Morgunblaðið - 07.01.2000, Page 1
ÍMigrríPnMitttá&'
2000
FOSTUDAGUR 7. JANUAR
BLAÐ
Frakkar að byggja upp nýtt landslið fyrir HM í Frakklandi 2001
Kominn tími á
að leggja Frakka
Fyrsti lands-
leikurinn í
Bordeaux
ÍSLENDINGAR hafa aldrei leikið landsleik í
Bordeaux í Frakklandi - ríða á vaðið í kvöld
er handknattleikslandsliðið mætir Frökkum.
! Aftur á móti eru 37 ár síðan landsliðsménn ís-
i lands riðu um garð í Bordeaux á leið til Spán-
ar og mættu þá úrvalsliði Bordeaux. Viður-
eigninni lauk með sigri Islendinga, 26:16.
; Ingólfur Óskarsson skoraði þá 7 mörk, Gunn-
laugur Hjálmarsson sex.
Frakkar og fslendingar hafa leikið 12 lands-
leiki í Frakklandi og hafa íslendingar aðeins
þrisvar fagnað sigri, níu sinnum mátt þola
tap. ísland vann Frakkland í HM í Frakklandi
1970, er leikið var í París, 19:17. 1984 vannst
sigur í Aliermont, 23:22 og 1988 í Sedan,
26:23.
fslendingar og Frakkar hafa leikið 31 lands-
leik. Frakkar hafa unnið 16, Islendingar 14,
Íeinu sinni hefur orðið jafntefli. Frakkar hafa
unnið síðustu fimm landsleikina. íslendingar
unnu siðast 1992 í Reykjavík, 22:20. Þá léku
með fjórir leikmenn sem nú eru í Frakklandi
- Bergsveinn Bergsveinsson, Guðmundur
Hrafnkelsson, Magnús Sigurðsson og Gústaf
; Bjarnason.
íslenska liðið mætti því franska síðast í Sví-
þjóð í mars 1999. Þá unnu Frakkar stórsigur,
28:18. Með tíu marka mun eins og Frakkar
gerðu í fyrsta landsleik þjóðanna í París 1963,
24:14.
BJARKI Sigurðsson, leikmaður
UMFA, fór ekki með íslenska
landsliðinu til Frakklands.
Bjarki hefur ekki enn náð sér
að fullu af meiðslum á læri.
Ákvað Þorbjörn Jensson landsl-
iðsþjálfari að best, væri að
Bjarki yrði heima við léttar æf-
ingar og í sjúkraþjálfun.
„Bjarki þarf ekkert að sanna
fyrir mér, ég veit hvað hann
getur og því er best að hann sé
heima í sjúkraþjálfun og jafni
sig að fullu,“ sagði Þorbjörn.
Þá fór Valdimar Grímsson
heldur ekki með vegna þess að
hann þarf að fara í læknisskoð-
un í Wuppertal. Af þessum sök-
um fór aðeins einn örvhentur
hornamaður með landsliðinu til
Frakklands, Njörður Árnason,
Fram. Þorbjörn sagði vel koma
til greina að Ólafur Stefánsson
leysti Njörð eitthvað af í horn-
inu í Frakkaleikjunum, gerðist
þess þörf, þar sem Ólafur væri
ekki óvanur að leika í horninu
auk þess sem Magnús Sigurðs-
son gæti komið inn í stað Ólafs í
hlutvek skyttu, hægra megin.
MAGNÚS Sigurðsson, sem lék síðast með landsliðinu fyrir rúm-
um sex árum, tók þátt í síðasta sigurleik íslendinga á Frökkum - í
Laugardalshöllinni fyrir átta árum, 22:20. íslendingar hafa aftur
á móti ekki fagnað sigri á Frökkum í Frakklandi í tólf ár, eða síðan
sigur vannst í Sedan 1988,26:23. „Ég lofa ekki sigurleik hér í
Frakklandi, en það er löngu orðið tímabært að leggja Frakka að
velli - möguleikarnir eru góðir,“ sagði Magnús í stuttu spjalli við
Morgunblaðið á leið til Bordeaux, en hann sá Frakka leika gegn
Rúmenum á dögunum í undankeppni EM. Frakkar unnu 22:15 og
19:18.
