Morgunblaðið - 23.11.1999, Síða 6
6 C ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR
Mosfellingar
fóru hamförum
Oft er því haldið fram að hand-
knattleikur snúist fyrst og
fremst um það að leika góða
vörn. Ef eitthvað er að marka
þá fullyrðingu, sannaðist það í
Framhúsinu á sunnudagskvöld
að Afturelding er langbesta
handknattleikslið íslands og
þegar leikmenn þess ná sér á
strik standast engir þeim
snúning. Mosfellingar báru þar
sigurorð af Frömurum í
toppslag fyrstu deildar og hafa
nú fjögurra stiga forskot á
næsta lið þegar mótið er tæp-
lega hálfnað.
Heimamenn létu gestina þó svo
sannarlega hafa fyrir sigrinum
og virtust um tíma hafa örugga for-
ystu í leiknum, í
Stefán stöðunni 15:10. Þá
Pálsson tóku hinir hvít- og
skrifar rauðklæddu til sinna
ráða, skoruðu fjórt-
án af síðustu nítján mörkunum og
sigruðu með 24 mörkum gegn 20.
Það má segja að fyrri hálfleikur
hafí verið einvígi markvarðanna.
Fæstir munu mótmæla því að þeir
Bergsveinn Bergveinsson og Seba-
stían Alexandersson séu bestu
markverðir deildarinnar og virtust
þeir staðráðnir í að festa þá skoðun
enn rækilegar í sessi. Áður en
flautað var til leikhlés hafði Berg-
sveinn varið níu skot en Sebastían
ellefu, mörg hver úr dauðafærum
andstæðinganna.
Það sem skildi þó á milli liðanna,
var fii-nasterk vöm Framara sem
kom sóknarmönnum Mosfellinga
gjörsamlega í opna skjöldu. Svo
dæmi sé tekið, skoraði línumaður-
inn snjalli, Magnús Már Þórðar-
son, aðeins eitt mark í leiknum og
hornamennirnir náðu lítt að ógna
markinu. Á hinum helmingi vallar-
ins gekk Frömurum einnig allt í
haginn, Robertas Pouzolis lék af-
bragðsvel og heimamenn gengu til
búningsklefa með þriggja marka
foiystu í hálfleik; 12:9.
I upphafi síðari hálfleiks virtist
sem hinir bláklæddu ætluðu að
ganga á lagið og vinna óvæntan
stórsigur á meisturunum. Þegar
tæpar fimm mínútur voru liðnar,
var forysta þeirra orðin fimm mörk
og gestimir tveimur leikmönnum
fæn-i. En þetta mótlæti virtist
duga til að vekja leikmenn Aftur-
eldingar til lífsins. Vörnin small
saman og næsta stundarfjórðung-
inn skoruðu heimamenn einungis
eitt mark. Einar Gunnar Sigurðs-
son og Alexei Troufan fóru á kost-
um og hreinlega léku sér að sókn-
armönnum Framara. Var þar
raunar skarð fyrir skildi að hinir
hávöxnu leikmenn, Pouzolis og
Gunnar Berg, virtust týndir og
tröllum gefnir. Mæddi því mest á
þeim Guðmundi Helga Pálssyni,
Norðmanninum Kenneth Ellertsen
og hinum bráðefnilega Vilhelm
Bergsveinssyni í sókninni og er
skemmst frá því að segja að þeir
hafa enga líkamsburði til að sigrast
á varnarmönnum Mosfellinga í
slíkum ham.
Framganga Troufans og Einars
Gunnars í vörninni reyndist gest-
unum einnig hvatning í sókninni,
þar sem þeir skoruðu hvert markið
á fætur öðru. Bjarki Sigurðsson
var öflugur að vanda, en einnig
áttu þeir Gintaras og Gintas frá
Lithaugalandi góðan leik.
Morgunblaðið/Ásdís
Skúli Gunnsteinsson stjórnar sínum mönnum.
Hvað? ég gerði ekkert .
Morgunblaðið/Ásdís
Þorkell Guðbrandsson sakleysið uppmálað er dómarinn Hafsteinn Ingibergsson gefur honum tiltai.
Morgunblaðið/Ásdís
Bjarki Sigurðsson, lykilmaður Aftureldingar, sækir að Gunnari Berg Viktorssyni.
FOLK
■ STUÐNINGSMENN Fram söfn-
uðust saman á skemmtistaðnum
Jensen í Armúla fyrir leikinn gegn
Aftureldingu. Er ætlunin að halda
þeim sið áfram í vetur til að stilla
saman strengi og ræða málin í
góðu tómi.
