Morgunblaðið - 25.01.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 B 9
EM í KRÓATÍU
JÍ1Í1
tmönnunum Igor Lavrov og Lev Voronin og skorar.
Morgunblaðið/Ásdís
® Landslið Danmerkur
í EM 2000 í Króatíu
Nr. Leikmaður
Þjálfari: Leif Christian Mikkelsen
Lið
Lands- Mörk
leikir Mörk í leik
1 Kasper Hvidt Ademar Leon, Spáni 38 0 0
■£ CG 12 Sören H. Andreasen SG Flensburg, Þýskalandi 73 0 0
£ 16 Sune Agerschou G.O.G. Gudme, Danm. 4 0 0
2 Morten Bjerre SG Flensburg, Þýskalandi 118 319 2,70
3 Lars Krogh Jeppesen Team Helsinge, Danm. 24 60 2,50
5 lan Marko Fog Vfl Gummersbach, Þýs. 112 254 2,27
6 Lars T. Jörgensen HK Roar, Danmörku 11 8 0,73
c o 7 Nikolaj B. Jacobsen THW Kiel, Þýskalandi 115 455 3,96
J 8 Keld Vilhelmsen G.O.G. Gudme, Danm. 66 50 0,76
‘o 9 Lars Christiansen SG Flensburg, Þýskalandi 95 400 4,21
hm 10 Joachim Boldsen TV Grosswallstadt, Þýs. 29 28 0,97
*o 13 Claus Flensborg Kolding IF, Danmörku 39 33 0,85
14 Michael V. Knudsen Viborg HK, Danmörku 5 13 2,60
15 Jan Paulsen US Ivry, Frakklandi 67 115 1,72
17 SörenStryger G.O.G. Gudme, Danm. 26 61 2,35
18 Christian Hjermind SG Flensburg, Þýskalandi 84 345 4,11
Valdimar Grímsson rauf 900 marka múrinn í Rijeka
Sorglegt
aðnáekki
aðiafna
ValurB.
Jónatansson
skrifar
frá Rijeka
VALDIMAR Grímsson átti mögu-
leika á að jafna leikinn gegn
Rússum en misnotaði dauða-
færi úr hraðaupphlaupi þegar
25 sekúndur voru eftir í stöð-
unni 24:23.
Það er sorglegt að kasta frá sér
stiginu svona. En það þýðir
ekkert að grenja yfír því. Það
kemur nýr leikur
eftir þennan og þá
kem ég endur-
nærður og hress og
ætla að sýna að ég
get skorað úr
svona færum,“ sagði Valdimar.
Varstu ákveðinn í að setja bolt-
anrt í hægra hornið efst?
„Nei, ég var ekki búinn að
ákveða neitt fyrirfram. Ég og
Lovrov þekkjumst vel. Þvi miður
náði hann að plata mig að þessu
sinni. Hann steig yfir í hægri fót-
inn eins og hann væri að fylgja
mér, en stökk síðan til baka og var
mættur í það vinstra. Hann varði í
raun ekkert annað pláss í markinu
en þar sem ég skaut. Þetta var
einvígi okkar og hann hafði betur.“
Það var allt annað að sjá til liðs-
ins en í hinum tveimur, á móti
Portúgalog Svíum. Hver er skýr-
ingin á því?
„Það var allt annað andrúmsloft
í liðinu í þessum leik. Menn voru
búnir að hafa á orði að það vantaði
þennan íslenska eldmóð í fyrstu
tveimur leikjum. Við ræddum mál-
in og við vorum ákveðnir í að sýna
að það er enn til kraftur í okkur.
Það er engin spurning að það sást
í þessum leik. Sjálfstraustið kom í
þessum leik og á eftir að hjálpa
okkur í leikjunum sem eftir eru.
Nú er bara að krossleggja fingur
og klára Dani og Slóvena og spyrja
síðan að leikslokum hvort það skili
okkur í það sæti sem við stefndum
að í upphafi móts.“
Valdimar yfir 900 marka múrinn
Þeir hafa skorað flest mörk fyrir ísland
Lelkmaður
Kristján Arason
Valdimar Grímsson
Sigurður V. Sveinsson
Júlíus Jónasson
Þorgils Óttar Mathiesen
Alfreð Gíslason
Bjarki Sigurðsson
Geir Hallsteinsson Mrfctá
Geir Sveinsson JSÚljM
Sigurður GunnarssonHH
Þú getur ekki verið ánægður
með þessi þrjú töp í jafnmörgum
leikjum?
„Nei, ég er aldrei ánægður með
tap. Ég var hálfsvekktur yfir því
hvað leikmenn voru daufir í fyrstu
tveimur leikjunum og gáfu sig ekki
100 prósent í þá. En í þessum leik
voru allir að gera sitt besta. Ég fór
þóglaðari af velli í þessum leik en í
hinum tveimur leikjunum, þó svo
að ég hafi misnotað síðasta skotið."
Hvers vegna var þetta mikla
slen yfir liðinu í fyrstu tveimur
leikjunum. Voru leikmenn ekki til-
búnir?
