Morgunblaðið - 17.11.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.11.1999, Blaðsíða 6
6 C MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MARKAÐIR F/skverð heima Kr./kg 160 ----140 Fiskmarkaður Hafnarfjarðar Faxamarkaður Fiskmarkaður Suðurnesja 1 .v| 42.v| 43.v| 44.v! 45.v|120 Engin sala var skráð á Faxamarkaði í sl. viku. Á hinum tveimur fóru 59,9 tonn af þorski í síðustu viku. Um Fiskmarkað Hafnarfjarðar fóru 12,2 tonn á 155,99 kr./kg og um Fiskmarkað Suðurnesja fóru 47,7 tonn á 169,15 kr./kg. Af karfa voru seld 4,5 tonn. Á Fiskmarkaði Hafnarfjarðar á 107,53 kr/kg (1,21) og á Fiskmarkaði Suðurnesja á 113,04 kr./kg (3,3t). Af ufsa voru seld 5,3 tonn. Á Fiskmarkaði Hafnarfjarðar á 56,16 kr. (0,51) og á 62,53 kr./kg (4,71) á Fiskmarkaði Suðurnesja. Af ýsu voru seld 41,4 tonn. Á Fiskmarkaði Hafnarfjarðar á 134,91 kr. (5,01) og á 152,86 kr./kg (36,41) að meðaltali á Fiskmarkaði Suðurnesja. Okt. Nóv. dn 40.v| 41 ,v| 42.v| 43.vj 44.v14S!v|4U 4av| 41 ,v| 42.vj 43.v| 44.V Fiskverð ytra Ysa Þorskur Kr./kg 240 220 200 180 160 140 120 100 Alls voru seld 94 tonn á fiskmarkaði í Bremerhafen í síðustu viku. Þar af voru 82 tonn af karfa á 223,06 kr. hvert kíló að meðaltali. Alls voru seld 645,8 tonn af fiski á fiskmörkuðum í Grimsby í 45. viku. Meðalverð á þorski var 348,46 kr./kg, 204,80 kr./kg á ýsu og 268,99 kr./kg á kola. Fiskverðvar sem hér segir... Lægsta Hæsta Þorskur kr/k9 kr/k9 Stór 440 Meðal 348 Lítill 257 Ysa Stór 238 Meðal 220 Lítil 156 Koli Stór 330 Meðal 275 Lítill 202 Miklir erfiðleikar framundan í norskum sjávarritvegi HRUN þorskstofnsins Þorskhrunið m.a. skýrt með ólöglegum afla í Barentshafi á eftir að hafa alvarlegar afleið- ingar í norskum sjávar- útvegi enda er ljóst, að víða verður hætt allri fiskvinnslu og jafnvel útgerð á sumum stöðum. Þótt staðan í sjávarútveginum sé almennt miklu betri nú en þegar þorskstofn- inn hrundi síðast fyrir tíu árum, þá er ljóst, að mörg fyrirtæki, jafnt í veið- um sem vinnslu, munu verða gjaldþrota. Enginn vafi þykir leika á því, að þorskstofninn hafi verið ofmetinn og kvótinn þar af leiðandi verið of mikill en norskir fiskifræðingar telja, að stór ástæða fyrir hruninu sé mikill, ólög- legur afli. Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur lagt til, að þorskveiðin í Barents- hafi verði ekki nema 110.000 tonn á næsta ári en það er talið nauðsyn- legt til að hrygningarstofninn verði aftur kominn inn fyrir líffræðileg hættumörk árið 2001. Annar kostur er raunar nefndur, að kvótinn verði 265.000 tonn, en það þýðir, að þá tæki það lengri tíma að byggja stofninn upp. A þessu ári mega Norðmenn og Rúss- ar veiða 520.000 tonn í Barentshafi en aðeins fyrir tveimur árum var heildarkvótinn hvorki meira né minna en 894.000 tonn. Alltaf veitt meira en fiskif ræðingar lögðu til Fulltrúar Rússa og Norðmanna munu koma saman síðar í mánuðin- um til að ræða þessi mál en segja má, að á fyrri fundum sínum hafi þeir ávallt samþykkt að veiða meira en fiskifræðingar hafa lagt til. Astandið hefur hins vegar sjaldan verið alvarlegra en nú enda eru fiskifræðingar að leggja til minni veiði en hún var minnst í mestu kreppunni 1990. Er tekjutapið í greininni áætlað um 40 milljarðar íslenskra króna vegna minni þorsk- veiði en þar við bætist síðan, að staða ýmissa annarra fískstofna er líka slæm. Það er