Morgunblaðið - 19.11.1999, Side 2

Morgunblaðið - 19.11.1999, Side 2
2 C FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ John Rudge, tæknilegur ráðgjafi hjá Stoke City Ekki má rasa um ráð fram JOHN Rudge, sem var knattspyrnustjóri hjá Port Vale í tæp tutt- ugu ár, gerðist tæknilegur ráðgjafi hjá erkifjendunum í Stoke City sl. sumar er Gary Megson var ráðinn knattspyrnustjóri. Nú er íslenskur stjóri tekinn við en Rudge verður áfram Guðjóni Þórðarsyni til aðstoðar. „Mér þykir leitt að Megson hafi verið lát- inn fara - ég fer ekkert í grafgötur með það,“ sagði Rudge við Morgunblaðið á þriðjudag eftir fyrstu æfingu Guðjóns með Stoke. „Hins vegar hef ég verið nógu lengi viðloðandi knatt- spyrnu til að vita að slíkri yfirtöku hljóta ávallt að fylgja einhverj- ar breytingar. Megson var einfaldlega fórnað fyrir langtímahags- muni félagsins og svo einfalt er það. Við Nigel Pearson verðum hins vegar áfram og komum til með að starfa með Guðjóni. Vissulega verður það kannski skrítið svona fyrst í stað, en þetta er atvinna okkar og því er ég mjög bjartsýnn á að allt verði hér komið á fulla ferð aftur innan skamms," sagði hann. Aðstoðar Steinar eða Lárus Pál? NÆR örugglega verður gengið frá ráðningu aðstoð- arþjálfara knattspyrnuliðs Keflavíkur um helgina. Koma tveir menn þar sterk- lega til greina; Steinar Ingi- mundarson og Lárus Grét- arsson. Báðir hafa þeir unn- ið með Páli Guðlaugssyni, þjálfara Keflavíkur, áður og eru því þaulkunnugir Páli og þjálfunaraðferðum hans. Svo kann að fara að báðir hreppi hnossið og verði ráðnir Páli við hlið, en lík- legra er þó að annar þeirra verði fyrir valinu. ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Leikir á þriðjudagskvöld: Toronto - Detroit.................89: 85 Washington - Philadelphia.........73: 95 Atalanta - Charlotte ...........103: 98 Miami - Portland.................96:101 Milwaukee - LA Clippers..........101: 93 San Antonio - Indiana.............90: 87 • Eftir framlengingu. Dallas - Houston............. .114: 95 Denver - New York...............95:102 Golden State - Chicago..........99: 79 Sacramento - Vancouver.............81:77 Leikir á miðvikudagskvöld: Boston - Cleveland ..............114:103 Philadelphia - Miami..............93: 98 Charlotte - Dallas .............104: 99 Detroit - New Jersey ...........109:107 orlando - Portland................79: 81 Minnesota - LA Clippers .........85: 89 Utah-NewYork......................98: 90 Phoenix - Chicago................105: 81 Seattle - Golden State...........111:108 1. deild karla: ÍS - Selfoss.......................75:70 í KVÖLD Handknattleikur 1. deild karla: Ásgarður: Stjaman : Víkingur .........20 Valsheimili: Valur - ÍR...............20 1. deild kvenna: Vestmannaeyjar: IBV - Víkingur........20 2. deild karia: Strandgata: f H - Þór A...............20 Körfuknattlcikur 1. deild kvenna: Grindavík: UMFG - Tindastóll .........20 Kannaraháskóli: ÍS - KFÍ...........20.15 I. deild karla: Þoriákshöfn: Þór Þ. - Breiðablik......20 Blak 1. deild kvenna: KA-heimili: KA - Þróttur R.........19.30 Neskaups.: Þróttur N. - Víkingur ... .19.30 Rudge segir alveg á hreinu að stutt verði við bakið á Guðjóni í nýju starfl. „Markmiðið hér er að lið- inu gangi vel og Bjöm Ingi nntt starf er að að- Hrafnsson stoða knattspyrnu- skrífar frá Stoke stjórann við allt sem viðkemur lið- inu og knattspyrnunni í Englandi. Guðjón þekkir ekki neðri deildirnar í Englandi til hlítar, sem er auðvitað mjög eðlilegt, og þess vegna ríður á að hann njóti þeirrar aðstoðar og ráðgjafar sem völ er á.