem margir eru námsmenn,
hafa heldur ekki tök á að greiða fyr-
ir slíka þátttöku. Þeir fjármögnuðu
sjálfir æfingaferð til Þýskalands í
fyrra og eru ekki enn búnir að
greiða fyrir þá ferð að fullu.“
■ Ferðakostnaður/ C2
■ Mikið álag / C2
■ Aumingjagangur / C2
■ Mótar leikmenn / C3
■ Fjárhagsgrundvöllur / C3
CHARLES BARKLEY OG O’NEAL í SLAGSMÁLUM í HOUSTON / C4