því ekki ofsögum sagt, að það sé svart framundan í norskum og rússneskum sjávarút- vegi um þessar mundir. Þegar ein atvinnugrein eins og fiskvinnslan horfir fram á 75% skerðingu í hráefnisöflun er ljóst, að grípa verður til róttækra ráð- stafana. Vafalaust verður mörgum vinnsluhúsum lokað en þeim haldið gangandi þar sem möguleikarnir eru mestir. Afleiðingin er óhjá- kvæmilega atvinnuleysi og erfið- leikar, sem munu hafa alvarleg áhrif á byggðina í Norður-Noregi. Núverandi kreppa getur líka haft róttæk áhrif á allt fyrirkomulag í sjávarútveginum enda er líka hvatt til þess hjá þeim tveimur bönkum, sem mest hafa lánað til sjávarút- vegsins, DnB eða Den norske Bank og Kreditkassen. Þar vilja menn til dæmis, að kvótar verði sameinaðir og veitt úr þeim með færri skipum í því skyni að auka arðsemina. Þetta kann að vera einhver lausn fyrir suma en ekki alla að mati Steinars Eliassens hjá fískvinnslu- fyrirtækinu Norfra en það er með tvö vinnslufyrirtæki í Troms og eitt í Finnmörku. Segist hann ekki vita hvernig unnt verði að laga rekstur- inn að þessari nýju stöðu en segist þó vona eins og margir aðrir, að kvótinn verði miklu meiri en fiski- fræðingar leggja til! Húsin verða ekki opnuð aftur „Sjómennirnir verða að sækja í fiskinn þegar hann gefst og landa þar sem verðið er hæst. Það verður erfitt að skera mikið niður vilji menn taka þátt í þessu kapphlaupi. Við skulum líka hafa það á hreinu, að þau hús, sem verður lokað, verða ekki opnuð aftur. Þessi kreppa er nefnilega ólík þeirri fyrri að því leyti, að þá var atvinnuástandið al- mennt frekar erfitt í öllu landinu. Nú er nóg af störfum annars staðai' og fólk mun bara taka saman fögg- ur sínar og hverfa á brott,“ sagði Eliassen. Erfiðleikarnir munu hvergi verða meiri en í Finnmörku en þar fá sveitarfélögin meira en helming skattteknanna frá sjávarútvegi og um þriðjung heildarteknanna. Flakavinnslan verst úti „Rekstrarstöðvun, uppboð á bát- um, atvinnuleysi, félagsleg vanda- mál og brottflutningur eru miklu alvarlegri hlutur en til dæmis skattsvik," segir Hermod Larsen, oddviti bæjarstjórnarinnar í Vardp. A fundi bæjarstjómarmanna víðs vegar að úr fylkinu í síðustu viku var þess krafist, að stjómvöld kæmu íbúunum þar til hjálpar. Kreppan mun koma illa við allar greinar sjávarútvegsins og vinnsl- unnar en þó misjafnlega. Ljóst er, að flökunin verður verst úti og hún er langmest í Finnmörku. Eins og fyrr segir hafa komið fram kröfur um skipulagsbreyting- ar í norskum sjávarútvegi og er þá sérstaklega átt við strandveiðiflot- ann, seni telur 8.000 skip. Er hug- myndin, að tekið verði upp sama fyrirkomulag þar og í úthafsveið- inni þar sem um er að ræða svokall- aða einingarkvóta, sem unnt er að kaupa og sameina á færri skip. Með öðrum orðum er verið að ræða um framseljanlega kvóta. Odd Nakken, einn af kunnustu fiskifræðingum í Noregi, sagði í viðtali við norska blaðið Aftenpost- en í síðustu viku, að hann teldi, að mikið brottkast og miklar, ólögleg- ar veiðar væm helsta skýringin á því hve mat fiskifræðinga á stofn- stærðinni hefði staðist illa. Nakken segir, að norskir jafnt sem rússneskir sjómenn hafi veitt meira en þeir hafi gefið upp og síð- an hafi bæst við veiðar annarra þjóða, tO dæmis Islendinga, sem hafi veitt án þess að hafa kvóta. Ofmatið algengara en vanmatið í viðtalinu var Nakken