“ Rudge segist telja mikilvægt að gengið verði sómasamlega frá starfs- lokum við Gary Megson, enda fari þar ungur og efnilegur knattspyrnu- stjóri sem reynst hafí félaginu vel. „Eftir það er réttast fyrir alla aðila að gleyma þeirri hlið málanna og einbeita sér þess í stað að framtíð- inni. Það er ljóst að starf Guðjóns verður ekki auðvelt. Vissulega hefur liðinu gengið þokkalega að undan- fömu, en engum vafa er undirorpið að ekki veitti af nýjum leikmönnum til að auka breiddina og möguleikana á að komast upp í 1. deild. Jafnframt er ljóst að ekki dugir að rasa um ráð frarn, við græðum ekkert á því að kaupa hvað sem er. Fyrstu verkefni okkar þriggja - Guðjóns, mín og Pearsons er einmitt að leggja faglegt mat á leikmannahóp- inn og hvar þörfin er mest á nýjum mönnum. Við þurfiim einnig að ræða þá knattspymu sem nýr stjóri vill sjá liðið leika, hvað hann vill fá út úr leik- mönnum sínum og svo framvegis.“ Rudge segir alveg ljóst að mikil breyting verði fyrir Guðjón að skipta úr starfí landsliðsþjálfara og niður í þá knattspyrnu sem boðið sé upp á 2. deild í Englandi. „Þetta er nánast allt önnur íþrótt," segir hann. „Það verður að meta alla þá þætti sem skipta hér máli, hæfileika leikmanna, getu liðanna og fjölmargar aðrar ytri aðstæður. Ég hef stjórnað liðum í mörgum deildum og get því vonandi gert mitt til að koma Guðjóni inn í málin. Ég sé að hann veit allt um það sem er að gerast í knattspyrnu í dag - svo er að heimfæra það yfír á knattspyrnuna hér í Stoke.“ Lítil ástæða er til að hafa áhyggjur af viðhorfi leikmanna í garð nýs stjóra, jafnvel þótt hann sé útlending- ur, að mati Rudge. Hann segir að leikmenn Stoke séu allir atvinnu- knattspymumenn og eigi því ekki að skipta sér af því sem gerist á bak við tjöldin og í fimdarherbergi stjómar og knattspymustjóra. Þeirra starf sé að gera sitt allra besta inni á knatt- spyrnuvellinum hverju sinni. „Svo má heldur ekki gleyma því að Megson tók við fyrir aðeins örfáum mánuðum og þá komum við Pearson einnig inn í dæmið. Við erum rétt núna að læra inn á hlutina hér og átta okkur á að- stæðum - kynnast leikmönnunum." „Segja má að leikmannahópur liða komist ávallt í uppnám við komu nýs knattspymustjóra. Þá eru allir á byrjunarreit og verða að sanna sig. Það getur oft verið mjög gott, én jafn mikilvægt er að byggja upp tilskilinn stöðugleika. Ég efast ekki um að leik- menn muni nú leggja mikið upp úr að sýna getu sína fyrir Guðjóni. Talið um leikmenn sem hugsanlega eru á leið til félagsins eykur enn á þetta - menn koma til með að berjast fyrir tilveru- rétti sínum og gera það aðeins með frammistöðu sinni á vellinum. Félagið nýtur þannig góðs af,“ segir Rudge ennfremur, en hann