Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 C 5
SUND
Jakob
! maður
mótsins
i MAGNÚS Tryggvason
? sagði að árangur Jakobs
, Jóhanns Sveinssonar í 200
; metra bringusundinu hafi
| verið sá árangur sem stað-
| ið hafi upp úr á bikarmót-
inu. „Þetta var frábært
|j sund hjá honum. Jakob er
í gríðarlegt efni og þótt
hann hafi verið að ná þess-
? um árangri er fullt af hlut-
: um sem enn er hægt að
l bæta hjá honum. Hann er
? ótrúlega duglegur að æfa
, og viljugur. Hefur góðan
þjálfara og fær góðan
: stuðning frá íjölskyldu
sinni. Hann er að uppskera
* eins og hann sáir. Sem
dæmi um áhuga hans hef-
j ur hann verið að hringja í
þjálfarann sinn og spurt
hvort hann gæti fengið
} létta þriggja til íjögurra
kílómetra aukaæfingu,
svona rétt til að æfa snún-
i ingana. Eg er sannfærður
um að hann á eftir að bæta
■ sig enn frekar,“ sagði
* Magnús.
Morgunblaðið/Ásdís
Jakob Jóhann Sveinsson úr Ægi og Lára Hrund Bjargardóttir úr SH settu glæsileg íslandsmet í bíkarkeppni SSÍ um helgina. Þau keppa
bæði á Evrópumeistaramótinu í Portúgal í næsta mánuði.
Jakob Jóhann Sveinsson setti glæsilegt met í 200 metra bringusundi
Lífið er að synda,
bovða, læra og sofa
„ÉG ER mjög ánægður með árangurinn,“ sagði sundmaðurinn
efnilegi úr Ægi, Jakob Jóhann Sveinsson, sem setti glæsilegt
íslandsmet í 200 metra bringusundi. Bætti met Hjalta Guð-
mundssonar um 2,3 sekúndur. „Þjálfarinn minn sagði fyrir mót-
ið að ég ætti ekki að vera í toppæfingu núna, en að ég ætti þó
möguleika á að ná metinu þrátt fyrir það. Ég hvíldi aðeins fyrir
mótið og kannski hefur það gert gæfumuninn,“ sagði hann.
Jakob Jóhann setti pútamet í
100 metra skriðsundi, synti á
1.03,66 mín. og var 0,33 sek. frá ís-
landsmetinu. „Ég
Valur B. var nýbúinn að
Jónatansson synda 200 metra
skrifar fjórsund og því var
ég ekki vel hvíldur
fyrir 100 metrana. Ég er því mjög
ánægður með tímann í þeirri grein
Eðvarð Þór
sýndi
gamla takta
EÐVARÐ Þór Eðvarðsson,
sundþjálfari Keflvíkinga sem
er orðinn 32 ára, synti 100
metra baksund fyrir félagið.
Hann náði þriðja sæti og
synti á 1.00,38 mín., en hann
náði enn betri tíma í
baksundssprettinum í 4x100
m Ijórsundinu, næstbesta
tíma Islendings í ár, næstur
á eftir Erni Arnarsyni.
Eðvarð Þór var upp á sitt
besta fyrir 12 árum og virð-
ist litlu hafa gleymt. „Hann
var að senda yngri sund-
mönnunum ákveðin skilaboð
með því að synda á næst-
besta tímanum í 100 metra
baksundi," sagði Magnús
Tryggvason, formaður
landsliðsnefndar.
miðað við aðstæður," sagði Jakob
sem verður 17 ára á morgun. „Eig-
um við ekki að segja að metið hafi
verið góð afmælisgjöf."
Jakob er ekki langt frá ólympíu-
lágmarkinu í 200 metra skriðsundi
og segist ætla að stefna að því að
ná því á Sjálandsmótinu í Dan-
mörku í janúar, en þar verður
keppt í 50 metra laug og tímarnir
sem nást þar eru viðurkenndir af
Alþjóða Sundsambandinu sem lág-
mörk fyrir ÓL.
Lítill tími fyrir annað
en sund
Hvað æfír þú oft í viku?