„Það er rosalega erfitt að gefa
skýringu á því. Við fórum í tiltölu-
lega stuttan undirbúning og spil-
uðum færri leiki en flest hinna lið-
anna. Viðvorum því ekki búnir að
stilla strengina nægilega vel í
fyrstu leikjunum. Þegar svo er,
kemur upp ákveðin óvissa, menn
fyllast óöryggi og sjálfstraustið
hverfur. Ég skal ekki leyna því að
undirbúningurinn hefði getað verið
meiri og betri, en það var lítið
hægt að gera við því. Við tryggð-
um okkur frekar seint þátttökurétt
í mótinu og þá voru flest öllliðin
búin að fastmóta sína æfingaáætl-
un fyrir mótið. Það var því erfitt
að fá æfingaleiki og við lentum að-
eins utangáttar í þessu. Það þýðir
ekkert að vera að hengja haus yfir
því, það er bara að stilla strengina
enn betur og koma tvíefldir í
næsta leik. Ef Guð og gæfan fylgir
okkur ættum við að geta tryggt
okkur sæti í næstu heimsmeistara-
keppni,“ sagði Valdimar.
Guðmundur Ingvarsson, formaður HSI, eftir fyrstu þrjá leikina í Króatíu
í naf laskoðun
Guðmundur Ingvarsson, for-
maður HSÍ og aðalfarar-
stjóri íslenska liðsins í Króatíu,
sagðist vera ánægður með bar-
áttuna í liðinu á móti Rússum.
„Ég held að liðið hafi sýnt það í
þessum leik hversu gott það get-
ur verið. Ég held að það sé komið
í gang núna og því bjart fram-
undan,“ sagði formaðurinn.
Hann sagði um gengi liðsins til
þessa á mótinu: „Það var nú varla
hægt að búast við sigri á Svíum í
fyrsta leik og ekkert óeðlilegt að
tapa fyrir þeim. Portúgalar eru á
bullandi siglingu og eru orðnir
mun sterkari en áður. Ég hefði
auðvitað viljað sjá sigur í þeim
leik, en það tókst því miður
ekki.“
Eru Islendingar að dragast
aftur úr öðrum þjóðum ?
„Ég veit það ekki. Menn verða
bara að fara í naflaskoðun þegar
mótið er búið og sjá hvar við
stöndum. Það má ekki gleyma því
að við erurn í keppni þeirra tólf
bestu í Evrópu. Við eigum Norð-
urlandameistara drengja og
stúlknaliðið var að taka þátt í
heimsmeistarakeppni. Við höfum
aldrei átt jafn marga atvinnu-
menn í handboltanum og núna.
Þannig að við erum að standa
okkur að einhverju leyti.“
Nú hefur það verið gagnrýnt
að liðið hafi ekki fengið nægilega
mikinn undirbúning fyrir
Evrópumótið. Hvað segir þú um
það?
„Það er ljóst að undirbúningur-
inn hefði mátt vera meiri og við
vildum hafa hann meiri. En und-
irbúningurinn takmarkast af pen-
ingum sem vantar verulega inn í
hreyfinguna. Það verða að koma
inn meiri peningar með einhverj-
um hætti. Við reyndum að fá
fleiri æfingaleiki, en það gekk
illa. Lið vilja ekki koma til ís-
lands vegna þess að það þykir
svo dýrt. Við gerðum allt sem í
okkar valdi stóð til að nýta þann
tíma sem við höfðum til að undir-
búa liðið. En hvort það er undir-
búningnum um að kenna að okk-
ur hefur ekki gengið betur á
mótinu veit ég ekki. Við skulum
spyrja að leikslokum hvernig
okkur gengur í keppninni. Það
eru ekki nema þrír leikir búnir.
Ég bind miklar vonir við þetta lið
alveg fram á síðustu stundu,“
sagði formaðurinn.
Kuðung-
urínn
kom ekki
að gagni
DAVÍÐ Björn Sigurðsson,
liðsstjóri íslenska landsliðs-
ins, er hjátrúafullur. Hann
var á gangi í miðbæ Opatija,
þar sem liðin gista, daginn
fyrir fyrsta leikinn í mótinu.
Davíð var stoppaður af
götusölumanni sem vildi
endilega selja honum kuð-
ung úr Adríahafinu, en
Davíð sagðist ekki hafa
áhuga. Eftir samtal þeirra
ákvað sölumaðurinn að gefa
liðsstjóranum litinn kuðung
sem átti að færa honum
lukku. Davíð ákvað að taka
kuðunginn með sér í fyrsta
leikinn, gegn Svíum, í von
um að hann færði íslenska
liðinu aukinn kraft.
„Ég sá að kuðungurinn
gagnaðist liðinu lítið gegn
Svíum og ákvað því að skilja
hann eftir á hótelinu þegar
við fórum í leikinn gegn
Portúgölum. En það breytti
því miður engu um gengi
strákanna okkar,“ sagði
Davíð.