Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 6
6 C ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 C 7. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Heiðar ryður sér til rúms í Englandi HEIÐAR Helguson fékk óskabyrjun í herbúðum enska úrvals- deildarliðsins Watford á laugardag. Félagið keypti hann af norska liðinu Lilleström fyrir um 180 milljónir króna í sfðustu viku og í fyrsta leik sínum með nýju liði tókst Heiðari að skora jöfnunarmark gegn háttskrifuðu liði Liverpool, félagi sem verið hefur í uppáhaldi hjá Heiðari frá því hann hóf að fylgjast með gangi mála í enskri knattspyrnu. Þó skyggði á gleðina að Tékkinn Vladimir Smicer kom inn á sem varamaður fyrir Liverpool og gerði sigurmarkið, 3:2, er um tuttugu mín- útur lifðu leiks. Heiðar var í byrjunarliði Watford og var tekinn alvarlega af varnar- mönnum gestaliðsins, en þrír and- stæðingar Heiðars fengu gult spjald eftir viðskipti sín við Dalvíkinginn, sem lék með Þrótti í Reykjavík áður en hann fór til Noregs fyrir tæpa hálfa milljón króna. Framan af gerði Liverpool sig lík- legt til að kjöldraga nýliða Watford, sem eru í næstneðsta sæti úrvals- deildar. Tékkinn Patrik Berger og David Thompson sáu til þess að heimamenn voru komnir tveimur mörkum undir eftir fjörutíu mínútna leik. En baráttuglaðir leikmenn Watford lögðu ekki árar í bát og á lokamínútum fyrri hálfleiks skoraði Richard Johnson með hnitmiðuðu, viðstöðulausu skoti utan vítateigs. Watford hóf síðari hálfleikinn eins og það lauk þeim fyrri. Eftir að hafa spyrnt knettinum af miðjupunktin- um tók Heiðar sér stöðu í fremstu víglínu, þar sem brotið var á honum á fyrstu andartökum síðari hálfleiks. David Perpetuini tók aukaspyrnuna og sendi fyrir markið, þar sem Heið- ar kom á mikilli siglingu og skallaði boltann yfir Sander Westerveld, markvörð Liverpool, sem fór í „skógarferð11, í autt markið. Áhorf- endur fögnuðu vel og innilega, líkt og Heiðar, í tvennum tilgangi. Lítil- FOLK ■ HERMANN Hreiðarsson var í liði Wimbledon sem tapaði 2:0 fyrir Coventry í ensku úrvalsdeildinni. ■ ARNAR Gunnlaugsson lék í 53 mínútur með Leicester gegn Chels- ea er liðin gerðu l:l-jafntefli í úr- valsdeildinni. ■ JÓHANN Guðmundsson sat á bekknum hjá Watford sem tapaði 3:2 fyrir Liverpool. Heiðar Helgu- son lék í 80 mínútur fyrir Watford. ■ BJARNÓLFUR Lárusson sat á bekknum hjá Walsall sem vann Sheffield United 2:1 í 1. deildinni í Englandi. ■ GUÐNI Bergsson lék allan leik- inn fyrir Bolton sem vann QPR 1:0. Eiður Smári Guðjohnsen lék í 84 mínútur með Bolton. ■ ÍVAR Ingimarsson lék í 68 mín- útur með Brentford sem tapaði 3:0 fyrir Oldham í 2. deildinni í Eng- landi. Gunnar Einarsson fékk tækifæri með Brentford á 58. mín- útu. ■ SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson lék allan leikinn með Chester sem tapaði 2:0 fyrir Rotherham í 3. deildinni í Englandi. Chester er í neðsta sæti í 3. deildinni. magninn hafði sýnt hetjulega bar- áttu, jafnað metin á augabragði og nýi leikmaðurinn, sem keyptur var fyrir metupphæð hjá félaginu, hafði undirstrikað verðmæti fjárfesting- arinnar og glætt vonir stuðnings- manna um áframhaldandi þátttöku í efstu deild. Eftir markið minnti Heiðar á sig með afdráttarlausum hlaupum sín- um, ódrepandi baráttuvilja og gagn- legum sóknartilþrifum í senn. I síð- ari hálfleik einum fengu þrír nafntogaðir leikmenn Liverpool áminningu fyrir að gerast brotlegir í baráttu við Heiðar, viðureign þar sem þeir urðu að taka á öllu sem þeir áttu til að halda velli. Þjóðverj- inn Dietmar Hamann, Stephane He- nchoz frá Sviss og hinn ítalski Dom- inic Matteo voru allir kallaðir á fund dómarans og þeim sýnt gult spjald. Eftir brot Matteos, sem kom eftir að Heiðar hafði unnið boltann af miklu harðfylgi, bað hann um skiptingu, var orðinn þreyttur, enda hafði hann lagt sig allan fram auk þess sem hann hafði ekki tekið þátt í kappleik