Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Eru forráðamenn íslenskra félagsliða tilbúnir að leggja á ný í Evrópuferðir?
Ferðakostnaður
varð liðum að falli
ÞAÐ verða bráðum liðin tvö ár síðan íslenskt handknatt-
leikslið lék síðast Evrópuleik - þá voru á ferðinni leikmenn
Aftureldingar í Skövde í Svíþjóð. Þeir öttu kappi við leikmenn
Skövde fyrir framan 2.750 áhorfendur í Billingehov-höllinni
28. febrúar 1998 í 8-liða úrslitum Evrópukeppni borgarliða.
Eftir
Sigmund Ó.
Steinarsson
Leikmenn Aftureldingar komust
þá að því að það er dýrt að vera
fátækur - þeir fjármögnuðu þátt-
töku sína í keppninni
að mestu sjálfir.
Kostnaður skipti
milljónum kr., leik-
menn seldu auglýs-
ingar í leikskrá, voru í byggingar-
vinnu, gengu í hús og seldu eitt og
annað. Þrátt fyrir að hafa lagt hart
að sér fyrir utan æfingar og
keppni, náðu þeir ekki endum
saman. Tap varð hjá Aftureldingu
vegna þátttökunnar eins og öðrum
liðum sem tóku þátt í Evrópu-
keppninni á árum áður, eins og
FH, KA, Selfossi, Val og Haukum.
Valsmenn seldu heimaleiki sína út
síðustu árin sem þeir tóku þátt í
keppninni. Þyngsti bagginn á þátt-
töku íslensku liðanna var geysileg-
ur ferðakostnaður til fjarlægra
landa, eins og Makedóníu, Slóven-
íu, Króatíu, Portúgals og Ítalíu,
svo einhverjir áfangastaðir séu
nefndir.
íslenskra liða tekur þátt í Evrópu-
keppni í mörg ár. Ef ekki er áhugi
fyrir Evrópukeppni í körfuknatt-
leik á Suðurnesjum, þar sem flest-
ir bestu leikmenn landsins eru
samankomnir - hvar er hann þá?
Af dapri reynslu ákváðu for-
ráðamenn handknattleiksliða að
hætta þátttöku í Evrópukeppni
haustið 1997. Kostnaður við þátt-
töku skipti milljónum, lið tóku út
án þess að leggja inn - skuldir
hrönnuðust upp. Það var meira en
að segja það að taka þátt í Evrópu-
keppni.
Það voru engin gleðitíðindi þeg-
ar forráðamenn íslenskra liða til-
kynntu að fsland yrði ekki með, en
eftir að hafa hlustað á rök þeirra
skildu menn sjónarmið þeirra.
Evrópuþátttaka
aftur í sviðsljósið
leysis, íslenskra liða í Evrópu-
keppni.
Er það hlutverk HSÍ að óska
eftir eða þrýsta á að lið taki þátt í
Evrópukeppni, þegar lið treysta
sér ekki til þess af fjárhagslegum
ástæðum?
Er það hlutverk HSÍ að finna
ákveðinn styrktaraðila fyrir lið
sem taka þátt í Evrópukeppni,
ekki önnur lið? Hefur HSÍ ekki
nóg með að fjármagna landsliðin
og fá fjármagn til að reka sam-
band sem hefur verið skuldum vaf-
ið undanfarin ár - skuldaði mest
124 milljónir kr. eftir HM á íslandi
1995?
Eru sjónvarpsstöðvar nú, frekar
en áður, tilbúnar að greiða veru-
legar peningaupphæðir fyrir sjón-
varpsrétt á Evrópuleikjum? Sjón-
varpsstöðvar sýna ekki einu sinni
Evrópuleiki íslenskra knatt-
spymuliða beint.
íslensk handknattleikslið hafa
hingað til ekki hagnast á sölu Evr-
ópuleikja til sjónvarpsstöðva,
hvorki innan- né utanlands.
Morgunblaðið hafði samband
við nokkra menn sem hafa komið
við sögu í sambandi við þátttöku í
Evrópukeppni og kannaði hvort
þeir sæju einhver teikn á lofti um
að framundan væri betri tíð í
sambandi við þátttöku í Evrópu-
keppni.
