Morgunblaðið - 23.11.1999, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1999
Ólafur Jón
veiktist og
fer heim
ÓLAFUR Jón Ormsson,
leikmaður íslenska lands-
liðsins í körfuknattleik,
getur ekki leikið með lið-
inu gegn Úkraínu á mið-
vikudag. Landsliðið hélt
til Lundúna á sunnudag
og dvaldi yfir nótt á leið
sinni til Úkraínu. Ólafur
fékk magakveisu um
nóttina og þótti ekki ráð-
lagt að hann héldi áfram
ferðalagi sínu með liðinu.
Hann er því á leið til Is-
Iands. 10 leikmenn og
forráðamenn liðsins
héldu til Kænugarðs í
gær, en þar keppir liðið
fyrsta leik sinn í undan-
úrslitariðli Evrópukeppni
landsliða.
Jóna Björg
fái leik-
heimild
Handkanttleikssamnamdi
fslands ber að veita Jónu
Björgu Pálmadóttur leik-
heimild með Gróttu/KR
þegar í stað, að því er
fram kemur í úrskurði
Handknattleiksráðs
Reykjavíkur. Fram, sem
Jóna Björg lék áður með,
hefur áfrýjað dómi HKRR
til dómstóls HSÍ.
í dómsúrskurði HKRR
segir að samningur sem
handknattleiksdeild Fram
hafi lagt fram væri að
mati dómstóls HKRR ólög-
legur samningur, sem
engan veginn geti talist
leikmannasamningur HSÍ
því hann sé með miklum
formgöllum, meðal annars
ekki vottaður, ekki dag-
settur og ekki komi fram í
samningi hvar megi reka
málið ef til ágreinings
komi.
Jóna Björg óskaði eftir
að ganga til liðs við
Gróttu/KR úr Fram í upp-
hafi tímabils en félögin
hafa ekki komist að sam-
komulagi um félagaskipt-
in.
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER
BLAD
c
BLAK
Morgunblaðið/Kristinn
Laumað yfir netið
íslenska landsliðið í blaki karla sigraði íra 3:0 í vináttulandsleik sem fram fór í íþróttahúsinu Austur-
bergi á laugardaginn. Hannes Ingi Geirsson (nr. 8) laumar hér boltanum yfir netið og í gólfið hjá ír-
um. Leikurinn var liður í undirfoúningi íslenska liðsins fyrir C-keppni Evrópumóts landsliða sem fram
fer á Möltu í vor.
KNATTSPYRNA
Guðmundur Benediktsson byrjar vel með Geel
Ekki hægt að kvarta
Guðmundur Benediktsson skoraði
markið fyrir Geel í l:l-jafntefli
gegn Mechelen á útivelli í belgísku 1.
deildinni um helgina. Þetta var ann-
ar leikur hans með hðinu og hefur
hann skorað í þeim báðum. Amar
Þór Viðarsson skoraði einnig fyrir lið
sitt, Lokeren, í 4:2-sigri á Charleroi.
Kristján Finnbogason var í fyrsta
sinn í marki Lommel sem tapaði 4:0
fyrir Lierse og bræðumir Þórður og
Bjami Guðjónssynir léku með Genk
sem vann Áals 2:1.
Guðmundur sagðist ánægður með
sinn hlut í leiknum gegn Mechelen,
sem hefur aðeins tapað einum heima-
leik í vetur, gegn efsta liðinu Ander-
lecht., J>að er alltaf gaman þegar vel
gengur og ég get ekki kvartað. Það
hefði þó verið skemmtilegra að sigra
því við áttum hættulegri færi, en er-
um sáttir við annað stigið á þessum
erfiða útivelli. Þeir skomðu eftir
homspymu og var þetta fimmta
markið sem liðið fær á sig eftir hom-
spymur. Þetta er ekki ósvipað og var
hjá KR í upphafi íslandsmótsins sl.
sumar,“ sagði Guðmundur.
Hann kom liði sínu yfir á 55. mín-
útu eftir góða sókn upp hægri kant-
inn. Hann fékk sendingu fyrir mark-
ið og var staðsettur í miðjum víta-
teignum og sendi boltann viðstöðu-
laust í homið fjær. Hann sagðist fá
góða dóma í fjölmiðlum í Belgíu, ,já,
ég fæ fína dóma enda hefur mér
gengið vel í þessum tveimur leikjum.
Nú er bara að reyna að halda þessu
áfram, en það eiga sjálfsagt eftir að
vera erfiðir tímar í þessu líka. Eg
átti að spila á miðjunni um helgina
eins og í fyrsta leiknum, en fram-
herjinn mætti of seint til leiks og var
kippt út úr liðinu og ég var settur í
fremstu víglínu,“ sagði hann.
Guðmundur hefur komið sér fyrir í
litilli íbúð og hefur bíl til umráða á
meðan hann er samningsbundinn lið-
inu fram í maí. Félagi hans úr KR,
Kristján Finnbogason, lék fyrsta leik
sinn með Lommel og mátti hirða bolt-
ann fjórum sinnum úr netinu. Að
sögn Guðmundar var Kristján einn
besti leikmaður liðsins þrátt fyrir allt.
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
1 20,11.1999 |
1/2/3
FIMMFALDUR
t. VINNINGUR Á
LAUGARDAGINN
Jókertölur vikunnar
9 7 4 8 5
Vinningar Fjöldi vinninga Upphæö á mann
5 tölur 0 1.000.000
4 Sl'ÖUStU 2 100.000
3 síðustu 16 10.000
2 síðustu 166 1.000
(flp7
VINNINGSTOLUR
MIÐVIKUDAGINN
17.11.1999
AÐALTÖLUR
/l/8/l0 í
(«« (44
BÓNUSTÖLUR
(32(40
Vlnnlngar
1. 6 af 6
2. 5 af 6 + Bómis
3. 5 af 6
4. 4 af 6
Fjöldi
vlnninga
231
3. 3af6+BÚNUS 525 440
I
Vinnings-
upphæð
20.307.170
2.711.240
340.320
2.340
TRYGGVI FRAMLENGDI SAMNINGINN VK> TROMS0/C3
Alltaf á
rikudí
Uppíýsingar;
LOnÓ 5/38
1. vinningur verður fimmfaldur næst.
Bónusvinningurinn kom á miða sem
seldur var í Lukkustjornunni,
Langholtsvegi 126, Reykjavík.
JÓKER
Annar vinningur kom á miða sem var
seldur í Snælandi, HáhoRi 14,
Mosfellsbæ, og að Hlíðarenda,
Austurvegi 3, Hvolsvelli.
VÍKINGALOTTÓ
1. vinningur fór til tveggja aðila í
Noregi.
Upplýsingar í síma:
568-1511
Textavarp:
i 281, 283 og 284
I þágu öryrkja, ungmonna og Iþrótta