síðan í nóvember. Ahorfendur hylltu Heiðar er hann gekk af velli tíu mín- útum fyrir leikslok. I þeirra augum er Heiðar holdgervingur vonarinnar hjá Watford, sem berst hatrammri baráttu við falldrauginn alræmda. „Við höfðum reynt að kaupa hann í heilt ár. Hann sýndi á þessum átta- tíu mínútum að hann hefur margt fram að færa. Hann hefði getað nýst okkur frá upphafi þessa tímabils,“ sagði Graham Taylor, knattspyrnu- stjóri Watford, um Heiðar. „Ég get ekld farið fram á meira en að leikmennimir leggi sig alla fram. Þeir gerðu það og sýndu mik- inn viljastyrk með því að jafna met- in. Við verðskulduðum stig eftir þennan leik,“ bætti stjórinn við. Breska dagblaðið Sunday Times sagði Heiðar hafa birst áhorfendum á Vicarage Road í skyndi sem hetja og sönnun þess að betri tíð væri í nánd. Peter Cork Heiðar Helguson skapaði oft og tíðum usla í vöm Liverpool. Alls fengu fjórir andstæðingar hans að líta gula spjaldið eftir brot á Heiðari. Þyrfti að endur- greiða 60 milljónir SIGURÐUR Jónsson, landsliðsfyr- irliði í knattspyrnu, sagði við skoska ijölmiðla um helgina að hann þurfí að greiða 60 miHjónir króna úr eigin vasa, gangi hann til liðs við enskt félag á ný. Sigurður hefur af og til verið orðaður við Stoke á undanfömum vikum en það verður að teljast afar ólíklegt að hann gangi til liðs við Guðjón Þórðarson og félaga. Þegar Sigurður hætti hjá Arsenal vegna meiðsla árið 1991 var talið að ferill hans væri á enda og enskt trygg- ingafélag greiddi honum 60 milþ'- ónir króna í bætur. Greiðslunni fylgdi það ákvæði að ef hann gengi síðar til liðs við enskt félag þyrfti hann eða það að endurgreiða þessa upphæð. „Ég geri mér grein fyrir því að ég stend í þakkarskuld við liðið og Paul Sturrock framkvæmdastjóra sem hefur sýnt mér mikið traust." Hugsanlegur vendipunktur á Highbury ARSENAL kann að hafa snúið taflinu sér í hag í baráttunni um enska meistaratitilinn með sannfærandi sigri á Sunderland, 4:1, á heimavelli sínum á Highbury á laugardag. Liðið er í þriðja sæti úrvalsdeildar með 43 stig, líkt og Englandsmeistarar Manchest- er United, sem hafa þó leikið þremur leikjum færra. Leeds er í efsta sæti, einu stigi á undan Arsenal og Manchester United. Mörk Arsenal komu frá framherjunum Thierry Henry frá Frakk- landi og Króatanum Davor Suker. Peter Cork Guðjón vill hafa Kippe til vorsins GUÐJÓN Þórðarson, knatt- spyrnusljóri Stoke City, ætlar að freista þess að fá lánssamn- inginn við norska vamarmann- inn Frode Kippe frá Liverpool framlengdan til vorsins. Guðjón fékk Kippe lánaðan í einn mánuð og samkvæmt því leikur sá norski síðasta leik sinn um næstu helgi þegar Stoke mætir Millwall. „Kippe hefúr staðið sig vel með okkur og ég vona að Ger- ard Houllier fari að ósk okkar. Það yrði hagstætt fyrir báða aðila því við munum skila hon- um aftur til Liverpool sem betri leikmanni. Kippe skoraði gott mark gegn Preston á föstudag en ég vona bara að hann spili ekki of vel svo að Houllier heimti hann ekki strax til baka,“ sagði Guðjón við staðarblaðið The Sentinel í gær. Þótt vamarmenn Liverpool gripu oft til örþrifaráða til að stöðva Heiðar, missti hann aldrei sjónar á boltanum. Arsene Wenger, knattspymu- stjóri Arsenal, segir að lið sitt hafi látið hendur standa framúr ermum, ef þannig má að orði kom- ast, eftir að hafa tapað fyrir Co- ventry á dögunum. „Éftir þann leik sagði ég að það væri óviðeigandi að ræða um titilvonir, því frammistaða okkar í þeirri viðureign gaf ekki til kynna að við værum líklegir til að hreppa hnossið," sagði Wenger. „Síðan þá höfum við leikið allvel, bæði gegn Leeds og nú gegn Sund- erland.