Evrópukeppnin í handknattleik: MEISTARADEILD
35 klukkustundir í rútu -
í samtals 2.420 km
KA er eina liðið sem hefur náð
því að leika í meistaradeild Evrópu
- síðasta ferð KA-manna í keppn-
inni var söguleg, er þeir mættu
ítalska liðinu General í Trieste við
landamæri Slóveníu. Þeir flugu þá
tii Amsterdam og fóru með lang-
ferðabifreið yfir Suður-Evrópu, yf-
ir Alpana og niður að Adríahafi,
þar sem þeir léku í Trieste 4. janú-
ar. Þessi ferð var kölluð „rútuferð-
in mikla“, þar sem leikmenn KA
voru í langferðabifreið í 35 klukku-
stundir - í samtals 2.420 km.
Hinn mikli ferðakostnaður varð
íslenskum handknattleiksmönnum
að falli - þeir voru bundnir í ætt-
jarðarfjötra. Oft drógust liðin
gegn lítt þekktum liðum, sem
drógu fáa áhorfendur að. Þá náðu
þekkt lið eins og Essen ekki að
lylla Kaplakrika er það lék gegn
FH. Áhugi handknattleiksunnenda
var afar takmarkaður á leikjum
liða í Evrópukeppni.
Ahugaleysi íyrir Evrópukeppni
er einnig í körfuknattleik. Það hef-
ur komið fram á ný á undanfóm-
um vikum - í leikjum hjá
körfuknattleiksliði Reykjanesbæj-
ar (Keflavík, Njarðvík) sem fýrst
Umræður um Evrópukeppni eru
aftur komnar fram í sviðsljósið.
Geir Sveinsson, fyrrverandi fyrir-
liði íslenska landsliðsins og þjálfari
Vals, var spurður í viðtali við
heimasíðu KA 9. nóvember, hvort
HSÍ gæti eitthvað gert til að auð-
velda liðum þátttöku í Evrópu-
keppni. Geir svarar þeirri spum-
ingu þannig: „Já, að sjálfsögðu.
Það mætti finna einhvem ákveð-
inn styrktaraðila fyrir öll liðin og
myndu þessi lið spila með auglýs-
ingu frá viðkomandi aðila. Það
mætti láta ákveðna prósentu af
sjónvarpssamningum renna í þetta
mál og selja sjónvarpsstöðvunum
alla leiki liðanna fjöguma í einum
pakka og færi sá hagnaður beint í
þetta málefni," sagði Geir.
Þessi ummæli Geirs hafa vakið
athygli og tók RUV viðtal við hann
um málefni handknattleiksins og
Geir gaf stjóm HSI falleinkunn í
viðtalinu.
Margar spurningar hafa vaknað
á ný vegna þátttöku, eða þátttöku-
MIKIÐ ALAG
Sex leikir á 35 dögum
- auk þess löng ferðalög fram og til baka
A-riðill
B-riðill
C-riðill
Þýskalandi
Lasko, Slóveníu Badel Zagreb, Króatíu
Ademar Leon, Spáni
Sandefjord, Noregi
Le Zion, Israel
Zaporozhye, Ukraínu
Montpellier, Frakklandi
KS|skraLPóllandi
Álpi Prato, Italíu
TV Suhr, Sviss
Skjern, Danmörku
D-riðill
Barcelona, Spáni
Fotex Veszprém, Ungverjalandi
Partizan, Júgóslavíu
Kaustik Voljugrad, Rússlandi
Liðin leika þar að auki
deildarleiki í heimalandi
sínu í miðri viku,
allt að 5 leiki.
Alls leika lið því 11 leiki
á 35 dögum, eða leik á
þriggja daga fresti.
I KVOLD
Handknattleikur
1. dcild karla:
KA-heimili: KA - Fylkir 20
Vestmannaey.: ÍBV - Valur 20
2. deild karla:
Húsavík: Völsungur - Fram B .... 20
Strandgata: ÍH - GróttaÆÍR 20
Aumingjagangur hjá félögunum
GEIR Hallsteinsson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar
FH, segist afar óhress með aðgerðaleysi íslenskra handknatt-
leiksliða gagnvart þátttöku í Evrópukeppni. Sérstaklega segir
hann að hugarfar leikmanna hafi breyst og að þeir séu ekki
lengur tilbúnir að leggja hönd á plóginn við fjáröflun, eins og
tíðkaðist er Geir var leikmaður.
