Morgunblaðið - 23.11.1999, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 C 3
ÍÞRÓTTIR
TVyggvi framlengdi
samninginn við Th>mso
TRYGGVI Guðmundsson hefur
framlengt samning sinn við
norska úrvalsdeildarliðið
Tromso til eins árs. Tryggvi,
sem hafði áður hafnað nýjum
samningi við liðið, sagðist
hafa samið við félagið vegna
þrýstings frá forráðamönnum
liðsins um að ekki yrði öruggt
að hann yrði í byrjunarliði fé-
lagsins á næsta tímabili og að
hann fengi ekki að fara í æf-
ingaferðir með því.
Eg átti fund með Gunnari Wil-
helmsen, formanni félagsins,
fyrir helgi þar sem við ræddum
málið til þaula. Niðurstaðan varð
sú að ég skrifaði undir nýjan samn-
ing, sem gildir til nóvember 2001,
með þeim skilyrðum að þeir að-
stoði mig við að komast að hjá öðru
liði næsta sumai' eða eftir tímabilið
á næsta ári. Þessi framlenging á
samningi mínum tryggir þeim ein-
faldlega að þeir fái eitthvað fyrir
mig í stað þess að ég yrði laus allra
mála frá félaginu næsta haust. Sá
samningur sem ég gerði við félagið
er talsvert betri en sá fyrri og felur
í sér launahækkun."
„Þýðir ekkert
að hlaupa í fýlu“
Tryggvi sagði bagalegt hvernig
sín mál hefðu þróast hjá félaginu
en kvaðst hafa skilning á sjónar-
miðum forsvarsmanna þess. „Það
þýðir ekkert að hlaupa í fýlu þrátt
fyrir að þeir hafi hótað harkaleg-
um aðgerðum gegn mér. Þeir reka
fyrirtæki og vilja skiljanlega geta
selt mig fyrir álitlega upphæð í
stað þess að missa mig án þess að
fá neitt fyrir mig eftir næsta tíma-
bil.“
Donell
Morgan
farinn
frá
Njarðvík
NJARÐVÍKEMGAR hafa lát-
ið bandarískan leikmann
liðsins, Donell Morgan, fara
frá því. Morgan er þriðji
Bandaríkjamaðurinn sem
fer frá liðinu. Félagið Iét
Purnell Perry fara í upp-
hafi tímabils og í hans stað
kom Jason Hoover, sem
óskaði að fara frá félaginu
eftir nokkra leiki. Njarðvík-
ingar fengu því Morgan en
hann lék aðeins tvo leiki
með liðinu og fór á laugar-
dag.
Gunnar Þorvarðarson,
formaður körfuknattleiks-
deildar, sagði að Morgan
hefði ekki staðið undir
væntingum. „Hann var
sagður í góðu formi en þeg-
ar til kastanna koin var
hann úthaldslaus og gat lít-
ið leikið með. Því var tekin
ákvörðun um að láta hann
fara. Við ætlum að spila án
erlends Ieikmanns í desem-
ber og skoða stöðuna um
áramót.“
Tryggvi Guðmundsson verður áfram í herbúðum Tromso
Morgunblaðið/Golli
Sameiginlegt lið Hamars og Ægis
Knattspyrnudeild Hamars frá
Hveragerði og Ægir frá Þor-
lákshöfn hafa náð samkomulagi
um að senda sameiginlegt meist-
araflokkslið og 2. flokk til keppni
næsta sumar. Foiráðamenn félag-
anna hyggjast skrifa undir sam-
komulag 10. desember. Þá er
hugsanlegt að Knattspymufélag
Rangæinga frá Hvolsvelli taki þátt
í samvinnu fyrrnefndra félaga.
Ægir féll úr 2. deild síðasta
sumar en Hamar lék í 3. deild og
því sameiginlegt lið leikur í 3.
deild. Yngvi Karl Jónsson, for-
maður knattspyrnudeildar
Hamars, sagði að miklai- vonir
væru bundnar við samstarf Ægis
og Hamars og markmiðið væri að
koma sameiginlegu liði í úrslita-
keppni 3. deildar.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Auðunn annar á HM
Auðunn Jónsson nældi í silfurverðlaun í 125 kg flokki á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum sem
fram fór á Ítalíu um helgina. Hann lyfti samtals einu tonni. Rússinn Maxim Podynni sigraði í flokkn-
um, lyfti 2,5 kg meira en Auðunn. Þrjátíu keppendur voru skráðir til leiks í þessum þyngdarflokki og
var Auðunn með besta árangurinn fyrir mótið.
