Morgunblaðið - 19.11.1999, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 C 3
Morgunblaðið/RAX
nustjóri Stoke Crty F.C. og John Rudge, tæknilegur ráðgjafi liðsins, á æfingu í gær.
rekstri
rpool
hann um 690 milljónir frá árinu áð-
ur.
Leikmenn sem Houllier hefur
keypt og selt á fyrrgreindum tíma
eru þessir:
Keyptir:
Ferri (115 milljónir), Kippe (80,5),
Song (310,5), Traore (63,2),
Camara (310), Hyypia (300),
Honchoz (402), Westerveld (460),
Hamann (920) og Smieer (460).
Seldir:
McAteer (460 milljónir), Roberts
(5,7), Harkness (80,5), James (207),
Ferri (172,5), Yates (1,7), Ince
(115), Dundee (172,5), Leonhardsen
(345), Riedle (46) og Kvarme (86,2).
ögunum
Liðið lék af mikilli ákveðni í leikn-
um, ekki ósvipað því sem tíðkast í
úrslitakeppni deildarinnnar. „Þetta
er Miami-liðið eins og ég kann best
við það,“ sagði Mourning eftir leik-
inn. „Þetta þurfum við að gera í úr-
slitakeppninni.“ Miami sat eftir
með sárt ennið síðasta vor eftir að
hafa beðið lægri hlut fyrir New
York í fyrstu umferð úrslitakeppn-
innar.
Allen Iverson, sem er kóngur í
ríki sínu í Philadelphia, misnotaði
nærri jafnmörg skot og aðrir leik-
menn liðsins hittu úr(!) Þetta var í
fyrsta sinn í sex leikjum sem hann
skoraði minna en þrjátíu stig. „Ef
ég leik betur en þetta, sigrum við.
Það er svo einfalt,“ sagði Iverson.
Hann varð að kljást við Dan Ma-
jerle, sem gerði honum lífíð leitt
með góðum vamarleik. Iverson var
stigakóngur NBA-deildarinnar á
síðasta keppnistímabili. George
Lynch bar af í liði heimamanna,
gerði 27 stig og tók tólf fráköst.
Birgir Leifur
við miðjan hóp
BIRGIR Leifur Hafþórsson náði ekki að
fylgja eftir prýðilegri byrjun sinni á
lokaúrtökumóti fyrir aðaimótaröð Evr-
ópu í golfi, sem fram fer á Costa del Soi
á Spáni. Hann lék San Roque-völlinn á 74
höggum, tveimur yfir pari, í gær eftir að
hafa leikið Sotogrande-völlinn á 71
liöggi, einu undir pari, í fyrradag. Hann
er í 68. til 80. sæti af 168 keppendum,
hefur slegið 145 högg og er á einu höggi
yfir pari.
Keppendum verður fækkað í 75 eftir
Qóra hringi og leika þeir þijátíu og sex
holur til viðbótar. Þijátíu og fimm efstu
kylfingarnir eftir hringina sex fá ótak-
markaðan keppnisrétt á evrópsku móta-
röðinni á næsta keppnistímabili. Birgir
Leifur er sem stendur rétt ofan við miðj-
an hóp og leikur því á Sotogrande í dag,
en keppendur í neðri hlutanum eija
kappi á San Roque.
Þetta er í þriðja sinn sem Birgir Leif-
ur tekur þátt í lokaúrtökumótinu, en
hann hefúr aldrei komist í gegnum
fækkun keppenda að fjórum hringjum
loknum. Takist honum það, fær hann
þátttökurétt á nokkrum mótum aðal-
mótaraðarinnar á næsta ári en öllu
sterkari stöðu gagnvart þátttöku á
„áskorendamótaröðinni", öðru nafni
Chailenge Tour.
Birgir Leifur er jafn Suður-Aft-íkubú-
anum Trevor Immelman, sem var boðið
til þátttöku í bandarísku meistarakeppn-
inni, öðru nafni Masters, síðastliðið vor.
Þar iék hann sem áhugamaður og lék
alla íjóra hringina. Margir þekktir
kylfingar eru á meðal þátttakenda. írinn
Philip Walton er á 141 höggi, en hann
innsiglaði sigur Evrópu á Bandaríkja-
mönnum í Ryder-keppninni fyrir fjórum
árum. Justin Rose, breski táningurinn
sem sló í gegn á opna breska mótinu í
fyrra, er einu höggi á undan Birgi Leifi.
