Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 B 7
VIÐSKIPTI
Grunnreglur samstarfsvettvangs evrópskra eftirlitsaðila á verðbréfamarkaði
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ mun
hafa frumkvæði að því að kynna
hér á landi grunnreglur af tvennum
toga sem nýlega voru samþykktar
á samstarfsvettvangi evrópskra
eftirlitsaðila á verðbréfamarkaði,
FESCO. Að sögn Páls G. Pálsson-
ar, forstjóra Fjármálaeftirlitsins,
er ástæða til að skoða reglurnar vel
og nýta þær í frekari stefnumótun
á íslenskum verðbréfamarkaði,
ekki síst þar sem verðbréfamarkað-
ur hér á landi er ungur og ekki eins
þróaður og í mörgum öðrum
Evrópulöndum.
Grunnreglurnar sem samþykktar
voru fyrir rúmri viku eru annars
vegar um kauphallir og aðra skipu-
lega verðbréfamarkaði, hins vegar
um starfshætti aðstandenda útboða
verðbréfa. Að sögn Páls er FESCO
vettvangur þar sem eftirlitsaðilar
víðs vegar úr Evrópu koma saman,
miðla af reynslu sinni og sættast á
nánari samræmdar reglur en fram
koma í tilskipunum ESB sem gilda
hjá öllum aðildarþjóðunum.
Hjálpar Fjármálaeftirlitinu
við túlkun
„Með grunnreglunum er verið að
gefa leiðbeiningar út á markaðina
og samræma reglur milli landa,“
segir Páll. „í FESCO-samstarfinu
felst að eftirlitsstofnanir í hverju
ríki skuldbinda sig til að koma
reglunum á framfæri, setja reglur
ef þær hafa heimildir til þess og
knýja á um breytingar á reglugerð-
um eða lögum í samræmi við
grunnreglurnar. Það er fyllsta
ástæða til þess að fara yfir það
hvað í þessum reglum þurfi að
koma skýrar fram í íslenskri lög-
gjöf og reglum. Við munum hafa
frumkvæði að því að stjórnvöld
horfi til þessara reglna við endur-
skoðun, en það tekur tíma,“ segir
Páll og bætir við að reglurnar
hjálpi Fjármálaeftirlitinu við túlk-
un á reglum sem eru til staðar.
Að sögn Páls snýst starf FESCO
að stórum hluta um að opna fyrir
sarneiginlegan verðbréfamarkað í
Evrópu. „Samstarf kauphalla og
sameiningar yfir landamæri eru
mjög að aukast og mörg af við-
fangsefnum FESCO í þessum
grunnreglum eru sprottin af því.
Með grunnreglunum er reynt að
bregðast við hugsanlegum vanda-
málum og auðvelda þróunina," seg-
ir Páll.
Reynsla stærri þjóða nýtt á
íslenskum markaði
Nefna má dæmi um atriði sem
taka þarf til skoðunar með hliðsjón
af grunnreglum FESCO um starfs-
28 þúsund
tóku þátt í
Lands-
bankaút-
boði
Alls skráðu 27.885 aðilar sig
fyrii- hlut í Landsbanka íslands
hf. í almennum hluta þess út-
boðs er fram fór á 15% af hlut
ríkisins í bankanum dagana 15.
til 17. desember. f þessum
hluta útboðsins voru boðnar
550 milljónir króna á genginu
3,8. Að teknu tilliti til skerðing-
ar vegna umframáskriftar er
hámarkshlutur hvers áskrif-
anda 20.484 kr. að nafnverði
eða 77.839 kr. að kaupverði.
í tilboðshluta útboðsins bár-
ust 66 tilboð frá 40 aðilum og
voru tilboðin samanlagt að
nafnverði 1.156 milljónir. í
þessum hluta útboðsins voru
boðnar 275 milljónir króna og
óskuðu tilboðsgjafar því eftir
fjórföldu því magni sem í boði
var. Vegið meðaltal allra til-
boða var 4,12 en meðalgengi
samþykktra tilboða var 4,34.
Frumkvæði hjá
Fj ármálaeftirlitinu
hætti aðstandenda að útboðum
verðbréfa. Þar er að finna reglur
um meðferð trúnaðarupplýsinga
frá því að upplýsingarnar verða til,
þ.e. ákvörðun er tekin um útboð, og
þar til þær eru gerðar opinberar.
„Þessar reglur varða svokallaða
Kínaveggi í starfsemi fjármálafyr-
irtækja. Reglurnar skylda aðstand-
endur útboða til þess að hafa skýr-
ar reglur um þetta. Fjármála-
fyrirtækið verður að geta sýnt fram
á að þessir veggir virki undantekn-
ingalaust, þannig að t.d. starfs-
menn sem eru að taka ákvarðanir
eða gefa ráð um fjárfestingar
hafi ekki aðgang að trúnaðarupp-
lýsingunum," segir Páll. „Þetta er
atriði sem vert er að taka til ítar-
legrar athugunar hér á landi, bæði
að því er varðar endurskoðun á lög-
gjöf og endurskoðun á verklags-
reglum sem um þetta fjalla hjá
fjármálafyrirtækjum í dag,“ segir
Páll.
„Islenski markaðurinn getur nýtt
grunnreglur FESCO á margan
hátt,“ segir Páll. „Með þessu sam-
starfi erum við að leitast við að
draga reynslu stærri þjóða inn á ís-
lenskan verðbréfamarkað og
styrkja hann þannig. Við erum að
fást við mörg þessara vandamála
daglega, t.d. varðandi útgáfu verð-
bréfa og viðskipti með verðbréf á
þinginu. í grunnreglum FESCO er
mikill lærdómur fyrir hinn unga ís-
lenska verðbréfamarkað," segir
Páll.
Tímiari skiptir höfuðmáli
í vlðskiptaheiminum getur bið eftir gögnum og upplýsingum orðið fyrirtækjum
dýrkeypt og er því mikilvægt að gagnaflutningur sé hraður og öruggur.
Mikið hagræði og sparnaður felst í að nýta sér nýjustu tækni og vinnuaðferðir og
leggur Síminn metnað sinn í að aðstoða fyrirtæki á því sviði.
Láttu tímann vinna meðþér-hafðu samband við Gagnalausnir Símans
www.simi.is/gagnalausnir
GAGNALAUSNIR