Morgunblaðið - 19.11.1999, Side 4

Morgunblaðið - 19.11.1999, Side 4
Aleksic áfram í Eyjum KNATTSPYRNA Lorenzo Sanz, forseti Real Madrid, um brottrekstur John Toshacks JÚGÓSLAVNESKI knattspyrnumaðurmn Goran Áleksic, sem kom til ÍBV um mitt síðasta sumar og lék 11 leiki með liðinu, spilar með ÍBV í deild- LORENZO Sanz, forseti knatt- spyrnufélagsins Real Madrid á Spáni, réttlætti í gær brott- rekstur velska þjálfarans Johns Toshack - sagði að hann gæti sjálfum sér um kennt. Toshack er sjöundi þjálfarinn sem fær reisupassann síðan Sanz tók við stjórn félagsins árið 1995. Sanz sagðist ekki hafa átt neinna kosta völ eftir óvarleg ummæli þjálfarans á opinber- um vettvangi. „Toshack kallaði þetta yfir sig. Ég var mjög já- kvæður í hans garð og var reiðubúinn til að leyfa honum að halda starfinu þar til samn- ingur hans rynni út, en hann var of þrjóskur - sýndi litla við- leitni til úrbóta,“ sagði Sanz í viðtali við spænska dagblaðið As. Forsetinn sagði Toshack hafa graf- ið sína eigin gröf er hann sagði: „Það er líklegra að svín fljúgi yfir Bernabeu-leikvanginn en að ég skipti um skoðun.“ Sanz virtist styðja Toshack heils hugar er fjöl- miðlar höfuðborgarinnar kröfðust þess að þjálfarinn yrði leystur frá störfum eftir slæmt gengi Real Ma- drid í deildarkeppninni, en hann sagðist hafa orðið að bregðast við of- angreindum ummælum Wales-verj- ans. Toshack var boðaður á tveggja klukkustunda langan fund á mið- vikudagsmorgun og þar var honum sagt upp. „Ummæli hans komu mér Fagnaðar- læti í Ljubljana GEYSILEG fagnaðarlæti brutust út á götum gamla bæjarins í Ljubljana, höfuð- borg Slóveníu, þegar leik- menn landsliðs Slóveníu í knattspyrnu komu heim úr frægðarför til Ukraínu. Þeir tryggðu sér rétt til að leika í Evrópukeppni lands- liða í Belgíu og Hollandi næsta sumar, eftir jafntefli í Úkraínu, 1:1, en fyrri leik- inn unnu þeir heima, 2:1. „Ég hef aldrei látið mig dreyma um að svo margir kæmu saman til að fagna knattspymumönnum hér í landi,“ sagði fyrirliðinn Darko Milanic. Knattspyma hefur ekki verið vinsælasta íþrótta- greinin í Slóvemu, þar sem skíði og íshokkí hafa verið þjóðaríþrótt. Vinsældir knattspymu eiga eftir að aukast þar sem landslið Sló- veníu mun í fyrsta skipti keppa á stórmóti er það tekur þátt í EM í Belgíu og Hollandi. Of inni næsta sumar. Gor- an er 27 ára og er samningsbundinn júgóslavneska 1. deild- arliðinu FK Cukaricki. Eyjamenn komust að samkomulagi við eig- anda liðsins í gær um að fá Goran leigðan til IBV næsta sumar eins og sl. sumar. þvjoskur John Toshack hefur tvisvar verið leystur frá störfum hjá Real Madrid. Reuters á óvart og hann neitaði að draga þau til baka,“ sagði Sanz við dagblaðið Marca. „Eg sagði honum að það hefði verið rangt að segja þessa hluti og besta lausin væri því að leysa hann undan samningi sínum.“ Toshack var knatttspyrnustjóri Real Madrid í 265 daga, en umdeild ummæli hans voru daglegt brauð og ollu þau jafnan leikmönnum og stjórn félagsins vonbrigðum. Fyrir hálfum mánuði sagðist hann láta alla gagnrýni sem vind um eyru þjóta og sneri oft út úr spurningum fjölmiðla- manna. Sanz hélt því neyðarfund með þjálfaranum og leikmönnum tveimur dögum fyrir leik liðsins við Rayo frá Vallecano, þar sem hann hvatti viðstadda til að „hreinsa loft- ið“. Aftur á móti jós Toshack úr skál- um reiði sinnar eftir viðureignina og sagði í viðtali að markvörður liðsins, Albano Bizzarri, hefði „varið fæm skot en sonardóttir mín hefði gert“. Þetta var kornið sem fyllti mælinn hjá leikmönnum Real og gagnrýndu þeir þjálfarann í kjölfarið fyrir lélegt skipulag á æfíngum