nýtur mikillar virðingar í Englandi fyrir störf sín. Þótti með ólíkindum á sínum tíma er hann reif Port Vale upp með miklum látum og kom því í 1. deild. Var boðið að taka við Stoke Færri vita hins vegar að Rudge hefur oftar en einu sinni á ferlinum verið boðið að gerast knattspymu- stjóri Stoke City - nú síðast í sumar. Þá hafði hann nýlega verið látinn taka pokann sinn hjá Port Vale í miklu gjörningaveðri og stjórastaðan var laus hjá erkifjendunum í borg- inni. Rudge kaus að taka boðinu ekki, taldi einfaldlega að allt yrði vit- laust ef stjóri Port Vale skipti í einu vetfangi yfir til óvinanna númer eitt. Það hefði verið of stórt skref, segir hann og bætir við: „Ég hefði verið kallaður Júdas.“ Lendingin varð hins vegar sú að Rudge fékk stjórnunarstöðu hjá Stoke City, sem aðstoðarmaður Gary Megsons og tæknilegur ráðgjafi. Hans verkefni er m.a. að fylgjast með ungum og efnilegum leikmönn- um á Bretlandseyjum og jafnvel víð- ar sem styrkt gætu lið Stoke. Hið sama verður uppi á teningnum undir stjórn Guðjóns. Rudge telur líklegt að haldið verði áfram þar sem frá var horfið í leikmannamálum. Afram verði leitast við að fá góða leikmenn til liðsins fyrir ekki neitt - samnings- lausa menn. Einnig verði reynt að fækka eitthvað í leikmannahópnum - nú séu um 30 leikmenn á launaskrá og þeim verði að fækka sé ætlunin að bæta einhverjum nýjum við. En telur hann að íslenskir knatt- spyrnumenn gætu styrkt Stoke City nú? „Eflaust geta þeir það, þ.e. þeir sem leika með landsliðinu, enda hef- ur það valdð mikla eftirtekt að und- anfömu. Ég veit ekki hvort um verð- ur að ræða leikmenn frá íslandi eða öðrum löndum - ákvörðun um það kemur frá nýrri stjóm og knatt- spymustjóra. Ég tel þó rétt að taka ekki of stór stökk í þessum efnum frekar en öðmm. Það hefur sýnt sig í úrvalsdeildinni að gagnrýni sætir ef margir útlendingar koma skyndilega inn í lið og ýta enskum leikmönnum til hliðar. Ég er alls ekki að segja að ekki sé þörf hér á erlendum leik- mönnum, aðeins að skynsamlegt sé að fara varlega og skynsamlega í sakirnar. Ekki rasa um ráð fram. Það er lítið vit í að koma með fjöldann all- an af nýjum mönnum sem skila ekki því starfi sem til er ætlast á knatt- spyrnuvellinum. Stemmningin meðal leikmanna skiptir einnig gríðarlega miklu máli. I ensku knattspymunni er stemmningin og einingin meðal leikmanna afar mikilvæg. Slíkri stemmningu má auðveldlega raska með fjölda erlendra leikmanna. Mik- ilvægast er að blanda þessu hæfilega saman - útlendum leikmönnum og breskum," segir Rudge. Guðjón Þórðarson, knattspyr Tap á Livei Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur tapað umtalsverðum fjármun- um á undanfömum mánuðum. Tap félagsins er 590 milljónir íslenskra króna fyrstu sjö mánuði ársins, en það er mikil breyting frá því áður var enda hefur verið hagnaður af rekstri félagsins undanfarin ár. Gerai'd Houllier, knattspymu- stjóri Liverpool, keypti leikmenn fyrir 3,4 milljarða króna á þessu tímabili, en seldi leikmenn fyrir að- eins 1,7 milljarða og er það helsta skýringin á taprekstrinum. Launa- kostnaður félagsins hefur aukist mikið og hefur aldrei