Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 4
i B ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
M0RGUN3LAÐIÐ
EM í KRÓATÍU
Garcia ánægður
Dagur Sigurðsson
Dómgæslan
varð okkur
að falli
ÞORBJÖRN Jensson, þjálfari ís-
lenska liðsins, sagði spænsku dóm-
arana hafa gert íslenska liðinu lífið
leitt og hafi ekkiverið hlutlausir í
dómum sínum. „Ég get ekki annað
en undrast þá ákvörðun dómara-
nefndar mótsins að láta spænska
dómara dæma þennan leik þar sem
landi þeirra stjórnar öðru liðinu.
Ef ég væri þjálfari hjá öðru lands-
liði en því íslenska yrði ég mjög
ánægður ef ég fengi íslenska dóm-
ara. Þetta er til skammar fyrir þá
sem raða dómurum niður á leik-
ina,“ sagði Þorbjöm á blaða-
mannafundi eftir leikinn. Hann
bætti því við, að þrátt fyrir að
dómgæslan hallaði á sitt lið hefði
portúgalska liðið verið betra í
þessum leik og verðskuldaði sigur.
Spænski þjálfarinn Garcia var
spurður hvort hann viidi svara
þessum ummælum Þorbjörns um
dómara, en hann sagðist ekki
leggja það í vana sinn að tjá sig um
dómara og léti það því ógert.
ánægðir með tvo fyrstu leikina,
sigur á Slóvönum og Islendingum
er meira en við þorðum að vona
áður en við komum hingað. Ætli
við getum ekki þakkað þetta góð-
um undirbúningi. Leikmennirnir
hafa allir lagst á eitt um að gera
sitt besta. Þeir fengu mikið sjálf-
straust eftir sigurinn á Slóvönum í
fyrsta leik,“ sagði þjálfarinn.
Dagur Sigurðsson, fyrirliði ís-
lenska liðsins, sagði að það
væri erfitt fyrir lið að leika þegar
það er oftast einum leikmanni færri
inn á vellinum. „Okkur var refsað
fyrir smavægileg brot meðan þeir
sluppu. Ég er ekki að segja að dóm-
aramir hafi ráðið úrslitum því við
vorum að leika illa á köflum. Mér
fannst við vera betri í fyrri hálfleik,
en fengum að fjúka allt of oft útaf.
Það er auðvitað áhyggjuefni. Brot-
in voru oft klaufaleg af okkar hálfu.
Við vorum að hanga aftan í mönn-
um sem við eigum frekar að láta
fara inn,“ sagði Dagur.
Þið áttuð líka í miklu basli ísókn-
arleiknum, að leysa inn á línu og
koma ykkur í skotfæri?
„Já, þeir spila mjög framariega
og við vorum í vandræðum. Við
reyndum að eysa inn og mér fannst
við fá ágæt færi út úr því, en við
vorum að láta verja frá okkur úr
dauðafærum."
Hefði ekki verið betra að hafa
tvo línumenn inni á í einu, t.d. Ró-
bert og Magnús Má?
„Nei, ég er ekki alveg viss um
það. Ég held að það geti verið
hættulegt að spila 4-2 á móti svona
vörn því þá er hægt að pressa báð-
ar skyttumar okkar og þá er erfitt
að fá sendingar út í homin. Mín til-
finning er sú að betra sé að hafa
miðjumann í sókn þó það sé á móti
framliggjandi vöm.“
Dagur sagðist hafa reiknað með
því fyrirfram að allir leikimir í
keppninni yrðu erfiðir, en þetta
hafi verið leikurinn sem hann hafi
gert sér mestar vonir um að vinna.
