Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA
AIK vildi kaupa Brynjar
Björn Gunnarsson
Morgunblaðið/Golli
Rúnar Kristinsson og Brynjar Björn Gunn-
arsson voru efstir á óskalistanum hjá nýju
fjárfestunum frá Stoke. Litlar sem engar
líkur eru á því að þeir leiki með liðinu.
„Ís-Bjöm“
ekki
til sölu
SÆNSKA liðið AIK, sem hafnaði í öðru sæti
úrvalsdeildarinnar og lék í Meistaradeild
Evrópu, hefur sýnt áhuga á að kaupa ís-
lenska landsliðsmanninn Brynjar Björn
Gunnarsson frá Örgryte. AIK sendi formlegt
tilboð til Örgryte á dögunum, en tilboðinu
var svarað af Stefan Allback sl. þriðjudag og
hljóðaði þannig: „Brynjar er ekki til sölu,
hvað sem í boði er!“
Brynjar, sem á eftir tvö ár af samningi
sfnum við Örgryte, kom til Svíþjóðar frá
norska liðinu Válerenga fyrir ári. Hann lék
sérstaklega vel í sænsku deildinni í sumar
og var einn af bestu Ieikmönnum liðsins. Ör-
gryte hafnaði í 4. sæti deildarinnar og félag-
ið vill fyrir alla muni halda fslendingnum
minnst eitt ár í viðbót.
Vitað er af áhuga Guðjóns Þórðarsonar
að fá Brynjar Björn yfír til Stoke, en ef
marka má fréttir á heimasíðu Örgryte er
„Ís-Björn“ eins og Svíar kalla hann, ekki til
sölu.
fHtingtttiMftfrifr
1999
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER
BLAÐ
Islenska landsliðið í fjórða styrkleikaflokki er dregið verður í HM í Tókýó
Slóvenar „skutu“
íslendinga niður
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu er í fjórða styrkleika-
flokki í Evrópu þegar dregið verður í undankeppni heims-
meistarakeppninnar 2002 í Tókýó 7. desember. íslenska
landsliðið er í fyrsta sæti í styrkleikaffokknum, þannið að
ekki munaði nema einu sæti að liðið kæmist í þriðja
styrkleikaflokk. Landslið Slóveníu skaut ísland úr flokkn-
um, með því að skjótast upp fyrir ísland á styrkleikalista
alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sem var gefinn út
í vikunni.
KR-ingarnir
mættir
á Britannia
KR-ingarnir Sigursteinn Gíslason
og Einar Þór Daníelsson komu til
Stoke í gær og var fyrsta verk
þeirra að skoða höfúðstöðvar fé-
lagsins og síðan tóku þeir létta
skokkæfíngu. Þeir munu báðir
leika æfingaleik með Stoke City
gegn Mansfield á Britannia-leik-
vanginum, leik sem sérstaklega
var komið á fyrir nýráðinn knatt-
spymustjóra, Guðjón Þórðarson,
til að skoða leikmenn.
Svíiinn Mikael Hansson, sem er
þrítugur varnarmaður, kom einnig
til Stoke í gær frá Norrköping og
mun hann einnig verða með í æf-
ingaleiknum í dag. Hann er með
lausan samning frá sænska félag-
inu. Guðjón sagðist ánægður að
vera búinn að fá þessa þrjá leik-
menn til félagsins, nú þegar aðeins
þrír dagar eru liðinir frá því hann
tók við knattspyrnustjórastöðunni
hjá félaginu.
Ekki er talið að félagið hækki
fyrra tilboð sitt í Rúnar Kristins-
son hjá LiIIeström og því það mál
væntanlega úr sögunni.
Fimmtíu Evrópuþjóðir taka þátt
í undankeppninni, en Frakkar
komast beint í HM í Japan og Suð-
ur-Kóreu, sem heimsmeistarar.
Leikið verður í níu riðlum - fímm
riðlum með sex þjóðum, fjórum
riðlum með fimm þjóðum.
Efsta liðið í hverjum riðli tryggir
sér rétt til að leika í HM. Ein þjóð-
in sem hafnar í öðru sæti leikur
gegn liði í þriðja sæti í Asíukeppn-
inni um farseðil á HM. Hinar átta
þjóðirnar í öðru sæti leika um fjög-
ur laus sæti með sama fyrirkomu-
lag og í Evrópukeppni landsliða,
leika heima og að heiman.
Styrkleikaflokkarnir eru þannig
hjá Evrópuþjóðunum:
1. FLOKKUR: Tékkland, Spánn,
Þýskaland, Króatía, Noregur,
Rúmenía, England, Italía og Jú-
góslavía.
2. FLOKKUR: Danmörk, Portúgal,
Svíþjóð, Hollandj Rússland,
Slóvakía, Skotland, Israel og Aust-
umki.
3. FLOKKUR: Úkraína, Belgía,
Pólland, Tyrkland, Grikkland, ír-
land, Búlgaría, Slóvenía og Ung-
verjaland.
4. FLOKKUR: ísland, Sviss, Lit-
háen, Finnland, Kýpur, Lettland,
Makedónía, Georgía og Eistland.
5. FLOKKUR: Bosnía, Norður-ír-
land, Albanía, Armenía, Moldova,
Wales, Hvíta-Rússland,
Aserbajdsjan og Færeyjar.
6. FLOKKUR: Malta, Lúxemborg,
Liechtenstein, Andorra og San
Marínó.
ísland getur dregist gegn öllum
þessum þjóðum, nema þeim sem
eru í sama styrkleikaflokki og ís-
lenska liðið.
VIÐTAL VIÐ JOHN RUDGE, TÆKNILEGAN RÁÐGJAFA HJÁ STOKE CITY/C2
Morgunblaðið/RAX
Sigursteinn Gíslason, Einar Þór Daníelsson, Elvar Aðalsteinsson, stjórnarmaður Stoke City og Guðjón Þórðarson,
knattspyrnustjóri, fyrir framan Britannia-leikvanginn.
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA
1 i