Morgunblaðið - 23.11.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 23.11.1999, Síða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Stórsig- ur hjá Dormagen ÞÝSKA handknattleiksliðið, Bayer Dormagen, undir stjóm Guð- mundar Þ. Guðmundssonar, vann stórsigur á liði Sigurðar Bjarnasonar, D/M Wetzlar, 30:19, á heimavelli um helgina. Á sama tíma lagði Essen, með Patrek Jóhannesson og Pál Þórólfs- son innanborðs, liðsmenn Nordhorn í Essen, 25:22, en Guð- mundur Hrafnkelsson leikur í marki Nordhorn. Þá vann Eisenach, lið Julians Roberts Duranona, einkar óvæntan sigur á liðsmönnum GWD Minden, 25:24, en Minden hefur verið á hraðri siglingu upp á síðkastið og hefði með sigri komist upp í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar. Dormagen hefur átt erfitt upp- dráttar á leiktíðinni, en er liðið fékk D/M Wetzlar sýndi það allar sínar bestu hliðar og vann öruggan ellefu marka sigur, 30:19. Staðan í hálfleik var 16:10 og á fyrstu sex mínútum síðari hálfleiks bættu leik- menn Dormagen við fjórum mörk- FOLX ■ VALA Flosadóttir úr ÍR hefur verið valin fijálsíþróttamaður árs- ins af Frjálsíþróttasambandi ís- lands, FRI, en tilkynnt var um valið í hófi sl. laugardag, en að jafnaði tii- kynna sérsambönd ÍSÍ um val sitt í sameiginlegu hófi í lok hvers árs. Frjálsíþróttamenn kusu hins vegar að ríða á vaðið og vera með sérstakt hóf til þess að kynna val sitt. ■ VALA var einnig valin frjálsí- þróttakona ársins 1999 af FRI en hún varð m.a. silfurverðlaunahafi í stangarstökki á heimsmeistaramót- inu innanhúss í mars sl. og þá vann hún gullverðlaun I sömu grein á Evrópumeistaramóti 23 ára og yngri í Gautaborg í júlí sl. ■ JÓN Arnar Magnússon, tug- þrautarmaður úr Tindastóli, er frjálsíþróttakarl ársins 1999, en hann bætti eigið Norðurlandamet í sjöþraut á heimsmeistaramótinu í Japan í mars um 123 stig, fékk 6.293 stig og varð í 5. sæti. ■ SILJA Úlfarsdóttir, FH, hlaut bikar í hófi FRI fyrir bestan árang- ur í spretthlaupum á árinu, en bik- arinn ber nafn Jóns Halldórssonar, IR. Jón keppti fyrstur Islendinga í frjálsíþróttum á Ólympíuleikum í Stokkhólmi 1912 og var á meðal keppenda í 100 metra hlaupi. ■ EINAR Karl Hjartarson, há- um gegn engu og náðu tíu marka forskoti, 20:10. Afram héldu þeir og skömmu fyrir leikslok var staðan 30:16. Héðinn Gilsson átti prýðis- leik, sennilega sinn besta á leiktíð- inni, og skoraði sex mörk. Þá lék Daði Hafþórsson einkar vel og gerði 5 mörk. Þriðji íslenski leikmaðurinn í liði Dormagen, Róbert Sighvats- son, gerði eitt mark, en hann er að jafna sig eftir meiðsli í læri. Sigurður Bjamason lék ekki stórt hlutverk hjá Wetzlar, skoraði að- eins eitt mark úr vítakasti. Þá varði Andreas Thiel, markvörður Dor- magen, frá honum vítakast. Með sigrinum er Dormagen komið með sjö stig og færðist upp um eitt sæti, upp fyrir Wuppertal sem er með 6 stig að loknum 11 leikjum, einum færra en Dormagen. Wuppertal lék ekki um helgina, en aðeins þrír leik- ir voru í þýsku 1. deildinni um liðna helgi vegna þátttöku þýskra liða í Evrópumótunum. Patrekur Jóhannesson skoraði fjögur mörk, þar af eitt úr vítakasti er Essen skaust upp í 2. sæti deild- arinnar með 25:22 sigri á Guðmundi Hrafnkelssyni og samherjum í Nordhom. Essen hefur 18 stig. Staðan í hálfleik var jöfn, 13:13, en