■ DÓMARARNIR í leik Fram og
Aftureldingar, þeir Gísli Jóhanns-
son og Hafsteinn Ingibergsson frá
Keflavík, eru laghentir menn og
hikuðu ekki við að ganga í störf
húsvarðar í Framhúsinu. Þegar
þeir urðu varir við að flísar í park-
eti vallarins höfðu losnað, stöðvuðu
þeir leikinn snarlega, náðu í lím-
band og festu þær niður hratt og
örugglega eins og bestu iðnaðar-
menn.
Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftureldingar, eftir sigurinn á Fram
„Það er ekki kom-
inn hálfleikur"
Iosfellingar voru kampa-
kátir í leikslok, enda staða
liðsins orðin býsna vænleg.
Skúli Gunnsteinsson, þjálfari
liðsins, viðurkenndi fúslega að
lið hans hafi ekki leikið vel í
fyrri hálfleik. „Við vissum að
þessi leikur yrði sannkallaður
toppslagur. Við höfum ekki tap-
að leik í vetur, en Framarar
hafa fylgt fast á hæla okkar all-
an tímann. Ef til vill vorum við
því fullfeimnir í upphafi, sem
kom fram í því að sóknin var
slök og vörnin náði ekki nógu
vel saman. í leikhléi tókum við á
þessu og náðum að þétta vörn-
ina. I kjölfarið náðum við
nokkrum góðum hraðaupp-
hlaupum sem reyndust okkur
mjög drjúg.“
Aðspurður um það hvort Mos-
fellingar væru ekki orðnir
óstöðvandi í deildinni, vildi Skúli
ekki fallast á það. „Vissulega er
staðan orðin þægileg og það var
mjög mikilvægt að ná að sigra
hér í Fram-heimilinu, en það eru
ótal dæmi um það að lið hafí
misst niður góða forystu. Eg
minni á að fyrri umferð íslands-
mótsins er enn ekki lokið - það
er ekki kominn hálfieikur."
Leikmenn Fram voru ekki
eins ræðnir að leik loknum, nema
þá helst þegar kom að því að
skammast út í dómara og eftir-
litsmann leiksins. Njörður Árna-
son, hornamaðurinn snjalli, hitti
þó naglann á höfuðið þegar hann
sagði að Framarar gætu einung-
is sjálfum sér um kennt að hafa
tapað leiknum. „Það var mjög
sárt að tapa þessum leik. Við
vörðumst vel í fyrri hálfleik en
eftir hlé brugðumst við í sókn-
inni, meira er ekki um það að
segja.“
Morgunbiaðið/Ásdís
Robertas Pouzolis sækir að marki Afturlendingar, en fær ekki blíðar móttökur hjá
Jóni Andra Finnssyni og Einari Gunnari Sigurðssyni.
Hlynur átti lokaorðið
HK-menn mætu ákveðnir til leiks er þeir fengu Eyjamenn í heimsókn
í Digranes á laugardaginn. Varnarleikur þeirra var traustur og þá var
Hlynur Jóhannesson í miklum ham í marki Kópavogsliðsins, varði
hvað eftir annað mjög vel, alls 19 skot. Það var við hæfi að hann
ætti lokaorð leiksins, er hann skora síðasta mark HK-manna, sem
fögnuðu öruggum sigri, 26:20.
Leikurinn fór rólega af stað og var
jafnræði með liðunum til að byrja
með. Þegar Eyjamenn misstu Miro
■■■■ Barisic útaf á 19. min.
Sesselja Dagbjört náðu HK-menn góðum
Gunnarsdóttir leikkafla - skoruðu þrjú
sknfar. mörk í röð og komust í
9:6. Eins og fyrr segir
þá áttu Eyjamenn í erfiðleikum með
vörn HK-manna, sem voru ákveðnir að
halda yfirhöndinni og voru þeir yfir í
leikhléi, 11:9.
Leikmenn HK komust í 14:11 í byijun
seinni hálfleiksins og þó svo að tveimur
leikmönnum Kópavogsliðsins hafi verið
vikið af leikvelli náðu Eyjamenn komast
inn í leikinn. Þeir réðu ekki við Hlynur,
markvörður, sem lokaði marki HK-liðs-
ins þannig að Eyjamenn náðu ekki að
skora nema tvö mörk á níu mín. leikka-
-H-
fla. Sigur HK var í öruggri höfn og und-
ir lokin bættu leikmenn liðsins við for-
skot sitt og það var maður leiksins -
Hlynur, markvörður, skoraði síðasta
mark leiksins, er hann kastaði knettin-
um frá marki sínu - yfir markvörð Eyja-
manna, sem var kominn út á völlinn.
Baráttan var góð hjá leikmönnum
HK. Hornamaðurinn Guðjón Hauksson
náði sér vel á strik og skoraði mörg fal-
leg mörk úr hominu, alla sex. Þá voru
þeir Atli Þór Samúelsson og Helgi Ara-
son ógnandi.
Miro Barisic og Guðfinnur Krist-
mannsson voru bestir hjá Eyjamönnum,
sem eiga í erfiðleikum með að ná yfir-
vegun í leik sínum á útivöllum.