„Það gæti alveg eins farið svo að
við fæmm í gegnum mótið án þess
að fá stig. Þetta er erfiðara en
heimsmeistarakeppni að því
leytinu til að þú getur farið í
hvem leikinn á fætur öðmm og
kemst aldrei almennilega í gang
-færð aldrei þessa sigurtilfinningu
og þá er mjög erfitt að vinna sig út
úr því. Þessi slaki árangur hingað
til situr í okkur og það er ekkert
auðvelt að sofna á kvöldin eftir tap
og svo að spila annan leik strax
daginn eftir.“
Fyrir leikinn á móti Portúgal
hafði íslenska liðið aðeins æft einu
sinni, á fímmtudag, og sleppt að
æfa fyrstu tvo leikdagana. Er ekki
eðlilegt að æfa á morgnana eins og
hin liðin gera þegar spilað er á
kvöldin?
„Ég held að það sé ekkert atriði.
Svona smáatriði, að láta þennan
spila og þennan ekki spila, æfa ekki
eða æfa, borða klukkan fjögur en
ekki fimm. Þetta eru smáatriði sem
skipta ekki öllu máli þegar út í leik-
inn er komið. Ég held að við séum
að klikka handboltalega í stöðum
þar sem við erum ekki nægilega
klókir," sagði fyrirliðinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Það má sjá á svip Þorbjöms Jenssonar og Dags Sigurðssonar, þegar Þorbjörn tók leikhlé rétt fyrir
leikslok í leiknum gegn Portúgal, að þeir eru búnir að játa sig sigraða.
Versti ósigur
á stórmóti
HUGMYNDASNAUÐIR leikmenn íslands máttu sætta sig við tap
fyrir Portúgal í öðrum leik sínum í Evrópukeppninni, 25:28. Tapið
fyrir Portúgölum er einn versti skellur sem íslenskt landslið hef-
ur mátt þola á stórmóti. Þetta var annar sigur Portúgala á íslend-
ingum - þeir fögnuðu sigri í æfingaleik í Portúgal 1994.
Islensku strákarnir sögðu fyrir
leikinn að allt önnur og betri
stemmning væri í liðinu en fyrir
leikinn gegn Svíum. Sú stemmn-
ing var til staðar í
l/a/ur B. hyúun leiks, en
Jónatansson síðan kom í ljós að
skrifar leikur liðsins var
frá Rijeka hugmyndasnauður
í sókn og varnarleikurinn var lé-
legur.
Strákarnir náðu fljótlega væn-
legri stöðu, 5:2, þegar tíu mínút-
ur voru liðnar. Það var þá sem
leikmenn íslenska liðsins fóru að
gera ljót mistök - lína var dæmd
á Róbert Sighvatsson, Dagur Sig-
urðsson var rekinn af leikvelli og
síðan dæmdur ruðningur á Pat-
rek Jóhannesson og hann rekinn
af leikvelli. Portúgalar nýttu sér
þetta og voru búnir að jafna leik-
inn 7:7 áður en íslenska liðið átt-
aði sig. Jafnt var á með liðunum
næstu mínútur og náðu Portú-
galar eins marks forystu fyrir
leikhlé, 13:14.
Portúgalar gerðu tvö fyrstu
mörkin í síðari hálfleik eftir að
Patrekur hafði látið verja frá sér
í fyrstu sókn íslands og misst
boltann í þeirri næstu. _ Hann
skoraði síðan 14. mark íslands
þegar rúmar sex mínútur voru
liðnar, en mótherjarnir svöruðu
strax með tveimur og staðan þá
orðin 14:18. í örvæntingu sinni
reyndi íslenska liðið að klóra í
bakkann og þegar 17
mínútur voru eftir var staðan
18:21 og enn von. Þá kom lakasti
kafli liðsins í leiknum, gerði að-
eins tvö mörk á móti sex og þá
voru aðeins rúmar fimm mínútur
eftir. Tapið blasti við og þrátt
fyrir að Valdimar næði aðeins að
rétta hlut fslands með þremur
mörkum í röð var það of seint.
Portúgalar léku íslendinga
grátt og áttu þeir ekki í vandræð-
um með að fínna sér leið í gegn-
um vörn íslands. Fremstur í
flokki Portúgala var Carlos Res-
ende sem skoraði nánast þegar
hann vildi. Vörnin var allt of
svifasein gegn léttleikandi Portú-
gölum og leikmenn voru að
brjóta klaufalega af sér með því
að rífa aftan í andstæðinginn og
fengu að fjúka útaf fyrir það.
