Morgunblaðið - 23.11.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
__________________________ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 C 9
KNATTSPYRNA
„Boro“ í kennslu-
stund á Highbury
ARSENAL burstaði Middlesbrough, 5:1, og komst í þriðja sæti
deildarinnar. Manchester United og Leeds halda sínu striki og
eru í efstu sætum deildarinnar. Liverpool gengur að sama skapi
allt í haginn, vann Sunderland um helgina og er meðal efstu liða.
Leikmenn Arsenal fóru á kostum
gegn „Boro“ - einkum voru hol-
lensku leikmennirnir hjá Arsenal,
Marc Overmars og Dennis Berg-
kamp, í miklum ham og skoruðu öll
mörk liðsins. Overmars gerði
þrennu og Bergkamp tvö mörk. Ar-
sene Wenger, knattspyrnustjóri Ar-
senal, var himinlifandi með frammi-
stöðu liðsins en sagði aðalatriðið að
það hefði einnig leikið sterkan varn-
arleik. Hann tiltók sérstaklega
frammistöðu Emmanuel Petit, sagði
að leikmaðurinn hefði verið framúr-
skarandi. Overmars var í upphafí
leiktíðar sagður líklega á leið frá
Arsenal en hann sagðist ekki hafa
neinn áhuga á að fara frá félaginu.
„Mér líður vel hjá Arsenal og langar
að vinna til fleiri verðlauna með lið-
inu.“
Bryan Robson, knattspyrnustjóri
Middlesbrough, var ekki eins bratt-
ur í leikslok og sagði að meiðsli leik-
manna hefðu sett strik í reikninginn
hjá sér. „Vitanlega var niðurdrep-
andi að tapa með þessum hætti og
erfitt að afsaka slíka frammistöðu.
Leikmenn Arsenal stjórnuðu leikn-
um og við áttum á brattann að
sækja frá byrjun."
Liverpool hefur gengið vel í úr-
valsdeildinni í undanförnum leikjum
og nú varð Sunderland, sem hafði
ekki tapað í síðustu 10 leikjum í
deildinni, fyrir barðinu á Michael
Owen og félögum. Owen var gagn-
rýndur harðlega fyinr frammistöðu
sína með enska landsliðinu í síðari
leik liðsins gegn Skotum um sæti í
Evrópukeppninni en var sagður
hafa svarað gagnrýnisröddum með
góðum leik og marki gegn Sunder-
land um helgina. Fimm breytingar
voru gerðar á leikmannahópi liðsins
fyrir leikinn gegn Sunderland og í
byrjunarliði þess var enginn leik-
maður liðsins eldri en 26 ára. Jamie
Redknapp, fyrirliði Liverpool, sagði
liðið loks á sigurbraut og að sjálfs-
traust leikmanna færi vaxandi með
hverjum leik.
Lítið gengur
hjá Chelsea
Bradford hefur barist í botnbar-
áttu frá upphafí tímabilsins og enn
einn ósigurinn var staðreynd er lið-
ið tapaði 2:1 fyrir Leeds. Þrátt fyrir
slæmt gengi hjá Bradford segir
Paul Jewell, knattspyrnustjóri liðs-
ins, úrslitin vonbrigði en að leik-
menn væru ekki búnir að leggja ár-
ar í bát. „Okkur tókst lengi vel að
halda leikmönnum Leeds í skefjum
og í raun var ekki hægt að biðja um
meira því leikmenn lögðu allt í söl-
urnar. David O’Leary, knattspyrnu-
stjóri Leeds, tók í sama streng og
sagði að leikmenn Bradford hefðu
gert sínu liði erfitt fyrir framan af
leik.
Hvorki gengur né rekur hjá Chel-
sea í úrvalsdeildinni en fyrir tíma-
bilið var liðið sagt líklegt til þess að
berjast um efstu sætin í deildinni.
