Morgunblaðið - 23.11.1999, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ
8 C ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER .1999
KNATTSPYRNA
Tíu leikmenn Bayem
' skoruðu þijú mörk
Tveir sáu rautt
Argentínumaðurinn Claudio Lopez kemur Valencia hér á bragðið gegn Braceiona, sem mátti þola tap í Valencia, 3:1.
Reuters
■ Urslit / C11
iStaðan/C11
Ganamaðurinn Tony Yeboah,
fyrrum leikmaður Leeds, var í
sviðsljósinu um helgina er hann
gerði þrennu fyrir Hamborg sem
burstaði Arminia Bielefeld 5:0 í
þýsku deildinni. Þar með fór Ham-
borgarliðið upp í annað sætið,
þremur stigum á eftir Bayern
Miinchen sem vann stórsigur á
Freiburg, 6:1.
. Yeboah skoraði mörkin gegn Bi-
elefeld á 16., 49. og 74. mínútu. Hin
tvö gerðu Roy Praeger og Andre-
as Ficher í leik þar sem Hamborg
hafði mikla yfirburði frá upphafi til
enda. Besti maður Bielefeld, sem
hefur ekki unnið í sex síðustu leikj-
um, var markvörðurinn Georg
Koch sem kom í veg íýrir enn
stærra tap liðsins.
Bayem Múnceh er óstöðvandi
þessa dagana og þrátt fyrir að
vera einum leikmanni færri síðasta
hálftímann gegn Freiburg náði lið-
ið engu síður að gera þrjú mörk á
þeim kafla. Markus Babbel var
rekinn út af þegar hann fékk aðra
áminningu sína í leiknum á 58.
mínútu. Lothar Matthaús, sem er
að ljúka ferlinum hjá Bayern,
skoraði annað mark liðsins, en
meiddist undir lokin og varð að
fara útaf.
„Lothar verður væntanlega að
hvfla í eina til tvær vikur. Við lék-
um mjög vel og sjálfstraustið var
mikið í liðinu, sérstaklega eftir að
Babbel var rekinn út af,“ sagði
Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern,
sem leikur gegn Rosenborg í
Meistaradeildinni annað kvöld.
„Það er sárt að tapa 6:1,“ sagði
Volker Finke, þjálfari Freibui-g.
„Það besta sem við getum gert er
að reyna að gleyma þessum leik
sem fyrst.“
Eyjólfur Sverrisson var einn
besti leikmaður Herthu Berlín
sem tapaði óverðskuldað fyrir Ka-
iserslautern, 0:1, á heimavelli.
Varnarmaðurinn Jeff Strasser
skoraði sigurmarkið. Hertha, sem
leikur við Barcelona í Meistara-
deildinni í kvöld, er komið á hættu-
svæði í neðri hluta deildarinnar.
Kaiserslautern, sem varð meistari
í fyrra, hefur unnið þrjá síðustu
leiki sína og er komið upp í sjötta
sæti.
Botnliðið MSV Duisborg vann
fyrsta sigurinn á tímabilinu, vann
1860 Múnchen 3:0.
Athletic Bilbao gerði jafnvel bet-
ur en Valencia með því að vinna At-
letico Madrid 4:2 og missa tvo leik-
menn út af með rautt. Joseba
Etxeberria og Julen Gueirero
komu Bilbao í 2:0 áður en Rafael Al-
korta var sýnt rauða spjaldið. Jim-
my Floyd Hasselbaink kom Madri-
dingum á blað með marki úr víti, en
Garlos Garcia og Santiago Ezquer-
ro komu Bilbao í 4:1 áður en Veljko
Paunvoic minnkaði muninn í 4:2
þegar 15 mínútur voru eftir. Madri-
dingar komust ekki lengra þrátt
fyrir að Bilbao missti annan leik-
mann, Josu Urrutia, út af fjórum
mínútum fyrir leikslok.
Real Madrid, sem ekki hefur unn-
ið á heimavelli síðan í ágúst, náði
ekki að snúa blaðinu við gegn Real
Sociedad og varð að sætta sig við
jafntefli, 1:1. Savio Bortolini náði
forystunni íyrir Real Madrid í upp-
hafi síðari hálfleiks, en Jose Antonio
Pikabeo jafnaði 13 mínútum fyrir
leikslok. Madrídarliðið er nú í átt-
unda sæti deildarinnar.
Deportivo Coruna, sem vann
Sevilla 5:2, er í toppsæti deildarinn-
ar. Markvörður liðsins, Jacques
Songo, kom mikið við sögu, varði
vítaspyrnu í fyrri hálfleik og var
rekinn af leikvelli fjórum mínútum
fyrir leikslok. Pauleta Resendes
gerði þrennu fyrir Deportivo.
Celta Vigo vann Valladolid 3:1 og
er með jafnmörg stig og Deportivo í
efsta sæti, en lakara markahlutfall.
