Morgunblaðið - 18.01.2000, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 18.01.2000, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SKIÐI ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 C 5 Reuters KJETIL Andre Aamodtfrá Noregi vann fyrsta svigmótið á tíu ára keppnisferli á sunnudaginn, en áður hafði hann sigrað í hinum fjóru alpagreinunum. Hér er hann í síðari umferðinni þar sem hann tryggði sér sigurinn í Wengen. Aamodt skráði nafn sitt í sögubækumar NORÐMAÐURINN Kjetil André Aamodt náði að skrá nafn sitt á spjöld sögunnar með því að sigra i svigi heimsbikarsins í Wengen á sunnudaginn. Hann gerði það sem aðeins þremur öðrum hefur tekist, að státa af sigri i öllum fimm greinum heimsbikarsins, svigi, stórsvigi, risasvigi, bruni og tvíkeppni. Hinir sem leikið hafa þetta eftir eru Pirmin Zurbriggen, Marc Girardelli og Gunther Mader, sem allir hafa lagt skíðin á hilluna. Aamodt hafði lengi beðið eftir sigrinum í svigkeppni heims- bikarsins og hafði því ástæðu til að fagna í Wengen. „Það hefur verið markmið hjá mér frá því ég byrjaði að keppa í heims- bikarnum fyrir tíu pa/a arum að sigra í oll- Jónatansson um greinunum. Eg er því mjög ánægð- ur að markmiðinu skuli nú loks vera náð. Það var líka frábært að sigra hér í Wengen því þar fer ávallt erfiðasta svig- keppnin fram,“ sagði Aamodt eftir keppnina á sunnu- daginn. Svigið í Wengen er það erfiðasta í heimsbikamum að margra mati vegna þess að brekkan er mjög margbreyti- leg. Hún er mjög brött á köflum og hólar í henni þannig að það reynir mjög á hæfni skíða- mannsins, sem þarf oft að breyta um stöðu á skíðunum. Norðmenn höfðu ástæðu til að gleðj- ast því þeir áttu menn í tveimur efstu sætunum. Ole Christian Fumseth varð annar á eftir Aamodt og Slóven- inn Drago Grubelnik þriðji. „Ég get ekki annað en glaðst yfir sigri Aamodts. Hann átti þetta svo sannarlega skilið," sagði Furuseth. „Hann er einn besti og fjölhæfasti skíðamaður sem uppi hefur verið.“ Slóveninn Grubelnik, sem var með rásnúmer 22, var í sjöunda himni með þriðja sætið. „Þetta er án efa stærsti dagurinn á ferlinum. Ég skipti um skíði fyrir nokkrum dögum, fór á styttri og þau eiga greinilega vel við mig.“ Annar ung- ur Slóveni, Matjaz Vrhovnik, varð í fjórða sæti og Pólverjinn Andrzej Bachleda kom mest á óvart í keppninni með því að ná fimmta sæti. Það er besti árangur hans frá upphafi, enda var hann með rásn- úmer 44 á sunnudaginn. Hann er sonur Andrejs Bachledas sem vann heimsbikarmót í svigi árið 1972. Keppnin á sunnudag var spenn- andi. Slóveninn Jure Kosir var með rásnúmer eitt í fyrri umferð og náði langbesta tíma allra kepp- enda, var hálfri sekúndu á undan Norðmanninum, Hans Petter Buraas, sem var með næstbesta tí- mann. Furuseth og Aamodt komu þar á eftir og Drago Grubelnik fimmti. Svigmeistararnir, Thomas Stangassinger og Finn Christian Jagge, náðu sér ekki alveg á strik og voru jafnir í ellefta sæti, 1,4 sek á eftir Kosir. Bestum tíma allra keppenda í síðari umferð náði Sacha Gros frá Bandaríkjunum, en hann var með 29. besta tímann eftir fyrri um- ferðina. Hann endaði í 10. sæti sem er besti árangur hans. Kristinn Björnsson var með betri millitíma en Gros þegar hann fór niður í síð- ari umferð og allt útlit fyrir að hann slægi tíma hans út þegar hann varð fyrir því óláni að kross- leggja skíðin þegar hann átti að- eins sex hlið eftir í markið. Aamodt sýndi það í síðari um- ferðinni úr hverju hann er gerður. Hann keyrði mjög ákveðið og ætl- aði sér allt eða ekkert. Náði besta samanlögðum tíma þegar þrír bestu úr fyrri umferðinni áttu eftir að renna sér niður. Furuseth kom næstur og náði öðru sæti og þá voru aðeins eftir Buraas og Kosir. Buraas tók enga áhættu enda brautin orðin slæm á köflum, kom í mark á rúmlega sekúndu lakari tíma en Aamodt. Kosir, sem hafði 0,73 sek. í forskot á Aamodt eftir fyrri umferð tapaði forskotinu nið- ur strax í miðri braut og varð að gera sér 9. sætið að góðu. Von- brigði hans voru gríðaiieg, en gleði Norðmannsins að sama skapi mik- il. Kristinn Björnsson, skíðakappi frá Ólafsfirði, féll úr keppni í síðari umferð svigsins í Wengen í Sviss á sunnudag. Hann krosslagði skíðin þegar hann átti nokkur hlið ófarin í endamarkið. Hann var með rásnúmer 20 í fyrri umferð og hefur hann því náð að hækka sig upp um 24 sæti á ráslistanum