viðureignin fór fram í Essen. Páll Þórólfsson var ekki á meðal marka- skorara Essen að þessu sinnL Þjálf- ari Essen, Jöm-Uwe Lommel, sagði að leikurinn hefði verið sá besti sem sitt lið hefði sýnt á leiktíðinni. Stef- an Hecker, markvörður Essen, sem stendur á fertugu, fór á kostum einu sinni sem oftar. Líkt og Dormagen vann Eisenach mikilvægan sigur í neðri hluta deildarinnar. Eisenach vann GWD Minden, 25:24, á heimavelli og er nú komið með átta stig að loknum 12 leikjum. Morgunblaðið/Jens Wolf Ólafur Stefánsson (tv.) skoraði tíu mörk fyrir Magdeburg, en það dugði ekki - liðið er fallið úr Evrópukeppninni. Áfall hjá Magdeburg HANDKNATTLEIKUR stökkvari úr IR, fékk bikar sem kenndur er við Berg Hallgrimsson, fyrrverandi langhlaupara frá Fá- skrúðsfirði, fyrir besta afrek ung- lings undir tvítugu, en Einar mun hafa stokkið hærra en nokkur ann- ar 19 ára unglingur í Evrópu á ár- inu - 2,22 metra. Magdeburg, sem sigraði í EHF- keppninni sl. vor, féll úr leik í sömu keppni í 16-liða úrslitum nú er það náði aðeins að vinna eins marks sigur á heimavelli gegn Braga frá PortúgaJ, 24:23, en Braga vann fyrri leikinn með þriggja marka mun. Ólafur Stef- ánsson var besti maður Mag- deburg, skoraði 10 mörk. Var þetta 99. leikur Magdeburg, sem nú leik- ur undir stjóm Alfreðs Gíslasonar, í Evrópukeppni. Eftir þriggja marka tap á útivelli fyrir rúmri viku voru liðsmenn Magdeburg staðráðnir í að snúa taflinu við á heimavelli. Þeir léku vel lengst af fyrri hálfleiks og að- eins tveimur mínútum fyrir hálfleik voru þeir komnir með fimm marka forskot, 12:7. í hálfleik munaði þremur mörkum, staðan 12:9. Eftir aðeins þriggja mínútna leik í síðari hálfleik hafði portúgalska liðið jafn- að metin, 12:12, og eftir það var leikurinn í járnum allt þar til yfir lauk og heimamenn náðu að merja eins marks sigur. Beðiö eftir svari frá Túnis HANDKNATTLEIKSSAMBAND Túnis hefur enn ekki gefið endanlegt svar um hvort karlalandslið þess komi til íslands í janúar og leiki gegn íslenska Iandsliðinu. Að sögn Þorbjörns Jenssonar, þjálfara landsliðsins, hafa Túnisbúar lýst yfir miklum áhuga á að koma en þeir hafi þurft að ganga úr skugga um að för Iiðsins stangist ekki á við leiki í deildar- keppninni þar í landi. Þorbjörn sagði að Túnisbúar hefðu ætlað að gefa svar fyrir helgi en af því hefði ekki orðið. Þorbjörn kvaðst engu að síð- ur bjartsýnn um að leikirnir, sem eru fyrirhugaðir 13., 14. og 15. janúar, færu fram. Hamarsmenn hafa sent Rodney Deen heim Rodney Deen, leikmaður Hamars í Hveragerði, var sendur heim til Bandaríkjanna, hélt af landi brott á laugardaginn. Astæðan fyrir brottvikningunni er að stærstum hluta framferði leik- mannsins inni á vellinum þar sem óþarfa brottvikningar og leikbönn fylltu mæli stjómarmanna. „Við stefnum á að vera án er- lends leikmanns fram yfir áramót og treystum við okkar strákum fullkomlega í verkefiiin fram að jólum. Það kemur maður í manns stað og aðrir fá tækifæri," sagði Lárus Friðfinnsson, formaður deildarinnar. „Hugmyndin er svo að leita fyrir sér og fá erlendan leikmann til liðsins eftir áramótin." Það er því Ijóst að fækkað hef- ur um tvo í hópi þeirra Hvergerð- inga frá mótsbyrjun þar sem Æg- ir Gunnarson er einnig frá í vetur vegna meiðsla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.