verið jafn hár, eða 4,1 milljarður króna, og jókst fl HERRAKVÖLD GRÓTTU/KR í kvöld í nýrri félagsaðstöðu J Gróttu við íþróttamiðstöðina. Húsið opnað klukkan 19:30. NpÖyTj ■ Miðasala á staðnum. v ' ) Knattspyrnuþjálfarafélag íslands AÐALFUNDUR Aðalfundur KÞÍ verður haldinn í Valsheimilinu að Hlíðarenda sunnudaginn 28. nóvember kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Breytingatillögur. Þjálfarar ársins heiðraðir. Léttar veitingar. Portland losnaði undan ál Portland TrailBlazers, sem er af mörgum talið eitt allra áhugaverð- asta lið bandarísku NBA-deildar- innar í körfuknattleik um þessar mundir, sannaði sálrænan styrk sinn er það náði að knýja fram nauman sigur á Orlando Magic, 81:79, á Flórídaskaga í fyrrinótt. Framherjinn Rasheed Wallace skoraði sigurkörfuna úr stökkskoti er 1,3 sekúndur lifðu leiks. Orlando tók leikhlé og freistaði þess að ná skoti, annaðhvort til að jafna leikinn eða vinna sigur með þriggja stiga skoti, en þá kom aftur til kasta Wallace, sem vann boltann strax eftir innkastið og innsiglaði sigurinn. Litháinn Arvydas Sabonis lagði einnig lóð sín á vogarskálar Portland, gerði mikilvæga þriggja stiga körfu á lokakaflanum. Wallace gerði þrettán stig og tók ellefu frá- köst. Sabonis gerði ellefu stig og tók tíu fráköst. Þetta var fyrsti sigur liðsins í Or- lando síðan í janúar 1992, en Portland hefur nú unnið átta leiki og tapað einum á keppnistímabilinu og er efst í NBA-deildinni. Þetta er besta byrjun liðsins síðan haustið 1992, tímabilið eftir að það tapaði fyrir Chicago Bulls í úrslitaleikjum um NBA-titilinn. Chris Gatling skoraði 21 stig fyrir Orlando, en hitti ekki úr opnu skot- færi er hann hefði getað komið heimamönnum yfir á lokamínút- unni. Scottie Pippen náði frákastinu og bað um leikhlé. I næstu sókn liðsins skoraði Wallace sigurkröf- una. Karl Malone gerði 33 stig fyrir Utah Jazz, sem vann góðan sigur á New York Knicks, 98:90, á heima- velli. Leikstjórnandinn John Stockton var veikur, en tók þátt í leiknum og gerði sautján stig. Eftir leikinn gerði Malone gys að frétta- flutningi um háan aldur Utah-liðs- ins. „Eg nenni ekki að lesa þetta lengur. Ég verð þreyttur á að lesa sífellt um hve gamall ég er orðinn.“ Utah hitti úr tíu fyrstu skotum sín- um og fimmtán af fyrstu sextán, náði þannig tuttugu stiga forskoti, 34:14. Það var bil sem New York náði aldrei að brúa. „Sífellt höfðum við fimm leik- menn inná, sem voru reiðubúnir að hjálpast að í vörninni," sagði Jerry Sloan, þjálfari Utah. „Við fengum mörg auðveld skot eftir góðan varn- arleik." Þótt Utah hafi ekki sýnt jafngóðan leik í síðari hálfleik, gerði það nóg til að halda gestunum fyrir aftan sig. Óvissa ríkti um hvort Stockton gæti leikið með allt þar til leikurinn hófst. Hann hefur aðeins misst af 22 leikjum á fimmtán ára ferli sínum í deildinni og lék í þrjátíu mínútur í leiknum og gaf ellefu stoðsendingar. Latrell Sprewell var stigahæstur New York með 24 stig. Alonzo Mourning skoraði 27 stig og tók 14 fráköst er Miami Heat gerði góða ferð til Philadelphia og vann sigur, 98:93, á heimamönnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.