Morgunblaðið - 12.11.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.11.1999, Qupperneq 4
HANDKNATTLEIKUR Hertar aðgerðir við grófum leik að hefur verið ákveðið að taka fastari tökum en áður á gróf- um leik og óíþróttamannalegri framkomu í sambandi við leiki. Við erum að reyna að stemma stigu við föstum og grófum leik og árásum á dómara, en þetta hefur færst í auk- ana á nýhöfnu keppnistímabili. Fé- lagar innan HSI hafa fengið bréf þess efnis - þar sem sagt er frá hertum aðgerðum. Féiög verða hiklaust sektuð ef ekki er haldið vel um umgjörð leikja og leikmenn dæmdir i viðeigandi bann fyrir gróf brot á leikvelli," sagði Örn Magn- ússon, framkvæmdastjóri Hand- knattleikssambands íslands. Aga- nefnd sambandsins hefur sektað handknattleiksdeiid KA á Akureyri um 90 þús. kr. „Vegna atvika sem áttu sér stað í og á eftir leik KA gegn Stjörnunni," eins og segir í dómi aganefndar. Aður hafði Dóm- aranefnd HSI sent KA kvörtun um framkomu starfsmanna á leiknum. „Við höfum oft áður fengið kvörtun vegn framkomu starfs- manna á heimaleikjum KA,“ sagði Örn, þegar hann var spurður kvað hafi komið uppá í ieik KA og Stjömunnar. „Forráðamenn KA og starfsmenn leiksins, ritarar og tímaverðir gerðu hróp að dómurum og eftirlitsmanni meðan leikurinn stóð yfir. Eftir leikinn var veist að dómurum og gestaliðinu, bæði í sal og gangi að búningsklefum. Þessir aðilar fengu heldur ekki frið í kaffi- veitingum eftir leikinn," sagði Örn. Vilhelm Jónsson, formaður handknattleiksdeildar KA, sagðist vilja sjá greinargerð frá eftirlits- dómara leiksins um fyrir hvað fé- lagið var sektað. „Eftirlitsdómari gerði athugasemdir við að tíma- verðir undruðust að leikmanni Stjörnunnar var ekki vikið af velli er brotið var á Jónatani Magnús- syni, leikmanni KA, og hryggjar- liðir spmngu í baki hans er hann féll í gólfið. Einhverjir voru að gagnrýna lélega dómgæslu eftir leik en dómarar voru aldrei í neinni hættu. Þá finnst okkur und- arlegt að KA hafi fengið 20 þús- und króna sekt frá Knattspyrnu- sambandi Islands er markvörður liðsins rotaði dómara í innanhús- sknattspyrnumóti í vor. En svo sektar Handknattleikssamband Islands handknattleiksdeild KA um 90 þúsund krónur vegna gagn- rýni á dómgæslu. Okkur finnst ekki mikil sanngirni í því AP Rick Fox og Glen Rice, leikmenn Los Angeles Lakers, reyna að skakka leikinn er Charles Barkley slær til félaga þeírra, Shaquil- les O’Neal, er Lakers sóttu Houston heim í fyrrinótt. Barkley og O’Neal fengu reisupassann. sinna. Þetta var í níunda sinn sem Iverson skorar fjörutíu stig eða meira á ferli sínum, en Philadelphia hefur tapað öllum þeirra nema ein- um. Lið Orlando hefur komið á óvart, hefur sigrað í fjómm af sex leikjum sínum. Los Angeles Clippers hefur löng- um verið vorkunn. Sömu sögu var að segja af leik liðsins á heimavelli gegn meisturum San Antonio Spurs, þótt liðið hafi aðeins tapað með fimm stigum, 99:94. Heimamenn réðu ekk- ert við Tim Duncan, sem skoraði 22 stig og tók sautján fráköst. Hinn óstýriiáti Vernon Maxwell gerði 24 stig fyrir Seattle SuperSon- ics, sem sótti gull í greipar Was- hington Wizards í höfuðborg Banda- ríkjanna. Lokatölur urðu 109:95. Gary Payton, leikstjómandi sigur- liðsins, átti stórleik - gerði tuttugu stig og gaf sautján stoðsendingar. Detroit Pistons vann fyrsta