Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 C 3
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
Brynjólfur Jónsson, læknir íslenska landsliðsins, skoðar öxl Valdimars Grímssonar á æfingu
liðsins í gærkvöldi, en þar var hópurinn sem heldurtil Króatíu tilkynntur.
Bergsveinn fékk
skjótan bata
BERGSVEINN Bergsveinsson,
landsliðsmarkvörður í hand-
knattleik, veiktist í siðustu viku af
inflúensu, en fékk einkar skjdtan
bata. Þakkar hann það nýju lyfi
sem hann fékk, en Bergsveinn er í
dða önn við æfíngar og undirbún-
ing fyrir Evrdpukeppnina í hand-
knattleik sem hefst í vikulokin og
má því ekki við að veikjast.
„Eg var orðinn slappur á mið-
vikudaginn í síðustu viku. Á
föstudaginn fékk ég nýtt úðalyf
sem á aðslá á veikindi af þessu
tagi. Daginn eftir var ég orðinn
ágætur og mætti siðan á æfingu á
sunnudag, sprækur og hress,“
segir Bergsveinn. „Annaðhvort
hef ég fengið væga flensu eða þá
að lyfið hefur virkað svona vel.
Læknir minn telur að síðari koll-
gátan sé rétt, að minnsta kosti
var batinn dvenju hraður. Eg finn
ekkert fyrir slappleika nú en ætla
að ljúka þessum átta daga
skammti sem ég fékk.“
Bergsveinn segir að lyfið, sem
er nýtt á markaði hér á landi, eigi
bæði að geta haft fyrirbyggjandi
áhrif gegn inflúensu og einnig að
flýta fyrir bata eftir að veikindi
hafa stungið sér niður, eins og
var í hans tilfelli. Víst væri að lyf-
ið yrði í lyfjatösku læknis lands-
liðsins sem fer til Krdatíu á morg-
un.
Beðið eftir
Valdimar
og Degi
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari i handknattleik, tilkynnti
seint í gærkvöld hvaða 16 leikmenn hann ætlar að fara með á
Evrópumótið í Króatíu, sem hefst næstkomandi föstudag. Hann
dró að tilkynna endanlegan hóp vegna þess að ekki var Ijóst fyrr
en í gær að Dagur Sigurðsson, sem verður fyrirliði liðsins í Króa-
tíu og Valdimar Grímsson, yrðu leikfærir. Þegar Ijóst var að þeir
færu með var ákveðið að Ragnar Óskarsson færi ekki með liðinu
Handknattleikssamband ís-
lands þurfti að senda upplýs-
ingar um endanlegan hóp leik-
manna sem áttu að leika fyrir hönd
Islands til Króatíu í dag en Þor-
bjöm dró að tilkynna hópinn þang-
að til um ellefuleytið í gærkvöld.
Astæða þess er að nokkrir leik-
menn liðsins hafa átt við meiðsl að
stríða og ekki var ljóst fyrr en í dag
hvort þeir gætu komist með liðinu
áEM.
Þorbjörn kallaði saman 19 leik-
menn til æfinga en miðjumaðurinn
Aron Kristjánsson, Skjern, heltist
úr lestinni í síðustu viku, en hann
er að ná sér eftir uppskurð. Einnig
var hægri hornamaðurinn, Bjarki
Sigurðsson, Aftureldingu, meiddur
á læri og gaf ekki kost á sér. Þá var
óvíst hvort miðjumaðurinn og fyr-
irliði íslenska liðsins, Dagur Sig-
urðsson, Wuppertal, yrði leikfær,
fyrr en í gær, en hann er nýbúinn
að ná sér af meiðslum í hné og tveir
æfingaleikir gegn Frökkum sátu í
honum. Hann var hins vegar skoð-
aður af lækni í gær sem taldi að
leikmaðurinn gæti farið með liðinu
á EM. Þegar ljóst var að Dagur
færi með var ákveðið að Ragnar
Oskarsson, IR, sem er þriðji miðju-
maðurinn í hópnum, yrði eftir.
Að endingu var allsendis óvíst
fyrr en í gær hvort hægri horna-
maðurinn, Valdimar Grímsson,
Wuppertal, gæti farið með landsl-
iðinu því hann fékk sýkingu í hné
og óttast var að hún tæki sig upp
aftur. Valdimar er einn leikreynd-
asti leikmaður íslenska liðsins en
hann hefur lítið sem ekkert spreytt
sig með Wuppertal, liði sínu í
Þýskalandi og lék tvo leiki með ís-
lenska liðinu í undirbúningi fyrir
EM í Króatíu, en Þorbjörn ákvað
að velja hann í hópinn.
Króatíu-
hópurinn
Markmenn: Guðmundur
Hrafnkelsson, Nordhorn,
Bergsveinn Bergsveins-
son, Aftureldingu, Sebast-
ían Alexandersson, Fram.
Aðrir leikmenn: Róbert
Sighvatsson, Dormagen,
Njörður Árnason, Fram,
Magnús Sigurðsson, Will-
statt, Valdimar Grímsson,
Wuppertal, Dagur Sig-
urðsson, Wuppertal, Pat-
rekur Jóhannesson, Es-
sen, Gústaf Bjarnason,
Wilístatt, Guðjón Valur
Sigurðsson, KA, Rúnar
Sigtryggsson, Göppingen,
Ólafúr Stefánsson, Mag-
deburg, Róbert Julian
Duranona, Eisenach, Sig-
urður Bjarnason, Wetzl-
ar, Magnús Már Þórðar-
son, Aftureldingu.
■ KRISTJÁN Brooks lék á sunnu-
dag fyrsta leik sinn með Agios Ni-
kolaos í grísku 2. deildinni í knatt-
spyrnu en þar er hann í láni frá
Keflavík til vorsins. Hann lagði upp
annað markið í 2-0 sigri á Naousa.