Hurð skall nærri
hælum KA
KA krækti sér í tvö mikilvæg stig í heimsókn sinni í Hafnarfjörð
þar sem það atti kappi við Hauka, lokatölur 25:24. Þar með
heldur KA þriðja sætinu á markamun einu stig á eftir Fram og
sjö stigum á eftir forystusauðum deildarinnar, Mosfellingum.
Sigur KA stóð glöggt því Haukar saumuðu mjög að gestum sín-
um á lokasprettinum með framliggjandi vörn sem nærri hafði
fært þeim annað stigið en baráttuglaðir norðanmenn náðu að
halda fengum hlut, Haukum til sárra vonbrigða enda hvert stig
mikilvægt.
Ivar
Benediktsson
skrifar
Leikmenn KA voru heldur ákveðn-
ari í fyrri hálfleik, staðráðnari í
að láta vonrbigðin í bikarleiknum
fyrr í vikunni slá sig
út af laginu. Þeir
léku ákveðna 3-2-1
vörn frá upphafi og
Haukar virtust ekki
vera undir hana búnir sem skyldi.
Heimamenn í Strandgötunni léku
hinsvegar að vanda ákveðna 6-0 vörn
sem einnig virtist ætla að halda aftur
af KA, en óvandvirkur sóknarleikur
gaf KA nokkur hraðaupphlaup sem
nægðu liðinu til þess að halda frum-
kvæði lengst af. Mikil barátta var í
leiknum og átök talsverð og setti það
talsvert mark á leikinn.
Haukar náðu einu sinni forystu í
fyrri hálfleik, 8:7, annars var foryst-
an í höndum KA og er á leið hálfleik-
inn bættist við forskotið og var hún
mest þrjú mörk en tvö mörk skildi
fylkingarnar að í leikhlé, 13:11, KA í
vih
I upphafi síðari hálfleiks virtist
KA ætla að stinga Hauka af, liðið
gerði tvö fyrstu mörkin, forystan var
fjögur mörk en brokkgengur sóknar-
leikur og brottrekstrar var vatn á
myllu Hauka sem minnkuðu muninn
í eitt mark. Aftur komust KA-menn
á skrið og náðu mest fimm marka
forskoti, 22:17, þegar rúmar tíu mín-
útur lifðu af leiknum. Þá reiddu
Haukar ffam síðasta ásinn. Breytt
var yfir í mjög ákveðna 3-3 vörn sem
leikinn var framarlega. Þrjú mörk
Hauka í röð komu í kjölfarið og leik-
urinn hafði opnast á ný. Enn varð
óvandaður sóknarleikur Haukum að
falli og KA gerði tvö mörk á „ódýr-
an“ hátt og KA náði fjögurra marka
forskoti, 24:20. Og þrátt fyrir að KA
missti mann út af um tíma og leik-
menn liðsins virtust vera orðnir lúnir
og heldur bangnir við varnartilburði
Hauka þá tókst norðanmönnum að
halda sjó út leikinn en ekki mátti
miklu muna. Síðasta tækifæri Hauka
til þess að jafna rann út í sandinn er
Kjetil Ellertsen skaut í stöng 20 sek-
Atli Hilmarsson, þjálfari KA-liðsins
Erum komnir
á siglingu á ný
„SIGURINN var feykilega mikil-
vægur því það var nauðsynlegt
að rífa sig upp eftir vonbrigðin í
bikarkeppninni siðasta miðviku-
dag er við féllum úr leik fyrir
Fram,“ sagði Atli Hilmarsson,
þjálfari KA, eftir sigurinn á
Haukum í Strandgötunni á
sunnudaginn. „En satt er það,
sigurinn stóð glöggt og varnar-
leikur Hauka á lokakaflanum sló
okkur nokkuð út af laginu. Við
urðum ragir, hreyfanleika vant-
aði í sóknarmennina, bæði með
og án bolta, og það leiddi til þess
að sóknarleikur okkar var ár-
angurslitill og oft vandræðaleg-
ur.“
Atli sagði sigurinn hafa skipt
öllu máli til þess að halda liðinu f
efri hluta deildarinnar og bar-
átta leikmanna hefði ótvírætt
verið fyrir hendi. „Eftir nokkra
lægð tel ég að við séum aftur
komnir á siglingu. Leikmenn
mínir héldu vel út í vörninni og
því ef til ekkert óeðlilegt að
þreyta hafi sagt til sín á lokakafl-
anum eftir að hafa Ieikið 3-2-1
vörn frá upphafi. Þessi tegund
varnarleiks tekur mjög á líkam-
legt atgervi manna og mínir
menn sýndu að þeir geta leikið
hana frá upphafi til enda sé því
að skipta og það er styrkleika-
merki. Nú er bara að mæta
næsta Hafnarfjarðarliði, FH, í
KA-heimilinu á föstudaginn."
