Morgunblaðið - 25.01.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.01.2000, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Vala með Ragnar i Stjömuna RAGNAR Árnason er genglnn til liðs við úrvalsdeildarlið Stjöm- unnar í knattspymu eftir skamma viðdvöl hjá IA og var gengið frá félagaskiptunum um helgina. Ragnar, sem er 24 ára og hefúr leikið flestar stöður á vellinum, fór frá Stjömunni til Bryne í Noregi á miðju sumri 1998 en kom aftur heim síðasta sumar og gekk þá í raðir Skagamanna. Hann lék 7 leiki með þeim í úrvals- deildinni en hafði áður spiiað 42 leiki í efstu deild með Sljöm- unm FRJALSIÞROTTIR farseðil áOLí Sydney VALA Flosadóttir, stangarstökkvari úr ÍR og íslands- og Norður- landamethafi í greininni innanhúss og utan, hefur náð lágmarki til þátttöku á Ólympíuleikunum í Sydney sem fram fara í septem ber. Er hún fyrst íslenskra frjálsíþróttamanna til þess að tryggja sér farseðilinn á Ólympíuleikana. Hann tryggði hún sér með því að stökkva 4,30 metra á alþjóðlegu stökkmóti í Zwibrúcken í Þýskalandi á föstudag. A-lágmark Alþjóða frjálsíþrótta- sambandsins fyrir leikana í stangarstökki kvenna er 4,30 metrar ogskiptir þá engu máli hvort árangrinum er náð innanhúss eða ut- an, því hægt er að ná lágmarkinu í stökkgreinum og kúluvarpi fyrir leikana hvort heldur er innandyra eða utan, aðeins að um viðurkennt mót sé að ræða. B-lágmarkið í stang- arstökki kvenna er 4,20 en þar sem Vala hefur náð A-lágmarkinu nægir það t.d. ekki Þóreyju Eddu Elísdótt- ir að stökkva yfir B-lágmarkið því eftir að einn keppandi frá hverju landi hefur náð A-lágmarki er ekki leyfilegt að senda annan keppanda með B-Iágmark. Hins vegar má senda allt að þrjá keppendur í hveija grein sem náð hafa A-lágmarki. Sigurður Haraldsson, sem sæti á í landsliðsnefnd Frjálsíþróttasam- bands Islands, staðfesti í gær að ár- angur Völu í Zweibriicken yrði við- urkenndur af landsliðsnefnd enda færi nefndin eftir þeim reglum sem lágmörkum sem Alþjóða frjáls- íþróttasambandið, IAAF, hefði sett að því undanskildu að árangur yfir- standandi árs yrði aðeins viður- kenndur en ekki árangur sl. árs eins og IAAF telur nægjanlegt. Þar með hafa tveir íslendingar tryggt sér keppnisrétt á Ólympíu- leikunum að öllu forfallalausu því auk Völu hafði Rúnar Alexanders- son, Gerplu, náð tilskildum árangri á HM í fimleikum á síðasta ári. Vala er nú sem stendur í 3.-6. sæti heimsafrekalista ársins í stangar- stökki kvenna innanhúss með 4,30. Efst er Daniela Bartova, Tékklandi, með 4,40, og Christine Adams, Þýsklandi, er önnur með 4,32 metra. Báðar náðu þær þessum árangri á móti í Zindelfingen á laugardag. Annars er keppnistímabilið nýhafið innanhúss og ekki skýr mynd komin á afrekalista þar sem nokkrar þær bestu í greininni hafa ekki tekið þátt Morgunblaðið/Sverrir Vala Flosadóttir stangarstökkvari er fyrsti íslenski frjálsíþróttamaðurinn til að tryggja sér farseðilinn á Ólympíuleikana í Sydney. í mótum enn ellegar eru ekki komnar í fullkomna æfingu. Byrjunin lofar hins vegar góður hjá Völu, sem ekki hefur náð viðlíka árangri og nú svo snemma keppnistímabils. Evrópum- eistaramótið innanhúss verður í Gent í Belgíu síðustu helgi febrúar- mánaðar. HANDKNATTLEIKUR Jón Amar reynir við EM-lágmark í Eistlandi JÓN Arnar Magnússon, ís- lands- og Norðurlandamethafi í sjöþraut, þarf að ná a.m.k. 5.800 stigum í sjöþrautar- keppni i Eistlandi um næstu helgi til þess að komast á Evrépumeistaramútið innan- húss í Gent i næsta mánuði. Engin sérstök lágmörk eru til