Lið hans er nú í 9. sæti af 18 liðum.
■ ARNAR Grétarsson lék allan
leikinn með AEK sem vann Kavala,
3-0, í 1. deildinni. AEK hefur þar
með unnið tvo stórsigra í fýrstu
leikjunum undir stjórn Yiannis
Pathiakakis, með samtals níu
mörkum gegn engu, og er komið í 5.
sætið.
■ HELGI Sigurðsson og félagar í
Panathinaikos unnu Panionios 2:1
í grísku deildinni í gærkvöld. Pana-
thinaikos fór með sigrinum upp í 2.
sæti deildarinnar og er einu stigi á
eftir Olympiakos sem er efst með
39 stig eftir 15 umferðir.
■ HELGI Kolviðsson og félagar í
þýska knattspyrnuliðinu Mainz
skelltu löndum sínum í 1. deildarliði
Frankfurt, 2-0, í æfingaleik um
helgina. Felix Magath, þjálfari
Frankfurt, var æfur yfir frammi-
stöðu sinna manna.
■ ROBERTO Carlos
tryggði Real Madrid 2:l-sigur á Re
al Mallorca í spænsku deildinni í
gær. Hann gerði sigurmarkið með
langskoti á lokamínútu leiksins.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Vala Flosadóttir er ein íslendinga á afrekslista Track&Field News fyrir árið 1999
Sjöundi besti
stangarstökkvarinn
Vala Flosadóttir, stangarstökkvari úr ÍR, var sjöundi besti
stangarstökkvari í heiminum á sl. ári samkvæmt árlegum lista
bandaríska f rjálsíþróttatímaritsins Track&Field News. Vala er
eini íslenskí frjálsíþróttamaðurinn á listanum fyrir þetta ár, en
á síðasta ári var Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmaður úr
Tindastóli, á listanum auk Völu.
Tímaritið, Track&Field News,
hefur gefið út lista yfir tíu
bestu íþróttamenn í hverri grein
frjálsíþrótta frá 1947 og þykir
einkar marktækur hjá þeim sem
fylgjast með frjálsíþróttum enda
tímaritið eitt hið virtasta sinnar
tegundar í heiminum. Við röðun á
listanum fara sérfræðingar blaðs-
ins ekki eingöngu eftir heimslista
ársins, heldur vegur þyngra í röð-
uninni verðlaunasæti á stórmót-
um, hvernig árangri keppendur
ná i keppni hver við annan, burt-
séð frá eiginlegum árangri í
stökkum, hlaupum eða köstum. Þá
er mótum ársins raðað eftir styrk-
leika þar sem heimsmeistaramót,
Ólympíuleikar og „gullmót" Al-
þjóða frjálsíþróttasambandsins
vega þyngst. Einnig kemur staða
á heimslista ársins inn í röðunina
en vegur ekki eins þungt og t.d.
verðlaun á stórmótum.
Vala er sem fyrr segir í sjöunda
sæti í stangarstökki kvenna þrátt
fyrir að vera í 20. sæti á heimlist-
anum í stangarstökki utanhúss.
Miklu máli skiptir fyrir hana að
hún vann til silfurverðlauna á HM
innanhúss á síðasta ári og náði
auk þess góðum árangri á sterk-
um mótum innanhúss. Var hún í 6.
sæti heimslistans að innanhúss-
tímabilinu loknu.
Heimsmeistarinn í stangar-
stökki, Stacy Dragila, Bandaríkj-
unum, er í efsta sæti, Anzhela
Balakhonova, Úkraínu, er önnur
og Tatiana Grigorieva, Ástralíu,
hafnaði í þriðja sæti, en þetta eru
einmitt verðlaunahafai’nir þrír á
HM utanhúss í Sevilla sl. sumar.
Þjóðverjinn Nicole Humbert er í
fjórða sæti, Zsuzsa Zsabó, Ung-
verjalandi, er í fimmta sæti og
Nastja Rystich, Þýskalandi, er í
sjötta. Rystich varð heimsmeist-
ari innahúss á síðasta ári. Vala er
sjöunda, Melissa Miiller, Banda-
ríkjunum, í áttunda, Pavla Hama-
ckova, Tékklandi, er í níunda sæti
og tíunda er landi hennar Daniela
Bartova.
Þetta er í þriðja sinn sem Vala
er á lista blaðsins. Hún hefur
tvisvar verið í fimmta sæti, 1996
og 1998.
Einar Vilhjálmsson spjótkast-
ari hefur oftast íslenskra frjáls-
íþróttamanna komist inn á tíu
manna lista blaðsins, sjö sinnum
frá 1983 til 1991. Faðir hans, Vil-
hjálmur Einarsson þrístökkvari,
fjórum sinnum. Vilhjálmur hefur
einnig náð lengst Islendinga, í
annað sætið 1956. Þá var Jón Arn-
ar í þriðja sæti tugþrautarmanna
1998 og Sigurður Einarsson spjót-
kastari hafnaði í sama sæti 1989.
Það ár voru tveir Islendingar á
lista yfir tíu bestu stangarstökkv-
ara, Sigurður þriðji og Einar
fjórði. Þá voru þeir útnefndir
besta spjótkastpar heims.
Auk Völu hafa Gunnar Huseby,
kúluvarpari, Hreinn Halldórsson,
kúluvarpari, Jón Amar og Örn
Clausen, tugþraut, í þrígang verið
á meðal tíu þeirra bestu í sínum
greinum. Guðrún Arnardóttir,
grindahlaupari, Pétur Guðmunds-
son, kúluvarpari, og Torfi Bryn-
geirsson, stangarstökkvari, hafa
náð þessum sama áfanga einu
sinni.