Auk þeirra eru nokkrir þekktir
kylfíngar á eftir honum, t.d. Gordon
Brand yngri, Ross Drummond, Wayne
Westner og Svíinn Peter Hedblom. Spán-
veijinn Ivo Giner er efstur í mótinu, tíu
höggum á undan Birgi Leifi.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Landsliðið
til Úkraínu
RIÐLAKEPPNI Evrópumóts
landsliða í körfuknattleik
hefst í næstu viku og hefur
Friðrik Ingi Rúnarsson valið
15 úr 24ra manna leikmanna-
hópi til að halda í fyrsta leik
til Úkraínu.
Liðið skipa Falur Harðarson,
Herbert Arnarson og Páll A.
Vilbergsson, sem allir koma er-
lendis frá, Friðrik E. Stefánsson,
Hermann Hauksson og Örlygur
Sturluson frá Njarðvík, Fannar
Ólafsson og Hjörtur Harðarson úr
Keflavík, Jónatan Bow og Ólafur
J. Ormsson úr KR, Hjörtur Hjart-
arson og Ægir Jónsson frá Akra-
nesi, Guðmundur Bragason úr
Haukum, Svavar Birgisson frá
Tindastóli og frá Borgarnesi
Hlynur Bæringsson. Af þessum
leikmönnum eru sex að fara í sinn
fyrsta landsleik, Ólafur, Hjörtur
frá Akranesi, Ægir, Svavar, Hlyn-
ur og Örlygur. Athygli vekur að
Ben Johnson, fyrrverandi
heimsmethafi og heimsmeist-
ari í 100 metra hlaupi, hefur fallið í
þriðja sinn um ævina á lyfjaprófi
og að þessu sinni í prófi sem hann
óskaði sérstaklega eftir að gangast
undir. Johnson var dæmdur í ævi-
langt keppnisbann snemma á þess-
um áratug er hann féll á lyfjaprófi
þegar hann hafði nýlega afplánað
refsingu sem hann var dæmdur til
eftir að hafa verið staðinn að notk-
un ólöglegra lyfja á Ólympíuleik-
unum í Seoul 1988.
Allt frá því Johnson var dæmd-
ur í ævilangt keppnisbann hefur
hann barist af hörku fyrir því að fá
keppnisréttindi á ný. Lítið hefur
gengið hjá honum í því máli og síð-
ast í sumar ákvað Alþjóða frjálsí-
þróttasambandið að banniniu yrði
ekki aflétt. Johnson var ekki sátt-
ur við niðurstöðuna því hann hafði
látið sig dreyma um að keppa á
Ólympíuleikunum í Sydney á
næsta ári, þá 38 ára gamall.
í þeim tilgangi að fá banninu
hnekkt óskaði Johnson eftir að af
sér yrði tekið lyfjapróf og var það
gert í síðasta mánuði. Nú er í ljós
komið að þegar Johnson fór í
lyfjaprófið hafði hann neytt efnis-
ins diuretic, sem er á bannlista,
en það felur neyslu ólöglegra efna
í líkamanum þannig að þau koma
ekki fram við lyfjapróf. Umboðs-
maður Johnsons, staðfesti í gær
reyndir leikmenn eins og Teitur
Örlygsson, Gunnar Einarsson og
Helgi Jónas Guðfinnsson gáfu
ekki kost á sér vegna anna eða
meiðsla.
Að sögn Friðriks Inga, sem er að
þreyta frumraun sína sem aðal-
þjálfari landsliðsins, er aldrei að
vita hvernig liði Úkraína stillir upp
því stundum mæta þeir til leiks
með öfluga leikmenn og stundum
slakari.
Liðið leikur næstkomandi mið-
vikudag en við Úkraínu en aðeins
þremur dögum síðar verður leikið
við Belgíu í Laugardalshöll og 1.
desember verður leikið við Sló-
veníu ytra. Auk þess eru með ís-
landi í riðlinum Makedónía og
Portúgal en þeir leikir verða háðir
í febrúar á næsta ári. Körfubolta-
menn ætla sér stóra hluti og
stefna á að hreppa 1. eða 2. sætið í
riðlinum til að sleppa við auka-
keppni og komast beint inn í milli-
riðla.
að rétt væri að Johnson hefði fall-
ið, en lét þess jafnframt getið að
Johnson hefði notað umrætt efni
samkvæmt læknisráði en það
væri verkjastillandi. Upplýsing-
um um fall Johnsons hefði verið
„lekið“ út áður en kanadíska lyfja-
eftirlitið hefði tekið málið fyrir og
óskað eftir skýringum íþrótta-
mannsins. Allt hefði þetta verið
gert til þess að veikja málstað
hans.
