Morgunblaðið - 02.02.2000, Síða 1
B L A Ð A L L R A L A N D SMA N N A
2000
■ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR
BLAÐ
Gummersbach
bjargað fyrir hom
GUMMERSBACH-aðdáendur geta andað létt-
ar um stund. Stórfyrirtækið SMM tilkynnti um
helgina að fyrirtækið myndi hjálpa Gummers-
bach áfram til loka þessa tímabils í hand-
knattleik og greiða ákveðna upphæð sem ætti
að duga til að bjarga rekstrinum fyrir hom.
Forráðamenn liðsins sögðu samt sem áður, að
allir yrðu að færa fórnir og að leikmenn yrðu
að gefa eftir hluta Iauna sinna svo endar næð-
ust saman. Þá sögðu stjórnendumir jafnframt
að þeir réra lífróður til að fínna nýja stuðn-
ingsaðila en þeir væm vandfundnir og viss
svartsýni ríkir um framhald næsta tímabil.
Þá er Amo Ehret, þjálfari liðsins, sagður
ákveðinn að fara til svissneska landsliðsins,
orðinn þreyttur á óvissunni og ráðleysinu öllu
sem einkennir Gummersbach um þessar mund-
ir.
Morgunblaðið/Kristinn
Stund milli stríða á La Manga á Spáni. Landsliðsmennirnir í knattspyrnu brugðu sér í golf í gær, en La Manga er mikil paradís fyrir
kylfinga. Hér eru þeir Helgi Kolviðsson, Tryggvi Guðmundsson og Rúnar Kristinsson að munda kylfurnar.
Essen vill
Pál áfram
FORRÁÐAMENN þýska 1.
deildarliðsins TUSEM Ess-
en hafa boðið Páli Þórólfs-
syni að Ieika áfram með lið-
inu næsta vetur. Samning-
ur Páls rennur út í vor en
hann hefur leikið með Iið-
inu undanfarin tvö ár. Páll
sagði í samtali við Morgun-
blaðið að félagið hefði lýst
áhuga á að hann yrði
áfram hjá því, en hann ætti
síður von á aðhann gerði
nýjan samning. „Ég hef
ekki leikið mikið með lið-
inu síðustu vikur og svo
gæti farið að ég færi eitt-
hvað annað. En hlutirnir
eru fljótir að breytast og ef
ég fengi fleiri tækifæri yrði
staðan kannski önnur í lok
tímabilsins.“ Páll sagði það
alveg koina til greina að
flytja aftur til Islands.
Páli bauðst að ganga til
liðs við TBV Lemgo, sem er
íþriðja sæti deildarinnar,
áður en frestur til að skipta
um félag rann út í janúar,
en samningar náðust ekki
milli liðsins og Essen, sem
er í áttunda sæti deildar-
innar. Patrekur Jóhannes-
son landsliðsmaður leikur
einnig með Essen.
Ein æfing
oggolf
Islenska landsliðið í knattspyrnu
tók lífinu með ró í gær enda voru
menn stífir og þreyttir eftir leikinn
við Norðmenn á mánudaginn. Tæp-
lega tveggja klukkustunda löng æf-
ing var í gærmorgun og síðan gaf
Atli leikmönnum frí fram að fundi
klukkan átta. Eftá æfinguna var far-
ið í mat og síðan fóru fjórir í golf;
Ríkharður Daðason, Rúnai- Kristins-
son, Helgi Kolviðsson og Tryggvi
Guðmundsson. Þeir léku einn af
þremur 18 holu golfvöllum á La
Manga-svæðinu. Nokkrir fóru á
vipp- og pútt-golfvöllinn og reyndu
fyrir sér í íþróttinni. Veðrið í gær var
með eindæmum gott, ríflega 20 stiga
hiti og aðeins andvari og nýttu menn
það, fóru í golf, spiluðu póker við
sundlaugina og þjálfararnir, Atli Eð-
valdsson og Guðmundur Hreiðars-
son, fóru í tennis með þeim Asgeiri
Sigurvinssyni og Gunnari Sverris-
syni sjúkraþjálfara.
Svo virtist sem öll liðin tækju líf-
inu með ró í gær því á golfvellinum
hittu íslensku „kylfingarnir" meðal
annars Bo Johansson, landsliðsþjálf-
ara Dana, sem virtist kunna þónokk-
uð fyrir sér. Alltént var upphafs-
höggið gott hjá honum. Færeyska
liðið lék minigolf og allir virtust
skemmta sér konunglega enda að-
stæður allar hinar bestu.
Fimm breytingar
á íslenska liðinu
ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur gert fimm
breytingar á byrjunarliðinu, sem mætir Finnum í dag á Norður-
landamótinu á La Manga á Spáni. Þeir Birkir Kristinsson, Arnar Þór
Viðarsson, Sverrir Sverrisson, Þórður Guðjónsson og Bjarki Gunn-
laugsson koma inn í liðið í stað Árna Gauts Arasonar, Auðuns
Helgasonar, Indriða Sigurðssonar, Sigurðar Arnar Jónssonar og
Tryggva Guðmundssonar sem léku gegn Noregi á mánudaginn.
Leikurinn við Finna er annar
leikur íslands á mótinu en lið-
ið gerði jafntefli 0:0 við Norðmenn.
Þá unnu Finnar sigur á Færeying-
um 1:0 og Svíar sigruðu Dani 1:0.
Byrjunarlið íslands verður skip-
að eftirtöldum leikmönnum:
Á milli stanganna stendur Birkir
Kristinsson. Varnarmenn eru Arn-
ar Þór Viðarsson, Hermann Hreið-
arsson, Pétur Hafliði Marteinsson
og Sverrir Sverrisson. Miðvallar-
leikmenn verða Bjarki Gunnlaugs-
son, Helgi Kolviðsson, Rúnar
Kristinsson og Þórður Guðjónsson.
Fremstir verða Heiðar Helguson
og Ríkharður Daðason.
Varamenn verða þeir Árni Gaut-
ur Arason, Tryggvi Guðmundsson,
Einar Þór Daníelsson, Sigurður
Örn Jónsson, Ólafur Örn Bjarna-
son, Haukur Ingi Guðnason og
Þórhallur Hinriksson. Þeir sem
hvíla í dag eru Auðun Helgason,
Bjarni Þorsteinsson, Sigþór Júlíus-
son og Indriði Sigurðsson, en þeir
tóku allir þátt í leiknum gegn
Norðmönnum.
Fyrsti leikur Bjarka í tvö ár
Bjarki Gunnlaugsson leikur í
dag sinn fyrsta landsleik í tvö ár.
Hann spilaði síðast gegn Slóvakíu á
Kýpur í febrúar 1998 og skoraði þá
mark Islands í 1:2 ósigri. Eftir
þann leik kom upp ósætti milli
hans og Guðjóns Þórðarsonar, þá-
verandi landsliðsþjálfara, og
Bjarki tilkynnti, að hann myndi
ekki leika framar undir stjórn Guð-
jóns.
Leikurinn hefst kl. 11.30 og
verður honum lýst beint á mbl.is.
Norðmenn mæta Dönum í dag og
Svíar leika við Færeyinga.
■ Ríkharðurfarinn.../C4
AUKIN SAMKEPPNI HJÁ GUÐMUNDI BENEDIKTSSYNI í GEEL/C3