Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.12.1999, Blaðsíða 1
Heimsbú- skapurí blóma Fjármái á fimmtudegi/4 Golfið er allt að koma Inga Guðmundsdóttir forstödumaóur upplýsingadeiidar Olís/8 Mfc «■ M M *** Bjartsynm i algleymingi Af markaói/6 ERLENT MINNI HAGN- AÐI SPÁÐ HJÁ FLUGFÉLÖGUM INNLENT SAMRUNI SÍF OG ÍS SAM- ÞYKKTUR EIN- RÓMA _______________2J EVRA 77,00 76,00 73,00——---------- 72,00,---,... ,— 1.12 8.12 15.12 72,92 ----,-------, 22.12 29.12 Aðhaldssöm peninKastefna Seðlabankans hefur borið áranfflir Líkur á hækkun vaxta Morgunblaðið/Kristinn Urvalsvísitalan yfir 1600 stig • Úrvalsvísitala aöallista hækkaói um 1,32% í gær á Verðbréfaþingi íslands og er nú 1.606 stig og er þaö í fyrsta skipti sem hún rýfur 1.600 stiga múrinn. Mikil viðskipti voru á VÞÍ gær eöa fyrir 1.901 milljón króna. Þar af námu viöskipti með hlutabréf 416 milljónum króna. Mest viöskipti vorum meö Landsbankann eöa fyrirtæpar 57 millj- ónir króna og hækkaói gengið um 2,2%. Eimskip opnar skrifstof u í Nova Scotia • EIMSKIP stofnar hinn 1. janúar nýtt hlutafélag um rekstur sinn í Kanada, Eimskip Canada Inc. Félagið tekur viö allri þjónustu og rekstri skrifstofu Eimskips í St. John’s á Nýfundnalandi auk þess sem opn- uð veröur skrifstofa í Shelburne á suöur- hluta Nova Scotia. /2 244 • 29. . des. Kr. Kr. Kr. Kaup Sala Gengi 1 Dollari 71,90000 72,30000 72,80000 Sterlp. 116,34000 116,96000 116,73000 Kan. dollari 49,49000 49,81000 49,50000 Dönsk kr. 9,73900 9,79500 9,90400 Norsk kr. 8,97000 9,02200 9,08300 Sænsk kr. 8,46300 8,51300 8,58700 Finn. mark 12,18770 12,26350 12,39350 Fr. franki 11,04710 11,11590 11,23370 Belg.franki 1,79630 1,80750 1,82670 Sv. franki 45,12000 45,36000 45,97000 Holl. gyllini 32,88290 33,08770 33,43820 Þýskt mark 37,05040 37,28120 37,67610 ít. líra 0,03742 0,03766 0,03806 Austurr. sch. 5,26620 5,29900 5,35510 Port. escudo 0,36150 0,36370 0,36750 Sp. peseti 0,43550 0,43830 0,44290 Jap. jen 0,70240 0,70700 0,71400 írskt pund 92,01080 92,58380 93,56450 SDR (Sérst.) 98,67000 99,27000 99,99000 Evra 72,46000 72,92000 73,69000 Tollgengi fyrir desember er sölugengi 29. nóvember. Sjálfvirkur sfmsvari gengisskráningar er 562 3270 BIRGIR ísleifur Gunnarsson Seðlabankastjóri segir ljóst að Seðlabankinn muni ekki hækka vexti fyrir áramót. Aðspurður sér hann ekki brýna þörf á vaxta- hækkunum á næstunni en getur ekki sagt til um hvað verður eftir áramótin. „Við höfum ekki síst verið að halda gengi krónunnar sem stöð- ugustu með okkar aðhaldssömu peningastefnu. Stefnt hefur verið að gengishækkun frekar en hitt og sú hefur orðið raunin undanfarnar vikur. Stefna okkar hefur því borið árangur og ekkert sem kallar á breytingar á henni,“ segir Birgir. Þenslumerki gefa ástæðu til vaxtahækkunar Tómas Ottó Hansson, forstöðu- maður rannsókna hjá íslands- banka F&M, telur að von sé á vaxtahækkun Seðlabankans á fyrstu vikum næsta árs. „Það er spuming hversu mikil þörf er á vaxtahækkunum. Krónan hefur styrkst verulega á árinu og það er eitt af meginmarkmiðum með vaxtahækkun að tryggja að styrk- ur krónunnar og vaxtamunurinn haldist,“ segir Tómas. „Það er engin bráð þörf á vaxtahækkunum