Morgunblaðið - 10.12.1999, Side 4

Morgunblaðið - 10.12.1999, Side 4
4 ÍÞRómR Glæsiferli Barkley sennilega lokið ■ ARON Kristjánsson og félagar hans í danska liðinu Skjern töp- uðu fyrir Viborg, 22:21, í dönsku 1. deildinni í handknattleik í fyrrakvöld. Aron skoraði fimm mörk í leiknum. ■ HANS Petter Buuras, ólympíu- meistari í svigi frá Noregi, meidd- ist á æfingu í gær, tognaði liðb- and, og verður frá keppni næstu tvær vikurnar. Hann tekur því ekki þátt í svigmóti heimsbikar- sins í Madonna di Campiglio á mánudagskvöld. ■ KRISTINN Björnsson keppir í sviginu í Madonna di Campiglio á mánudaginn. Hann verður vænt- anlega með rásnúmer í kringum 30. Svigið fer fram í flóðljósum og verður sýnt beint á Sýn og hefst fyrri umferðin kl. 17.00. ■ MICHELA Dorfmeister frá Austurríki sigraði í stórsvigi heimsbikarsins sem fram fór í Val d’Isere í Frakklandi í gær. ■ KJELL INGE Brátveit, aðstoð- arþjálfari Viking frá Stavangri, verður líklega eftirmaður Teits Þórðarsonar sem landsliðsþjálf- ari Eistlands og Flora Tallinn. Hann mun vera í viðræðum við Eistlendinga um þessi mál. ■ ÞRÁINN Hafsteinsson var kjörinn í stjórn frjálsíþróttadeild- ar ÍR á aðafundi deildarinnar í vikunni.Er þetta í fyrsta skipti sem hann situr í stjórn deildarinn- ar, en hann hefur verið aðalþjálf- ari hennar undanfarin ár. Þráinn hefur rifað seglin í þjálfuninni. ■ EINNIG voru kjörnir í stjórn með Þráini, Katrín Atladóttir, Anna Sigurjónsdóttir, Stefán Halldórsson og Sigurlaug Magn- úsdóttir. Mikið jafnræði er stjórnarmönnum og enginn þeirra er formaður deildarinnar, en þau munu skipta með sér verkum við einstök verkefni. Ljóst mun hins vegar vera að Katrín sér um fjár- málin. mun sakna hans mikið,“ sagði O’Neal. Stórleikur miðvikudagkvölds var viðureign tveggja bestu liðanna þegar O’Neal og félagar hans í Lak- ers sóttu Sacramento heim. Heima- liðið hafði forystu nær allan leikinn og vann sannfærandi, 103:91. Sacra- mento stöðvaði sex leikja sigur- göngu Lakers og vann einnig sinn sjöunda leik á heimavelli. Chris Webber var stigahæstu heima- manna með 20 stig. „Þessi sigur kemur okkur ekkert á óvart. Við ætlum okkur stóra hluti í vetur og mér er persónulega sama um hver mótherji okkar er. Við höfum trú á að við getum unnið hverja sem er,“ sagði Webber í leikslok. Kobe Bryant og Shaquille O’Neal skoruðu báðir 27 stig fyrir Lakers, en vara- menn Sacramento skoruðu 48 stig gegn 16 stigum varamanna Lakers. Chicago Bulls tapaði fímmtánda af sextán leikjum sínum gegn Cleveland, 93:107. Þetta er versta byrjun Bulls í sögu félagsins. Þess má geta í lokin að Philadelphia 76ers vann Houston, 83:73, í leikn- um þegar Barkley meiddist. Landsliðið á sex þjóða mót í Hollandi Þorbjöm ÞORBJÖRN Jensson, þjálfari íslenska landsliðsins í hand- knattleik, tilkynnti val sitt á landsliðshópnum sem heldur til þátttöku í móti sex þjóða í Hollandi í næstu viku. Liðið er eingöngu skipað leikmönnum, er leika með íslenskum félags- liðum, því ekki var unnt að fá íslendinga erlendis lausa í verkefnið, sem felur í sér fimm leiki á jafnmörgum dögum. *§%orbjörn sagði að meginmark- w* mið hans í mótinu væri að kynnast því hvaða leikmenn eru í stakk búnir til að skipa laus sæti í landsliðshópnum, sem tekur þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins í Króatíu í lok janúar. „Þetta eru fímm leikir á fimm dögum og ég veit af reynslunni hvernig það var. Það reyndi virkilega á er á leið, í þriðja leik og eftir hann. Eg vil sjá hverjir eru í stakk búnir að taka þátt í þessu móti til loka. Það er enginn vandi að vera góður í einum leik, en það er mjög erfítt aðstanda sig vel í fimm leikjum í röð. Eg vil sjá hverj- ir þola þetta," sagði Þorbjöm. Þjóðirnar, sem leiða saman hesta •sína í mótinu, eru Italía, Sádí-Ara- bía, Pólland og Egyptaland auk gestgjafanna og f slendinga. Bjarki hvílist og Birkir ívar gaf ekki kost á sér Þorbjörn sagðist hafa gert sam- komulag við Bjarka Sigurðsson, leikmann Aftureldingar og marg- reyndan landsliðsmann, um að hann færi ekki tO Hollands. Bjarki er með brotið bátsbein og rifínn lærvöðva, en lék eigi að síður með liði sínu um síðustu helgi og gerði þá tólf mörk. Þorbjöm kvaðst jafnframt hafa íhugað að velja Birki ívar Guð- mundsson, markvörð Stjörnunnar, Á hópinn, en að hann hafi ekki getað gefið kost á sér vegna anna í námi. Daníel Ragnarsson, leikmaður Vals, er eina örvhenta skyttan í hópnum. Er Þorbjörn var spurður um úrval slíkra leikmanna í