“ Króatinn Davor Suker, sem var sá eini sem gladdi augað í liði Ar- senal er það tapaði fyrir Coventry er hann gerði glæsilegt mark, var við sama heygarðshomið á laugar- dag. Eftir að félagi hans Henry hafði brotið ísinn skoraði Suker annað mark Arsenal með glæsi- brag. Boltinn barst til hans skammt utan vinstra vítateigshomsins, þar sem Suker tók boltann á lofti, við- stöðulaust með vinstri fæti og fór skot hans í fögmm boga í fjær- stöngina og inn. Fimm mínútum síðar skoraði hann af stuttu færi eftir sendingu Henrys. Nú styttist í viðureign erkifjend- anna, Arsenal og Manchester Unit- ed, á Old Trafford í Manchester, en hún fer fram hinn 24. janúar nk. „Það verður enn einn lykilleikur fyrir okkur. Við vitum, af því einu að líta á stöðuna í deildinni, að Man- chester United stendur betur að vígi því það á þrjá leiki til góða. Þess vegna munum við kappkosta að knýja fram sigur í leiknum," seg- ir Arsene Wenger, knattspymu- stjóri Arsenal. Chelsea dregst enn aftur úr Með sigri hefði Sunderland kom- ist í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar, en verður þess í stað að gera sér hið fimmta að góðu, sem þó er ríflega viðunandi af nýliðum að vera. Liðið er tveimur stigum á undan Chelsea, sem tekið var til greina sem meist- Króatinn Davor Suker gerði sannkallað glæsimark fyrir Arsenal í sannfærandi sígri á Sunderland á laugardag. Reuters araefni í haust. Félagið bar enn og aftur skarðan hlut frá borði um helgina. í þetta sinn auðnaðist lið- inu rétt að knýja fram jafntefli við Leicester, lið Amars Gunnlaugs- sonar, á Stamford Bridge í Lund- únum. Dennis Wise reyndist liði sínu enn dýrmætur er hann gerði jöfnunarmarkið fimm mínútum fyi-- ir leikslok eftir að vamarmaðurinn Gerry Taggart hafði komið Leicester yfir undir lok fyrri hálf- leiks. Italinn Gianfranco Zola lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Wise, sem skoraði með skalla. í kjölfarið hóf Chelsea leiftursókn að marki Leicester. M.a. heimtaði Frakkinn Frank Lebouef vítaspymu, en varð ekki að ósk sinni, leikmönnum og aðstandendum Leicester til mikill- ar gleði. Vænlegasta staða Newcastle í vetur Newcastle, liðið sem Bobby Robson tók við er Hollendingnum Ruud Gullit var sagt upp störfum í haust, hefur aldrei verið jafn ofar- lega í deildinni á yfirstandandi keppnistímabili og einmitt nú, eftir að hafa kjöldregið Southampton, 5:0, á St. James’s Park í Newcastle á sunnudag. Er rúmar þrjár mínút- ur vom liðnar af leiknum hafði Skotinn Duncan Ferguson þegar gert tvö mörk. Þannig gaf hann tóninn. „Við megum ekki ofmetnast. Við fómm bara upp um tvö sæti og gleðjumst vitaskuld yfir því,“ sagði Bobby Robson, gamalreyndur knattspyrnustjóri Newcastle. „Við eigum erfiða leiki í vændum; gegn Wimbledon og Sunderland á úti- velli auk Blackbum, sem er raunar bikarleikur, og Manchester United* á heimavelli. Við ræddum því allir um mikilvægi þess að ná þremur stigum úr þessum leik til að tryggja okkur sómasamlega stöðu í náinni framtíð, því við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Hlut- skipti okkar getur breyst í einni svipan." Burton valdur að vaxandi óánægju með Robson Newcastle skaust upp fyrii- ná- granna sína í Middlesbrough, sem tapaði fyrir lágt skrifuðu liði Derby County, 4:1, á heimavelli. Kyndir það enn undir umræðu þess efnis að Bryan Robson, knattspyrnust- jóri Middlesbrough, sé á fömm ffá - félaginu, en stuðningsmenn félags- ins hafa margir hverjir krafist þess sökum óviðunandi árangurs. Paul Ince, fyrirliði liðsins, tók upp hanskann fyrir stjóra sinn eftir tap- ið. „Ég kenni í brjósti um Robson- .Hann var ein helsta ástæða þess að ég kom hingað. Mér fellur þungt að heyra stuðningsmenn leggja til að hann ætti að fara. Sökinni er ávallt skellt á stjórana. Leikmennirnir verða einnig að bera ábyrgð. Það emm við, sem töpum leikjunum," sagði Ince. Tvítugur piltur, Malcolm Christ- ie, gerði tvö marka Derby í fram- raun sinni í úrvalsdeild, en hann var keyptur af utandeildarliðinu Nuneaton Borough fyrir tæpar sex milljónir ki-óna. Að auki lagði Christie upp annað mark Derby, sem Deon Burton skoraði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.