spurður að því hvemig á því stæði, að þessi sama kreppustaða kæmi reglulega upp í norskum sjávarútvegi. Sagði hann, að í fyrsta lagi yrðu yfírvöld að átta sig á því, að algengara væri, að stofninn væri ofmetinn en van- metinn. Það komi glögglega í ljós þegar litið sé aftur til síðustu 20 ára. A þessu séu fáar undantekn- ingar þótt sjaldan hafi jafn miklu skeikað og nú. Ólöglegi aflinn 36% af uppgefnum Nakken ítrekar, að meginástæð- an sé ólöglegur afli. Vitnar hann meðal annars í mikla könnun, sem norska sjávarútvegsráðuneytið gekkst fyrir 1992 en niðurstaða hennar var sú, að ólöglegi aflinn var 36% af uppgefnum afla. Það jafn- gOti 130.000 tonnum. „Jafnvel þótt þessi þjófnaður sé minni nú en 1992 veldur hann því, að útreikningar okkar fiskifræðing- anna verða marklitlir," segir Nakk- en. Nakken segir, að skýringarnar séu raunar fleiri, til dæmis mikOl- vöxtur í stofnum ýmissa sjávar- spendýra, sels og hvals. Þau sæki grimmt í þorskinn og sérstaklega þegar lítið er um loðnu eins og verið hefur á síðustu ámm. Nakken tekur undir hugmyndir um, að þegar búið verði að koma stofninum upp aftur verði ákveðinn fastur kvóti, sem sé vel innan hætt- umarka. Það muni stuðla að meiri festu og draga úr líkum á skyndi- legum niðurskurði. Nýting fiskafla heimsins milljón tonn 1983 1994 1995 1996 1997 Ferskur fiskur 15 27% 27 35% 34 40% 37 42% 42 45% Frosinn fiskur 19 35% 26 33% 27 31% 27 30% 27 29% Saltaður eða þurrkaður 10 18% 12 Í5% 12 14% 12 13% 11 12% Niðursoðinn fiskur 11 20% 13 17% 13 15% 13 15% 13 14% Samtals til manneldis 55 100% 78 100% 86 100% 89 100% 93 100% Fiskimjöl 22 34 31 31 29 Heimsframleiðsla 77 112 117 120 122 112 ■) 11 120 ^22 Ferskur fiskur Frosinn fiskur Saltaður/þurrkaður Niðursoðinn fiskur —r Fiskimjöl 1994 1995 1996 1997 Ýsa Innflutningur á ýsu Bretlands janúar til júlí 1999 Noregur 6.275 ísland 6.251 Færeyjar 5.041 Danmörk 2.724 Aðrir___________11.243 Samtals 25.258 Bretar kaupa ýsu og kola héðan BRETAR er sólgnir í ýsuna og fer hún meðal annars íþjóðarréttinn fisk og franskar. Þeir flytja að jafnaði verulegt magn inn enda dugir afli þeirra eigin báta úr Norðursjó hvergi. Ysuna kaupa þeir bæði ferska og frysta, en eftir fyrstu sjö mánuði þessa árs nam þess innflutningur þeirra um 25.300 tonnum. Það er samdráttur um rúmlega 2.000 tonn miðað við sama tíma í fyrra. Mest af ýsunni kaupa Bretar af Norðmönnum, eða tæplega 5.300 tonn á um- ræddu tímabili. Það er um 3.000 tonna samdráttur miðað við sama tíma í fyrra, enda hefur ýsuveiðin við Noreg dregizt saman. Héðan frá íslandi kaupa Bretar um 6.250 tonn af ýsu þetta tímabil, sem er um þúsund tonna aukning. Loks koma Færeyingar með rúm 5.000 tonn og þar er um 3.000 tonna samdrátt að ræða. Skarkoli Innflutningur á kola Bretlands janúar til júlí 1999 Samtals 4.203 ísland Holland Aðrir tonn 2.358 1.287 557 SKARKOLI er einnig eftirsóttur í Bretlandi og að liðnum sjö mánuð- um á þessu ári nam sá innflutning- ur um 4.200 tonnum, sem er lítils- háttar aukning. Bretar kaupa ríflega helminginn af öllum þess- um kola héðan frá Islandi eða 2.360 tonn. Næstmest kaupa þeir svo frá Hollandi, eða um 1.300 tonn. Eitthvað af þeim kola gæti verið héðan frá íslandi, þar sem Hollendingar flytja mikið inn af kola til frekari vinnslu og út- flutnings á ný.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.