leik sinn á keppnistímabilinu er það heimsótti erkifjendur sína í Boston, gerði 110 stig gegn 92 stigum heima- manna. Jerry Stackhouse gerði þrjá- tíu stig og gaf átta stoðsendingar fyrir gestina. Varamaðurinn Jerome Williams bætti tuttugu stigum við og tók auk þess sextán fráköst. Eddie Jones var einn fimm leik- manna Charlotte Hornets sem gerðu tíu stig eða meira er liðið bar sigur- orð af Milwaukee Bucks, 117:111, á heimavelli. Jones gerði 33 stig. Shareef Abdur-Rahim gerði 22 stig, tók tólf fráköst og gaf níu stoðsendingar er lið hans, Vancouver Grizzlies, vann sigur á Atlanta Hawks í fyrsta sinn í sögu félagsins, 102:97. Barkley og O’Neal í slagsmálum HOUSTON Rockets er enn án sigurs á yfirstandandi keppnis- tímabili í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik. Liðið tók á móti Los Angeles Lakers á heimavelli sínum í Texasríki í fyrr- inótt og beið nauman ósigur, 89:88, í leik þar sem Charles Barkley og Shaquille O’Neal voru reknir úr salnum í öðrum leikhluta fyrir slagsmál. Hinn tröllvaxni miðherji Lakers, O’Neal, varði sniðskot Barkleys og boltinn fór út af. Barkley var í þann mund að sækja boltann er O’Neal ýtti lítillega við honum og grýtti Barkley boltanum þá í mið- herjann. Við þetta fór allt í hund og kött og leikmennirnir tveir flugust á, en aðrir leikmenn og þjálfarar reyndu að skakka leikinn. „Hann gerði það sem er honum líkt. Hann vildi hreinlega ekki spila körfu- bolta í þessum leik,“ sagði O’Neal. „Hann er augljóslega vonsvikinn með gengi liðs síns. Hann átti ekki góðan leik og liðið hans hefur ekki enn unnið leik.“ Barkley hóf vamarræðu sína. „Eg get ekki látið hann slá mig og komast upp með það. Amma mín yrði mér reið ef ég gerði það. Ég varð að verja mig,“ sagði hann. Þetta var annar brottrekstur O’Neals á fimm dögum. Hann fékk reisupassann í leik gegn Portland síðastliðið laugardagskvöld er hann brást illa við ítrekuðum brotum and- stæðinganna á honum. Hann hlaut svipaða meðferð hjá Dallas Maver- icks á þriðjudagskvöldið, en and- stæðingar Lakers bregða jafnan á það ráð að brjóta á O’Neal, því víta- nýting hans er furðulega slök. Hann hefur hitt úr 23 af 65 vítaskotum á keppnistímabilinu, sem er 35,4% nýting - hreinasta hörmung. Gestirnir höfðu fjögurra stiga for- ystu er leikmennirnir tveir voru sendir í bað, en munurinn var aðeins eitt stig í leikhléi. Houston tók síðan forystuna í eina skiptið í leiknum með körfu og vítaskoti miðherjans Hakeem Olajuwons í þriðja leik- hfdta. Lakers hafði fimm stiga for- skot er ein og hálf mínúta lifði leiks. Heimamenn minnkuðu muninn í eitt stig með körfu Carlos Rogers og vítaskotum nýliðans Steve Francis er 38 sekúndur voru eftir. Það kom í hlut Francis að taka síðasta skotið NBA og reyna að knýja fram sigur, en tíminn var útrunninn er hapn skaut. „Ég var of lengi að skjóta. Ég hélt að ég hefði nægan tíma, en svo var ekki,“ sagði Francis, sem var stiga- hæstur Houston með 26 stig. Liðið hefur ekki byrjað jafn illa í sautján ár, en það varð tvívegis NBA-meist- ari á þessum áratug - má muna sinn fífil fegurri. Glenn Rice var atkvæðamestur Los Angeles, gerði 24 stig og tók sjö fráköst. AC Green gerði fjórtán stig og tók tólf fráköst. Þá gaf Ron Harper sex stoðsendingar. Lakers er í efsta sæti Kyrrahafsrið- ils með fimm sigra og eitt