deildar- keppninni á íslandi, sagði hann: „Það eru ekki margar frambærileg- ar örvhentar skyttur í deildinni. Það var svolítið erfitt að velja í þessa stöðu og hugsanlega verð ég að leysa vandann með því að láta rétthenta skyttu leika í þessari stöðu,“ sagði Þorbjöm. A fundi með fréttamönnum í gær >var Þorbjörn einnig spurður um valið á Alexander Arnarsyni, línu- manni HK, en ekki Sigfúsi Sigurðs- syni, sem gegnir sama hlutverki hjá Val. „[Sigfús] hefur ekki leikið bet- ur en Alexander og er engan veginn tilbúinn til að koma inn í landsliðið á þessum tímapunkti," sagði þjálfar- inn. Eitt sæti er enn laust í landsliðs- hópnum. Þorbjörn sagðist ætla að tilkynna hver yrði fyrir valinu á sunnudag eða mánudag. „Það verð- ur örugglega skyttustaða, ef ég fylli í skarðið." Landsliðshópur Þorbjörns er þannig skipaður: Markverðir em Reynir Þór Reynisson, KA, Sebast- ían Alexandersson, Fram, og Berg- sveinn Bergsveinsson, UMFA. Aðrir leikmenn eru Ingimundur Ingimundarson^ Olafur Sigurjóns- son og Ragnar Oskarsson, IR, Am- ar Pétursson og Hilmar Þórlinds- son, Stjörnunni, Sverrir Björnsson og Alexander Amarson, HK, Guð- jón Valur Sigurðsson, KA, Valgarð Thoroddsen, Víkingi, Njörður Amason, Fram, Daníel Ragnar- sson, Val, og Magnús Már Þórðar- son, UMFA. Reuters Charles Barkley, einn litríkasti leikmaður NBA-deildarinnar. EINUM farsælasta keppnisferli leikmanns í NBA-deildinni er sennilega lokið. Charles Barkley hafði ætlað að leika út keppn- istímabilið með Houston Rockets áður en hann legði skóna á hill- una, en sú áætlun hans varð að martröð í Fíladelfíuborg á mið- vikudagskvöld þegar hann meiddist illilega á hné. Barkley var ákaft fagnað fyrir leik Philadelphia og Houston, en þetta hefði verið síðasti leikur Sir mgm Charles í borginni Gunnar þar sem hann lék sín Valgeirsson fyrstu átta keppnis- skrifarfrá tímabil. á áttundu Bandaríkjunum mínútu ieiksins féll hann illa eftir tilraun til að verja skot undir körfunni. Hann var færð- ur til læknisherbergisins þar sem skoðun leiddi í ljós að hann var með slitna sin í vinstra hné. Þegar í ljós kom að bati myndi taka a.m.k. sex mánuði hringdi hann í eiginkonu sína og sagði að ferlinum væri lokið. Hann fór svo á hækjum til varamannabekkjar Houston þai- sem hann sat til leiksloka. Eftir leik- inn talaði hann við fréttamenn. Að venju gerði hann grín, en Barkley var einn vinsælasti leikmaðurinn í deildinni meðal fréttamanna. „Kyn- líf er sjálfsagt úr sögunni í kvöld hjá mér. Ég vildi bara láta ykkur vita það í upphafi," byrjaði hann, en breytti þó um tón fljótlega. „Stóri maðurinn uppi er víst að senda mér skiiaboð í kvöld að ég ætti að enda keppnisferilinn þar sem hann hófst. Það er sjálfsagt ekki tilviljun að margir sem sáu leikinn í kvöld sáu einnig fyrsta leik- inn minn,“ bætti hann við. Þess má geta að Barkley er mjög vinsæll í Fíladelfíuborg, en þar býr hann á sumrin. „Ég er að sjálfsögðu vons- vikinn að þetta kom fyrir, en ég held að þetta hafi bara átt að gerast svona. ég á of margar góðar minn- ingar frá keppnisferlinum og ég ætla ekki að láta þetta atvik skyggja á það í kvöld,“ sagði hann í lokin. Líkami Barkley gafst loks upp eftir fimmtán ára feril. Hann lék fyrst með þeim Moses Malone og Julius Erwing eftir að hann kom inn í NBA deildina frá Auburn háskól- anum í Alabama. Hann vai’ seldur til Phoenix Suns 1992 þar sem hann komst loks í lokaúrslitin árið eftir. Það ár vann hann einnig titilinn „leikmaður ársins". Fyrir rúmum tveimur árum síðan var hann loks seldur til Houston þar sem hann lauk ferlinum. Barkley var þekktastur fyrir hetjulega baráttu við mun hærri leikmenn undir körfunni. Hann vann frákastatitilinn 1987 og var áv- allt meðal frákasthæstu leikmanna á hverju keppnistímabili. Hann er einn af þremur leikmönnum í sögu deildarinnar sem náðu að skora 20 þúsund stig, taka tíu þúsund fráköst og senda fjögur þúsund stoðsend- ingar. Hinir tveir eru Wilt Cham- beriain og Kareem Abdul Jabbar. Barkley skoraði alls 23.755 stig og tók 12.545 fráköst. Hann lék níu sinnum í NBA stjömuleiknum. Shaquille O’Neal var spurður um Barkley að loknum leik Sacramento og Los Angeles Lakers. „Charles var ekki hár í loftinu, en hann bætti það upp með mikilli hörku og geysi- legu keppnisskapi. Hann er einn af bestu leikmönnum fyir og síðar. Ég . KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN HANDKNATTLEIKUR valdi „Is- lendinga“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.