eins og staðan er núna en þenslu- merki eru þó til staðar og gefa ástæðu til vaxtahækkunar." Hann telur líklegt að almennir peningamarkaðsvextir lækki vegna nýrra lausafjárreglna og þegar áramótavandinn er yfírstað- inn. „Peningamarkaðsvextir hafa verið óvenju háir vegna lausafjár- reglnanna og áramótaáhrifanna. Það getur verið að Seðlabankinn vilji tryggja að aðhaldsstigið hald- ist með því að hækka stýrivexti sína og koma þannig til móts við lækkun á peningamarkaðsvöxt- um,“ segir Tómas. Að hans mati er nú farið að sjá fyrir endann á vaxtahækkanaferlinu. Vaxtamunur lifsnauðsynlegur í markaðsyfirlitum sínum und- anfarið hefur Viðskiptastofa Landsbankans bent á rök fyrir því að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína. Viðskiptastofa Landsbank- ans telur m.a. að núverandi vaxta- munur sé lífsnauðsynlegur til að koma í veg fyrir að hugsanleg veiking krónunnar valdi auknum þiýstingi á verðlag. í markaðsyfir- litunum segir m.a: „Vaxtamunur milli íslands og okkar helstu við- skiptalanda hefur farið vaxandi á þessu ári en nú hefiir verið höggv- ið í þennan mun vegna vaxta- hækkana erlendis. Seðlabankinn hefur ekki fylgt á eftir með hækk- un stýrivaxta eins og búast hefði mátt við.“ Viðskiptastofa Lands- bankans heldur því einnig fram að vextir hér á landi þurfi að vera hærri en erlendis þar sem „enn er reynt að halda úti sjálfstæðri mynt“. Einnig kemur fram að verð- bólga sé of mikil. „Verðbólgan væri enn meiri hefði ekki komið til mikil styrkmg krónunnar á þessu ári. Hækkun stýrivaxta á þessu ári hefur haft það að markmiði að slá á þenslu og styðja við gengi krón- unnar. Fómin sem hefur verið færð er mikill og vaxandi við- skiptahalli.... Verðbólgutölur fyrir nóvembermánuð voru langt um- fram væntingar og 13. janúar verða birtar tölur um verðbólgu- hraðann í desember og búast má við hinu versta.... Til skamms tíma er hægt að hækka stýrivexti og auka þannig aðhald í peningamál- um, en áhrif slíkra aðgerða verða áhrifaminni og hafa minni trúverð- ugleika þegar gripið er til þeirra eftir að vísbendingar um vaxandi verðbólgu eru orðnar að veru- leika.“ Flest bendir til aukinnar verðbólgu í skýrslu Kaupþings um þróun og horfur kemur fram að frekari vaxtahækkanir Seðlabankans séu ekki ólíklegar áður en langt um líður. „Enda hefur vaxtamunm- við útlönd nú minnkað vegna hækk- ana á stýrivöxtum, bæði í Banda- ríkjunum og helstu ríkjum Evrópu í nóvember,“ eins og segir í skýrsl- unni. Þar kemur einnig fram að al- mennt virðist reiknað með vaxta- hækkunum í Bandaríkjunum og Evrópu á næsta ári. Verðbólgan er einnig gerð að umtalsefni í skýrsl- unni og fram kemur að ekki sé far- ið að merkja minnkandi verð- bólguhraða. „Verðbólga er nú rúmlega 5% á ársgrundvelli og flest bendir til að vísitala neyslu- verðs muni hækka talsvert í jan- úar.“ fslenski lífeyrissjóðurinn er traustur lífeyrissjóður f vörstu Landsbréfa hf. Með aðild að íslenska lífeyrissjóðnum tryggir þú þér fjölbreytta þjónustu og góða ávöxtun lífeyris. Hafðu samband við sérfræðinga Landsbréfa í lífeyrismálum eða ráðgjafa í næsta Landsbanka. www.landsbref.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.