Liðið hefur aðeins fengið tvö stig úr
síðustu fímm viðureignum og er í 9.
sæti deildarinnar. Chelsea gerði
l:l-jafntefli gegn Everton um helg-
ina og skoraði Tore Andre Flo jöfn-
unarmark liðsins skömmu fyrir
leikslok. Þrátt fyrir slæmt gengi
liðsins að undanförnu er Gianluca
Vialli, knattspyrnustjóri þess, bjart-
sýnn og segir að liðið eigi enn
möguleika á að gera tilkall til titils-
ins í vor. „Baráttan í deildinni er
jafnari en áður og ekki hægt að
bóka sigur gegn neinu liði. Þá er
álagið meira vegna leikja í meist-
aradeild Evrópu. En það er mikil-
vægt að koma liðinu á sigurbraut á
ný svo það eigi erindi í baráttu efstu
liða.“
Egil Olsen gleymir
ekki Tony Cottee
George Graham, knattspyrnustjóri
Tottenham, sagði að kaupin á 0y-
vind Leonhardsen hefðu komið fé-
laginu sérlega vel. Leikmaðurinn
hefur gert sex mörk fyrir félagið á
tímabilinu, þar af sigurmark þess
undir lok leiksins gegn Sout-
háiúpton um helgina. Með sigri er
Tottenham í sjötta sæti deildarinn-
ar. „Það er frábært að ná sigri þeg-
ar liðið er ekki að leika sérstaklega
vel. Leonhardsen hefur reynst okk-
ur vel og skorað mikilvæg mörk á
tímabilinu." Dave Jones, knatt-
spyrnustjóri Southampton, var
óhress með niðurstöðu leiksins og
taldi að lið sitt hefði orðið af víta-
spyrnu er brotið var á Marian Pa-
hars í upphafi síðari hálfleiks. Jones
sagðist hins vegar ekki gera neinar
athugasemdir um ákvörðun dómara
leiksins að senda Claus Lundekvam
liðsmann Southampton af leikvelli.
Tony Cottee leikmaður Leicester
gerir Egil Olsen, knattspyrnustjóra
Wimbledon, enn skráveifu. Leik-
maðurinn gerði þrennu fyrir enska
ungmennalandsliðið gegn því
norska, sem var undir stjórn 01-
sens, fyrir 14 árum og skoraði bæði
mörk Leicester sem lagði
Wimbledon 2:1 um helgina. „Eg
man alltaf eftir mörkunum sem
hann gerði gegn norska liðinu og
hann sannaði fyrir okkur enn og aft-
ur að hann er þefvís á marktæki-
færi,“ sagði Olsen um hinn 34 árá
gamla leikmann. Martin O’Neill,
knattspyrnustjóri Leicester, sem
fékk Cottee til félagsins frá liði í
Malasíu fyrir þremur árum, sagði
að leikmaðurinn kæmi sér sífellt á
óvart. „Ég bjóst ekki við að hann
gæti leikið vegna meiðsla í ökkla en
eins og oft áður reið framlag hans í
leiknum baggamuninn," sagði
O’Neill.
Shearer gagnrýndur
Newcastle og Watford gerðu 1:1-
jafntefli en bæði liðin eru við botn
deildarinnar. Alan Shearer, fyrirliði
Newcastle, fékk það óþvegið frá
áhorfendum á heimavelli Watford
sem töldu að hann hefði brugðist
með enska landsliðinu gegn Skotum
síðastliðinn miðvikudag og kölluðu
„Hvar varstu á miðvikudagskvöld-
ið?“ Bobby Robson, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, brást ókvæða við
athugasemdum áhorfenda og sagði
að þeir hefðu gert lítið úr Shearer.
„Hann hefur lagt allt í sölurnar fyr-
ir félagið og landsliðið í mörg ár.
Hann átti frábæran leik í dag og
átti ekki skilið þá útreið sem hann
fékk frá áhorfendum,“ sagði Rob-
son.
Umdeild brottvísun
Manchester United lagði Derby
2:1 og er enn á toppi deildarinnar.
Jim Smith, knattspyrnustjóri Der-
by, sakaði Gery Neville og David
Beckham, leikmenn Mancester
United, um að hafa beitt bolabrögð-
um með því að fá Stefan Schnoor,
leikmann Derby, út af í leik liðanna.
Þýski leikmaðurinn fór af velli fyrir
tvö gul spjöld fyrir brot á leikmönn-
unum með tveggja mínútna millibili
í fyrri hálfleik. Smith sagði að dóm-
ari leiksins hefði fylgt tilmælum
leikmanna Man. Utd. en hefði ekki
getað tekið sjálfstæða ákvörðun.
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Man. Utd., var Smith ósammála og
Schnoor hefði átt brottreksturinn
skilið fyrir ruddalegan leik.