keppni á EM, nema i sjöþraut karla og fimmtarþraut kvenna. Þar eru settar kröfur um lágm- arksárangur. Samkvæmt upplýsingum á lieimasiðu Frjálsíþróttasam- bands Evrópu, EAA, verða að- eins fimmtán keppendur í hvorri grein. Þegar hefur níu efstu körlum og konum á af- rekslista Evrópu í tugþraut karla og sjöþrautarkvenna ut- anhúss frá síðasta sumri verið boðið á mótið auk eins heima- manns í hverri grein. Þessu til viðbótar verða fimm hæstu iþróttamenn á Evrópulistanum í sjöþraut karla og fimmtar- þraut kvenna veittur réttur til keppni. Verður þá tekið mið af listanum 16. febrúar, tíu dög- um fyrir mótið. Jón Arnar náði ekki að Ijúka einni tugþrautarkeppni sl. sumar og því er hann ekki í þessum niu manna hópi sem þegar hefur verið boðið til mótsins en þeir eru í sjöþraut karla; Tomas Dvorák, Tékk- landi, Erki Nool, Eistlandi, Roman Sebrle, Tékklandi, Seb- astian Levicq, Frakklandi, Att- ila Zsivotzky, Ungveijalandi, Chiel Warners, Hollandi, Francisco Javier Benet, Spáni, Wilfrid Boulineau, Frakklandi og Henrik Dagard, Svíþjóð. Bretinn Mike Mazey, sem varð m.a. silfurverðlaunahafi á HM í fyrra hefur afþakkað þátttöku þar sem hann hyggst einbeita sér að keppni í tugþraut og undirbúningi fyrir Ólympíu- leikana. Til þess að freista þess að vinna sér keppnisrétt á EM ætlar Jón Arnar að taka þátt í sjöþraut á alþjóðlegu boðsmóti tugþrautarmannsins Erki Nool, í Riga í Eistlandi um næstu helgi. Liklegt má telja að Jóni nægi að fá 5.800 til 5.900 stig til þess að tryggja sér farseðil- inn til EM í Gent. Islandsmet hans í sjöþraut er 6.293 stig, sett á HM innanhúss f Japan i mars í fyrra. Gummersbach sleit viðræðum við Wuppertal Gummersbach sleit óvænt við- ræðum um sameininguna við Wuppertal á laugardag. Stjóm Wuppertal hélt á sunnudag blaða- mannafund þar sem hún lýsti óánægju sinni með framkomu for- ráðamanna Gummersbach. Sam- kvæmt yfirlýsingu Wuppertal var samningur félaganna nær því frá- genginn er símtal barst frá stuðn- ingsaðila Gummersbach SMM, þar sem tilkynnt var um viðræðuslit. Samkvæmt samkomulaginu átti hið sameinaða félag að bera nafnið HC Wuppertal og átti Wuppertal að sækja um leyfið til að leika í efstu deild en Gummersbach átti að taka sæti í annarri deild og jafn- framt átti að byggja upp handbolta- skóla í Gummersbach. Þá var ákveðið að Amo Ehret yrði þjálfari liðsins og jafnframt var ljóst að flestir þeirra leikmanna sem leika hjá Wuppertal voru ekki inni í mynd- inni í framtíðaráætlunum hans. Jafn- framt áttu allir leikir að fara fram í Uni-Halle í Wuppertal. Fyrirtækin sem stóðu að þessari áætlun höfðu gert samkomulag til 5 ára, þar sem hvor aðili legði fram 120 milljónir króna á ári. Það er líklegt að gamla og nýja stuðningsmenn Gummersbach hafi rekið í vörðumar þegar þessar áætlanir sáu dagsins ljós. Það átti nefnilega að leggja Gummersbach niður og flytja allt hafurtaskið til Wuppertal. Stuðn- ingsaðili Gummersbach SMM segir að hinar sterku raddir gegn samein- ingu hafi skaðað fyrirtækið og er nú talið að SMM dragi sig alfarið frá öll- um stuðningi við Gummersbach. Forráðamenn Wuppertal segjast nú munu halda ótrauðir áfram og sækja um keppnisleyfi fyrir næsta ár en fresturinn rennur út 1. febr- úar. Forráðamenn Gummersbach létu ekld ná í sig í gær og ljóst að þeir eiga ekki sjö dagana sæla þegar fólk- ið í Gummersbach fer að krefja þá svara við því hvemig þeim datt í hug að gera slíkan samning um endalok Gummersbach, ef þetta er þá rétt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.