Sóknarleikur íslenska liðsins var
lengst af mjög hægvirkur og
náðu Portúgalar með sínum
framliggjandi varnarleik að
brjóta allt sóknarspil niður. Ur-
ræðaleysi íslenska liðsins var al-
gjört og því fór sem fór.
Valdimar var eini leikmaður
liðsins sem lagði sig fram í leikn-
um. Það segir ýmislegt um hina
leikmennina að Valdimar, sem
hefur fáa leiki leikið síðan í sept-
ember vegna meiðsla og er ekki
kominn í toppleikæfingu, var yf-
irburðamaður. Aðrir léku illa og
létu leikmenn Portúgala fara í
taugarnar á sér. Patrekur Jó-
hannesson var útilokaður frá
leiknum þegar hann fékk sína
þriðju brottvísun. Svo ráðþrota
voru leikmenn íslands að heims-
meistarar Svía, sem horfðu á
leikinn, gátu ekki annað en bros-
að.
„VIÐ lékum illa í fyrri hálfleik og
leikurinn var jafn. Islensku leik-
mennirnir gengu þá nokkuð hart
fram á móti okkur og voru grófir.
Við náðum að brjóta íslenska liðið
á bak aftur snemma í síðari hálf-
leik og náðum þá góðu forskoti,"
sagði Javier Cuesta Garcia,
spænski þjálfarinn hjá Portúgal.
„Við getum ekki annað en verið
Ísland-Portúgal 25:28
Rijeka, Evrópumótið í handknattleik - B-riðill, laugardaginn 23. jan-
úar 2000.
Gangur leiksins: 0:1, 5:2, 6:5, 7:7, 9:7,12:11,13:13,13:14. - 13:16,16:19,
18:21,19:23,20:27,24:27,25:28.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson 9/4, Ólafur Stefánsson 5, Patrekur
Jóhannesson 4, Gústaf Bjamason 2, Róbert Sighvatsson 2, Magnús Már
Þórðarson 2, Magnús Sigurðsson 1. Aðrir sem léku voru Dagur Sigurðs-
son, Sigurður Bjarnason og Rúnar Sigtryggsson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 12/1 (þar af 3/1 til mótherja).
Bergsveinn Bergsveinsson 3 (þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 14 mínútur. (Patrekur fékk sína þriðju brottvísun - rautt
spjald, þegar rúmar sjö mínútur voru til leiksloka.)
Mörk Portúgals: Carlos Resende 10/4, Filipe Cruz 6/2, Eduardo Coelho
4, Carlos Galambas 2, Victor Tsjioulaev 2, Rui Rocha 2, Ricardo Costa 1,
Mario Costa 1.
Varin skot: Paulo Morgado 10 (þar af 1 til mótherja). Sergio Morgado 1.
Utan vallar: 8 mín.
Dómarar: Ramoon Gellego og Viktor Pedro Lamas frá Spáni.
Áhorfendur: 1.500.
Þorbjöm
fann ekk-
ert svar
ÞORBJÖRN Jensson,
þjálfari landsliðsins,
horfði Qórum sinnum á
leik Portúgala og Sló-
vena á myndbandi fyrir
leikinn gegn Portúgal á
laugardaginn. Það dugði
ekki til því leikurinn tap-
aðist eins og sá fyrsti á
móti Svíum. Hann fann
ekki mótleik til að koma
Portúgölum á óvart og
því fór sem fór.
SOKNARNYTING
EM 2000
f Króatíu
Rijeka
22. jan.
Croaiúa
Portúgal
Mörk Sóknir % * Mörk Sóknir %
13 27 48 F.h 14 25 56
12 22 55 S.h 14 23 61
25 49 51 Alls 28 48 58
6 Langskot 12
1 Gegnumbrot 1
5 Hraðaupphlaup 3
5 Horn 3
4 Lína 3
4 Viti 6