■ Úrslit/C10
■ Staðan /C10
taéœ
FOLK
■ HERMANN Hreiðarsson lék með
Wimbledon sem tapaði 2:1 fyrir
Leicester í ensku úrvalsdeildinni.
■ GUÐNI Bergsson og Eiður
Smári Guðjohnsen léku báðir með
Bolton sem vann Grimsby 2:0 í
ensku 1. deildinni.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson var sem
fyrr í liði WBA um helgina en liðið
tapaði fyrir Huddersfield 1:0.
■ BJARNÓLFUR Lárusson lék i
liði Walsall sem tapaði 2:1 fyrir QPR
í 1. deildinni í Englandi. Sigurður
Ragnar Eyjólfsson sat á bekknum.
■ MAGNI Blöndal Pétursson hefur
verið ráðinn aðstoðarþjálfari Vals í
knattspyrnu, að því er kemur fram á
heimasíðu félagsins.
■ ÓLAFUR Gottskálksson var ekki
í marki Hibemian sem tapaði 1:0
íyrir Glasgow Rangers 2:0 í skosku
úrvalsdeildinni.
■ KRISTJÁN Finnbogason, sem er
í láni hjá belgíska liðinu Lommel,
tapaði fyrir Lierse 4:0 um helgina.
■ THOMAS Helmer, sem var lán-
aður til Herthu Berlín frá Sunder-
land, er hugsanlega á leið aftur til
enska liðsins. Leikmaðurinn slasað*
ist og er úr leik í átta vikur.
■ RONALDO meiddist í leik með
Inter Milan í 6:0 sigri á Lecce um
síðustu helgi. Talið var í fyrstu að
meiðsli væru ekki alvarleg en við
nánari skoðun er talið að hann verði
frá í mánuð.
■ THIERREY Henry, leikmaður
Arsenal, hefur kveðið niður orðróm
franskra dagblaða um að hann hafí
ekki aðlagast hjá félaginu. Henry
segir þvert á móti að hann sé í
himnaríki hjá Arsene Wenger og fé-
lögum á Highbury. Þá hefur hann
vísað þeim orðrómi á bug að móðir
hans búi í lítilli íbúð í París á meðan
hann njóti lystisemda Lundúna.
Leikmaðurinn segir þvert á móti að
hann hafí keypt hús handa henni
nærri París.
■ ARSENAL er talið eiga greiðustu
leið í næstu umferð ensku bikai'-
keppninnar samkvæmt veðbókur-
um, en liðið mætir Blackpool. Svip-
aða sögu er að segja af Chelsea sem
gæti mætt utandeildarliðinu Hayes,
sem þarf að vinna Hull til þess að
eiga möguleika á að mæta Gianluca
Vialli og félögum í 3. umferð keppn-
innar.
Di Canio
gagnrýndur
DANNY Wilson, knatt-
spyrnustjóri Sheffleld Wed-
nesday, gagnrýndi Paolo Di
Canio, fyrrum leikmann liðs-
ins, sem nú leikur með West
Ham, að loknum leik liðanna
um helgina. West Ham vann
leikinn 4:3.
Wilson gagnrýndi Di Canio
fyrir leikaraskap er Danny
Sonner var rekinn út af fyrir
brot á leikmanninum. Di
Canio, sem var fyrirliði West
Ham í leiknum, lék með
Sheff. Wed. allt þar til hann
réðst gegn Paul Alcock, dóm-
ara, í leik með liðinu á síð-
asta keppnistfmabili. Hann
lék ekki mcira með liðinu og
fannst að forráðamenn liðs-
ins hefðu ekki sýnt sér stuðn-
ing. Hann var skömmu síðar
seldur til West Ham. Di
Canio svaraði gagnrýni Wil-
son fullum hálsi og sagði að
Sonner hefði ekki skeytt um
boltann er hann braut á sér.
Staða Sheffield Wednesday
er erfið á botni úrvalsdeildar,
en liðið náði tvívegis forystu í
leiknum. Wilson sagði að úr-
slitin sýndu að liðið væri lán-
laust þrátt fyrir baráttu leik-
manna þess.
Þeir voru í hlutverki yfirkennara. Hollensku leikmennírnir hjá Arsenal, Marc Overmars og Dennis Bergkamp, skoruðu öll mörk Arsenal
gegn „Boro“ - Overmars þrjú, Bergkamp tvö.