Valery Karpin gerði tvö marka
Celta og Benny McCarthy það
þriðja.
BARCELONA tapaði þriðja leiknum í röð í spænsku deildar-
keppninni um helgina, laut í gras fyrir Valencia á útivelli, 3:1.
Þrátt fyrir þjálfaraskiptin hjá Real Madrid virðast ekki mikil bata-
merki og liðið gerði aðeins jafntefli, 1:1, við Reai Sociedad á
heimavelli. Deportivo og Celta Vigo eru efst í deildínni með 24
stig eftir 12 umferðir.
Barcelona lenti 2:0 undir gegn
Valencia eftir aðeins 35 mín-
útna leik með mörkum frá Claudio
Lopez og Adrian Ilie en Boudewijn
Zenden náði að minnka muninn
mínútu fyrir feikhlé. Síðari hálfleik-
ur fór að mestu fram á vallarhelm-
ingi Valencia, en án Rivaldos, var
leikmönnum Barcelona fyrirmunað
að skora. Og það breytti engu þó
Valencia missti Daniel Fiagini út af
á 75. mínútu. Börsungar pressuðu
stíft síðustu mínútumar og var þá
fáliðað í vörninni. Það nýtti Gerard
Lopez sér er hann komst einn í
gegn og gerði þriðja mark Valencia
og gulltryggði sigurinn rétt fyrir
leikslok. Ekki bætti úr skák fyrir
Barcelona, að Dani Garcia var rek-
inn út af á lokamínútunni fyrir brot
á Andres Palop, markverði Va-
lencia.
Þrii ðja t< ip
Barcelona
A 1 i röð
|
i
Juve hafði betur í rísaslagnum
JUVENTUS er komið í annað sæti deildarinnar eftir 3:1 sigur
á AC Milan í stórleik helgarinnar á Ítalíu. Efsta liðið, Lazio,
tapaði stórt í grannaslag gegn AS Roma, 4:1, og er nú aðeins
með eins stigs forskot á Juventus. Inter náði loks að sýna sitt
rétta andlit og Fiorentina vann fyrsta sigur sinn í tvo mánuði.
Juventus hafði tögl og hagldir í
leiknum gegn AC Milan frá
upphafi til enda. Það var því þvert
á gang leiksins er Mílanóliðið
komst yfir um miðjan fyrri hálfleik
með sjálfsmarki Frakkans Zinedi-
ne Zidane. Þetta mark sló Juve
^kki út af laginu því Antonio Conte
jafnaði tveimur mínútum síðar með
skalla eftir aukaspymu Alessandro
Del Piero, sem virðist vera kominn
í toppæfingu. Juve hélt uppteknum
hætti í síðari hálfleik og aftur var
það Del Piero sem var arkitektinn
að öðru marki liðsins, sem Filippo
Inzagi skoraði. Þriðja markið gerði
Júgóslavinn Darko Kovacevic á
lokamínútu leiksins rétt eftir að
hann kom inn á sem varamaður.
Marco Delvecchio og Vincenzo
Montella gerðu tvö mörk hvor fyr-
ir AS Roma í fyrri hálfleik á móti
toppliði deildarinnar, Lazio, sem
sá aldrei til sólar fyrir framan 75
þúsund áhorfendur á Ólympíuleik-
vanginum í Róm. „Það er erfitt að
útskýra tap eins og þetta, sérstak-
lega vegna þess að leikurinn var
okkur tapaður eftir aðeins tíu mín-
útur,“ sagði Svíinn Sven Goran
Eriksson, þjálfari Lazio. Þjálfari
Roma, Fabio Capello, sagði að það
gæti reynst erfitt að leika betur en
lið hans gerði í fyrri hálfleik.
Stjörnum prýtt lið Inter Milan
náði sér vel á strik um helgina og
burstaði Lecce, 6:0. Brasilíumað-
urinn Ronaldo skoraði fimmta
markið, en yfirgaf völlinn vegna
hnémeiðsla skömmu síðar. Hann
verður líklega frá næstu tvo mán-
uði, en þess má geta að hann hefur
aðeins leikið tvo heila leiki á þess-
ari leiktíð vegna meiðsla.
Varnarmaðurinn Moreno
Torricelli lék fyrsta leik sinn fyrir
Fiorentina eftir sex mánaða hvfld
vegna meiðsla. Endurkoma hans
reyndist liðinu vel á móti Perugia
því það vann fyrsta sigur sinn í tvo
mánuði, 1:0. Alessandro Pierini
gerði markið með skalla eftir horn-
spyrnu Gabriels Batistuta níu mín-
útum fyrir leikslok.
Parma virðist heldur vera að
rétta úr kútnum eftir slaka byrjun,
vann liðið Cagliari sannfærandi,
3:1.