tap. Hardaway „einskis nýtur“ en gerði samt 25 stig Penny Hardaway skoraði 25 stig og Tom Gugliotta átján er lið þeirra, Phoenix Suns, vann fjórða sigur sinn í röð, í þetta sinn á New Jersey Nets á heimavelli síðarnefnda liðsins. Ja- son Kidd, leikstjórnandi Phoenix, skoraði níu af fimmtán stigum sínum í fjórða og síðasta leikhlutanum, en lokatölur urðu 104:89. Stephon Mai’- bury skoraði 27 stig fyrir heima- menn og Johnny Newman gerði einu stigi færra, en hann hóf leikinn sem varamaður. Nokkuð bar á harkalegum orða- skiptum Kidds og Hardaways ann- ars vegar og Marburys hins vegar að leik loknum, en þeir tveir síðast- nefndu tókust ekki í hendur í upp- hafi hans. „Hann sagði að ég væri einskis nýtur,“ sagði Hardaway um viðskipti sín við Marbury. Hinn magnaði AJlen Iverson skor- aði 46 stig fyrir Philadelphia 76ers í Orlando, en Pat Gai'rity, síðasti varamaður heimamanna, skoraði 25 stig sem gerði gæfumuninn í sigri Orlando-liðsins, 110:105. Garrity misnotaði aðeins eitt ellefu skota Aron rotaðist ARON Kristjánsson, hand- knattleiksmaður hjá dönsku meisturunum Skjern, rotaðist þegar hann var sleginn í gólf- ið á sjöundu mínútu leiks Skjern og Helsinge í gær. Var Aron að reyna markskot þeg- ar atvikið átti sér stað. Aron var fluttur af leikvelli og kom ekkert meira við sögu. Var óttast að hann hefði fengið heilahristing við höggið en svo var ekki. „Það leit út fyrir að hann þyrfti að fara á spítala þar sem hann missti minnið um tíma en svo jafnaði það sig,“ sagði Hulda Bjarnadóttir, eig- inkona Arons, við Morgun- blaðið í gærkvöldi. „Aron er að jafna sig á þessu, en er eðlilega með nokkurn höfuð- verk,“ bætti Hulda við. Skjern vann leikinn, 25:21, og er í efri hluta dönsku úr- valsdeildarinnar, með átta stig og þess má geta að Aron skoraði úr skottilrauninni sem hann var í þegar hann fékk höggið. Dæhlie ekki meira með NORSKI skíðagagöngugarp- urinn Björn Dæhlie getur ekki keppt meira á þessu keppnistímabili. Dæhlie gekkst undir aðgerð á baki í gær og er þar með úr leik á tímabilinu, áður en það hófst fyrir alvöru. Dæhlie meiddist á mjóbak- inu í ágúst sl. og hefur ekki náð sér góðum. Meiðslin ágerðust í síðustu viku og því var ekki um annað að ræða en skurðaðgerð. Gekkst Norð- maðurinn undir hana á einka- sjúkrahúsi í Þrándheimi í gær. ■ KFÍ á fsafirði hefur samið við Babis Patelis, griskan leikmann, sem leikið hefur á Spáni og Grikk- landi. ■ HERBERT Arnarson var stiga- hæstur og gerði 19 stig fyrir Donar Groningen í hollensku 1. deildinni í körfuknattleik er liðið vann Cunco Rotterdam 62:54. Donar hefur rétt úr kútnum í undanförnum leikjum eftir slæma byi'jun. ■ ÓVÍST er hvort Bjarnólfur Lár- usson geti leikið með Walsall gegn Port Vale í ensku 1. deildinni í kvöld. Bjarnólfur hefur átt sæti í byrjunarliði Walsall að undanförnu en liðið er við botn deildarinnar ásamt Port Vale. ■ MATTHEW Le Tissier, leikmað- ur enska úrvalsdeildarliðsins Sout- hampton, vakti undrun aðdáenda liðsins er hann kvaðst íhuga að óska eftir því að spreyta sig með öðru liði. Tissier hefur leikið allan sinn feril hjá félaginu en hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði félagsins að undanfömu. ÚRSLIT Körfuknattleikur 1. deild kvenna ÍS - Grindavík ............66:59

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.