SKIÐI
Kristinn í
44. sæti
á heims-
listanum
KRISTINN Björnsson, skíða-
maður frá Ólafsfírði, mun hefja
keppni í heimsbikarnum í svigi
í næstu viku. Hann er í 44. sæti
á heimslistanum í svigi sem
þýðir að hann fær það rásnúm-
er svo framarlega að allir aðrir
mæti til keppni sem eru ofar en
hann á listanum.
Fyrsta svigkeppni heimsbik-
arsins í vetur átti að fara fram í
Park City um helgina en vegna
snjóleysis þai’ hefur keppnin
verið færð til Beaver Creek og
fer fram á miðvikudagskvöld.
■ SIGURÐUR Bjarnason skoraði
tvö mörk fyrir Wetzel sem tapaði
fyrir Minden á útivelli, 25:24, í
þýsku deildinni í handknattleik í
gærkvöldi. Sigurður lék lengst af
aðeins í vöm en kom í sóknina undir
lokin og gerði tvö síðustu mörk liðs-
ins.
■ BJARKI Gunnlaugsson verður
væntanlega í fyrsta sinn í byrjunar-
liði enska liðsins Preston North
End á morgun, laugardag, er það
mætir Enfield í ensku bikarkeppn-
inni. Bjarki átti góðan leik með
varaliðinu á mánudaginn og skoraði
annað mark liðsins í 4:2 tapi gegn
Port Vale.
■ AUÐUN Helgason, landsliðs-
maður í knattspymu sem er samn-
ingsbundinn norska liðinu Viking,
kemur væntanlega heim frá
Englandi í dag eftir að hafa skoðað
aðstæður hjá Portsmouth. „Eg
reikna ekki með að enska liðið hafi
áhuga, enda er ég ekki í leikæfingu
og gat ekki æft í dag [í gær] vegna
eymsla í nára. Ég hef bókað flug
heim á morgun,“ sagði Auðun.
■ KRISTJAN Finnbogason, mark-
vörður KR-inga, verður samkvæmt
heimildum blaðsins í marki belgíska
félagsins Lommel þegar það mætir
Lierse á útivelli í belgísku 1. deild-
inni á morgun. Kristján, sem er
með lausan samning við KR, hefur
verið við æfingar hjá Lommel und-
anfama daga.
■ FALUR Harðarson gerði 15 stig
fyrir Team Ware ToPo frá Helsinki
er liðið sigraði Mlekarna Kunin í
Tékklandi, 82:85, í Evrópukeppni
félagsliða í fyrrakvöld. Þetta var
annar sigur ToPo í átta leikjum.
Næsti leikur Fals og félaga í keppn-
inni verður á móti Radnicki Belgrad
frá Júgóslavíu 7. desember.
Tékkar og Slóvakar
í eina sæng á ný
FORRÁÐAMENN handknattleiks í Tékklandi og Sldvakíu hafa
ákveðið að fara í eina sæng á ný, þannig að á næsta keppnis-
tímabili verður tekin upp deildarkeppni þar sem báðar þjóðirnar
eiga lið. Það verður í fyrsta skipti í sjö ár, eða frá því 1993 þegar
ríkin tvö tdku upp sjáifstæði.
„Við þetta verða sfyrkleikinn og gæðin meiri í deildarkeppn-
inni. Við urðum að gera einhveijar ráðstafanir til að styrkja lið-
in frá þjdðunum tveimur. Þau cflast við þessa breytingu," sagði
Jaroslav Gattermayer, sljdrnarformaður handknattleikssam-
bands Tékklands.
Deildarkeppnin, með sex iiðum frá Tékklandi og sex frá
Sldvakíu, hefst á næsta keppnistimabili. Þd svo að þessi breyting
verði gerð á deildarkeppninni munu Tékkar og Sldvakar eftir
sem áður, eða síðan 1993 - eftir heimsmeistarakeppnina í Sví-
þjdð, tefla fram landsliðum sínum í alþjdðlegri keppni.
Tómas Holton tekur
við Skallagrími
TÓMAS Holton var í gær ráðinn þjálfari körfuknattleiksliðs
Skallagríms úr Borgarnesi. Hann tekur við af Júgtíslavanum
Dragisa Saric, sem sagði upp störfum í gær. Saric tdk við lið-
inu í haust og fdr sjálfur fram á að vera leystur undan samn-
ingi nú.
Tdmas Holton sagði í gær að markmiðið væri að koma lið-
inu í 8-liða úrslit úrvalsdeildarinnar. Bandan'kjamaðurinn
Torrey John, sem áður hefur leikið með Tindastdli og Njarð-
vík, mætti á æfingu hjá Skallagrími í gær. Ekki er endanlega
ákveðið hvort hann komi til með að leika með iiðinu, en það
skýrist á næstu dögum.
LYFJAMÁL
Ben Johnson
féll þriðja sinni