frá því í fyrsta mótinu í Beaver Creek í Bandaríkjunum í nóvember. Hann fór niður fyrri umferðina af öryggi, enda brautin erfið og krefjandi. Markmið hans var að tryggja sér þátttökurétt meðal þeirra þrjátíu sem fá að fara síðari umferðina. Það gerði hann með því að ná 19. besta tíma allra í fyrri umferð. Kristinn fór ellefti í rásröðinni niður brautina í síðari umferð og fékk þvi góða braut. Hann keyrði niður af krafti og sjálfstraustið skein úr andliti hans. Millitími hans lofaði góðu, var um hálfri sek- úndu betri en hjá Bandaríkjamann- inum Sacha Gross sem var með mm FOLK ■ KRISTINN Björnsson er í 11. sæti í stigakeppni heimsbikarsins í svigi eftir mótið í Wengen á sunnu- dag. Hann er í 33. sæti í heildar- stigakeppninni, næstur á undan Markusi Eberle, Þýskalandi. ■ BENJAMIN Raich frá Austur- ríki, sem sigraði í sviginu í Wengen í fyrra, gat ekki tekið þátt í keppn- inni á sunnudag vegna flensu. Hann verður með í sviginu í Kitzbuhel næsta sunnudag. ■ FINN Christian Jagge, svig- kappi frá Noregi, varð að keppa á lánsskíðum í Wengen. Astæðan var sú að skíðunum hans var stolið kvöldið fyrir keppnina. Jagge náði sér ekki á strik í keppninni og end- aði í 16. sæti. ■ THOMAS Stangassinger, heims- bikarhafi í svigi frá Austurríki, hafnaði í 25. sæti í sviginu í Wengen eftir að hafa verið með 11. tímann eftir fyrri umferð. Hann missti tak- ið á báðum skíðastöfunum í rás- markinu í síðari umferðinni og það tók hann þrjú hlið að ná taki á þeim aftur. Við þetta missti hann einbeit- inguna og var ekki líkur sjálfum sér, enda var hann þremur sekúnd- um á eftir Sacha Gross frá Banda- ríkjunum, sem náði besta brautar- tímanum í síðari umferðinni. ■ ED Podivinsky frá Kanada varð þriði í bruninu í Wengen á laugar- dag, á eftir Josef Strobel og Her- manni Maier. Podivinsky er fyrsti Kanadamaðurinn til að komast á pall í heimsbikarnum síðan Steve Podborksi varð annar í bruni 1983. ■ PETER Rzehak frá Austurríki • féll illa í bruninu á laugardag. Hann er með slitin liðbönd í hné og verð- ur ekki meira með í vetur. Romina Dei Cas frá Ítalíu datt í bruni kvenna í Altenmarkt í Austurriki á laugardag og verður frá vegna hnémeiðsla það sem eftir er tíma- bilsins. ■ CORINNE Rey Bellet frá Sviss sigraði í bruni kvenna og var þetta fyrsti sigur hennar í rúmt ár. Hún meiddist undir lok síðasta keppn- istímabils og er nýbyrjuð að keppa aftur eftir það. ■ RENATE Götshl, heimsmeistari í bruni frá Austurríki, sigraði í risasvigi heimsbikarsins í Alten- markt á sunnudag. Þetta var fyi'sti sigur hennar í vetur. Önnur var landi hennar, Tanja Schneider. besta tímann þegar þar var komið sögu. Þegar Kristinn átti aðeins sex hlið eftir ófarin í markið, færð- ist jafnvægispunktur hans aftar á skíðin og við það krosslagði hann framenda skíðanna og fór út úr brautinni. Þar með var keppni hans lokið að þessu sinni og vonbrigðin leyndu sér ekki í andliti hans. Aðeins 42 keppendur af 62 sem hófu keppni náðu að komast í gegn- um fyrri umferð svigsins. I síðari umferð féllu aðeins fjórir keppend- ur úr keppni, þeir Andrej Miklavc, Slóveníu og Austurríkismennirnir Mario Matt og Heinz Schilchegger, auk Kristins. Ólafsfirðingurinn færðist við þetta niður um tvö sæti í stiga- keppni svigsins, er nú í ellefta sæti með sín 103 stig. Aamodt tók hins vegar forystuna af Thomasi Stang- assinger, hefur nú 294 stig. Sjötta svigmót heimsbikarsins fer fram í Kitzbúhel í Austuiríki næsta sunnudag og þar verður Kristinn meðal keppenda. Kjetil Andre Aa- modt Aldur: 29 ára, fæddur 2.91971 í Ósló. Heimsbikarsigrar: 17 alls. Brun: Cha- monix ’94, risasvig: Aspen ’92 og ’93, Kvit- fjell ’93, Are ’93, Lillehammer ’96. Stór- svig: Sestriere ’93, Oppdal ’93, Are ’93, Hinterstoder ’94, Vail ’94, Adelboden ’97. Svig: Wengen ’OO. Tvíkeppni: Chamonix ’94 og '00, Kitzbuhel ’98 og ’99. Heimsbikarmeistari: 1994. Ólympíuleikar: Gull í risasvigi og brons í stórsvigi 1992, silfur í bruni og tvíkeppni og brons í risasvigi 1994. Heimsmeistaramót: Silfur í stórsvigi 1991, gull í svigi og stórsvigi og silfur í tvíkeppni 1993. Brons í risasvigi 1996. Gull í tvíkeppni 1997. Gull í tvíkeppni og brons í bruni 1999. Einn af fjórum skíðamönnum sem hafa unnið í öllum fímm alpagreinunum í heimsbikarnum. Kristinn úr leik í Wengen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.