Morgunblaðið - 17.11.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.11.1999, Blaðsíða 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR17. NÓVEMBER1999 BLAÐ Mk Rannsóknir % Ratvísi laxins alveg einstök Aflabrögd Aflayfirlit og staðsetning fiskiskipanna Vidtal 1 Perla Hafsteins- dóttir, háseti á varðskipinu Óðni Mlarkaósmál • Miklir erfiðleik- ar framundan í norskum sjávarútvegi Seiðarek til Grænlands gæti BIRNA RÁN AÐ LANDA • BIRNA Rán Tryggvadóttir er ein margra kvenháseta, sem róið liafa frá Tálknafirði síðastliðið sumar og hafa staðið sig með prýði. Bima Rán var á Þórhöllu BA 144 og er hún hér að landa úr bátnum eftir einn róðurinn. skilað sér á Islandsmið TOLUyERT seiðarek Seiðarek verið töluvert undanfarin tvö ár haust. Sjór hefur nú hlýnað nokkuð við Grænland og lífslíkur seiðanna því tals- verðar en seiði sem borist hafa frá í slandi til Grænlands hafa oft skilað sér í stór- um stfl til hrygningar hér við land. hefur verið frá hrygning- arstöðvum þorsksins fyrir Suðurlandi yfír til Græn- lands undanfarin tvö Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar- innar á síðasta ári sýndu að straumar til Grænlands voru mjög sterkir og benti því margt til þess að seiðarek hefði verið töluvert. Guðrún Mart- einsdóttir, fískifræðingur á Hafrann- sóknastofnun, segir að rekbaujur hafi sýnt mikið seiðarek norður fyrir landið síðastliðið sumar, enda árgan- gurinn stór og þá fari alltaf talsvert af seiðum yfir til Grænlands. Guðrún segir mjög erfítt að segja til um lífslíkur seiðanna við Græn- land. Sjór hafí verið frekar kaldur þar undanfarin ár og lífslíkur seið- ~r anna því litlar en nú hafí orðið þar einhver hlýnun. Það auki líkurnar á að seiðin skili sér til baka inn í hrygn- ingarstofn á íslandsmiðum. Síðast mikið seiðarek árið 1984 Seiðarek til Grænlands hefur í gegnum tíðina skilað sér í stórum stíl inn í þorskveiði á Islandsmiðum. Þannig rak mikið af seiðum úr þorsk- árganginum frá árinu 1945 til Græn- lands sem skilaði sér tilbaka í miklum göngum hér við land á árunum 1953- 55. Seiðarek til Grænlands var síðan mjög algengt á 6. og 7. áratugnum en í mismiklum mæli á hverju ári. Eftir ísárin við Grænlandi á árunum 1965- 66 hefur hinsvegar verið mun minna um seiðarek til Grænlands. Þó fór stór hluti af seiðaárganginum frá ár- inu 1973 til Grænlands og kom aftur á árunum 1980-81 en þá var mjög góð þorskveiði hér við land. Eftir það dró mjög úr seiðareki yfir til Græn- lands og er talið að síðast hafi farið mikið magn af seiðum þangað árið 1984. Þau skiluðu sér hins vegar ekki inn í veiði hér við land eins og vonast var til. Þýskur rannsóknaleiðangur safn- aði meðal annars seiðasýnum við Grænland í haust en Guðrún segir að niðurstöður þeirra hafí enn ekki bor- ist stofnuninni. Fréttir herma hins- vegar að talsvert hafi komið fram af þorskseiðum í leiðangrinum. „Þeir hafa skoða landgrunnið austur og norðaustur af Grænlandi. Ef þeir hafa orðið varir við seiði á þeim slóð- um eru það tvímælalaust seiði frá Isl- andi. Hins vegar er mjög erfitt að spá til um hversu mikið lifði af þessum seiðum fyrr en við fáum niður- stöðurnar frá Þjóðverjunum,“ segir Guðrún. Fréttir Markaðir Mesta eign fískikera • UMBÚÐAMIÐLUN hefur keypt 8.400 fiskiker af Borg- arplasti á árinu og um ára- mót á fyrirtækið rúmlega 20 þúsund ker en 75% þeirra eru frá Borgarplasti. Fyrirtækið er þar með orðið langstærsti eigandi einangraðra kera á Islandi og jafnvel í heim- inum. /2 Agæt byrjun í Djúpinu • RÆKJUVEIÐI í ísafjarð- ardjúpi hófst um siðustu mán- aðamót og hefur farið ágæt- lega af stað. Hátt í 30 bátar hafa leyfi til veiða á innfjarð- arrækju í ísafjarðardjúpi og «r upphafskvótinn 650 tonn. Heildarafli á síðasta tímabili varð um 1.000 tonn en tíma- bilið stendur fram til 1. maí./4 Minna framboð af Rússafiski • FRAMBOÐ af Rússafiski mun að öllum líkindum drag- ast saman hérlendis vegna samdráttar í aflaheimildum í Barentshafí á næsta ári. Þá þykir ljóst að möguleikar Is- lendinga á að kaupa afla- heimildir í Barentshafi minnka til muna. Aftur á móti benda menn á að með minnk- andi þorskveiði í Barentshafi geti skapast aukið svigrúm fyrir íslenskar þorskafurðir á mörkuðum./8 Innflutningur á fiskimjöli og lýsi til Bretlands janúar til júlí 1999 Noregur þús. tonn 51,0 ísland 50,0 Perú 31,4 Chile 6,7 Danmörk 6,1 írland 4,8 Spánn 4,5 Aðrir 23,7 Samtals 178,2 Bretar auka kaup á mjöli • INNFLUTNINGUR Breta á fískimjöli og lýsi hefur auk- izt lítillega á þessu ári. Fyrstu sjö mánuði ársins nam þessi innflutningur um 178.000 tonnum, sein er nálægt 7.000 tonnum meira en árið áður. Meira en helminginn af þess- um afurðum kaupa Bretar frá Islandi og Noregi. Noreg- ur hefur vinninginn með 51.000 tonn en næst kemur ísland með 50.000 tonn. Þetta er nánast sama magn hjá fs- lendingum og á sama tíma í fyrra, en um nokkra aukn- ingu er að ræða hjá Norð- mönnum. Perú er í þriðja sætinu með 31.500 tonn, sem er iítilsháttar samdráttur frá árinu áður. Chile er í fjórða sætinu með 6.700 tonn, sem er rúmur helmingur þess magns, sem hafði komið það- an á sama tíma í fyrra. Loks má nefna Dani, Ira og Spán- verja. Hlutur Dana eykst en hinna minnkar./6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.