Eg hef sjálfur tekið þátt í nærri
s
isjötíu Evrópuleikjum. Ég og
liðið mitt öðlaðist geysilega reynslu.
■■■■■■ Við gerðum okkur
Edwin alltaf grein fyrir þess-
Rögnvaldsson um kostnaði og þá
vom það leikmennim-
ir sem fjármögnuðu þátttökuna. í
Afmælisgjöf til KR. í tilefni 100 ára afmælis félagsins veröur
gjöfin afhjúpuö viö félagsheimilið í Kaplaskjóli/Frostaskjóli
kl. 12.15, laugardaginn 13. nóvember. Allir eru velkomnir
og eru KR-ingar sérstaklega hvattir til þess að mæta.
Með KR-kveöju, Erna, Höddi, Bóbó, Einar og Haukur.
dag nenna þeir því ekki. Það er svo
einfalt. Þetta lendir á örfáum
stjómarmönnum og þess vegna
held ég að menn hafi gefist upp á
þessu. Mér finnst þetta alger aum-
ingjagangur af félögunum að taka
ekki þátt í Evrópukeppni,“ segir
Geir.
En er álagið á leikmenn ekki orð-
ið of mikið? Flestir þeirra hafa
skyldum að gegna í starfi eða námi
auk þess sem leikirnir í deildar- og
bikarkeppni í heimalandinu eru
margir.
„Þetta hefur ekkert breyst, var
nákvæmlega eins hér í eina tíð. Við
vorum ýmist að vinna, byggja eða í
skóla. Hugarfarið er bara orðið allt
annað. Menn vilja fá allt upp í hend-
umar í dag. Það er bara svo einfalt.
Eg skil stjórnarmenn félaganna
ósköp vel. Aftureldingarmenn vildu
taka þátt í fyrra, gegn því að leik-
menn legðu hönd á plóginn. En ég
veit að ekki vom allir jafn duglegir,
ef til vill voru einhverjir fimm í
fimmtán manna hópi, sem nenntu
þessu ekki og era bara ekki hæfir til
að ná í auglýsingar og taka þátt í
fjármögnun. Þess vegna fór það allt
fyrir ofan garð og neðan. Hugarfar-
ið í dag einkennist af því að menn
vilja ekkert leggja á sig til að kom-
ast í þetta og það er útilokað að ein-
hveijir stjómarmenn geti alfarið
séð um framkvæmdina ofan á allt
annað, sem fylgir því að reka hand-
knattleiksdeild."
FH lék síðast gegn tyrknesku liði
er það tók þátt í Evrópukeppni.
Fjárhagslegt tap vegna viðureign-
arinnar var mikið, um 2,6 milljónir.
Geir segir að vissulega hafi félagið
lent í erfiðleikum vegna þessa. „Við
eram það félag, sem leikið hefur
flesta Evrópuleiki. Við supum seyð-
ið af því í mörg ár, en unnum okkur
alltaf út úr því - gerðum okkur
alltaf grein fyrir mikilvægi þess að
taka þátt í Evrópukeppni. Varðandi
peningahliðina held ég að þetta sé
óttalegt væl. Þetta er ekki svo rosa-
lega flókið og erfitt. Ef menn standa
allir saman að þessu, þá á ég við
leikmenn, þjálfara og stjóm, er
þetta ekki stórmál."
Breytt keppnis-
fyrirkomulag
Geir bendir þó á að aðrar reglur
hafi gilt er dregið var í Evrópu-
keppni, er hann var leikmaður.
„Keppnisfyrirkomulagið er vissu-
lega breytt. Aður fyrr var dregið
svæðisskipt í fyrstu umferðimar.
Til dæmis var Island í hópi með
Norðurlöndunum, hugsanlega í
fyrstu tveimur umferðunum eða
eitthvað því um líkt. Mér finnst að
þetta eigi að endurvekja, í stað þess
að allir fari í einn pott og að menn
geti þurft að leggja upp í langt
ferðalag. Handknattleikssamband
Evrópu mætti endurskoða fyrir-
komulagið," segir hann.
Auk þess telur Geir að Hand-
knattleikssamband Islands, HSÍ,
geti veitt félögunum eilítið meiri að-
stoð. „Er ekki kominn tími til að
HSÍ finni einhverja lausn, komi inn
í þetta mál að einhverjum hluta, að
einhvers staðar finnist peningar í
gegnum þá líka? Að það styrki að