Atli sagði Haukaliðið hafa leik-
ið eins og hann hefði gert ráð
fyrir, ekkert hefði komið fram í
leik þess sem komið hafi sér í
opna skjöldu. „Til þessa finnst
mér Haukar hafa leikið undir
getu á leiktíðinni, hvernig sem á
því stendur. Mér finnst meira
búa í liðinu.“
Sóknarleikur beggja liða var
brokkgengur að þessu sinni og
tók Atli undir það en sagði það
líklega eiga eftir að breytast
þegar Iengra kæmi fram á
keppnistímabilið. „Menn leggja
líklega meiri áherslu á að vinna
upp góðan varnarleik til að byrja
með, enda skiptir hann höfuð-
máli í handknattleik. Sóknarleik-
urinn slípast síðan smátt og
smátt þegar á líður.“
úndum fyrir leikslok. KA hélt bolt-
anum til leiksloka og sigurinn féll lið-
inu í skaut, en víst er að hurð skall
nærri hælum.
Bæði liðin léku ágæta vöm lengst
af og markverðir liðanna, Jónas
Stefánsson hjá Haukum og Reynir
Þór Reynisson í marki KA, sýndu
góð tilþrif. Sóknarleikurinn er hins
vegar eitthvað sem bæði lið eiga^
nokkuð í land með ennþá. Hann vill
oft vera æði tilviljunarkenndur auk
þess sem yfirvegun er ábótavant.
Engum vafa er þó undirorpið að
KA-liðið verðskuldaði sigurinn og þá
um leið stöðu sína í deildinni. Eftir
að hafa séð þrjá leiki með Haukum á
stuttum tíma finnst undirrituðum
Haukar hljóti að geta gert betur en
staða í deildinni þeirra segir til um.
■ Úrslit / C10
■ Staðan/CIO
Aron skor-
aði fimm
mörk
DÖNSKU meistararnir í
Skjern unnu sinn fyrsta sigur
í Evrópuriðlakeppninni á
laugardaginn þegar þeir
tóku á móti meisturunum frá
Sviss, TV Shur. Leikmenn
Skjern léku á als oddi í leikn-
um og unnu leikinn 29:24.
Aron lék nijög vel í leiknum,
var tekinn úr umferð í síðari
hálfleik, en gerði samt fimm
mörk og átti margar frábær-
ar línu- og stoðsendingar
sem gáfu inörk.
í dönsku deildinni eru
Skjernarpiltar komnir í 2.
sætið. Og nú í siðustu viku
var leikur þeirra á móti Vi-
borg, sem þeir töpuðu með
einu marki, dæmdur ógildur.
Dómari leiksins gerði mistök
sem hann viðurkenndi strax
og leikurinn skal spilaður
aftur.
Óskabyijun
Fylkis
dugði ekki
Iýliðar Fylkis mættu ákveðnir til
leiks er þeir tóku á móti FH-
ingum í Árbænum á sunnudaginn.
Hafnfirðingar vissu
Sesselja Dagbjört ekki hvaðan á sig
Gunnarsdóttir stóð veðrið í byrjun.
skrifar. Þegar tíu mín. voru
liðnar af leik voru
þeir búnii' að hirða knöttinn sex
sinnum úr netinu hjá sér - á sama
tíma og þeir náði aðeins að skora eitt
mark. Þessi óskabyrjun dugði nýlið-
inum ekki, það voru leikmenn FH
sem fognuðu öruggum sigri, 25:17.
Hafnfirðingar voru seinir í gang,
en þegar þeir fóru á ferðina kom í
ljós styrkleikamunurinn á liðinum.
FH-ingar gerðu þrjú mörk í röð og
bættu stöðu sína úr 8:3, í 9:6, stað-
an í leikhléi var 11:10 Fylkismönn-
um í hag.
FH-ingar voru miklu ákveðnari í
síðari hálfleik. Þegar tvær mínútur
voru búnar af hálfleiknum jöfnuðu
þeir, 11:11. Fylldsmenn svöruðu
12:11, en eftir það misstu þeir ein-
beitinguna og áttu erfítt uppdrátt-
ar. FH-ingar settu á fulla ferð,
skoruðu níu mörk í röð án þess að
heimamenn nærðu að svara fyrir
sig, 12:20. Það með voru þeir búnir
að leggja grunninn að öruggum
sigri, 25:17.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson vat*
bestur hjá Fylki, skoraði fimm ’
mörk. Guðmundur Pedersen og
Gunnar Beinteinsson voru bestu
menn FH-liðsins. Þá stóð Egidyus
Petkeuisius sig vel í markinu -
Fylkismenn áttu oft í erfiðleikum
með að koma knettinum fram hjá
honum.