markvarða. Hinsvegar var þolinmæði Sanz á þrotum eftir ummæli Toshacks um flug svínsins yfir leikvang félagsins. Toshack hafði áður verið rekinn sem þjálfari Real Madrid, en fyrra skipt- ið var árið 1990. Ólíklegt er að hann fái þriðja tækfærið hjá liðinu. Belgía, Holland, Þýskaland og Spánn í fyrsta flokki Þrír möguleikar á EM-drætti Knattspymusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti í gær að búið væri að ákveða að Holland, Belgía, Þýska- land og Spánn verði í fyrsta styrk- leikaflokki er dregið verður í fjóra riðla í Evrópukeppni landsliða, sem fer fram í Belgíu og Hollandi næsta sumar. Þar með er ekki hætta á að þjóðirnar verði í sama riðli er dregið verður í riðla í Brussel 12. desember. Eðlilegt er að Hollendingar og Belgíumenn, gestgjafarnir, séu í fyrsta styrkleikaflokki ásamt Þjóð- verjum, sem eru Evrópumeistarar og Spánverjar, sem eru efstir á blaði á styrkleikalista UEFA. Það verður ekki ákveðið fyrr en 10. desember hvernig drátturinn fer fram, en þrír möguleikar eru fyrir hendi: 1. MÖGULEIKI: Belgía, Holland, Þýskaland og Spánn í fyrsta styrk- leikaflokki, en síðan væru hinar þjóðirnar tólf í sama hatti: Rúmenía, Noregur, Svíþjóð, Tékkland, Júgó- slavía, Portúgal, Frakkland, Italía, England, Tyrkland, Danmörk og Slóvenía. 2. MÖGULEIKI: Belgía, Holland, Þýskaland og Spánn í fyrsta styrk- leikaflokki. Rúmenía, Noregur, Sví- þjóð og Tékkland í öðrum styrk- leikaflokki og síðan yrðu átta þjóðir í sama hatti:, Júgóslavía, Portúgal, Frakkland, Ítalía, England, Tyrk- land, Danmörk og Slóvenía. 3. MÖGULEIKI: Þjóðirnar sextán yrðu settar í fjóra styrkleikaflokka, sem yrðu þannig: A-FLOKKUR: Belgía, Holland, Þýskaland og Spánn. B-FLOKKUR: Rúmenía, Noregur, Svíþjóð og Tékkland. C-FLOKKUR: Júgóslavía, Portúgal, Frakkland og Ítalía. D-FLOKKUR: England, Tyrkland, Danmörk og Slóvenía, eða þjóðirnar sem unnu sér rétt til að leika á EM í leikjum í vikunni. FOLK ■ KIATTISAK Senamuang fyrirliði Tælands í knattspyrnu gerir á næstu dögum samning við enska 1. deildar liðið Huddersfield. Verður hann fyrsti Tælendingurinn til að komast á samning hjá ensku félagsliði. Senamuang öðlaðist athygli í Englandi sl. sumar er hann skoraði í tvígang í æfingaleik milli Arsenal og tælenska landsliðsins. ■ SENAMUANG segist vera spenntur fyrir að leika í Englandi, en óttast einna helst að honum gangi illa að venjast loftslaginu þar í landi sem en nokkuð frábrugðið því sem hann á að venjast. ■ ÚKRAÍNUMENN eru allt annað en ánægðir með frammistöðu lands- liðs síns í leikjunum tveimur við Slóveníu í undankeppni EM, þar sem Slóvenar komust áfram en Úkraína sat eftir með sárt ennið. ■ LÍKLEGT er talið að Josef Sabo landsliðsþjálfari verði látinn taka pokann sinn og einnig einhverjir af helstu forkólfum knattspyrnusam- bands landsins. ■ FÖGNUÐUR var hins vegar mik- ill í Slóvemu yfir úrslitunum og m.a. komu 3.000 stuðningsmenn lands- liðsins saman til þess að fagna lands- liðinu á flugvellinum í Ljubliana við komuna frá Kænugarði. Sigurganga stöðvuð í Sevilla ARGENTINUMENN stöðvuðu sigurgöngu Spánveija, sem höfðu leikið tólf leiki í röð án þess að tapa er Argentínumenn skelltu þeim í Sevilla á Spáni, 2:0. 65 þús. áhorfendur sáu Gonzalez, sem leikur með Va- lencia, skora fyrra markið á 63. mín. og Pochettino gulltryggði sigur Argentínu þrettán mín. fyrir leikslok. Menn töldu að þrettán væri svo sannarlega óhappatala Jose Antonio Camacho, landsliðs- þjálfara Spánverja, sem hafði stjórnað þeim í tólf leikjum án taps - tíu sigurleikjum, tveimur jafnteflisleikjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.