Ríkharður bíður svars frá Hamborg
ÝSKA 1. deildarliðið
Hamburger Sport Verein
hyggst taka ákvörðun í þessari viku
um hvort félagið geri kauptilboð í
Ríkharð Daðason, landsliðsmiðherja
og Ieikmann Vikings frá Stavangri.
Ríkharður sagðist búast við að
þýska félagið tæki ákvörðun í lok
vikunnar en á meðan ýtti hann öðr-
um áhugasömum félögum, eins og
belgíska liðinu Lokeren, til hliðar.
Æfingar hjá Viking hefjast næsta
mánudag en Ríkharður sagðist gera
sér vonir um að þýska félagið hefði
tekið ákvörðun fyrir þann tíma.
Stefán
; áskot-
i skónum
í Belgíu
STEFÁN Gíslason skoraði
; eitt mark og lagði upp tvö ]
er hann lék með varaliði
belgíska liðsins Lommel
sem vann varalið Lierse 8:3
á föstudag. Stefán er til
reynslu hjá hollenska liðinu
Roda JC Kerkrade en
vegna reglna þar í landi
getur hann ekki leikið opin-
bera leiki með aðal- eða
; varaliði nema hann sé
skráður í félagið. Af þeim
sökum óskaði hollenska lið-
ið eftir því við Lommel að
Stefán fengi að leika með
varaliði belgíska liðsins.
Stefán, sem er samnings-
bundinn norska Iiðinu
Stremsgodset, sagðist
ánægður með frammistöðu
í sina i leiknum og að hann
kæmi til með að leika vin-
áttuleik með Roda gegn
þýsku liði á miðvikudag.
Hann sagði að eftir þann
leik kæmi í ljós hvort félag-
ið hygðist bjóða honum
samning. Hann sagði að
; fleiri lið hefðu sýnt sér
áhuga, meðal annars hol-
Ilenska liðið FC Utrecht, en
útsendari frá liðinu hefði
fylgst með sér er hann lék
með Lommel fyrir helgi.
FOLK
■ CARL Lewis, nífaldur Ólympíu-
meistari í spretthlaupum og lang-
stökki frá Bandaríkjunum var val-
inn frjálsíþróttakarl aldarinnar í
kjöri sem Alþjóða frjálsíþróttasam-
bandið, IAAF, stóð fyrir, en niður-
stöður þess voru tilkynntar í hófi
IAAF í Mónakó um helgina.
■ FANNY Blankers-Koen frá
HoIIandi hlaut nafnbótina frjálsí-
þróttakona aldarinnar í kjöri Al-
þjóða frjálsíþróttasambandsins.
■ BLANKERS-Koen er nú 81 árs
og var upp á sitt besta á árunum eft-
ir seinna stríð. Þá vann hún m.a.
fern gullverðlaun á Ólympíuleikun-
um í Lundúnum 1948, í 100 og 200
metra hlaupi, 80 metra grindahlaupi
og 4 x 100 metra boðhlaupi.
■ BLANKERS-Koen var besti lang-
stökkvari kvenna í heiminum árið
1948 og m.a. heimsmethafi, en hún
keppti eigi að síður ekki í greininni á
ofangreindum leikum. Var það sök-
um þess að á þeim áimm máttu kon-
ur aðeins taka þátt í þremur ein-
staklingsgreinum að hámarki auk
boðhlaupa. Því varð Blankers-Koen
að velja á milli greina og hún kaus
að sleppa langstökkinu.
■ NU er hins vegar búið að breyta
reglunum og konur mega, líkt og
karlar, taka þátt í eins mörgum
greinum í frjálsíþróttum á Ólympíu-
leikum og þær vilja, nái þær tilsettu
lágmarki. Þess má m.a. geta að
spretthlauparinn Marion Jones,
Bandaríkjunum, stefnir að því að
vinna fimm gullverðlaun í kvenna-
flokki á Ólympíuleikunum í Sydney
á næsta ári.
■ MICHAEL Johnson, heimsmet-
hafi og heimsmeistari í 400 metra
hlaupi karla, frá Bandaríkjunum,
hefur verið kjörinn fjálsíþróttakarl
ársins 1999 af Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandinu og hlaupadrottningin
Gabriela Zsabó, Rúmeníu, fijálsí-
þróttakona ársins.