Landsliðshópurinn kom til Bor-
deaux í gærkvöldi eftir langa
ferð frá Islandi með viðkomu í flug-
höfnum Glasgow, Birmingham og
_____ París - hópurinn
hafði verið á ferð
Þorsteinsson °g flugi*tólf tíma
skrifarfrá er lent var í Bor-
Bordeaux deaux. „Það er
mjög skemmtilegt að vera kominn í
landsliðshópinn á ný eftir langa
fjarveru. Eg átti ekki von á því að
vera kallaður til á ný - var farinn að
kalla mig iyrryerandi
landsliðsmann. Ég var
var því undrandi þegar
ég heyrði í Þorbimi er
hann hringdi og spurði
hvort ég væri klár í slag-
inn,“ sagði Magnús, sem lék 25
landsleiki á árunum 1990-1993.
„Ég er ekki ókunnugur í lands-
liðshópnum, þar sem í honum eru
fjölmargir leikmenn sem ég ólst
upp með í yngri flokkunum heima.
Eg á marga góða félaga í hópnum.
Það er kærkomin tilbreyting að fá
tækifæri til að leika með öðru liði
en Willstatt, sem hefur gengið af-
leitlega í þýsku fyrstu deildar-
keppninni," sagði Magnús, sem
vonast einnig til að fá tækifæri til
að spreyta sig í EM í Króatíu.
„Framhaldið með landsliðinu er ólj-
óst, því að ég er í tímafreku námi í
lyfjafræði."
Frakkar að byggja upp
Daniel Costantini, landsliðsþjálf-
ari Frakka sem gerði þá að heims-
meisturum á íslandi 1995, er byrj-
aður að byggja upp nýtt landslið
iyrir heimsmeistarakeppnina sem
verður í Frakklandi 2001. Hann
hefur Evrópukeppnina í Króatíu og
Olympíuleikana í Sidney
til að byggja lið sitt upp -
þannig að leikmenn hans
öðlist reynslu.
Costantini er aðeins
með fimm gamla refí í liði
sínu, sem hafa reynslu. Ellefu af
sextán leikmönnum Frakka leiku
með frönskum liðum, þar af sex
sem leika með Montpellier.
Þeir leikmenn sem leika fyrir ut-
an Frakkland eru markverðimir
Christian Gaudin, félagi Ólafs Stef-
ánssonar hjá Magdeburg (192
landsleikir) og Bruno Martin,
Wuppertal (108). Þá er Jackson
Riehardson, Grosswallstadt, (281) í
liðinu, ásamt Joulin Stéphane, Eis-
enach (91), og Patrik Cazal, Bida-
Bein lýsing frá
Bordeaux hefst
á MBL.IS kl. 19
Morgunblaðið/Ásdís
Magnús Sigurðsson og Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari. Magnús lék í síðasta sigurleik ís-
lands í Frakklandi.
soa (60). Reyndasti franski leik-
maðurinn sem leikur heima er
Marc Wiltberger (120 landsleikir).
íslendingar mæta Frökkum í
tveimur viðureignum - í Bordeaux í
kvöld kl. 19 og í Pau á sunnudaginn
kl. 14.
Tveir leikir við
Svía ytra í mars
ÍSLENSKA Iandsliðið í handknattlcik hefur þekkst boð Svía um að
leika tvo leiki við þá ytra 9. og 10. mars næstkomandi. Um það leyti
verður hlé í þýsku deiIdinni í handknattleik og ætla Svíar þá að
nota tækifærið til þess að uppfylla sanming við sænska sjónvarpið
um að leika tvo landsleiki með sínu sterkasta liði, en Svíar eru
heimsmeistarar í handknattleik og margir sterkustu leikmcnn
landsliðsins leika í Þýskalandi. Óskuðu Svíar eftir því við Þorbjörn
Jensson, landsliðþjálfara, aðhann mætti með sitt sterkasta lið til
leiks vegna leikjanna. Þorbjöm segir sér hafa verið það ljúft að
verða við þessari beiðni, þar sem hann hefði átt þess kost að mæta
með sitt sterkasta lið til leiks.
„Um leið og við samþykktum boð Svía skuldbundu þeir sig til að
endurgjalda heimsóknina og leika tvo leiki við okkur hér á landi á
næsta vetri,“ sagði Þorbjörn.
Bjarki fór ekki með
■ KNATTSPYRNA: ÍSLAND í 27. SÆTIÁ EVRÓPULISTANUM/C3