„Ég æfi sund tíu sinnum í viku
og lyfti síðan þrisvar í viku. Þetta
eru um 25 klukkstundir á viku sem
fara í sundið. Það er því lítill tími
fyrir annað en sundið og skólann.
Það má segja að lífið hjá mér sé
bara; að sofa, borða, læra og
synda.“
Ertu farinn að gæla við að kom-
ast á Ólympíuleikana í Sydney?
„Já, ég neita því ekki. Fyrir ári
hugsaði ég ekki um Ólympíuleik-
ana enda fjarstæður draumur þá.
Ég hugsaði um að reyna að ná inn
á Evrópumeistaramótið árið 2000,
en síðan stend ég frammi fyrir því
að eiga mögleika á að komast á
Ólympíuleikana á næsta ári.“
Ótrúlegar
framfarir
Framfarir Jakobs hafa verið
ótrúlegar á einu ári. Hann hefur
bætt sig um fimm sekúndur í 200
metra bringusundi og þrjár sek-
úndur í 100 metra bringusundi.
Sannarlega efnilegur sundmaður
sem á vafalítið eftir að láta mikið
að sér kveða í framtíðinni.
Lára Hrund Bjargardóttir var sigurvegari í þremur greinum
Ég átli ekki
Eg átti ekki von á því að setja
met á þessu móti. Stefnan hjá
mér var að bæta það á Evrópu-
meistaramótinu eftir þrjár vikur,“
sagði Lára Hrund Bjargardóttir,
sem setti íslandsmet í 200 metra
skriðsundi kvenna.
Hún sigraði einnig í tveimur öðr-
um greinum, 200 m fjórsundi og
100 m skriðsundi og var auðvitað
bikarmeistari með liði sínu, SH.
Lára Ilrund sagði að samkvæmt
æfingaáætlun ætti hún ekki að
„toppa“ fyrr en á Sjálandsmótinu í
Danmörku í janúar. „Ég vona að
þessi árangur gefi fyrirheit um enn
betri árangur á komandi vikum.
Stefnan hjá mér á EM er að kom-
ast í A-úrslit. Ég þarf að bæta tím-
ann minn eitthvað til þess og það á
ég alveg að geta gert. Ég er búin
að æfa rosalega vel,“ sagði Lára
Hrund. „Það er alltaf jafn gaman
að keppa á bikarmóti og ekki
skemmir að sigra enn einu sinni.
Það var mikil stemmning á meðal
áhorfenda og við vorum með unga
krakka úr SH sem studdu vel við
bakið á okkur allan tímann," sagði
hún.
Örn eini
undir
ÓL-lág-
marki
ORN Arnarson, SH, er eini
íslenski sundmaðurinn sem
synt hefur undir íslenska
ólympíulágmarkinu fyrir
ÓL í Sydney á næsta ári.
Hann þarf reyndar að
synda undir lágmarkinu á
næsta ári til að öðlast
keppnisrétt í Sydney.
Magnús Tryggvason,
formaður landsliðsnefndar
SSI, segist búast við því að
Islendingar verði með
fjóra til sex keppendur á
Olympíuleikunum í Sydn-
ey. „Já, ég held að það sé
raunhæft að áætla að við
verðum með fjóra til sex
keppendur. Jakob Jóhann
er næstur Erni að ná lág-
markinu, eða aðeins 0,54
sekúndum frá því í 200
metra bringusundi. Iljalti
Guðmundsson, SH, er 0,50
sek. frá í 100 m bringu-
sundi, Ríkarður Ríkarðs-
son, sem æfir í Bandaríkj-
unum, er 0,98 sek. frá því í
100 metra flugsundi og
Friðfinnur Kristinsson frá
Selfossi 0,71 sek. frá því í
50 metra skriðsundi. Hjá
stúlkunum er Kolbrún Ýr
0,78 sek. frá lágmarkinu í
100 m baksundi, Eydís er
0,9 sek frá ÓL-lágmarkinu
í 100 metra flugsundi og
Lára Hrund er 1,5 sek. frá
því í 200 m skriðsundi,“
sagði Magnús.
Magnús segir að ís-
lensku ólympíulágmörkin
séu mitt á milli A- og B-
lágmarka sem Alþjóða
sundsambandið hefur sett
fyrir Sydneyleikana.